Morgunblaðið - 15.06.2003, Qupperneq 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
m
TÍMARIT UM MAT & VÍN27062003
Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins
í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
Auglýsendur!
Næsta tölublað af tímaritinu m sem fjallar
um mat og vín, kemur út föstudaginn 27.
júni næstkomandi.
Tímaritið fylgir Morgunblaðinu í 55.000
eintökum til allra kaupenda blaðsins um
land allt.
Matur og vín eru orðin stór hluti af lífi
landsmanna og margir sem hafa það sem
sérstakt áhugamál. Tímaritinu er ætlað að
endurspegla þennan nýja lífsstíl
landsmanna á lifandi og áhugaverðan hátt.
Stærð tímaritsins er 25x36 sm og er það
skorið og heftað.
Pantanafrestur auglýsinga er til
mánudagsins 23. júní kl. 16:00
w
w
w
.ic
el
an
da
ir
.is
KVENNAKÓR Hafnar-
fjarðar hélt bráðskemmtilega
tónleika á Björtum dögum,
listahátíð Hafnarfjarðar, og átti
djassdívan Kristjana Stefáns-
dóttir ekki sístan þátt í því. Á
efnisskránni voru klassísk
verk, íslensk sönglög, þjóðlög,
negrasálmar og söngdansar og
þar að auki tvö af frægustu
verkum píanósnillinganna
Errolls Garners og George
Shearings; Misty eftir þann
fyrrnefnda og Lullaby Of Bird-
land eftir hinn síðarnefnda. Þau
verk söng Kristjana ein eins og
On The Sunny Side Of The
Street, The Way You Look To-
night, Over The Rainbow og
blús úr kvikmyndinni Color
Purple og lék Agnar Már með.
Þau gerðu þetta listavel. Og
samvinnan brilljant. Kristjana
var oft dálítið stelpuleg í rödd-
inni eins og Ella og í Birdland-
óði Shearings skattaði hún á
nótum Söru. Agnar Már hafði
gott vald á sveiflunni sem ljóð-
inu og átti fljúgandi sóló í The
Way You Look Tonight. Krist-
jana söng einnig með kórnum
fjóra negrasálma og Sól rís úr
Hárinu. Í þeim söngdansi var
hún á klassísku nótunum án
hljóðnema og gerði það með
ágætum, en mikið er ég nú
ánægður að hún skyldi velja
djassinn því þar hefur hún
meiri hæfileika en flestar aðrar
íslenskar söngkonur fyrr og
síðar. Kórinn stóð sig vel í
negrasálmunum sem voru
hressilega fluttir í gospelstíl –
aðeins einn sálmur leið fyrir
það stílbrigði; Nobody Knows
The Trouble I’ve Seen. Þeir
sem hafa heyrt Louis Arm-
strong syngja þann sálm vita
hvað ég á við. Kórinn var aftur
á móti heldur lakari í söngdansi
Irvings Berlins: Alexander’s
Ragtime Band. Þar vantaði
hrynfestuna ekki síður en í
Þjóðlífsmynd Jóns Ásgeirsson-
ar við íslenskar þjóðvísur og
nokkuð skorti upp á áreynslu-
lausan léttleikann í lag Gunnar
Reynis við ljóð Davíðs frá
Fagraskógi: Abba labba lá og
sænska þjóðlagið Út í mó. Ann-
ars var söngur kórsins áferð-
arfallegur og þótt túlkunin á
Ave verum corpus Mozarts hafi
verið nokkuð flöt voru tvísöngs-
lagið María, meyjan skæra,
Heyr himna smiður Þorkels og
Hjá lygnri móðu Jóns Ásgeirs-
sonar mjög fallega flutt.
Sænsku þjóðlögin Vorvindar
glaðir og Dansinn voru líflega
sungin og Næturljóð Taube
mjúkt, aftur á móti var söng-
dans sör Webers söngleikja-
kóngs heldur léttvægur enda
úr litlu þar að moða.
Hafnfirðingar eiga frægan
karlakór, Þresti, sem starfað
hefur um langt árabil. Kvenna-
kórinn var stofnaður 1985 og á
ábyggilega eftir að bera hróður
Hafnarfjarðar víða ekki síður
en Þrestirnir – í það minnsta
kunna konurnar að skemmta
áheyrendum sínum og er það
allnokkuð. Það leiddist engum í
Hafnarborg þetta kvöldið.
Kristjana
og
kvenna-
kórinn
TÓNLIST
Hafnarborg
Kvennakór Hafnarfjarðar undir
stjórn Hrafnhildar Blomsterberg.
Einsöngvari Kristjana Stef-
ánsdóttir; píanóleikur Agnar Már
Magnússon.
Þriðjudagskvöldið 3.6.
KVENNAKÓR HAFNARFJARÐAR
Vernharður Linnet
JÓN Stefánsson kórstjórnandi er nýkominn heim
úr vel heppnaðri tónleika- og keppnisferð. Ásamt
Graduale Nobili og Kammerkór Langholtskirkju
tók hann þátt í alþjóðlegri kórakeppni í Tampere
í Finnlandi í júníbyrjun og með Kór Langholts-
kirkju tók hann þátt í nýstárlegu samstarfsverk-
efni með kórum frá Danmörku og Færeyjum sem
þetta árið fór fram í Danmörku.
Kórakeppnin í Tampere er haldin á tveggja
ára fresti og í ár kepptu um sextíu kórar af ýms-
um gerðum. Þarna voru bæði stórir og litlir kór-
ar, barna- jafnt sem karlakórar auk atvinnukóra.
Íslensku kórunum tveimur gekk afar vel því af
þeim sextíu kórum sem tóku þátt fengu aðeins
fimmtán kórar gull. „Graduale Nobili-kórinn
fékk tvö gull og Kammerkórinn eitt. Tveir kórar
fengu þrjú gull og þrír kórar fengu tvö gull þann-
ig að stelpurnar í Graduale Nobili voru í hópi
þeirra fimm bestu og urðu í öðru sæti ásamt
þremur öðrum,“ segir Jón stoltur af söngfólkinu
sínu. Þess má geta að Graduale Noblili varð bæði
efstur af kvennakórunum sem tóku þátt og æsku-
kórunum.
Aðspurður um efnisskrá kóranna tveggja seg-
ir Jón að lagavalið sé algjörlega í höndum hvers
kórstjóra fyrir sig því keppnin gerir engar kröf-
ur um að ákveðin verk séu sungin. „Hver kór fær
fimmtán mínútur og mjög hart er tekið á því að
ekki sé farið fram yfir þann tíma. Formaður
dómnefndar lagði einmitt sérstaka áherslu á það
við verðlaunaafhendinguna hvað verkefnavalið
væri mikilvægt, þ.e. að velja verkefni sem höfða
til áheyrenda jafnt sem dómnefndarinnar og líka
verkefni sem sýna einhverja breidd í því hvað
kórinn getur,“ segir Jón sem valdi sjálfur verk-
efni er sýndu afar ólíkar hliðar á kórunum tveim-
ur. Raunar féll flutningur Graduale Nobili á
Barnagælu eftir Hjálmar Ragnarsson og flutn-
ingur Kammerkórsins á Ég vil lofa eina þá eftir
Báru Grímsdóttur dómnefndinni það vel í geð að
kórunum var boðið að flytja þessi verk á loka-
tónleikunum, þar sem aðeins stigu á svið kórar
sem hreppt höfðu gull í keppninni.
Jón segist reyndar alltaf hafa verið á móti
svona keppnum allt þar til honum var fyrst boðið
að taka þátt í keppninni í Tampere fyrir tveimur
árum. „Það er mjög spennandi að leggja starf sitt
í mat á svona breiðum grundvelli í samanburði
við annað sem er að gerast. Eins er keppnin í
Tampere miklu meira en bara keppni. Bæði kór-
fólk og stjórnendur hafa mjög gott af því að taka
þátt til að víkka sjóndeildarhring sinn,“ segir Jón
og bendir á að margir komi á hátíðina til þess
eins að taka þátt í námskeiðahaldinu sem þar fer
fram og hlusta á ólíka kóra.
Áður en Jón fór til Finnlands var hann ásamt
Kór Langholtskirkju í Danmörku til þess að taka
þátt í verkefni ásamt kórnum Tritonus í stjórn
Johns Høybye frá Danmörku og færeyska kamm-
erkórnum Skýrák í stjórn Kára Bæk. Verkefnið
hófst í fyrra þegar kórarnir fengu styrk frá Nor-
ræna menningarsjóðnum til þess að vinna að
nýrri norrænni tónlist. „Fyrsti hlutinn fór fram
hérlendis í fyrra. Þá frumfluttum við í Langholts-
kirkju þrjú verk, eitt eftir Høybye, annað eftir
Bæk og það þriðja eftir Tryggva Baldvinsson.
Svo bættust þrjú ný verk við núna sem við vorum
að frumflytja úti í Danmörku, þar á meðal verk
eftir Báru Grímsdóttur sem sló í gegn. Verkefn-
inu lýkur í Færeyjum næsta sumar, þá bætast við
þrjú verk í viðbót og stefnt að því að taka upp öll
verkin níu og gefa út,“ segir Jón að lokum.
Jón Stefánsson kórstjóri ásamt Graduale Nobili og Kammerkór Langholtskirkju í Tampere.
Gullkórar Jóns Stefánssonar
UM þessar mundir stendur yfir
málverkasýning Margrétar Báru
Sigmundsdóttur í Baulu í Borgar-
firði.
Viðfangsefni Margrétar eru fjöl-
breytt og ólík að vanda og saman-
stendur sýningin af bæði vatns- og
olíumyndum í raunsæis- og ab-
straktstíl. Raunsæismynir Mar-
grétar eru flestar af tækjum og tól-
um fyrri tíðar eða frá tímum gamla
bændasamfélagsins en abstraktverk
hennar eða fantasíur eru hins vegar
líkari huglægum veruleika sem er
utan raunsæis og staðreynda.
Þetta er þriðja árið sem Margrét
Bára sýnir í Baulu og stendur sýn-
ingin fram í ágúst.
Bára í
Baulu