Morgunblaðið - 04.06.2003, Síða 7

Morgunblaðið - 04.06.2003, Síða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 7 REYKINGAR miðaldra og eldri Ís- lendinga hafa minnkað og þá einkum reykingar karla. Þetta er ein af nið- urstöðum hóprannsóknar Hjarta- verndar, en læknarnir Nikulás Sig- fússon, Gunnar Sigurðsson og Vilmundur Guðnason hafa ásamt Helga Sigvaldasyni verkfræðingi gert umfangsmiklar rannsóknir á breytingum á reykingavenjum þessa hóps síðastliðin þrjátíu ár og ástæð- um þeirra. Þátttakendur komu úr fjórum hóprannsóknum Hjarta- verndar, sem framkvæmdar voru á árunum 1967–2001 og voru á aldrin- um 30–88 ára. Niðurstöður rannsókn- arinnar eru birtar í nýjasta hefti Læknablaðsins. „Það er athyglisverðast að reyking- arnar eru að minnka, að minnsta kosti hjá þessu fullorðna fólki sem við erum að rannsaka og sérstaklega á meðal karla,“ segir Nikulás og bendir jafn- framt á að konur virðist vera 10–15 árum á eftir körlum í breytingum á reykinga- venjum. Hann segir að tíðni sígrettureykinga sé meiri meðal kvenna en karla og sé það al- mennt svo á Vestur- löndum. Í öðrum lönd- um sé því hins vegar öfugt farið. „Við höfum verið að rannsaka fólk frá 30 ára aldri og upp úr. Reyk- ingar eru minni hjá eldra fólki en því yngra. Í greininni er saman- burður á milli all- margra landa, aðallega Evrópuþjóða, sem voru þátttakendur í svokallaðri MONICA-rannsókn Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og í ljós kemur að tíðni reykinga hjá ís- lenskum körlum er orðin mjög lág miðað við aðrar þjóðir. Aftur á móti eru reykingar hjá kon- um orðnar með þeim mestu sem gerist,“ bendir hann á. Hann segir að það gefi auga leið að leggja þurfi áherslu á það að konur dragi úr reykingum, þær séu meira vanda- mál hjá þeim en körlum. Kostnaður vó þyngra áður fyrr Að sögn Nikulásar byrjar fólk í dag fyrr að reykja en áður, en sömuleiðis hætti það fyrr. Algengast er að fólk hefji reykingar á aldrinum 18-20 ára og er það tveimur til þremur ár- um fyrr en á árum áður. „Það er erfitt að ráða í orsakir fyrir þessu. Við höf- um reynt að meta það svolítið hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á það þegar fólk breytir reykingavenjum, þær upplýsingar gætu auðvitað hjálp- að til í sambandi við forvarnir. Í þess- ari könnun var spurt um allmarga þætti sem hafa þýðingu fyrir að fólk hætti að reykja, en við vitum hins veg- ar lítið um það af hverju fólk byrjar að reykja,“ bætir hann við. Nikulás segir algengustu ástæður þess að fólk hætti að reykja vera ótta við heilsuspillandi áhrif þeirra, líkamleg einkenni tengd reykingum og kostnaður. „Kostnaður vó þyngra hér áður fyrr. Svo virðist sem um samspil sé að ræða á verðlagi og kaupmætti ráðstöfunartekna, kaupmáttur hefur aukist meira en verðið á sígarettum. Fólk hefur því frekar ráð á því að kaupa sígarettur nú heldur en áður fyrr.“ Í rannsókn- inni var reykingatíðnin skoðuð út frá skólagöngu fólks. „Í stuttu máli er það þannig að eftir því sem mennt- unin er meiri þeim mun minni reyk- ingar. Það gildir um bæði kynin.“ Hóprannsókn Hjartaverndar meðal miðaldra og eldri Íslendinga Konur seinni til en karlar að breyta reykingavenjum Nikulás Sigfússon HEIMSFERÐIR auglýstu á dög- unum beint flug milli Íslands og Napolí á Ítalíu með gistingu í hin- um sögufræga ferðamannabæ, Sorrento. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á beint flug til Napolí en það seldist upp í ferðina á einum degi. Heimsferðir hafa ákveðið að bregðast við eftirspurninni og hefja í dag sölu á aukaferð sem farin verður 30. september. Andri Már Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Heimsferða, segir eftirspurnina hafa farið fram úr björtustu vonum. „Þetta eru sögu- frægir staðir og þegar hægt er að bjóða upp á þetta á þessu verði er ákveðinn hópur sem hefur alltaf langað til að fara en aldrei komið sér af stað.“ Fleiri ferðir verða ekki farnar á þessu ári en Andri Már er bjart- sýnn á að Heimsferðir muni bjóða upp á flug til Napólí á næsta ári. Beint flug Heimsferða til Napolí Seldist upp á ein- um degi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.