Morgunblaðið - 14.06.2003, Page 22
AKUREYRI
22 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MA hátíð verður haldin mánudaginn 16. júní 2003
í Íþróttahöllinni á Akureyri
Fordrykkur kl. 18.15 - 18.45
Borðhald hefst kl. 19.00
Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna.
Miðasala verður í Íþróttahöllinni sunnudaginn 15. júní frá kl. 16-18
og mánudag 16. júní frá kl. 14.00
Miðaverð kr. 5.500
Miðaverð fyrir eins árs stúdenta kr. 3.500
Miðar á dansleik verða seldir við innganginn
Samkvæmisklæðnaður
Hátíðarnefndin.
LEIKFÉLAG Hólmavíkur sýnir
gamanleikinn „Sex í sveit“ að Litla-
Garði við Drottningarbraut mánu-
daginn 16. júní kl. 20.00. Sýnt verður
í gamalli hlöðu sem Skúli Gautason
leikari og Þórhildur Örvarsdóttir
söngkona hafa innréttað á býli sínu.
Skúli dvaldi ásamt fjölskyldu sinni
á Hólmavík fyrir páska og leikstýrði
verkinu og á sama tíma vann Þór-
hildur að uppsetningu á söngleik
með nemendum í 5. og 6. bekk í
grunnskóla staðarins. Þórhildur og
Skúli eignuðust Litla-Garð sumarið
2000 og búa þar ásamt börnum sín-
um.
Þórhildur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hlaðan sem fylgdi
með hefði verið helsta ástæðan fyrir
kaupunum. „Þetta bar allt mjög
brátt að en við höfðum haft augastað
á býlinu um tíma. Við bjuggum í
Reykjavík en okkur var farið að
langa að flytja til Akureyrar. Fjöl-
skyldan kom öll norður í júlí til að
líta á aðstæður en þá helgi brann of-
an af okkur í Njörvasundi í Reykja-
vík. Það má því segja að við höfum
þá verið heimilislaus og við fórum
ekki suður aftur, nema rétt til að
ganga frá okkar málum. Við þurft-
um ekki að pakka þar sem nánast
allar eignir okkar skemmdust í
brunaum.“
Þórhildur sagði að bæði hún og
Skúli maður hennar hefðu strax séð
mikla möguleika í hlöðunni. Hún var
farin að setja upp óperusýningar í
huganum og Skúli leiksýningar.
„Hlaðan býður upp á mikla mögu-
leika, hljómburðurinn er mjög góð-
ur og hátt til lofts. Við horfum ekki
eingöngu til þess að þarna verði sett-
ar upp leiksýningar – heldur að í
húsinu verði fjölnota salur, þar sem
hægt verður að gera nánast hvað
sem er.“
Í byrjun var mjög aðkallandi að
gera íbúðarhúsið fyrst upp en frá
síðasta sumri hefur verið unnið að
endurbótum á hlöðunni. Á milli jóla
og nýárs sl. settu Helgi og hljóð-
færaleikararnir upp söngleik í hlöð-
unni, sem gekk svo vel að sögn Þór-
hildar að setja þurfti upp
aukasýningar á verkinu. „Þetta var
mikið ævintýri og það var virkilega
hátíðleg stund þegar bílarnir fóru að
renna hér í hlað fyrir sýningar.“
Hlaðan tekur nú tæplega 50 manns í
sæti og því geta sýningarnar sem
þar eru settar upp ekki verið mjög
fyrirferðarmiklar eða dýrar.
„Við erum ekki í samkeppni við
Leikfélag Akureyrar og ég held að
það sé mjög dýrmætt fyrir leikhúsið
að stunduð sé grasrótarstarfsemi.
Og það er einmitt við svona að-
stæður sem grasrótin vinnur – þar
sem rými er lítið en starfsemin
keyrð áfram á viljastyrk og eld-
móði,“ sagði Þórhildur. Hún sagði
að í leikritinu „Sex í sveit“ væri gert
góðlátlegt grín að Akureyringum og
að þeir hefðu örugglega mjög gam-
an af að sjá verkið.
Endurbætur á hlöðunni er nokkuð
fjárfrek framkvæmd en Þórhildur
sagði að verkið væri unnið miðað við
efni og aðstæður en framkvæmdum
er hvergi nærri lokið. Hún sagði að
gott væri að fá svona sýningu í heim-
sókn til að sjá hvernig húsnæðið
kemur út. „Skúli er mjög handlaginn
og vinnur að mestu leyti sjálfur við
verkið og öðruvísi væri þetta ekki
hægt.“ Hlaðan er nánast í upp-
runalegri mynd innandyra, þar sem
gamla bárujárnið í boganum og gafl-
arnir halda sér. Einangrun var sett
ofan á gamla bárujárnið og klætt yf-
ir með nýju bárujárni og gaflarnir
voru einnig einangraðir að utan. Þá
er komin hitaveita í hlöðuna.
Ábúendur í Litla-Garði eru þegar
farnir að huga að næstu verkefnum í
hlöðunni. Þórhildur sagði að fólk
hefði sýnt því áhuga að setja þar upp
listviðburði og er stefnt að því að
næstu uppákomur verði settar upp
nú í sumar eða haust.
Leikritið fengið
frábærar viðtökur
Leikritið „Sex í sveit“ var frum-
sýnt á Hólmavík á skírdag og hafa
viðtökur verið frábærar á þeim tíu
sýningum sem þegar eru að baki.
Auk Hólmavíkur hefur verkið verið
sýnt á Drangsnesi, í Trékyllisvík,
Bolungarvík, Borgarnesi og Reykja-
vík. Í dag, laugardag, verður verkið
sýnt að Ketilási í Fljótum en sýn-
ingin í Litla-Garði verður líklega sú
síðasta á verkinu.
Sex leikarar taka þátt í uppfærsl-
unni og annar eins fjöldi aðstoð-
arfólks hefur komið að uppfærsl-
unni. Segja má að persónurnar verði
á heimavelli í hlöðunni í Litla-Garði,
því leikritið gerist eitt laugardags-
kvöld í sumarbústað við Eyjafjörð,
þar sem húsráðendur eru hin vel
stæðu og huggulegu hjón Þórunn og
Benedikt. Þau eru ekki við eina fjöl-
ina felld og brátt drífur að viðhöld
þeirra beggja ásamt matsveinum frá
veisluþjónustu Saxbautans á Ak-
ureyri. Eins og venja er í góðum
farsa gerast hlutirnir hratt og leys-
ast upp í eina allsherjar ringulreið
áður en kvöldið er úti.
Höfundur verksins er Marc Camo-
letti en Gísli Rúnar Jónsson þýddi
það og staðfærði. Þetta leikrit var
sett upp í Borgarleikhúsinu fyrir fá-
einum árum og naut mikilla vin-
sælda, sem og hjá Leikfélagi Dalvík-
ur, sem setti verkið upp á síðasta ári.
Hægt er að tryggja sér miða á sýn-
inguna í Litla-Garði í síma 865-3838.
Morgunblaðið/Kristján
Þórhildur Örvarsdóttir og Æsa, dóttir hennar, fyrir utan hlöðuna í Litla-Garði.
Leikfélag Hólmavíkur sýnir „Sex í sveit“ á Akureyri
Hlaðan í Litla-Garði
orðin menningarhús
RUNNINN er út frestur til að
sækja um skólavist í framhaldsskól-
um landsins. MA hafa borist á þriðja
hundrað umsókna, en það eru tals-
vert fleiri en áður. Um 300 umsóknir
hafa borist til VMA og þar af eru um
200 frá þeim sem eru að koma beint
úr grunnskóla. Um er að ræða ein-
hverja aukningu frá fyrra ári. Ná-
kvæm tala er þó ekki ljós þar sem
enn kunna að vera allmargar um-
sóknir í pósti.
Umsóknir um heimavist eru mjög
margar og að sögn fjármálastjóra
MA lítur út fyrir að Menntaskólinn
fullnýti það rými sem hann hefur í
Nemendagörðunum. Hálfdán Örn-
ólfsson, aðstoðarskólameistari VMA
hefur sömu sögu að segja en hann
segir að skólinn sé kominn með um-
sóknir um þau rými sem hann hafi
yfir að ráða og ríflega það.
Góð aðsókn
nýnema í
MA og VMA
♦ ♦ ♦
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags
Eyfirðinga var haldinn nýlega og
kom þar fram að rekstur síðasta árs
hefði gengið vel. Hagnaður ársins
var 3,1 milljón króna og stjórnunar-
kostnaður um 12%. Sölutekjur
gróðrarstöðvarinnar jukust um tæp
16% frá fyrra ári og var hagnaður af
rekstri hennar um 1,5 m. kr. Aðrir
þættir í rekstri félagsins voru með
hefðbundnum hætti og gengu að
mestu samkvæmt áætlun. Jólatrjáa-
sala dróst þó nokkuð saman vegna
aukinnar samkeppni. Heildartekjur
félagsins hækkuðu um 20% á milli
ára á meðan gjöld lækkuðu um 2%,
eftir að tekið hafði verið tillit til
birgða. Veltufé frá rekstri nam rúm-
um 7 m. kr. Eigið fé í árslok var 27
milljónir og hafði hækkað um 12,7%.
Skógræktarfélag
Eyfirðinga
Hagnaður
3,1 milljón
♦ ♦ ♦
FLUGSAFNIÐ á Akureyri verður
opið þrjá daga í viku í sumar, á
fimmtudögum, föstudögum og laug-
ardögum frá kl. 14–17 og einnig eftir
samkomulagi. Flugsafnið er til húsa
á Akureyrarflugvelli og þar er margt
að sjá sem tengist flugsögu landsins
frá upphafi. Fjölmargar ljósmyndir
og ítarlegur texti draga upp lifandi
og skemmtilega mynd af flugmönn-
um í erli dagsins. Einnig er að finna
flugvélar af mörgum gerðum á safn-
inu og forsvarsmenn þess vinna að
því að fjölga vélum enn frekar.
Flugsafnið
opið í sumar
Á SÍÐASTA fundi menningarmála-
nefndar Akureyrar var samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að teknar
yrðu frá a.m.k. 3 milljónir kr. á ári á
þessu kjörtímabili til þess að reisa
mætti eitt útilistaverk á kjörtíma-
bilinu, eins og stefnt hefur verið að,
fyrir 12 milljónir hið minnsta.
Að auki skipaði nefndin Sigrúnu
Björk Jakobsdóttur, Hannes Sig-
urðsson og Jón Erlendsson í starfs-
hóp um útfærslur á verkefninu og
einnig var óskað eftir því að tækni-
og umhverfissvið skipaði einn full-
trúa í hópinn. Hópurinn skal kynna
sér með hvaða hætti sé mögulegt að
standa að vali á listamönnum og
hvernig verkunum verði best fyrir
komið í framtíðinni. Vinnuhópurinn
skal kanna sérstaklega kosti og galla
þeirrar hugmyndar að útlistaverkin
rísi meðfram Drottningarbrautinni
og skili fyrstu niðurstöðum fyrir lok
október nk.
Þrjár millj-
ónir á ári í
útilistaverk
♦ ♦ ♦
UNDIRBÚNINGUR kúasýningar-
innar Kýr 2003 stendur nú yfir. Það
er Búnaðarsamband Eyjafjarðar
sem stendur að sýningunni í sam-
starfi við m.a. Búnaðarsambönd á
Norðvesturlandi, Landsamband
kúabænda og Norðurmjólk. Sýning-
in verður 8. ágúst í samstarfi við hina
árlegu Handverkshátíð að Hrafna-
gili í Eyjafirði. Nokkur áhersla verð-
ur lögð á þátttöku yngri kynslóðar-
innar þar sem keppt verður í barna
og unglingaflokki og sýna keppend-
ur í þessum flokkum kálfa. Einnig
verður keppt í flokki mjólkurkúa og
fyrstakálfskvígna. Áhugasamir geta
haft samband við Gunnfríði á Bú-
garði, netfang gunnfr@bugardur.is.
Kúasýningin Kýr 2003
á Hrafnagili í sumar
Keppt í flokkum
mjólkurkúa,
kvígna og kálfa
Heimildakvikmyndin Hrein og bein
verður sýnd í Nýja bíói á Akureyri í
dag klukkan 14.00, myndin verður
aðeins sýnd hér í þetta eina sinn.
Myndin er byggð á viðtölum við um
það bil tíu unga samkynhneigða Ís-
lendinga sem hafa ákveðið að koma
úr felum. Myndina gerðu Hrafnhild-
ur Gunnarsdóttir kvikmyndagerð-
armaður og Þorvaldur Kristinsson,
formaður Samtakanna 78. Það er
Norðurlandshópur Samtakanna sem
stendur að sýningunni með tilstyrk
Nýja bíós og er aðgangur ókeypis.
Í DAG
Þrjár athyglisverðar sýningar verða
opnaðar í dag kl. 14 í Safnasafninu –
Alþýðulistasafni Íslands á Sval-
barðsströnd í Eyjafirði. Í Hornstofu
er sýning á málverkum eftir Sigurð
Einarsson í Hveragerði sem draga
fram fjölbreytileg andlit náttúrunn-
ar. Í garðinum er sýning á trjákött-
um eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur á
Akureyri og samsýning 11 og 12 ára
barna í Valsárskóla en þau bjuggu til
kynjadýr úr efniviði sem til féll við
grisjun og hreinsun í gróðurreitum.
Ennfremur eru í gangi aðrar sýn-
ingar í safninu, sem er opið alla daga
frá kl. 10–18.