Morgunblaðið - 23.06.2003, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu!
2 vik
ur
á top
pnum
í USA
!
Sýnd kl. 10. B.i. 12. Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 10.15. B.i. 12
2 vik
ur
á to
ppnu
m
í US
A!
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
YFIR 17.000 GESTIR!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6 og 8.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8.
Ef þú hélst að þú værir heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd. Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni fyrr í
geggjaðri grínmynd!
HJ MBL
SV DV
X-ið 977
Kvikmyndir.com
kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
FORSÝN. ÞRI. 24/6 miðav. 1.500 ÖRFÁ SÆTI
FORSÝN. MIÐ. 25/6 miðav. 1.500 UPPSELT
FRUMSÝN. FIM. 26/6 - KL. 20.00 UPPSELT
2. LAU. 28/6 - KL. 15.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. SUN. 29/6 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. FIM. 3/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
5. FÖS. 4/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
6. SUN. 6/7 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Nýliðinn
(The Rookie)
Drama
Bandaríkin 2001. Skífan. VHS (129
mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: John Lee
Hancock. Aðalleikendur: Dennis Quaid,
Rachel Griffiths, Jay Hernandez, Beth
Grant, Brian Cox.
TAKMARKAÐUR áhugi landans
á hinni alamerísku íþrótt hafnabolta
– baseball – hefur vísast gert það að
verkum að Nýliðinn (The Rookie),
hlaut ekki þá upphefð að vera sýnd í
kvikmyndahúsi hérlendis heldur
frumsýnd á myndbandi. Ástæðan er
ekki sú að myndin hafi brugðist við
miðasölulúguna, því hún hlaut prýði-
lega aðsókn vestan
hafs þegar hún var
sýnd þar um ára-
mótin. Ástæðan er
enn síður gæðalegs
eðlis, Nýliðinn er
snyrtilega upp-
byggð íþrótta-
mynd, vel leikstýrð
og skrifuð með hágæðaleikaranum
Dennis Quaid í hlutverki Jim Morris,
raungreinakennara og íþróttaþjálf-
ara við menntaskóla í smábæ í Tex-
as. Þar döguðu draumar hans uppi
sem hafnaboltahetja – en það stöðv-
ar hann ekki heldur í því að gefa
nemendum sínum tækifæri til að
spreyta sig í þjóðaríþróttinni og enn
frekar að eiga sér vonir. „Draumar
geta ekki ræst“, innprentar hann
nemendum sínum, „öðruvísi en þeir
séu fyrir hendi.“
Nýliðinn er byggð á sönnum at-
burðum, því árið 1999 veðjaði Morris
við lið sitt, sem hafði lítið afrekað til
þess, að ef þeir kæmust í úrslit skyldi
hann taka kylfuna af hillunni. Morris
stóð við orð sín, náði settu marki –
gerði úrvalsdeildarlið úr engu og
staðsetti á meðal þeirra bestu og
varð sjálfur elsti nýliðinn í sögu úr-
valsdeildarinnar NBL.
Myndin er nokkuð langdregin,
hjartnæm og vissulega getur vart
bandarískara umfjöllunarefnis. Það
sem skiptir mestu máli þó er að
myndin er sögð með mikilli væntum-
þykju fyrir þjóðaríþróttinni, virð-
ingu fyrir efninu og þeim jákvæðu
áhrifum sem íþróttir hafa á land og
syni. Quaid er stórkostlegur í aðal-
hlutverkinu, skilningurinn á eðli
manna á borð við Morris og ábyrgð
þeirra gagnvart umhverfinu geisla af
þessum geðþekka leikara. Auk þess
fara leikararnir í hlutverkum leik-
mannanna, nemenda Morris, vel með
sitt og Cox traustur að vanda. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Draumarn-
ir rætast
GUÐ minn góður! Hvað er hún að
pæla? Þótt hana Elísu dreymi um
að eignast hárgreiðslustofu með
Lúlú vinkonu sinni, þá fer maður
ekki að stunda vændi án þess að
hugsa sig um eða yfirgefur börn sín
hjá vandalausum í einni heimsálfu
til þess að vinna fyrir sér í annarri.
Eða hvað?
Það er ekki við öðru að búast,
þegar maður sér mynd frá Úrúgvæ,
en að fólkið þar sé öðruvísi, og þess
vegna siðferðiskennd þess líka. Og í
Úrúgvæ virðist vændi vera sjálf-
sagður hlutur í mannlífinu.
Sagan af Elísu er sönn. Þetta er
saga af einstæðri móður, sem í ein-
feldni sinni lendir alltaf á ömurleg-
um gaurum og trúir því að vændi
geti verið eitthvert glamúr-líf og
leið til ríkidæmis.
Ég hafði á tilfinningunni að höf-
undarnir vissu ekki alveg hvernig
mynd þeir væru að gera. Fyrst er
allt létt og skemmtilegt í gaman-
sömum dúr, frekar farsakennt og
óraunverulegt. Í samræmi við það,
vefst ekkert fyrir Elísu, ekkert tog-
ast á í henni. Svo seinna þegar al-
vara lífsins hefst, heimur Elísu
hrynur og raunsæið tekur völdin, þá
er engin innistæða fyrir samkennd
meðal áhorfanda og leikstjóranum
tekst ekki að gera myndina jafn
átakanlega og efni standa til, og
eins og raunveruleikinn hefur áreið-
anlega verið. Einnig fannst mér
endirinn hálf hallærislegur, þegar
Elísa fer að kenna forsetanum um
að vændiskonur hafi ekki aðra
vinnu. Ég man ekki betur en að hún
hafi hætt í sinni vinnu og stokkið út
í vændið án þess að leita sér að ann-
arri vinnu fyrst …
Þrátt fyrir allt fannst mér mjög
gaman að sjá Gjálífi. Mér fannst
forvitnilegt að sjá mynd frá Úrú-
gvæ, hún er oft á tíðum bráð-
skemmtileg og aðalleikkonurnar eru
heillandi, skemmtilegar og sannfær-
andi í hlutverkum sínum. Maður
virkilega vonar að allt gangi upp hjá
þeim. Auk þess greinir myndin frá
sorglegum staðreyndum um mansal
í Suður-Ameríku, en það virðist
stórt vandamál hvernig vændiskon-
ur eru plataðar yfir til Evrópu, líkt
og á sér stað í Austur-Evrópu. Og
sem slík er myndin mjög áhugaverð.
Bláendirinn fannst mér einna
átakanlegastur þegar góða löggan
segir nákvæmlega sömu hluti við
Elísu og einn drullusokkurinn hafði
gert. Það lýsti því – sem hefði mátt
koma fyrr fram – að sumir hafa
aldrei, aldrei heppnina með sér. Og
Elísa er ein af þeim.
Óheppin
bláeygð
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
GJÁLÍFI/EN LA VIDA PUTA Leikstjórn: Beatriz Flores Silva. Handrit:
Beatriz Flores Silva og János Kovácsi.
Kvikmyndataka: Francisco Gózon. Aðal-
hlutverk: Mariana Santagelo, Josep Lin-
uesa, Andrea Fantoni, Rodrigo Speranza,
Agustin Abreu og Fermi Herrero. 100
mín. Úrúgvæ. Saga Film 2001. Elísu finnst lífið blasa við þeim Placidó.
Hildur Loftsdóttir
HAFNFIRSK bílskúrsbönd tróðu upp á Norðurbakkanum í Hafnarfirði á
laugardag í félagi við nokkur stærri og þekktari bönd á borð við Botnleðju
og Jet Black Joe auk þess að gestaböndin Írafár og I Adapt komu og
skemmtu.
Straumur fólks var á svæðið og hlýddu menn á tónlistardagskrá sem
stóð frá miðjum degi fram undir miðnætti á þessum lengsta degi ársins.
Veður var með besta móti og var Norðurbakkinn þétt skipaður, sér-
staklega þegar Írafár steig á svið og einnig um kvöldið þegar bleikur
kvöldhiminninn hvefldist yfir rokkunnendur í óvenjuhlýju veðri og stillu.
Meðal banda sem heyra mátti voru Lada Sport, Elekt, Tríó negrakoss-
anna, Dáðadrengir og Vígspá.
Stærstu útitónleikar í Hafnarfirði í lengri tíma voru á laugardag í blíðskaparveðri
Rokkað í Hafnarfirði
Gleðisveitin Runólfur blés gleði í brjóst viðstaddra.
Það var blíðskaparveður og því til-
valið að gera að hætti harðra rokk-
ara og spila ber að ofan. Liðsmaður
Fíknar mundar gítarinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Þessi liðsmaður HanSolo sýndi
tilþrif bæði með fingrum og fési
þegar hann tók sóló.
Þekkt og óþekkt bönd stigu á svið á
Norðurbakkanum. Hér sýna liðs-
menn Úlpu listir sínar við góðar
undirtektir tónleikagesta.
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Sumarúlpur
Sportúlpur
Heilsársúlpur