Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 12 Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16 ára. Sýnd kl. 10. B i. 12 HL MBL "Triumph!" Roger Ebert  SG DV Frá höfundi "Training Day" kemur kyngimagnaður löggutryllir með hinum svala Kurt Russell. "Fyrsta stórmynd ársins 2003" US WEEKLY ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16. KVIKMYNDIR.IS Frá höfundi "Training Day" kemur kyngimagnaður löggutryllir með hinum svala Kurt Russell. "Fyrsta stórmynd ársins 2003" US WEEKLY KVIKMYNDIR.COMÓHT Rás 2 ENGAR BÆKUR hafa vakið við- líka athygli á undanförnum árum og bækur Joanna K. Rowling um galdrastrákinn Harry Potter og ævintýri hans. Fyrsta bókin kom út fyrir sex árum og sú fimmta sl. laugardag eins og hefur vænt- anlega ekki farið fram hjá neinum. Smám saman hafa bækurnar orðið þykkari og veigameiri og sú síðasta er engin smásmíði; enska útgáfan, sem þessi umsögn er byggð á, er 766 síður. (Sú bandaríska er víst um 100 síðum lengri, en innihaldið er það sama.) Óhætt er að segja að lesendur hafi staðið á öndinni að loknum lestri Harrys Potters og eldbikars- ins, enda lokasenna þeirra bókar mögnuð. Undir lokin flytur Dumbledore ræðu þar sem hann varar við því að helsta vopn Volde- morts hins illa sé að sá sundurlyndi meðal andstæðinga sinn, etja þeim saman og spilla vináttu og ást manna í millum. Þegar því tak- marki er náð er eftirleikurinn auð- veldur. Þess sér stað í bókinni nýju, því framan af henni er hver höndin upp á móti annarri og ekkert virð- ist geta komið í veg fyrir að Volde- mort nái takmarki sínu. Ekki er til að bæta ástandið þegar Galdra- málaráðuneytið sendir sérlegan sendimann, prófessor Umbridge, sem á að kenna börnunum að verj- ast myrkraöflunum, en hún hefur allt annað í huga; snemma kemur í ljós að fyrir henni og ráðuneytinu vakir að koma Dumbledore frá og ná tökum á Hogwarth-skólanum. Meðal þeirra bragða sem hún beitir er að skipa sjálfa sig sem skoð- unarmann skólastarfsins og þar er Rowling eflaust að skjóta föstum skotum að breskum skóla- yfirvöldum sem hafa beitt fyrir sig umsjónarmönnum. Nýir og gamlir kunningjar Bókin er upp full með uppljóstr- anir sem koma lesandanum í opna skjöldu, sumar næsta ótrúlegar. Í flestu er bókin þó nokkuð hefð- bundin í uppbyggingu sinni; spenn- an eykst smám saman eftir því sem Harry Potter og félagar hans kom- ast á snoðir um myrk leyndarmál, hinir fullorðnu átta sig ekki á því sem er að gerast fyrr en það er næstum um seinan og undir lokin sest Dumbledore niður með galdra- stráknum unga og segir honum allt af létta – framvindulýsing sem átt gæti við allar bækurnar fimm. Í nýju bókinni eru ýmis tilbrigði við þetta stef, við sjáum Dursley- fjölskylduna við Runnaflöt í nokk- uð breyttu ljósi, fleiri persónur koma við sögu og taka æ meiri þátt í því sem fram fer, í takt við það að Harry Potter er á þröskuldi heims fullorðinna, og þær persónur sem áður hafa verið kynntar taka á sig skýrari mynd og við kynnumst þeim betur, til að mynda Siriusi, guðföður Harrys, og Weasley- fjölskyldunni, og aðrir nemendur Hogwarth-skólans eru að verða sýnilegri sem er vel, fjörgar sög- una til muna og gerir hana eft- irtektarverðari. Aðrir gamlir kunningjar eru ekki eins áberandi og oft áður, til að mynda verður Ron Weasley nánast óþarfur og Hermione gegnir minna hlutverki en áður. Innviðir Harrys Potters eru aftur á móti meira áberandi, til viðbótar við ótta við hinn vonda, nám sem verður æ erfiðara og hörmungarlífið heima á Runnaflöt kemur að piltur er að komast á gelgjuskeið, farinn að taka eftir stelpum, sérstaklega einni stelpu, og það er síst til þess fallið að gera unglingi lífið léttara. Ofan á allt bætist að liðsmenn Voldemorts eru iðnir við að nýta sér það að enginn vill trúa því að sá-sem-ekki-má-nefna sé snúinn aftur, þorir ekki að trúa því, og þar sem engin vitni eru að því nema Harry Potter er lítill vandi að snúa því upp í það að hann sé athygl- issjúkur lygari. Ekki batnar líf Potters unga við það að hann sé al- mennt talinn vænisjúkur og einnig fer að bera á því að hann er ekki sama sakleysissálin og í fyrri bók- unum, hann er eldri og meðvitaðri um hlutverk sitt og kann því ekki vel – nema hvað. Hver myndi taka því vel að eiga sér svo öflugan og illskeyttan óvin sem Voldemort? Þegar við bætist að Harry er tengdur Voldemort ósýnilegum böndum að því er virðist (eða hvað veldur annars sársauk- anum í örinu á enn- inu?), verður málið enn erfiðara viðureignar. Eldist með lesendum Galdurinn við bækur Rowling er ekki síst sá að Harry Potter eldist með lesendum; ólíkt flestum barnabóka- hetjum sem sitja fastar á sínu aldurskeiði og ná þannig aldrei að höfða til nema ákveð- ins aldurshóps lesenda, en les- endur Harry Potter-bókanna eld- ast með honum og missa því ekki áhugann á hetjunni. Í Harry Potter og Fönixreglunni er pilturinn að breytast í mann, hann er hættur að sjá heiminn í eins rómantísku ljósi og forðum, fullorðnir eru ekki ým- ist alvondir eða algóðir og hann áttar sig smám saman á að for- eldrar hans voru mannlegir en ekki bara yfirnáttúrlegar skraut- myndir. Í takt við hækkandi aldur sögu- hetjunnar hefur atburðarásin orðið hraðari, baráttan gegn hinum illa hatrammari og ýmislegt gerist í bókunum sem á eftir að skelfa les- endur af yngri kynslóðinni. Ekki síst á dauðsfallið í sögunni eftir að koma ýmsum úr jafnvægi en það er ekki bara í bókinni til að hræða þá sem lesa heldur nauðsynlegur þátt- ur í þroska Harrys og til þess fallið að styrkja hann í baráttunni gegn illvirkjanum og hyski hans. Ekki bara hryllingur Ekki er þó bara hryllingur á ferð, aðal Harry Potter-bókanna hefur þó verið gamansamar frá- sagnir Rowling af ýmsu í töfra- heiminum og af slíku er nóg í bók- inni nýju, aukinheldur sem nóg er af afkáralegum persónum. Pró- fessor Umbridge er gott dæmi um það, vissulega illa innrætt og ófyr- irleitin en einnig afkáraleg og fyndin. Heimili Siriusar er líka skemmtilegt og heimsókn í galdra- spítalann er líka bráðfyndin, þó þar eigi ýmsir voveiflegir atburðir að gerast. Þannig er það reyndar í gegnum bókina alla – þó margt skemmtilegt beri fyrir augu er ógnin aldrei langt undan og víst að erfitt er að leggja bókina frá sér fyrr en henni er lokið þó það kosti eflaust einhverjar andvökunætur. Harry Potter and the Order of the Phoenix eftir Joanna K. Rowl- ing. Bloomsbury gefur út 2003. 766 síður innbundin. Kostaði 3.350 kr. í Máli og menningu. Gaman og alvara Morgunblaðið/Jim Smart Það var handagangur í öskjunni þegar sala hófst á fimmtu Harry Potter-bókinni aðfaranótt laugardags! Varla hefur það farið fram hjá neinum að ný bók um Harry Potter kom út á laugardag. Árni Matthíasson las bókina um Harry Potter og Fönixregluna. Nýja bókin um Harry Potter hefur þegar selst í gríðarlegu magni og Potter-æði gripið heimsbyggðina. Hér sést höfundurinn J.K. Rowling árita eintak fyrir ungan aðdáanda. Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.