Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 11

Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 11 KRAKKARNIR í tómstundaheimili Flataskóla í Garða- bæ máluðu þessa skemmtilegu mynd. Sem hluti af heilsdagsskólanum dvelja krakkarnir í tómstunda- heimilinu eftir skóla og í vetur gerðu sjö ára krakk- arnir saman þessa mynd. Myndin var unnin af um 30 börnum sem unnu hvert sinn hluta af myndinni, sem er um tveir metrar á hvern kant. „Útkoman líkist einna helst Erró,“ segir Helga Kristjánsdóttir, forstöðumað- ur tómstundaheimilisins. Börnin byrjuðu á að teikna með blýanti og máluðu svo myndefni sitt þar yfir. Börnin leika sér einnig úti í heilsdagsskólanum og hér má sjá nokkrar hressa krakka að leik. Þrjátíu nemendur máluðu eina mynd Morgunblaðið/Arnaldur FLUGFÉLAGIÐ Ernir tekur til starfa á nýjan leik í þessum mánuði samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. Ernir hætti rekstri í kjölfar þess að póstflug á Vestfjörðum var lagt af og jarðgöng opnuð en hafði fram að því sinnt flugi á Vestfjörðum í tæplega 30 ár. Fram kemur í frétta- bréfi Félags íslenskra atvinnuflug- manna að félagið hyggst festa kaup á nýrri 9 farþega flugvél af tegundinni C-441 Conquest. Er Hörður Guð- mundsson, eigandi félagsins, stadd- ur í Bandaríkjunum til að ná í vélina sem kemur til landsins um helgina en félagið á eina flugvél fyrir af teg- undinni C-185. Húsnæði Ernis er á Reykjavíkurflugvelli þar sem flug- félagið Jórvík var áður. Flugfélagið Ern- ir tekur til starfa ÞAÐ var birta og blíðuveður hér í Suðursveit þegar málþing um Þór- berg Þórðarson var sett fyrir skömmu við minnisvarða þeirra Þórðarsona fyrir ofan Hala. Að því búnu var haldið í félags- heimili sveitarinnar að Hrollaugs- stöðum, þar sem fram fór auglýst dagskrá. Fjölmargt fræðimanna og skálda lagði þar hönd á plóginn, m.a. Soffía Auður Birgisdóttir, Pét- ur Gunnarsson, Svavar Sigmunds- son, Vésteinn Ólason og Guðrún Kvaran. Hjörleifur Guttormsson sýndi myndir úr Suðursveit, og Lilla Hegga (Helga Jóna Ásbjarn- ardóttir) rifjaði upp endurminn- ingar sínar af Sobbegga afa og Mömmugöggu. Þeir Fjölnir og Zophanías Torfa- synir fluttu frásöguþætti, og var innlegg Zophaníasar sérlega at- hyglisvert. Lagði hann út af hinni frægu óléttusögu Þórbergs og tengdi hana á athyglisverðan hátt við þráhyggju og ranghugmyndir unglinga á öllum tímum, er gera þeim lífið leitt, án þess að nokkur verði þeirra var. Kaffi og þjóðlegur matur var á borðum á milli atriða. Rúsínan í pylsuendanum var þó Sobbegi afi sjálfur er steig á svið í líki Jóns Hjartarsonar leikara, og fór hann á kostum í tali og tónum. Næsta dag var söguferð með Þór- bergi, gengið um heimaslóð Þór- bergs á Hala, og að síðustu var far- ið að fornleifauppgrefti á Steinadal og litast um í nágrenni Papbýl- isfjalls. Um tónlistaratriði kvöldsins sá Spilafjelag Suðursveitar og ná- grennis. Um 100 manns sóttu mál- þingið, þótti takast vel og skemmtu menn sér hið besta. Er áformað að halda slíkt málþing árlega á vegum Þórbergsseturs. Tilgangur Þór- bergsseturs er m.a. rannsóknir og umfjöllun um ævi og störf Þórbergs Þórðarsonar. Engin sveit á Íslandi á sambærilega menningararfleifð og þá er felst í verkum Þórbergs og hvernig hann skrifaði sig inn í um- hverfi og mannlíf héraðsins. Stefnt verður að því að koma á fót fræða- setri í framtíðinni er tengist söfnun, varðveislu og skráningu menning- arminja, og virðast stjórnvöld sýna því máli mikinn skilning. Málþing um Þórberg Þórðarson Ljósmynd/Fjölnir Torfason Málþingið sett við minnisvarða Þórbergs. Suðursveit. Morgunblaðið. HELGI Jensson, forstöðumaður Umhverfisstofnunar, kveðst vera ósammála þeirri túlkun Hjartar L. Jónssonar frá Vélíþróttaklúbbnum sem fram kom í Morgunblaðinu þann 30. maí sl. að akstur mótorhjóla og annarra ökutækja um gamla vegi og þjóðleiðir teljist ekki til utanvega- aksturs. Helgi segir að lögin séu mjög skýr um að akstur utan vega sé bannaður og þar komi fram almenn regla. Frá þeirri reglu er hægt að sækja um undanþágur samkvæmt heimild í lögum en sé slík undanþága ekki fyr- ir hendi er akstur utan vega bann- aður. Helgi sagði að ef farið væri að leyfa akstur á þessum svæðum myndu lögin missa tilgang sinn og að við stæðum þá frammi fyrir þeim vanda að þurfa sífellt að skilgreina hvað er gömul þjóðleið og hvað er gamall vegur og gæti það leitt til þess að lítil stoð yrði í lögunum. Bann við akstri utan vega er að finna á nokkrum stöðum í lögum; 5. gr. a. í umferðarlögum, 17. gr. náttúru- verndarlaga og 2. gr. reglugerðar dómsmálaráðuneytisins um akstur í óbyggðum. Helgi segir það einu gilda hvaða nafni gamlar utanvegaleiðir nefnist, lögin séu skýr um þetta atriði og akstur um slíkar leiðir bannaður. Utanvega- akstur bannaður GJALDSKRÁR vegna kostnaðar sjúkratryggðra við heilbrigðisþjón- ustu og læknisverk sem veitt eru á Landspítala háskólasjúkrahúsi eru nú aðgengilegar á einum stað á nýrri vefsíðu, sem sett hefur verið upp á heimasíðu LSH, www.landspitali.is. Reglugerð heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytisins um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu tók gildi 1. júní og frá og með sama tíma tók gildi ný gjaldskrá sjúkrahússins. Skv. upp- lýsingum LSH mun starfsfólk fjár- málasviðs skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga sjá um að halda nýja gjaldskrárvefnum við og að þar verði ávallt að finna réttar upplýsingar um gjöld fyrir þjónustu og læknisverk. LSH opnar nýj- an gjaldskrárvef STÚDENTARÁÐ Háskóla Ís- lands mótmælir því harðlega að skólagjöld verði tekin upp í meist- aranámi við skólann en eins og fram kom í blaðinu í gær hefur viðskipta- og hagfræðideild ákveð- ið að óska eftir því við mennta- málaráðherra að tekin verði upp skólagjöld í meistaranámi við deildina. Páll Skúlason háskóla- rektor segir að eins og málum sé háttað sé þessi samþykkt deild- arinnar skiljanleg og hafi ekki komið sér á óvart. Hins vegar verði stjórnvöld að axla sína ábyrgð, ekki sé hægt að gera skól- ann einn ábyrgan í málinu. Davíð Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs, segir nauðsynlegt að öllum sé gefinn kostur á að stunda háskólanám á Íslandi, hvort sem um sé að ræða grunn- nám eða framhaldsnám. Há skóla- gjöld geti orðið til þess að ein- hverjir missi af því tækifæri. Hann segir slæmt að horft sé til skóla- gjalda sem lausnar á skammtíma fjárhagsvanda þegar ótal aðrar leiðir séu færar. „Ég held að há- skólinn hafi góða möguleika á að bjóða upp á framhaldsnám án þess að innheimta óhófleg skólagjöld. Þegar öflugt framhaldsnám hefur verið byggt upp er auðvitað hægt að nýta sér það á margan hátt, til dæmis með því að meistaranemar komi miklu meira að kennslu og rannsóknum,“ segir Davíð. Hugmynd um skólagjöld er ekki ný af nálinni Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir að hugmynd um skólagjöld sé ekki ný af nálinni og umræðan oft komið upp á seinni árum. Persónulega hafi hann ekki verið talsmaður skólagjalda en hann hafi ekki gert upp hug sinn varðandi réttlætingu skólagjalda í meistaranámi frekar en í grunn- námi á háskólastigi. Páll segist áð- ur hafa vakið á því athygli að einkaskólar á háskólastigi fá svip- uð fjárframlög á hvern nemanda og Háskóli Íslands en hafi að auki heimild til að innheimta skóla- gjöld. Slík mismunun gangi ekki upp til lengdar. Páll segir málið koma til umfjöllunar á fundi há- skólaráðs í næstu viku. HÍ fái ráðrúm til að móta sínar hugmyndir um málið Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra vill ekki tjá sig um sam- þykkt viðskipta- og hagfræðideild- ar á meðan málið er til umfjöllunar innan Háskólans. „Það hlýtur að teljast eðlilegt að Háskóli Íslands fái ráðrúm til að móta sínar hugmyndir um þetta mál. Mér sýnist á öllu að það sé núna til umfjöllunar innan há- skólaráðs og kemur þá ekki inn á mitt borð fyrr en háskólinn hefur tekið afstöðu. Ég vil ekkert tjá mig um það fyrr en ég sé hvernig þetta er rökstutt,“ segir Tómas Ingi. Stúdentaráð mót- mælir skólagjöldum í meistaranámi Stjórnvöld verða að axla sína ábyrgð, segir há- skólarektor ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ í stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, 1999–2001 og var kosningastjóri Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi í nýafstöðnum alþingiskosningum. Borgar hefur ritstýrt vefritinu Deiglan.com frá upphafi. Hann er sonur Ingu Jónu Þórðardóttur, fyrrum oddvita borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins, og fóst- ursonur Geirs H. Haarde, fjár- málaráðherra. SÆUNN Stefánsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Jóns Krist- jánssonar, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra. Sæunn Stefáns- dóttir er fædd 1978 og hefur undanfarið stundað nám í við- skiptafræði við Háskóla Íslands og lýkur námi á hausti komandi. Hún hefur tekið virkan þátt í stjórn- málastarfi Röskvu á undanförnum árum og sat í stúdentaráði HÍ um tveggja ára skeið. Sæunn Stefáns- dóttir var í fjórða sæti á lista fram- sóknarmanna í Reykjavíkurkjör- dæmi – norður í kosningunum í vor. Hún tekur strax til starfa. Borgar Þór Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Tómasar Inga Olrich, til áramóta. Borgar er fæddur árið 1975 og er á 5. ári í lögfræði við Háskóla Íslands. Hann var formaður Vöku, félags lýðræð- issinnaðra stúdenta, 2001–2002, sat Nýir aðstoðar- menn ráðherra Sæunn Stefánsdóttir Borgar Þór Einarsson LEITAR- og björgunarstarf flug- deildar Landhelgisgæslunnar verður í brennidepli á flugöryggisfundi sem haldinn verður fimmtudagskvöldið 5. júní næstkomandi í flugskýli Gæsl- unnar á Reykjavíkurflugvelli. Fundurinn hefst með ávarpi Arn- gríms B. Jóhannssonar, forseta Flug- málafélags Íslands og stjórnarfor- manns Flugfélagsins Atlanta. Meðal annars verður fjallað um flugdeild Landhelgisgæslunnar í máli og myndum, auk þess sem kynnt verður umgengni við þyrlur á slysstað. Þá verður flugflotinn og annar tækja- kostur, til að mynda nýir nætursjón- aukar, til sýnis. Hafsteinn Hafsteins- son, forstjóri Landhelgisgæslunnar, flytur ávarp. Flugsveit Gæsl- unnar á flug- öryggisfundi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.