Morgunblaðið - 14.06.2003, Blaðsíða 28
ÚR VESTURHEIMI
28 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA er góður tími til að hætta opinber-
um störfum en að sjálfsögðu held ég áfram að
starfa fyrir íslenska samfélagið í Manitoba,“
segir Neil Ófeigur Bardal, sem lét formlega
af störfum sem kjörræðismaður í Gimli um
nýliðin mánaðamót.
Neil segir að hann hafi alla tíð verið hluti
íslenska samfélagsins í Kanada og á því verði
ekki breyting, en hann óski eftir að koma eft-
irfarandi á framfæri við þessi tímamót:
„Laugardaginn 31. maí síðastliðinn lét ég
formlega af störfum sem kjörræðismaður Ís-
lands í Gimli í Manitoba eftir að hafa verið í
þjónustu utanríkisráðuneytisins síðan 1994.
Þessi tæplega tíu ár hafa verið einhver við-
burðaríkustu ár ævi minnar.
Mér eru nú efst í huga einlægar þakkir til
alls þess fólks sem sótti Nýja Ísland heim í
embættistíð minni sem kjörræðismaður.
Samvistirnar við ykkur og ferðalögin með
ykkur auðguðu líf mitt. Í hvert einasta skipti
sem ég fylgdi gestum frá Íslandi norður um
Nýja Ísland öðlaðist ég nýja sýn á sameig-
inlega sögu okkar sem þjóðar af íslenskum
meiði.
Hver einasta heimsókn – hvort sem það
var forseti Íslands eða ungi pilturinn sem
komst í umsjá mína vegna þess að hann hafði
misstigið sig lítillega – hefur skapað minn-
ingasjóð sem verður mér kær til æviloka.
Einar Benediktsson var sendiherra Ís-
lands gagnvart Kanada, þegar ég var skip-
aður kjörræðismaður. Áhugi Einars og
óþreytandi elja við að styrkja tengslin milli
Íslands og Manitoba átti mikinn þátt í að efla
samkennd fólks af íslenskum ættum hér um
slóðir. Jón Baldvin Hannibalsson hélt því
starfi áfram með virkum og vakandi áhuga á
málefnum Nýja Íslands. Hann hvatti okkur
til að hafa frumkvæði að nánari og traustari
tengslum við Ísland og að nýta landafundaár-
ið til að hrinda merkum verkefnum í fram-
kvæmd. Heimsókn herra Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, árið 1997 mark-
aði upphaf hátíðahaldanna í tengslum við
landafundaafmælið. Heimsókn þeirra Ólafs
Ragnars og Guðrúnar Katrínar, konu hans,
hafði djúp og varanleg áhrif á kanadískt fólk
af íslenskum uppruna.
Til að annast skipulag hátíðahaldanna árið
2000 var komið á fót Millennium-125 nefnd-
inni sem starfaði í náinni samvinnu við
Landafundanefndina á Íslandi. Árangur alls
þessa starfs er nú ríkur þáttur í huga okkar
og hjarta.
Þegar Svavar Gestsson kom hingað hófst
ferðalag, sem enn stendur.
Svavar hratt í framkvæmd þeim áætlunum
sem þegar höfðu verið gerðar og hann var í
fararbroddi hátíðahaldanna árið 2000. Dugn-
aður hans, greind og aðlaðandi eiginleikar
skipuðu honum sess í hjörtum margra hér í
Kanada.
Með opnun sendiráðsins í Ottawa rættist
langþráður draumur íslenska samfélagsins
hér í Kanada. Þau Hjálmar W. Hannesson og
Anna Birgis eru okkur til sóma í mikilvægu
starfi á þessu sameiginlega ferðalagi okkar
afkomenda íslensku landnemanna. Kanada
opnaði síðan sendiráð í Reykjavík og skipaði
þar í fyrirsvar reynsluríkan diplómat, Gerald
Skinner.
Með sendiráðunum höfðu draumar for-
feðra okkar endanlega ræst.
Þegar Svavar kvaddi var okkur ekki alveg
ljóst hvað við tæki. En þá vorum við svo
gæfusöm að fá þau Eið Guðnason og Eygló
Helgu Haraldsdóttur. Þessum öndvegishjón-
um fylgdi hlýja, samkennd og sérstakur
skilningur á stöðu okkar í hug og hjarta ís-
lensku þjóðarinnar. Þau létu okkur finna að
við vorum hluti hinnar íslensku þjóðarfjöl-
skyldu.
Eiður hefur fjölþætta reynslu sem stjórn-
málamaður, fréttamaður, diplómat og sjón-
varpsmaður. Alla þessa hæfileika sína nýtti
hann með ágætum þann alltof stutta tíma,
sem hann starfaði hér með okkur.
Nú gegnir Kornelíus Sigmundsson sendi-
herra starfi aðalræðismanns í Winnipeg og
Hjálmar W. Hannesson sendiherra veitir
sendiráðinu í Ottawa forstöðu. Báðir eru þeir
langreyndir diplómatar, sem munu rækta
menningartengslin og annast viðskiptalega
og pólitíska hagsmuni Íslands í Kanada. Þar
er hægt að vinna stórvirki ef menn skilja og
nýta hið víðtæka tengsla- og samskiptanet ís-
lenska samfélagsins í Kanada. Það sem áunn-
ist hefur fram til þessa gefur sterklega til
kynna að í framtíðarsamskiptum Kanada og
Íslands felast margvíslegir ónýttir mögu-
leikar.
Sérstaklega langar mig til að nota þetta
tækifæri til að láta í ljósi aðdáun mína á Dav-
íð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra. Þeir hafa flutt
hinni íslensku fjöskyldu hér anda vensla og
frændsemi og þannig orðið hluti af samfélagi
okkar.
Þegar ég nú hverf frá störfum í þágu ís-
lensku utanríkisþjónustunnar, langar mig til
að ljúka þessum orðum mínum með því að
vitna í landkönnuðinn Vilhjálm Stefánsson,
sem sagði um ævi sína og lífsreynslu: „Ég
veit hvað ég hef gert og ég veit hvers virði
það hefur verið mér“. Ég er ykkur þakklátur
fyrir þau forréttindi að hafa fengið að starfa
sem kjörræðismaður ykkar í Nýja Íslandi.“
Neil Ófeigur Bardal dregur sig í hlé frá störfum fyrir utanríkisþjónustu Íslands
Þetta er góður tími til að hætta
Morgunblaðið/Kristinn
Frá heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Gimli í Manitoba í október 2000. Frá
vinstri Svavar Gestsson, þáverandi aðalræðismaður Íslands í Winnipeg, Neil Bardal, að-
alræðismaður í Gimli, og Davíð Oddsson forsætisráðherra.
A
ÐSTAÐA fyrir veiði-
menn hefur verið
byggð upp víða í Kan-
ada. Vestur-íslensku
hjónin John og Kathy
Palson tóku til hendi á þessu sviði
í Redditt í Ontario árið 1979 og
hafa rekið fyrirtæki sitt, Hideaway
Outfitters, síðan. „Mér bauðst að
kaupa þetta og við slógum til,“
segir John og bætir við að mikil
vinna hafi fylgt í kjölfarið. „Hús-
næðið var úr sér gengið og þurfti
endurnýjunar við. Þetta voru fjög-
ur hús en nú erum við með fimm
fjögurra til fimm manna hús og
getum tekið á móti 20 gestum
vikulega auk þess sem við erum
líka með aðstöðu fyrri bjarndýra-
veiðimenn skammt fyrir norðan.“
Skógarbirnirnir vinsælastir
Hjónin bjóða upp á veiði fyrir
stanga- og skotveiðimenn, meðal
annars silungsveiði, bjarndýraveiði
og dádýraveiði. Þau voru á Íslandi
á dögunum og þá notaði John, sem
er ættaður frá Hornafirði, tæki-
færið og var með kynningu á að-
stöðunni í verslun Veiðihornsins í
Síðumúla í Reykjavík. „Þetta er
vinna allt árið en helsti veiðitíminn
er frá miðjum maí fram í miðjan
nóvember,“ segir John. „Banda-
ríkjamenn eru okkar helstu við-
skiptavinir en ég hef fundið fyrir
áhuga á Íslandi og vonandi fáum
við Íslendinga í heimsókn í náinni
framtíð.“
John segir að stangaveiðin hefj-
ist um miðjan maí og standi fram í
október, en gedda (pickerel og
Northern Pike), silungur og lax-
aborri (bass) séu vinsælustu teg-
undirnar. „Gedda er helsti fisk-
urinn en það er líka mikill silungur
hjá okkur og ýmsar aðrar tegundir
sem menn veiða á flugu. Frá byrj-
un júlí fram í miðjan ágúst eru
fjölskyldur í sumarfríi uppistaða
gesta okkar. Síðan kemur tími
þessara veiðimanna, en skóg-
arbirnirnir eru veiddir frá 15.
ágúst til 30. september. Við erum
ábyrg fyrir því að stofninn haldi
sér, en fyrir þremur árum var sett
bann við veiðum á skógarbjörnum
á vorin og sennilega hafa aldrei
verið fleiri dýr en nú. Við erum
með tvö svæði og þar eru meira en
1.000 skógarbirnir. Hver veiðimað-
ur má aðeins skjóta eitt dýr, en
þetta eru um 200 til 500 punda
skrokkar.“
Dádýraveiðitímabilið stendur yf-
ir frá 9. október til 15. nóvember,
en þá hefst undirbúningur fyrir
næsta tímabil. „Við tökum aðeins á
móti 15 dádýraveiðimönnum á
hverju ári til að ganga ekki nærri
stofninum, en menn sækjast fyrst
og fremst í hornin, að eiga stórt
hornum skrýtt uppstoppað höfuð
uppi á vegg. Finni menn ekki dýr-
ið sem þeir vilja bíða þeir bara þar
til næsta ár.“
Stutt frá Winnipeg
Húsin er fullbúin öllum þæg-
indum en gestir dvelja þarna í sjö
daga í einu, frá laugardegi til laug-
ardags. Gjaldið er misjafnt, frá
500 dollurum, um 38 þús. kr., fyrir
vikuna í stangaveiði án fæðis upp í
1.150 dollara, en þá er allt innifal-
ið. Bjarndýra- og dádýraveiðin
kostar frá 1.400 dollurum upp í
2.650 dollara. Nánari upplýsingar
eru á slóðinni www.hideawayout-
fitters.ca, en netfang vestur-
íslensku hjónanna er
jpalson@hideeawayoutfitters.ca.
„Við fáum sömu veiðimennina ár
eftir ár en auðvitað bætast alltaf
nýir í hópinn,“ segir John.
Redditt er nálægt Kenora í Ont-
ario og þangað er um þriggja tíma
akstur frá flugvellinum í Winnipeg
sem er næsti alþjóðlegi flugvöllur.
„Flugið til Kenora lagðist af eftir
árásina á Bandaríkin 11. sept-
ember 2001 og síðan höfum við
þurft að ná í Bandaríkjamennina
til Winnipeg.“
Hefur annast
veiðimenn í
aldarfjórðung
Morgunblaðið/Jim Smart
John Palson, til hægri, sýnir Ólafi Vigfússyni í Veiðihorninu kaststöng og hjól sem henta vel í Redditt.
Veiðar eiga vaxandi fylgi að fagna í Kan-
ada. John Palson hefur tekið á móti
veiðimönnum og annast þá í Redditt í
Ontario í aldarfjórðung, en Steinþór
Guðbjartsson heyrði á honum að Íslend-
ingar væru sérstaklega velkomnir.
steg@mbl.is