Morgunblaðið - 23.06.2003, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HJÓNIN Karen Björgvinsdóttir og Adam
Reeve unnu heimsmeistarakeppnina í tíu
dönsum atvinnumanna í Tókýó í Japan um
helgina. Þau báru sigurorð af 22 pörum
alls staðar að úr heiminum, en þau keppa
fyrir hönd Íslands. Í keppni í tíu dönsum
gildir samanlagður árangur í suður-
amerískum dönsum og standard-dönsum.
„Þetta er eitthvað sem maður trúir ekki
ennþá. Þetta kom okkur mjög á óvart,“
segir Karen. Þrotlausar æfingar liggja að
baki árangri sem þessum og segir hún að
síðustu tveir mánuðir hafi sérstaklega ver-
ið undirlagðir af æfingum.
Kara Arngrímsdóttir, varaforseti Dans-
ráðs Íslands og annar eigenda Dansskóla
Jóns Péturs og Köru, segir að þessi árang-
ur Karenar og Adams sé mjög mikil við-
urkenning fyrir dansinn á Íslandi. „Þetta
auglýsir okkur mjög vel og kemur Íslandi
enn betur á kortið í dansheiminum,“ segir
hún.
Íslendingar
heimsmeist-
arar í sam-
kvæmisdansi
Lífið/6
fulltrúar ráðuneytisins sjálfs og
aðilar úr hernum,“ segir Gunnar.
Ekki óvenjulegt að senda
svo fjölmenna sendinefnd
Í gærkvöldi hafði endanlegur
þátttakendalisti Bandaríkjamanna
ekki borist og ekki var ljóst hvort
fulltrúar varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli yrðu í sendinefndinni.
Aðspurður sagðist Gunnar
Snorri ekki telja óvenjulegt að
Bandaríkjamenn sendu svo fjöl-
menna sendinefnd til Reykjavíkur.
Hann sagði hins vegar að þátttaka
fulltrúa Hvíta hússins væri að
nokkru leyti óvenjuleg.
Fundurinn er haldinn í beinu
framhaldi af bréfaskiptum Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra, og
George W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna.
Gunnar Snorri segir að á fund-
inum muni fulltrúar ríkjanna gera
grein fyrir afstöðu ríkisstjórna
sinna.
Í sendinefnd Bandaríkjanna
verða fulltrúar frá bæði utanríkis-
ráðuneyti og varnarmálaráðuneyti
auk þess sem fulltrúi þjóðarörygg-
isráðsins, sem heyrir beint undir
forsetann í Hvíta húsinu, verður
með í för. „Frá bandaríska varn-
armálaráðuneytinu koma bæði
Í DAG klukkan níu hefst fundur í
utanríkisráðuneytinu við Rauðar-
árstíg um framkvæmd tvíhliða
varnarsamnings Íslands og
Bandaríkjanna.
Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, fer fyrir samningaliði Ís-
lands. Aðrir í hópnum eru m.a. Al-
bert Jónsson, forsætisráðuneyti,
Sturla Sigurjónsson, skrifstofu-
stjóri varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, og Helgi
Ágústsson, sendiherra Íslands í
Washington. Gert er ráð fyrir að
fundinum ljúki um eða eftir há-
degi.
Fundur um varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna
Hvíta húsið send-
ir fulltrúa hingað
SUMARSÓLSTÖÐUR voru um helgina en
laugardagur var lengsti dagur ársins. Miklar
stillur voru um land allt en að sögn Sigrúnar
Karlsdóttur, veðurfræðings á Veðurstofu Ís-
lands, var besta veðrið á norðanverðu land-
inu, þar var logn og víða jafnvel heiðskírt.
„Það var hið ágætasta veður á sumarsól-
stöðum. Það var hægviðri á öllu landinu, létt-
skýjað norðantil, það var svolítið súldarloft
með austur- og suðausturströndinni. Annars
staðar var hálfskýjað eða skýjað,“ segir hún.
Í dag er spáð fínu veðri en hún bendir þó
á að líkur séu á síðdegisskúrum á vest-
anverðu landinu. Hún segir að von sé á suð-
austlægum áttum frá þriðjudegi og fram á
laugardag. „Á þriðjudag verður komin aust-
an- og suðaustanátt og verður dálítil rigning
sunnantil á landinu. Á miðvikudag verður
rigning víða, þó síst norðaustanlands. Það
verður milt áfram en vætusamt sunnan- og
vestantil næstu daga, frá og með þriðjudeg-
inum. Hitinn verður ágætur, 11–17 stig,“
segir Sigrún.
Margir nýttu sumarsólstöðurnar til útiveru
og lögðu meðal annars fjölmargir leið sína
að Garðskagavita til að fylgjast með sólsetr-
inu. Sólin settist bakvið Snæfellsnesfjallgarð-
inn fjórum mínútum eftir miðnætti og var þá
fagurt um að litast, eins og myndin ber með
sér.
Stillur á sumarsólstöðum um allt land
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðar
ÍSLENSK auglýsing um Thule-bjór
var tilnefnd til verðlauna á auglýs-
ingahátíð sem lauk í Cannes á laug-
ardaginn. Tilnefningin er talin mikil
viðurkenning enda er þessi hátíð í
Cannes talin ein sú mikilvægasta í
auglýsingaheiminum. Auglýsingin
vann ekki til verðlauna á hátíðinni.
Reynir Lyngdal, leikstjóri auglýs-
ingarinnar, segist telja að þótt Thule-
auglýsingin hafi ekki unnið til verð-
launa þá sé tilnefningin mikill heiður.
Reynir hafði ekki gert ráð fyrir til-
nefningunni áður en hann hélt til
Frakklands og var ekki viðstaddur
verðlaunaafhendinguna þar sem hann
hafði í nógu að snúast, mikil örtröð
var við athöfnina, miði á herlegheitin
kostaði um 200 þúsund íslenskar
krónur og hann vildi ekki leggja í
þann kostnað.
Leikstjórinn var ekki
viðstaddur í Cannes
Aðgöngu-
miðinn
kostaði 200
þúsund
VEGNA tvöföldunar á Reykjanes-
braut hafa verktakar tekið efni í
gömlum námum í Afstapahrauni
við Kúagerði. Þessi aukni námu-
gröftur hefur gengið mjög nærri
forn- og náttúruminjum á svæðinu.
Á laugardag höfðu vinnuvélar
grafið mjög nálægt fornum hlöðn-
um garði og svonefndum tóustíg
sem liggur austan við námuna. Að
sögn Ómars Smára Ármannssonar,
ötuls áhugamanns um náttúru og
sögu Reykjanessins, er tóustígur-
inn náttúrufyrirbrigði en var fyrr á
öldum notaður af mönnum sem
fluttu hrís. Garðurinn, sem liggur
þvert á stíginn, er að öllum líkind-
um yfir 100 ára gamall og telst því
til fornminja. Ómar segir að jafnvel
þó að stígurinn og garðurinn verði
ekki eyðilagðir af stórvirkum
vinnuvélum sé nú þegar búið að
ganga svo nálægt þessum minjum
að þær fái engan veginn að njóta
sín. „Það er algjör óþarfi að fara
svo nálægt þessum minjum því það
er nóg af hentugu efni á svæðinu,“
segir hann. Námugröfturinn lýsi
virðingarleysi fyrir landi og nátt-
úru.
Tvöföldun Reykjanesbrautar er í fullum gangi
Segir námugröft ganga
nærri fornminjum
FJALLGÖNGUMAÐUR fannst lát-
inn í hlíðum Kirkjubólsfjalls við Skut-
ulsfjörð í gær. Hinn látni hét Hjálmar
Steinþór Björnsson, fæddur 14. októ-
ber 1959, til heimilis á Ísafirði.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Ísafirði var síðast vitað af
ferðum Hjálmars seinnipartinn á
laugardag en þá stefndi hann upp í
Naustahvilft í Kirkjubólsfjalli, sem er
við austanverðan Skutulsfjörð. Veg-
farandi hafði samband við lögreglu
aðfaranótt sunnudags upp úr mið-
nætti og benti á að mannlaus bíll væri
við fjallið og hóf lögregla þá eftir-
grennslan. Rétt fyrir klukkan þrjú á
sunnudag var allt tiltækt björgunarlið
á Ísafirði kallað út til leitar, þar á
meðal björgunarsveitarmaður með
leitarhund sem fann Hjálmar um
klukkustund síðar. Hafði hann hrap-
að alllangt niður hlíðar fjallsins og tal-
ið er að hann hafi látist samstundis.
Banaslys
í Kirkju-
bólsfjalli
LÖGREGLAN á Egilsstöðum
stöðvaði tíu ökumenn fyrir of
hraðan akstur á þremur klukku-
tímum þegar hún var við hraða-
mælingar á Háreksstaðaleið á
Jökuldalsheiði í gærkvöldi.
Umferð var ekki ýkja mikil en
lögreglumaður sem Morgun-
blaðið ræddi við sagði greinilegt
að menn ækju greitt þarna um.
Sá sem hraðast ók var á tæplega
140 km hraða.
Hratt ekið
á Háreks-
staðaleið