Morgunblaðið - 04.06.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 04.06.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hann er að spyrja um umboðsmann hestsins, herra. Uppbyggingarstefna í skólastarfi Lífsgildismiðuð samskiptaleið UPPBYGGINGAR-og sjálfstjórnar-stefnan felst í því að kenna börnum að verða sínir eigin ráðgjafar. Markmiðið er að börnin kynnist sjálfum sér og velti því fyrir sér hvernig þau geti náð markmiðum sín- um án þess að valda sjálf- um sér eða öðrum skaða. Hingað til hafa menn talið að börn leituðu bara út á við eftir leiðbeiningum um rétta hegðun. Þau spyrji sjálf sig hvort ákveðin hegðun skili þeim refsingu/umbun frá hinum fullorðnu. Uppbyggingar- stefnan gengur út á að börnin horfi inn á við, velti því fyrir sér hvernig mann- eskjur þau vilji vera og sýna út á við,“ segir Diane Gossen, höfundur svokallaðrar uppbygg- ingar- og sjálfstjórnarstefnu í skólastarfi. Diane sækir Íslend- inga heim til að kynna stefnu sína bæði fyrir almenningi og fagfólki á sviði uppeldis- og menntamála. Diane er spurð að því hvernig farið sé að því að beita uppbygg- ingarstefnunni. „Ef barnið er reitt eða hrætt komast skilaboðin ekki til skila. Þess vegna verður að byrja á því að róa barnið. Við segjum: „Ekki hafa áhyggjur af því að þú hafir gert mistök. Ég gerði sömu mis- tök þegar ég var lítil/l. Allir gera einhvern tíma mistök.“ Eftir að hafa róað barnið er hægt að velta upp spurningum í tengslum við viðeigandi hegðun.“ – Getur þú rakið fyrir mig raun- hæf dæmi? „Já, við getum hugsað okkur að ársásargjarn nemandi lendi í áflogum við annan nemanda á skólalóðinni. Kennarinn byrjar á því að róa barnið og spyrjast fyrir um orsök áfloganna. Nemandinn svarar: „Hann uppnefndi mömmu mína.“ Kennarinn spyr á móti: „Áttu rétt á að svara fyrir þig?“ Barnið kinkar kolli. Kennarinn heldur áfram og spyr: „Hvernig getur þú svarað fyrir þig án þess að einhver meiðist?“ Ég skal nefna þér annað dæmi. Áður fyrr sagði ég við dóttur mína: „Gleymdu frelsi þínu. Þú ferð ekkert út. Umhverfið er ekki öruggt.“ Nú tek ég mið af upp- byggingarstefnunni og segi: „Frelsi þitt er mikilvægt. Hvernig getur þú varðveitt frelsi þitt án þess að stofna lífi þínu í hættu.“ – Er þá engin þörf á reglum? „Eins og ég hef komið inn á er uppbyggingarstefnan fremur lífs- gildismiðuð en reglumiðuð. Regl- ur geta þó verið nauðsynlegar þegar allt annað þrýtur og svo auðvitað fyrir litlu börnin.“ – Hvenær er hægt að byrja á því að beita uppbyggingarstefn- unni við börn? „Börn eru yfirleitt tilbúin að velta fyrir sér spurningum í anda uppbyggingarstefnunnar um 5 ára aldur. Best er að byrja á því að kynna fyrir barninu ákveðin fjöl- skyldugildi. Ef barnið vill ekki deila leikföng- unum sínum með öðru barni er eðlilegt að spyrja: „Hvaða skoðun hefur okkar fjölskylda á því hvort eigi að lána dót eða ekki?“ Önnur fjölskyldugildi gætu verið að þykja vænt um aðra í fjöl- skyldunni, hjálpast að við verkefni og gæta hvers annars. Uppbyggingarstefnan er ekki aðeins árangursrík í samskiptum fullorðinna við börn. Fullorðnir geta beitt henni í samskiptum við aðra fullorðna og sjálfa sig. Þú getur sagt við manninn þinn: „Mér líkar ekki hvernig ég tala við þig.“ Af því að þú elskar hann og vilt ekki tala svona við hann. Hann svarar væntanlega eins og dóttir mín þegar hún var á táningsaldri og ég beitti þessari aðferð við hana: „Mér líkar heldur ekki hvernig þú talar við mig.“ Þá get- ur þú sagt: „Mitt vandamál er að ég er þreytt eða tala óskýrt. Næst myndi ég vilja …“ Með því móti byggir þú upp og kemur í veg fyrir að sama sagan endurtaki sig í staðinn fyrir að koma aðeins sök- inni yfir á einhvern annan.“ – Á uppbyggingarstefnan við í öllum mannlegum samskiptum? „Vissulega, t.d. hefur góður ár- angur náðst innan fangelsiskerf- isins. Ég vann að því að hjálpa flóttamönnum í flóttamannabúð- um í Krótatíu að koma auga á möguleika sína. Jafnvel í flótta- mannabúðum er hægt að hafa ákveðið vald, frelsi og gaman. Á sama tíma þarf að hafa í huga hvað umhverfið er viðkvæmt og mikil- vægt að gerðir eins komi ekki nið- ur á öðrum. Uppbyggingarstefnan þarf heldur ekki aðeins að eiga við í samskiptum einstaklinga. Gildi hennar geta reynst hjálpleg í sam- skiptum heilu þjóðanna, t.d. til að forðast stríðsátök.“ – Hvernig hefur uppbyggingar- stefnunni verið tekið? „Kenningunni hefur víða verið vel tekið. Ein af ástæðunum er að öf- ugt við umbunarleiðir felur uppbyggingar- stefnan í sér langtímaárangur. Umbunarleiðir geta skilað ágæt- um árangri í eitt til tvö ár. Ef umb- unin er aukin getur jafnvel náðst þokkalegur árangur í þrjú ár. Eft- ir ákveðinn tíma hætta börnin svo að sjá tilganginn í því að sýna já- kvæða hegðun án umbunar. Við getum velt því fyrir okkur hvernig slíkum einstaklingum vegnar úti í samfélaginu.“ Diane Gossen  Diane Gossen, höfundur upp- byggingar- og sjálfstjórnar- stefnu í skólastarfi, er fædd í Saskatoon í Kanada 3. júní 1941. Hún lærði samtalsmeðferðina Reality Therapy hjá William Glasser og vann fyrir hann í 20 ár við að kenna fræði hans og að- ferðir áður en hún uppgötvaði sína eigin aðferð, Restitution (uppbyggingarstefnuna). Diane á 3 börn og 8 barnabörn. Meiri upplýsingar um starf Diane er hægt að fá hjá Magna Hjálmarssyni í Álftanesskóla og Sigþrúði Arnardóttur í Miðgarði og á heimasíðunni www.real- restitution.com. Reglur geta verið nauð- synlegar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 21 36 3 0 6/ 20 03 20-30% afslá ttur af all ri viðar vörnTrebitt er öflug olíuviðarvörn sem hrindir vel frá sér vatni. Hún styrkir yfir borðið og ver timbrið fyrir sólar ljósi. Trebitt er fáanleg hálfþekjandi í yfir 100 litum og þekjandi í yfir 300 litum. Demidekk er þekjandi akrýl - viðar vörn á allt timbur sem er grunnað með VISIR grunn - fúavörn. Fáanleg í yfir 300 litum. Visir er glær grunn fúavörn til notkunar utan - húss á allt tré verk. Byggð á alkýðolíu ásamt zinkoktati og styrkt með kínverskri tréolíu. Jotun Treolje er palla olía á gagn - varið efni. Hún er fáanleg gull brún og græn og í sömu litum og hálf - þekjandi Trebitt olíuviðar vörn. C-TOX fúavarn ar - efnið er ætlað á allan við. C-TOX leys ist ekki upp í vatni og er varan leg viðar - vörn. Það er fáanlegt bæði glært og brúnt. Kraftvask er náttúru vænn hrein gern ingar - lögur sem hentar vel til þrifa innan- og utanhúss. Muna a ð fúaverja Öflug viðarvörn á allt tréverk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.