Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 24
FRÉTTIR
24 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Ræstingastörf
Vantar starfskraft til afleysinga við ræstingar
á gistiheimili í miðbænum í eina viku í júlí
(vika 28) og tvær vikur í ágúst (vikur 34 og 35).
Nánari upplýsingar í síma 861 1836.
Sölumaður
Vegna mikilla verkefna óskum við eftir áreiðan-
legum og kröftugum sölumanni.
Upplýsingar í síma 517 2121 á skrifstofutíma.
H.Blöndal ehf.
www.hblondal.com
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Fjölbrautaskóli
Vesturlands
Örfá pláss eru laus í Grunndeild tréiðna (gamla
námskráin) skólaárið 2003—2004. Þetta er í
síðasta sinn sem boðið er upp á nám í Grunn-
deild tréiðna.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í
síma 431 2544. Umsóknareyðublöð er hægt að
prenta út af heimasíðunni okkar: www.fva.is .
Skólameistari.
BÁTAR SKIP
Þorskkvóti, með/án skips
óskast til kaups
Höfum trausta kaupendur nú þegar, að 40 til
200 tonna Þorskkvóta, auk meðafla, í bæði afla-
marks og krókaaflamarkskerfinu. Má vera með
eða án báts/skips. Staðgreiðsla. Nánari uppl.
veittar af skipasölu í síma 568-3330.
Skipamiðlunin Bátar og Kvóti
http:www.skipasalan.com
Sími: 568 3330 Fax: 568 3331
LÝST er eftir vitnum að um-
ferðaróhappi er varð á bifreiða-
stæði við Kárastíg 14–16,
fimmtudaginn 19. júní á milli kl.
8.45 og 12. Ekið var framan á
ljósgráa Toyota Corolla fólks-
bifreið sem lagt var þar í bif-
reiðastæði og fór tjónvaldur af
vettvangi. Þeir sem upplýsing-
ar geta veitt um mál þetta eru
vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við lögregluna í Reykja-
vík.
Lýst eftir
vitnum
Félagsfundur kjördæmisráðs VG í
suðvesturkjördæmi Kjördæmisráð
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs í suðvesturkjördæmi held-
ur félagsfund með aðildarfélögum
kjördæmisins á morgun, þriðjudag-
inn 24. júní kl 20.30, í húsi Kven-
félags Kópavogs, Hamraborg 10
(gengið inn baka til). Erindi halda:
Ragnhildur Guðmundsdóttir, for-
maður kjördæmisráðs, og Guðný
Dóra Gestsdóttir.
Nýtt hugleiðslunámskeið er að
hefjast hjá Karuna Búddistamið-
stöðinni að Ljósvallagötu 10. Tím-
arnir eru á þriðjudögum kl. 20–21.30
og er fyrsti tíminn 24. júní. Næstu
tímar eru: 1., 8., 15. og 22. júlí.
Allir velkomnir. Engin þörf á að
bóka og er hver kennslutími sjálf-
stæð eining.
Á MORGUN
MÝVATNSMARAÞON fór fram á
föstudagskvöld og hófst kl. 18 í
hægviðri og 9°C hita. Keppendur
voru um 40 þar af 8 konur. Sig-
urvegarar urðu þeir Ívar Adólfsson
og Ingólfur Örn Arnarsson á tím-
anum 3:00.57. Þeir hlupu samsíða
alla leið í takt við fuglasöng.
Fyrst kvenna varð Elísabet Sól-
bergsdóttir á tímanum 3:34.29.
Maraþonhlaupin eru með hefð-
bundnu sniði og í föstum skorðum
eftir margra ára reynslu undirbún-
ingsnefndarinnar.
Fjölmargir
hlupu Mý-
vatnsmaraþon
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
Sigurvegarar maraþonhlaupsins á
ferð á Hofstaðaheiði og 14 km að
baki. Sigurvegarinn Ívar Adólfsson
til vinstri og Ingólfur Örn Arn-
arsson til hægri.
STARFSEMI sumarbúðanna í Ölveri undir Hafnarfjalli
hófst 6. júní sl. og geta 42 stelpur verið þar í senn í hverj-
um flokki, sem varir í viku. Er laust í flokka í júlí og ung-
lingaflokk í ágúst, en hann er fyrir 12–15 ára stelpur,
annars hefur aðsókn verið góð að sögn Drífu Sigurð-
ardóttur, forstöðukonu sumarbúðanna.
Mæðgnahelgi verður fyrstu helgina í október, þá
koma mömmur með stelpunum. Hafa sumar mömmu-
rnar verið sjálfar í búðunum sem stelpur á sínum tíma og
eins koma stelpur, sem verið hafa í búðunum í sumar,
með mömmur sínar. Alls eru 8 starfsmenn við búðirnar
og ráðskona er Ólöf Kjartansdóttir. Hefðbundið starf
sumarbúðanna endar síðan með kaffisölu 24. ágúst.
Um helgar þegar venjubundið sumarbúðastarf fer
ekki fram eru búðirnar í Ölveri leigðar út. Geta um 60
manns verið í búðunum í einu og er aðsókn mest um
vetrartímann. Nýlega voru eldhúsið og uppþvottaað-
staðan endurnýjuð.
Morgunblaðið/Pétur
Stórt hengirúm úr neti kom í fyrra sem viðbót við leiktækin í Ölveri. Sögðu stelpurnar, sem eru á myndinni, að all-
ar 42 stelpurnar í sumarbúðunum gætu verið í því í einu, og þess vegna væri það stærsta hengirúm í heiminum.
Í heimsins stærsta hengirúmi