Morgunblaðið - 15.06.2003, Page 33
stundum verður maður hundleiður
að sjá ekkert nema grænt í kring-
um sig, með fullri virðingu fyrir
Framsóknarflokknum... Þá getur
verið líflegt að gróðursetja runna
með rauðum eða gulum blöðum í
garðinn hjá sér. Purpurabroddur
er með dökkvínrauð blöð allt sum-
arið og fær svo rauða haustliti í
þokkabót á haustin. Hann blómstr-
ar gulum blómum þannig að þetta
er ákaflega skrautleg planta. Einn-
ig eru komin fram nokkur afbrigði
af japanskvisti með gulum blöðum,
blöð þessara afbrigða eru gul allt
sumarið og á haustin fá þau rauða
haustliti. Japanskvistirnir blómstra
svo bleikum blómum þannig að þeir
ná svo sannarlega að lífga upp á
græna tilveruna. Þessar tegundir
eiga það sameiginlegt að þær þurfa
að standa á björtum stað í garð-
inum því annars dofna litirnir og
blöðin grænka.
Fallegur börkur er augnayndi og
þurfum við ekki að leita langt yfir
skammt því íslenska birkið býr yfir
ótrúlegustu litum í berki sínum.
Margar tegundir af hegg eða kirsu-
berjum eru líka með fallegan börk
og má þar til dæmis nefna næf-
urhegg sem er með sérlega fal-
legan kanelbrúnan börk. Börkurinn
er líka, eðli málsins samkvæmt, til
staðar á plöntunni allt árið þannig
að við getum notið hans yfir hávet-
urinn líka, svona rétt á meðan
dagsbirtu nýtur.
Allir ræktendur, hvar sem þeir
búa á jarðarkringlunni, reyna að
rækta plöntur sem á að vera
ógjörningur að rækta á viðkomandi
stað. Hjá okkur endurspeglast
þetta í því að við ræktum eplatré,
eikur, beyki og margar aðrar teg-
undir sem öll skynsemi segir okkur
að þrífist ekki hér á landi en í sum-
um tilfellum hefur gleymst að segja
plöntunum frá því og dafna þær því
bara ljómandi vel, fái þær hlýjan
og skjólgóðan vaxtarstað. Yfirleitt
gleðjumst við garðyrkjufræðingar
ekkert yfir því þegar „óbreyttir“
ræktendur reka okkur á gat í fræð-
unum en þegar viðkomandi hefur
tekist að rækta upp einhverja af
þessum óræktanlegu plöntum get-
um við ekki annað en samglaðst
honum, það þýðir bara að flóran
okkar er orðin enn fjölbreyttari.
Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur.
OPIÐ HÚS - 101 - Óðinsgata 30
Heimilisfang: Óðinsgata 30
Stærð eignar: 93,8 fm
Bílskúr: nei
Byggingarár: 1919
Brunabótamat: 9,5 millj.
Áhvílandi: 8 millj.
Verð: 14,6 millj.
Falleg íbúð á 2 hæðum á þess-
um vinsæla stað. Mikið endur-
nýjuð. Eldhús sérlega kokka-
vænt. Eign sem vert er að
skoða.
Elís Árnason, sölufulltrúi
RE/MAX, tekur á móti gestum
milli kl. 17.00 og 18.00
í dag, sunnudag.
Elís Árnason,
gsm 897 6007
netfang elis@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fasteignasali
Huldubraut 62 - Kópavogur
Opið hús í dag
Í dag sunnudag verður opið hús að Huldubraut 62, Kópavogi
um er að ræða glæsilegt 258,7 fm parhús á tveimur hæðum.
Möguleiki er á að gera aukaíbúð á neðri hæð.
Lárus sölumaður Hóls verður á staðnum og sýnir eignina
milli kl. 15 og 17 í dag. Verð 25,7 millj.
Hlíðarsmára 15
Sími 595 9090
Sími 595 9000
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
laugard. kl. 12-14
www.holl.is
Borgartúni 22,
105 Reykjavík,
sími 5-900-800.
SUMARBÚSTAÐUR Í GRÍMSNESI
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali
Vandaður 58 fm sumarbústaður í landi
byggingameistara í Kiðjabergi. Um er
að ræða fallegt fullbúið hús, 58 fm að
grunnfleti, ásamt ca 25 fm risi. Húsið
stendur á 1 ha lóð með einstöku útsýni
yfir Hvítá og víðar. Verönd ca 60-70 fm
umlykur húsið með skjólgirðingu að
hluta. Rennandi vatn og rafmagn. Stutt í
golf, sund og alla þjónustu. Ekki nema
45 mín akstur úr Rvík. ÓTRÚLEGT
VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR Á AÐ
SELJAST STRAX.
Hringu strax, það gæti borgað sig.
Upplýsingar á fasteign.is eða hjá Jóni í síma 690 0505
GVENDARGEISLI - VERÐLAUNAHÖNNUN
Stórglæsilegar og vel hannaðar 2ja og 4ra herbergja íbúðir. Teikning af húsinu
fékk verðlaun bygginga- og skipulagsnefndar Reykjavíkur fyrir bestu hönnun
íbúðarhúsnæðis á starfsárinu 2001-2002. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án
gólfefna eða tilbúnar til innréttinga og málningar. Afhending í nóvember-
desember 2003. Hér þýðir ekkert að bíða með hlutina, „fyrstur kemur - fyrstur
fær“. Áhugasamir, nýtið ykkur sýningaraðstöðu Húseignar í Hlíðasmára 17 í
Kópavogi þar sem hægt er að skoða teikningar og þrívíddarmyndir af íbúð-
unum.
Opið sunnudag frá kl. 13-15.
Sumarbridge og
landsliðið í samvinnu
Mánudaginn 9. júní var spilaður
Barómeter með þátttöku 14 para.
Spilaðar voru 9 umferðir, 3 spil á
milli para. Sveinn R. Þorvaldsson
og Gísli Steingrímsson skoruðu
66% sem er næst hæsta skor sum-
arsins og tryggðu sér Verðlauna-
pottinn í leiðinni. Efstu pör voru:
Gísli Steingrímss. – Sveinn R. Þorvaldss.52
Alda Guðnadóttir – Kristján Snorrason 34
Óli Björn Gunnarsson – Eyþór Hauksson
24
Einar L. Péturss. – Sæmundur Knútss. 14
Anna Guðlaug N. – Guðlaugur Nielsen 14
Þriðjudaginn 10. júní var spilaður
Howell-tvímenningur með þátttöku
16 para. Spiluð voru 30 spil og
meðalskor var 210. Efstu pör voru:
Guðlaugur Sveinss. – Baldur Bjartm. 254
Gísli Steingrímss. – Sveinn R. Þorvaldss.253
Þröstur Þorlákss. – Heiðar Sigurjónss. 248
Daníel M. Sigurðss. – Bjarni Einarss. 243
Gísli Hafliðason – Björn E. Pétursson 233
Guðlaugur og Baldur leiddu eina
umferð, þá síðustu. Komust þeir á
toppinn í bronsstigakeppni Sumar-
bridge, Guðlaugur í 1. og Baldur í
2.
Miðvikudaginn 11. júní var sam-
starf með landsliðinu í opnum
flokki og Sumarbridge. Spilaður
var butler-tvímenningur og saman-
burður við Sumarbridge notaður
fyrir landsliðið. Svo skemmtilega
vildi til að Davíð Oddsson styrkti
Sumarbridge í baráttunni við lands-
liðið. Til að gera langa sögu stutta
þá unnu Halldóra Magnúsdóttir og
Ragnheiður Nielsen góðan sigur
með +72 impa í 27 spilum og voru
hæstar fyrir og eftir samanburð við
niðurstöður landsliðsins. Efstu pör
voru:
Halldóra Magnúsd. – Ragnheiður Nielsen72
Guðlaugur Sveinsson – Gylfi Baldursson 26
Jón Viðar Jónm. – Eggert Bergsson 21
Böðvar Magnússon – Hjálmar Pálsson 9
Jón Steinar Gunnl. – Davíð Oddsson 7
Sumarbridge er spilað öll virk
kvöld. Monrad Barómeter á mánu-
dögum og miðvikudögum annars
Snúnings Mitchell. Spilarar geta
tekið þátt í Verðlaunapotti á mánu-,
miðviku- og föstudögum auk þess
sem Miðnætursveitakeppnin verður
á sínum stað að tvímenningnum
loknum á föstudögum.
Sú nýbreytni verður í sumar að
allir sigurvegarar í Sumarbridge fá
verðlaun. Í maí verður það í formi
frímiða í Sumarbridge en glæsilegir
vinningar verða auglýstir síðar.
Spilamennska fellur niður 17.
júní.
Öll úrslit og aðrar upplýsingar
um Sumarbridge er að finna á vef-
síðu BSÍ, www.bridge.is og er Sum-
arbridge efst í valröndinni vinstra
megin, auk þess sem Sumarbridge
kemur sér á framfæri á textavarp-
inu á síðu 326.
Spilarar sem eru 20 ára og yngri
og nemar sem voru í brids sem val-
grein borga 300 kr. en aðrir 700 kr.
Umsjónarmaður Sumarbridge er
Sveinn R. Eiríksson, s. 899-0928 og
Verndari Sumarbidge er Guðlaugur
Sveinsson, s. 552-3790.
Allir spilarar eru velkomnir, sér-
staklega þeir sem koma í eða með
sumarskapið!
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 33