Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 34

Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I ATVINNA ÓSKAST Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum í uppslætti á húsum og þökum. Er með góð mót. Upplýsingar í síma 698 2261. Vélstjóri óskast á 50 tonna rækjubát sem rær frá Dalvík Upplýsingar gefur Sigurjón í síma 892 9394 og Jóhannes í síma 896 0065. www.or.is Orkuveita Reykjavíkur IP-Borgarnet IP-Borgarnet er rekið á ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Kerfið býður í dag upp á öflugar IP gagnaflutningstengingar fyrir fyrirtæki og stofnanir. Stefnt er að enn frekari útfærslu á kerfinu með fjölbreyttri og öflugri þjónustu Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði verkfræði eða tölvunarfræði Þekking á uppbyggingu netkerfa er nauðsynleg Þekking og reynsla af beinum (router) og skiptum (switch) frá Cisco er æskileg Samskiptahæfni og þjónustulipurð Sjálfstæði í vinnubrögðum Umsóknarfrestur er til 19. júní n.k. Nánari upplýsingar er að hafa á www.mannval.is Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Akranessbæjar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarbæjar Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Orkuveitan dreifir rafmagni, heitu vatni til húshitunar, köldu vatni til brunavarna og neysluvatni til notenda í Reykjavík og nágrenni. Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið kappkostar að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu. Orkuveita Reykjavíkur stuðlar að nýsköpun og aukinni eigin orkuvinnslu. Það er stefna Orkuveitunnar að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins. Starfssvið Umsjón og rekstur á ljósleiðaraneti Orkuveitunnar Uppbygging og rekstur annarra gagnaflutnings- og fjarskiptatenginga Tilboðsgerð og samningar vegna fjarskiptanets Ráðgjöf og aðstoð við efnispantanir og birgðahald vegna fjarskiptakerfis Samskipti við verktaka vegna framkvæmda og viðhalds á fjarskiptakerfum Samskipti við tæknimenn viðskiptavina Óskar eftir að ráða Netstjóra R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur knattspyrnudeildar HK verður haldinn í Hákoni Digra í íþróttahúsinu við Digranes þriðjudaginn 10. júní kl. 19.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn knattspyrnudeildar. Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. Hluthafafundur Stjórn Íslenska hugbúnaðarsjóðsins boðar til hluthafafundar 11. júní 2003 kl. 16:00. Fundur- inn verður haldinn á skrifstofu félagsins í Sæ- túni 8, 4. h., 105 Reykjavík. Á dagskrá eru: 1. Tillaga um breytingar á samþykktum félags- ins. Tillagan felur í sér breytingar á ákvæð- um um heiti og tilgang félagsins og á ákvæð- um um fjölda stjórnarmanna. Tillagan liggur frammi á skrifstofu félagsins í Sætúni 8 viku fyrir fund. 2. Kosning nýrrar stjórnar. 3. Ákvörðun stjórnarlauna fyrir fráfarandi og viðtakandi stjórn. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 3. júní 2003. Stjórn Íslenska hugbúnaðarsjóðsins hf. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12.Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60 Samkoma í Kristniboðs- salnum í kvöld kl. 20:00. „Jesú vill“ (Lúk. 5.12-16 5). Ræðumaður: Valdís Magnús- dóttir. Vitnisburðir. Heitt á könnunni eftir samkom- una. Allir hjartanlega velkomnir. www.fi.is Miðvikudagur 4. júní Skógræktarferð Ferðafélags- ins í Heiðmörk. Áhöld verða á staðnum. Ferða- langar mæti með nesti. Brottför frá BSÍ kl. 19.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil. ur, en að leiðarlokum eru þökkuð ánægjuleg kynni við góðan mann. Ættmennum er vottuð samúð í sökn- uði þeirra. Blessuð sé minning Guð- mundar G. Bjarnasonar. Þór Jakobsson. Fallinn er frá góður vinnufélagi og afbragðs fræðimaður. Guðmundur G. Bjarnason var með skarpari mönnum sem ég hefi kynnst og hafði ákaflega góða sýn á viðfangsefni sitt. Honum fannst fátt skipta meira máli í lífinu en veðurfræði, einkum há- loftapælingar, skýjafar, veður- og mengunarlíkön. Guðmundur var vakinn og sofinn yfir þessu viðfangs- og áhugaefni sínu, enda sagði hann oft á tíðum að hann væri „óttalegur skýjaglópur“. Samstarfsmönnum þótti á stundum að viðurnefnið skýjakljúfur ætti betur við, bæði vegna vaxtarlagsins, og eins þegar hann hafði greitt í sundur þokuský sem stöfuðu af óskýrri hugsun eða erfiðum viðfangsefnum. Það hafði nokkurn aðdraganda þegar Guðmundur réðst fyrst til Hollustuverndar ríkisins og síðar Umhverfisstofnunar: Guðmundur hafði lengi unnið einn eða með öðr- um við ýmis verkefni sem tengdust fræðigrein hans. Hugmyndirnar voru óþrjótandi og fáum duldist að þar fór maður sem vissi hvað hann sagði. Hugsjón Bjarts í Sumarhús- um bjó ríkt í Guðmundi og hann vildi vera sjálfstæður í því sem hann gerði. Því hlaut hann lengst af hlut- skipti einyrkjans og það hlutskipti er að mörgu leyti eins erfitt í dag og það var á dögum Bjarts. Í þá daga var einyrkinn kominn uppá móður nátt- úru, eigið hyggjuvit og atorku en Bjartur í dag þarf að útvega sér rannsóknarstyrki með ótrúlegri vinnu og hugkvæmni. Slíkt hlýtur að vera slítandi til lengdar. Eitt af síð- ustu verkum Guðmundar sem ein- yrkja var að reyna að fá skilning ráðamanna á því að það skipti miklu að nota geislunar- og ósonmælingar sem gerðar eru og fella þær í líkan til að upplýsa almenning í rauntíma um geislunarstuðul og þau geislunar- áhrif sem almenningur kann að verða fyrir á mismunandi stöðum á landinu. Þessi saga var að mörgu leyti klassísk saga frumherja – flest- ir viðurkenndu mikilvægi hugmynd- arinnar en töldu jafnframt sjálfsagt að öðrum bæri að sjá til þess að verk- ið væri unnið og greiða kostnaðinn. Þegar þeirri lotu lauk hafði Guð- mundur samband við okkur á Holl- ustuvernd og við ákváðum að reyna að starfa saman að sameiginlegri hugsjón. Við áttum þann draum að tengja mengunarmælingar, upplýs- ingar um mengunarvalda og veðurlíkön saman og mynda líkan sem gæti upplýst almenning og stjórnvöld um loftgæði í rauntíma hvar sem er á landinu. Guðmundur hóf störf á Hollustuvernd ríkisins, síðar Umhverfisstofnun,og vann að kappi að þessu ásamt öðrum sam- bærilegum verkefnum. Það reyndist gæfuspor að fá Guðmund til starfa því þekking hans á veðri og veðurlík- önum var mjög mikilsverð í starfi okkar. Guðmundur átti að mínu viti ágætan tíma í Hollustuvernd og Um- hverfisstofnun, einkum framan af. Það var lagt af stað með margt og sumt komst í höfn. Hins vegar duld- ist fáum að heilsu Guðmundar var farið að hraka síðasta árið og að syk- ursýkin og aðrir meðverkandi kvillar voru byrjaðir að taka toll af starfs- þreki hans þegar yfir lauk. Eftir stendur draumurinn um líkönin tvö: Annað til að upplýsa almenning í rauntíma hvernig loftmengun er á landinu en einkum þó í þéttbýli og hitt til að sýna almenningi styrk geislunar í rauntíma hvar sem er á landinu. Það verður hlutskipti okkar sem eftir erum að koma draumnum úr skýjaborg í veruleika – enda var það sem lagt var af stað með í upp- hafi samstarfsins. Við það starf mun skerfur og eldmóður Guðmundar vera okkur veganesti. Við hjá Umhverfisstofnun sendum börnum Guðmundar og öðrum að- standendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Davíð Egilson. GUÐMUNDUR GÍSLI BJARNASON Erfitt er að sætta sig við að Þorkell Krist- mundsson sé látinn og ennþá dapur- legra að það skyldi gerast með þess- um hætti þar sem hann var enn við ágæta heilsu og fylgdist vel með. Við þig, Keli minn, vil ég segja það að það voru fyrir mig sannkölluð for- réttindi að fá að kynnast þér og þínum ÞORKELL KRISTMUNDSSON ✝ Þorkell Krist-mundsson fædd- ist í Stakkavík í Sel- vogi 12. september 1925. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi 24. apríl síðastliðinn eftir að hafa lent í slysi 30. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju 29. apríl. mannkostum í öll þau ár sem við höfum þekkst. Ég vil þakka Þorkeli all- ar samverustundirnar, hvort sem þær voru á hans heimaslóðum eða í bíltúrum sem við fórum í, eða við önnur tæki- færi. Þorkell var mjög lífs- glaður, kátur og skemmtilegur maður sem gaman var að tala við. Ég votta öllu Brunnastaðafólkinu, öllu skyldfólki Þorkels og öllum þeim sem þótti vænt um hann mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tímamótum í lífi þeirra. Að lokum vil ég segja það, Keli minn, að þú lifðir vel og ég vona að þú hafir það mjög gott í þínum nýju heimkynnum, hvar sem þau eru. Egill Hallgrímur Klemensson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.