Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MAÐUR, sem hefur játað að eiga
stærsta safn barnakláms sem fund-
ist hefur hér á landi, varð uppvís að
ósæmilegri kynferðislegri hegðun
gagnvart drengjum í einni af deild-
um KFUM í Reykjavík veturinn
1988–1989. Sumarið áður var hann
starfsmaður í sumarbúðum KFUM
og KFUK í Vatnaskógi en var ekki
endurráðinn. Kjartan Jónsson,
framkvæmdastjóri samtakanna í
Reykjavík, vísar því á bug að reynt
hafi verið að hylma yfir efnisatriði í
málinu.
Kjartan hefur lýst því yfir við
fjölmiðla að ástæðan fyrir því að
maðurinn var ekki endurráðinn hafi
verið sú að hann þótti ekki nægi-
lega öflugur starfsmaður, hann hafi
ekki verið staðinn að ósæmilegri
hegðun í Vatnaskógi sumarið 1988.
Í yfirlýsingu sem Kjartan sendi
fjölmiðlum um helgina, tveimur vik-
um eftir að upplýsingar um að mað-
urinn hafi starfað hjá sumarbúðum
KFUM komu fyrst fram, segir að
maðurinn hafi verið staðinn að kyn-
ferðislegri hegðun gagnvart
drengjum þegar hann var sjálf-
boðaliði hjá KFUM veturinn 1988–
1989. Eftir að kvörtun barst frá for-
eldrum hafi honum umsvifalaust
verið vísað frá störfum og málið
kært til lögreglu. Maðurinn kom í
heimsókn í Vatnaskóg sumarið 1989
en var þegar vísað af staðnum.
Mörgum árum síðar reyndi hann að
gerast sjálfboðaliði í vetrarstarfi
KFUM en var tafarlaust hafnað „á
grundvelli fortíðar sinnar“, eins og
segir í tilkynningunni.
„Þessum atriðum vilja talsmenn
KFUM og KFUK koma á framfæri
við fjölmiðla til að tryggja að rétt sé
farið með þær staðreyndir er að
umræddum félögum snúa. Jafn-
framt vísa félögin því á bug að
reynt hafi verið að hylma yfir þessi
efnisatriði en minna á að 14 ár eru
liðin frá [því] að umrædd atvik áttu
sér stað,“ segir þar ennfremur.
Aðeins spurt um
sumarbúðirnar
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Kjartan að búið hafi verið að til-
kynna manninum að hann yrði ekki
ráðinn aftur til sumarbúðanna áður
en hann var staðinn að ósæmilegri
kynferðislegri hegðun í garð
drengjanna, veturinn 1988–1989.
Hann treysti sér ekki til að fullyrða
um hvort grunur um að maðurinn
hefði þessar kenndir hefði vaknað
fyrr. Aðspurður sagði hann að ekki
hafi verið greint frá þessu máli fyrr
vegna þess að fjölmiðlamenn hafi
eingöngu spurt um hvort maðurinn
hefði brotið af sér sem starfsmaður
í Vatnaskógi sem hann hafi ekki
gert. Samtökin hafi þar að auki vilj-
að forðast að rífa upp gömul sár að
fyrra bragði hjá drengjunum sem
urðu fyrir áreitni af hálfu mannsins
og aðstandendum þeirra. Spurður
um hvers vegna greint sé frá þessu
nú sagði hann: „Þar sem þetta er
komið í fjölmiðla þá töldum við rétt
að skýra frá öllum málavöxtum.“
Eftir á að hyggja mætti velta því
fyrir að sér hvort skynsamlegra
hefði verið að greina fyrr frá atvik-
inu sem átti sér stað veturinn 1988–
1989. Hann telur ekki að þetta mál
muni skaða samtökin þegar til
lengri tíma sé litið.
Listi hjá Barnaverndarstofu?
Aðspurður sagði Kjartan ólíklegt
að öðrum æskulýðssamtökum hafi
verið gert viðvart þegar manninum
var vísað frá störfum enda hefði
slíkt verið illframkvæmanlegt á
þessum tíma. Sú hugmynd hafi
vaknað hvort Barnaverndarstofa
gæti haldið utan um einhvers konar
lista yfir feril allra þeirra sem
starfa að æskulýðsmálum, m.a. í
þeim tilgangi að koma í veg fyrir að
óæskilegir og jafnvel hættulegir
menn verði ráðnir til að starfa fyrir
æskulýðssamtök.
Kjartan ítrekaði að í 104 ára sögu
KFUM hafi örfá mál varðandi kyn-
ferðislega misnotkun eða áreitni
komið upp. Í flestum tilfellum hafi
verið um óstaðfestan grun að ræða
og þeim aðilum sem hlut áttu að
máli verið vísað frá störfum. „Þó að
þetta hörmulega mál hafi komið
upp hjá KFUM þá hefur mikill
fjöldi fólks starfað á vegum samtak-
anna um áratuga skeið og unnið af
heilum hug að heill ungmenna,“
sagði hann.
Maður sem hefur játað að hafa haft undir höndum gríðarstórt safn barnakláms
Vísað úr starfi hjá
KFUM vegna kynferð-
islegrar hegðunar
SJÁLFSTÆÐISMENN telja að
breytingar á félagsstarfi aldraðra í
Reykjavík feli í sér niðurskurð og
fækkun stöðugilda, sem sé þvert á
samþykkt borgarstjórnar. Lögðu
þeir fram fyrirspurn í borgarráði
16. júní sl. og spurðu hver hefði tek-
ið ákvörðun um niðurskurðinn.
Björk Vilhelmsdóttir, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans og for-
maður félagsmálaráðs, sagði í borg-
arstjórn sl. fimmtudag að
sjálfstæðismenn hafi alið á óvissu og
óánægju með málflutngingi sem
byggist á rangindum og útúrsnún-
ingum. Þeir ali á því að verið sé að
skera niður í félagsstarfi þó svo að
fjármagn til þessarar starfsemi hafi
aukist á milli ára.
Í bókun borgarfulltrúa Reykja-
víkurlistans, sem Björk kynnti í
borgarstjórn, segir að á næstu mán-
uðum verði unnið að því að þróa fé-
lagsstarf aldraðra í nánu samstarfi
við starfsmenn og notendur. Sér-
stakur verkefnisstjóri hafi verið
ráðinn í þá vinnu. Í þessum breyt-
ingum eigi hagræðing að vera leið-
arljós samkvæmt samþykkt borg-
arstjórnar.
„Borgarfulltrúar Reykjavíkurlist-
ans telja að þær breytingar sem
unnið hefur verið að á undanförnum
mánuðum varðandi félagsstarf aldr-
aðra séu í fullu samræmi við þær
samþykktir sem gerðar hafa verið í
borgarráði og borgarstjórn. Í þeim
efnum hefur sátt við notendur og
starfsmenn verið höfð að leiðar-
ljósi,“ segir í bókuninni.
Björn Bjarnason sagði við þetta
tækifæri að bókunin væri aðeins yf-
irklór og svaraði ekki efnislega
spurningum borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Hann sagði bók-
unina byggjast á svívirðingum í
garð sjálfstæðismanna sem ekki
verði unað við.
Sjálfstæðismenn segja breytingar á félagsstarfi aldraðra fela í sér niðurskurð
Segir breytingar í sam-
ræmi við samþykktir
MIKILL meirihluti þeirra sem útskrifast hafa úr fé-
lagsráðgjöf á undanförnum árum eru kvenkyns. Í til-
kynningu frá Háskóla Íslands segir að á laugardaginn
hafi það gerst í fyrsta sinn að fleiri en einn karlmaður
brautskráist úr þeirri skor. Þá útskrifuðust þeir Ey-
mundur Garðar Hannesson, Pétur Gauti Jónsson og
Ottó Tulinius. Alls ústkrifuðust sextán nýir fé-
lagsráðgjafar.
Mikilvægt að hægt sé að leita til beggja kynja
„Ég held það hafi þýðingu sama í hvaða greinum það
er þar sem verið er að vinna með fólki að fólk hafi að-
gang að báðum kynjum sér til stuðnings. Karlmenn
vilja kannski frekar hitta aðra karlmenn sér til stuðn-
ings. Það getur verið hindrun í sumum tilfellum að hafa
bara aðgang að öðru kyninu. Það er líka mikilvægt að
sjónarmið beggja kynja komi fram á samráðsvettvangi
þessara greina,“ segir Eymundur.
Hann hóf störf hjá Félagsþjónustunni síðasta sumar
og er nú þar við störf. Áður hafði hann m.a. starfað í
bílgreinum og sjómennsku.
Eymundur er mjög ánægður með námið í fé-
lagsráðgjöf. „Þetta er mjög fjölbreytt nám og gefur
manni mjög mikla innsýn á mörgum sviðum. Maður er
að hluta til sálfræðingur, að hluta til félagsfræðingur
og að hluta til lögfræðingur,“ segir Eymundur. Hann
telur mikilvægt að þeir sem taka að sér störf fé-
lagsráðgjafa hafi góða siðferðisvitund og eigi gott með
mannlega samskipti. Hann segir að námið sé vel til þess
fallið að virkja þá eiginleika í fólki.
Morgunblaðið/Kristinn
Eymundur Garðar Hannesson, Ottó Karl Tulinius og Pétur Gauti Jónsson við útskriftina á laugardag.
Þrír karlar útskrifast úr félagsráðgjöf
STEFÁN Jón Hafstein, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans og for-
maður fræðsluráðs, ítrekaði í um-
ræðum um fræðslumál í borgarstjórn
sl. fimmtudag, að framlög borgarinn-
ar til einkaskóla hefðu hækkað langt
umfram almennar verðlagshækkanir
frá árinu 1997 og hækkuðu um þriðj-
ung milli ára nú. Ákvarðanir Reykja-
víkurlistans sýndu að stuðningur er
við þessa skóla innan borgarkerfis-
ins.
Björn Bjarnason, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagði viðhorf
fulltrúa R-listans, að gera öðrum en
Reykjavíkurborg erfiðara fyrir að
reka skóla í borginni, á skjön við þró-
un sem á sér stað í heiminum. Fjöl-
breytnin þrifist með aðkomu margra
aðila að skólastarfinu, sem efldi starf-
ið og þjónustuna við grunnskólabörn.
Björn sagði málflutning Stefáns
Jóns gefa til kynna hver afstaða
Reykjavíkurlistans er til rekstrar-
forms einkaskóla; ekki er mikill vilji
til að hafa svigrúm eða sveigjanleika,
„heldur er litið á þetta sem einskonar
vörtur á skólakerfinu sem best væri
að eyða með einum eða öðrum hætti.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sagði í lok umræðunnar að flokkana í
borgarstjórn greindi algjörlega á um
hvernig reka ætti skóla í borginni og
hvaða tækifæri aðrir en borgaryfir-
völd ættu að hafa til að koma að
skólastarfinu.
Segir litið á
einkaskóla
sem vörtur á
skólakerfinu
FYRSTA Boeing 767-300ER breið-
þota Loftleiða Icelandic, dótturfyr-
irtækis Flugleiða, kom til landsins í
vikunni. Í fréttatilkynningu kemur
fram að þetta er fyrsta breiðþota í
flugflota Flugleiðasamstæðunnar
síðan félagið rak þotu af gerðinni
DC-10 í lok áttunda áratugarins.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
vélin tekur 247 farþega. Tæknilega
er breiðþotan mjög lík þeim fjórum
Boeing 757-þotum sem Loftleiðir
Icelandic hafa til umráða í dag og
mun því falla vel „að öðrum flug-
rekstri Icelandair, sem annast flug-
rekstur Loftleiða Icelandic líkt og
allan annan flugrekstur innan Flug-
leiðasamstæðunnar“, eins og segir í
tilkynningunni.
Breiðþotan verður fyrst í stað
leigð portúgalska flugfélaginu Yes.
Ljósmynd/Hjalti Þór
Ný breið-
þota í flug-
flotann
♦ ♦ ♦
TVÆR konur á þrítugsaldri slösuð-
ust þegar bíll þeirra valt utan vegar í
Hrútafirði rétt norðan Reykjaskóla
um tíuleytið á laugardagsmorgun.
Tilkynnt var um að önnur konan
væri meðvitundarlaus en þegar lög-
reglu bar að var hún með rænu. Ósk-
að var eftir því að þyrla Landhelg-
isgæslunnar yrði sett í viðbragðs-
stöðu en þegar ljóst var að meiðslin
voru ekki eins alvarleg og talið var í
fyrstu var beiðnin afturkölluð. Lög-
reglan á Blönduósi hafði í nógu að
snúast á vaktinni. Aðfaranótt laug-
ardags höfðu þrír veiðimenn velt
jeppa á Arnarvatnsheiði en sloppið
ómeiddir. Tveimur tímum áður en
bíllinn fór út af við Reykjaskóla
skullu tveir jeppar mjög harkalega
saman á Norðurlandsvegi við Giljá.
Farþegar og ökumenn voru aumir en
ósárir og telur lögregla að öryggis-
belti og líknarbelgir hafi bjargað
miklu.
Þyrlan var
í viðbragðs-
stöðu