Morgunblaðið - 26.06.2003, Qupperneq 18
HAFNARSTJÓRN
Reykjavíkur hefur
samþykkt beiðni
Eimskipafélags Ís-
lands um að fá að
reisa viðbyggingu
við Sundaklett og
íhugar félagið nú að
flytja höfuðstöðvar
sínar úr Pósthús-
stræti 2 niður í
Sundahöfn. Að sögn
Þorkels Sigurlaugs-
sonar, fram-
kvæmdastjóra þró-
unarsviðs
Eimskipafélagsins,
hefur ákvörðun um
það hvort ráðist
verði í framkvæmd-
ina ekki verið tekin
en málið er í skoðun. „Við vorum að
fá leyfi Reykjavíkurhafnar til að
byggja við húsið vegna þess að okk-
ar hugmynd er sú að vera með alla
skrifstofustarfsemina á einum stað.
Skipulagsyfirvöld eiga eftir að fjalla
um málið. Nú er talsvert mikið af
starfseminni í Pósthússtræti, bæði
sem tengist flutningastarfseminni
og móðurfélaginu Eimskipafélagi
Íslands. Nú höldum við áfram að
meta það hvort og hvenær við
byggjum þarna við og flytjum starf-
semina á einn stað,“ segir hann.
Hann telur að ákvörðun verði
væntanlega tekin á þessu ári, en
gerir ráð fyrir að undirbúningur
taki nokkra mánuði, auk þess sem
fyrirhugaður flutningur hangi sam-
an við nýtingu á húsinu í Pósthús-
stræti. „Þetta fer líka eftir því
hvernig við myndum nýta húsið í
Pósthússtræti 2, hvort það verður
selt, leigt eða nýtt áfram í eitthvað
annað á okkar vegum.“ Hann telur
að viðbygging við Sundaklett geti
orðið 1500–2000 fermetrar að stærð,
en Eimskipafélagshúsið í Pósthús-
stræti er liðlega 3000 fermetrar.
Fundir bæjarstjórnar í húsinu
Höfuðstöðvar Eimskipafélagsins
hafa verið í Pósthússtræti 2 frá
árinu 1921 og bendir Þorkell á að
það sé eitt af eldri skrifstofuhúsum
hér í borg. „Í fyrstu nýtti Eimskip
aðeins lítinn hluta hússins. Þá var
félagið lítið og starfsmenn fáir,“ seg-
ir hann og bætir við að í Kaupþings-
salnum á efstu hæð hafi kaupsýslu-
menn haft fyrsta vísi að Kaupþingi,
auk þess sem borgarráðsfundir voru
lengi haldnir í salnum. Í ritinu
Reykjavík – sögustaður við sund
kemur fram að farið var að halda
fundi bæjarstjórnar í salnum eftir
Gúttóslaginn árið 1932 og hélst það
allt til ársins 1958.
Þorkell gerir ráð fyrir að einhver
önnur góð starfsemi haldi áfram í
húsinu ef kemur til þess að starf-
semin verði öll flutt í Sundahöfn.
„Það verður mikið hagræði í því að
flytja alla starfsemina á einn stað.“
Eimskip íhug-
ar flutning
höfuðstöðva
Miðborg
Eimskipafélagið hefur haft starfsemi sína í Pósthús-
stræti 2 frá árinu 1921, en nú gæti það breyst.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Sérstakt blað um miðborgina fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 5. júlí.
Pöntunarfrestur auglýsinga er til kl. 16 þriðjudaginn 1. júlí.
Skilafrestur er til kl. 12 miðvikudaginn 2. júlí.
Hafið samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins
í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
Blaðið á að endurspegla sérstöðu miðborgar Reykjavíkur og
hið fjölskrúðuga mannlíf sem í henni er alla daga.
Verslun - kaffihús - heilsurækt - veitingar - listmunir - þjónusta
ÞAÐ var níu ára stúlka, Klara Rún
Hilmarsdóttir, er varð hlutskörp-
ust í keppninni um dorgveiðimeist-
ara Hafnarfjarðar þetta árið. Hún
veiddi 22 fiska á þeim 70 mínútum
sem keppnin stóð. Annar í röðinni
varð bróðir Klöru Rúnar, Baldur
Freyr Hilmarsson, og tókst honum
að landa 13 fiskum. Álfheiður Guð-
mundsdóttir veiddi 11 fiska og
hreppti þriðja sætið fyrir vikið. Í
keppninni um stærsta fiskinn bar
hin sjö ára gamla Rebekka Þór-
hallsdóttir, af leikjanámskeiði Öld-
unnar, sigur úr býtum. Hún veiddi
750 gramma þorsk og fékk bikar
og veiðistöng frá Veiðibúðinni við
lækinn í verðlaun.
Geir Bjarnason, æskulýðsfulltrúi
í Hafnarfirði, segir að íþrótta- og
leikjanámskeiðin í Hafnarfjarðar-
bæ standi fyrir dorgveiðikeppninni
á Flensborgarbryggju og hafi gert
árlega í ein fimmtán ár. Keppnin
er opin öllum börnum á aldrinum
6–12 ára og tóku um 300 börn þátt
í keppninni á þriðjudag og létu
hvassviðri lítið á sig fá. Foreldrar,
afar og systkini aðstoðuðu kepp-
endur ásamt fjölmennu starfsliði
leikjanámskeiðanna.
„Margir krakkanna eru að prófa
að dorga í fyrsta skipti. Þeim er
leiðbeint með færi, en við leggjum
þeim til öll veiðarfæri og beitu. Ég
held að langflestir hafi fengið eitt-
hvað. Við reynum að hvetja þau til
að sleppa fiskunum þannig að
hægt sé að veiða þá aftur. Sumir
vilja það ekki og mæðurnar hafa
kvartað nokkrum dögum seinna
þegar það kemur vond lykt úr föt-
unum, því stundum eiga þau það til
að gleyma fiskunum í vösunum,“
bendir hann á.
Hann segir að börnin hafi mokað
upp fiskum og langflestir hafi veitt
eitthvað. Aflinn samanstóð aðal-
lega af ufsa og kola, en eitthvað
var veitt af þyrsklingum, mar-
hnútum og lýsu. „Það datt enginn
út í núna, en þau hafa dottið út í
því þetta er svo mikið kapp. Við
erum með bát þarna frá
Björgunarsveit Hafnarfjarðar sem
siglir um, en yfirleitt erum við
fljótari að teygja okkur út og ná
þeim,“ lýsir hann.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Bjarni Freyr, Margrét og Knútur Atli voru önnum kafin á Flensborgarbryggju.
Stelpurnar aflaklær Hafnarfjarðar
Hafnarfjörður
BÆJARRÁÐSMENN Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði óskuðu bókað á
fundi bæjarráðs 23. júní síðastliðinn
að í tilefni umræðu um breytingar
sem fyrirhugaðar væru í stjórnkerfi
Hafnarfjarðar væri það mikilvægt
að sjálfstæðismenn gerðu sér grein
fyrir því að umræddar tillögur
byggjast á umfangsmikilli vinnu sem
ráðgjafar og hin pólitíska stjórnsýsla
hafa unnið að í allan vetur.
Í bókuninni segir að um sé að
ræða annan áfanga í breytingu á
stjórnsýslu og þjónustukerfi Hafn-
arfjarðarbæjar sem meðal annars
eigi að leiða til aukinnar þjónustu og
kostnaðarvitundar, markvissari
stjórnunar og aukinnar samhæfing-
ar milli sviða. Auk þess eigi breyt-
ingarnar að tryggja greiðari aðgang
viðskiptavina og gera Hafnarfjörð
hæfari í samkeppni sveitarfélaga.
„Í þeirri vinnu sem farið hefur
verið í gegnum hafa fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins nær aldrei verið á
móti né dregið úr því breytingarferli
sem átt hefur sér stað, til dæmis með
nýrri tillögugerð, sem gekk þvert á
tillögur þær sem nú eru lagðar fram.
Samstaða hefur átt sér milli pólítísku
flokkanna í þessum efnum. Það skýt-
ur því skökku við að nú á lokastigum
þessa ferlis setji fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sig í þá stöðu að geta ekki
tekið undir tillögur sem meðal ann-
ars eiga að leiða til lengri tíma lækk-
unar á rekstrarkostnaði sveitarfé-
lagsins, en um leið að auka þjónustu
þess hvort tveggja innan bæjarkerf-
isins svo og gagnvart bæjarbúum,“
segir í bókuninni. Umræddar tillög-
ur séu í samræmi við stefnuyfirlýs-
ingu Samfylkingarinnar sem lögð
var fram í bæjarstjórn 11. júní 2001.
Fyrirhugaðar breyt-
ingar byggðar á um-
fangsmikilli vinnu
Hafnarfjörður
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum á þriðjudag að óska
eftir rökstuðningi fyrir vali for-
valshóps á ráðgjafahópum
vegna skipulags Mýrargötu og
Slippsvæðis og minnisblaði um
aðferðafræðina við forvalið.
Lögð voru fram bréf Gests
Ólafssonar, arkitekts og skipu-
lagsfræðings, og Guðjóns
Bjarnasonar arkitekts um
hæfnismat þeirra hópa sem
tóku þátt í forvalinu.
Afgreiðslu málsins var frest-
að.
Borgarráð
óskar eftir
rökstuðningi
Reykjavík