Morgunblaðið - 14.06.2003, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 21
VINNA við nýtt aðalskipulag Sel-
tjarnarness er hafin og um þessar
mundir er unnið að gagnöflun um
öll helstu mál er varða náttúrufar
og byggð á Seltjarnarnesi. Áætlað
er að vinnunni, sem er á áætlun,
ljúki vorið 2004 og verður gildistími
skipulagsins frá 2004 til 2024.
„Gerð nýs aðalskipulags er einnig
sprottin af íbúðaþinginu sem haldið
var í nóvember þannig að við erum
að fá afskaplega mikið út úr því.
Aðalskipulaginu er ætlað að taka til
bæjarins í heild og til náinnar
framtíðar,“ segir Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri Seltjarnar-
ness.
Hann bendir á að ein megin-
gagnsemi íbúðaþingsins hafi verið
að tekist hafi að skapa vettvang öfl-
ugrar umræðu og umfjöllunar um
skipulagsmálefni Seltjarnarness í
heild í stað þess að einblína ef til
vill um of á afmarkaða staði. „Þeg-
ar maður sér hlutina heildstætt þá
á maður auðveldara með að skipa
hverjum þætti á ákjósanlegan stað.
Af þeim sökum var ákveðið að fara
út í það að gera aðalskipulag. Sel-
tjarnarnes er lagt undir í heild
sinni til að ná fram þekkilegu fram-
tíðarskipulagi bæjarins fyrir íbúa
og bæinn til framtíðar.“
Hið nýja skipulag unnið
fyrir opnum tjöldum
Alta ehf. vinnur að aðalskipulag-
inu ásamt skipulags- og mann-
virkjanefnd bæjarins. Jónmundur
segir að lagt sé á ráðin langt fram í
tímann. „Við erum þá að gera okk-
ar besta til að átta okkur á því
hvernig bæjarfélagið er núna, hvað
er það sem gerir það sterkt, hvað
getum við gert betur og hvernig
náum við þá til framtíðar litið að
efla bæinn og þjónusta íbúanna
með góðum hætti. Hvort heldur
það eru náttúrugæði, þjónusta við
hina ýmsu aldurshópa, frekari upp-
bygging og svo framvegis,“ bætir
hann við.
Að Jónmundar sögn hefur hið
nýja skipulag Seltjarnarness verið
unnið fyrir opnum tjöldum og
íbúðaþingið hafi verið mikilvægt
skref í því. Hann segir að þar hafi
fólki gefist einkar gott tækifæri til
að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri og ræða þessi mál á op-
inberan og mjög heildstæðan hátt.
Í framhaldinu hafi verið unnið úr
upplýsingunum og gerir vinnan við
aðalskipulagið ráð fyrir að staldrað
verði við með reglulegu millibili og
staða mála kynnt fyrir íbúunum.
Jónmundur bendir á að upplýsing-
ar séu aðgengilegar á heimasíðu
bæjarins www.seltjarnarnes.is og á
www.ibuathing.is, en þar geti íbúar
jafnframt komið ábendingum á
framfæri. Honum finnst bæjarbúar
sýna skipulagsmálum mjög mikinn
áhuga og segir það ekki undarlegt í
kjölfar fjölmennasta íbúaþings sem
haldið hefur verið á Íslandi til
þessa.
Vinna við nýtt aðalskipulag 2004–2024 er hafin
Ætlað að taka til bæjarins í
heild og til náinnar framtíðar
Seltjarnarnes
NÝIR íbúar bættust í hópinn í
Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um í vikunni er tveir kópar litu
dagsins ljós og eru þeir nú
komnir undir bert loft. Urtan
Kobba kæpti á sunnudag og
urtan Særún degi síðar. Urt-
urnar tvær hafa verið nokkuð
samtaka í gegnum árin og kæpt
með nokkurra daga millibili eða
nánast sama sólarhringinn.
Hver og ein urta eignast eitt af-
kvæmi og hafa þær kópana að-
eins á spena í um fjórar vikur,
en þá venja þær þá af sér. Eftir
það þurfa kóparnir að læra að
bjarga sér sjálfir sem getur
orðið þeim erfitt.
Faðir beggja kópanna er
brimillinn Snorri. Kópum og
urtum heilsast vel og synda nú
um í selalauginni með tilheyr-
andi móðurást, þar sem þær
eru duglegar að snúast í kring-
um þá. Ekki er vitað um kynin
að svo stöddu enda erfitt að sjá
það fyrr en þeir eldast. Kóparn-
ir vega um 15 kíló við fæðingu
en geta tvöfaldað þyngd sína á
þremur vikum. Þeir eru mjög
duglegir að synda strax fyrstu
dagana og fylgja mæðrum sín-
um eftir.
Yngstu
íbúarnir
Laugardalur
Til sölu glæsilegur 75 fm sumarbústaður, sem stendur á 5.850 fm kjarrivöxnu
eignarlandi. 3 svefnherbergi. Sólstofa. Ca 100 fm verönd. Í bústaðnum er raf-
magn og kalt vatn, einnig heitt vatn hitað með hitatúpu. Bústaðurinn er á
mjög fallegum stað í Borgarfirði. Glæsilegt útsýni til allra átta. Aðeins 12 km
frá Borgarnesi. Stutt í sund, golf og
veiði. Húsið er allt hið vandaðsta.
Verð 8,5 millj.
Kristín Davíðsdóttir í síma 695 2105
vísar veginn og sýnir.Sími 568 5556
SUMARBÚSTAÐUR VIÐ LANGÁ
OPIÐ HÚS Í DAG LAUGARDAG OG Á
MORGUN SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 18
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111