Morgunblaðið - 26.06.2003, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! !
"
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ er alveg merkilegt hvernig
fréttaflutningurinn í hinum vest-
ræna heimi fer fram. Allar hörm-
ungar í þróunarlöndunum eru af-
skrifaðar sem „ættbálkaerjur“ en
minniháttar atvik í Evrópulöndum
eða Norður-Ameríku eru blásin
upp og gerð að stórmálum. T.d.
hefur geisað stríð í Kongó seinustu
sex ár. Þar hafa látist 3,3 milljónir
manna, sem er mannskæðasta
stríð síðan í seinni heimsstyrjöld-
inni. Þetta stríð hefur næstum al-
gjörlega farið fram hjá stærstu
fjölmiðlunum og það er aðeins ný-
lega sem fréttir af þessari hrika-
legu styrjöld hafa borist hingað.
Um daginn var gerð uppreisn í
Máritaníu. Síðan 1984 hefur Maa-
ouiya Ould Sid’Ahmed Taya ráðið
þar ríkjum, en hann komst til
valda í kjölfar uppreisnar hersins.
Hann er mári, en mikill rígur hef-
ur verið milli mára og svartra íbúa
þessarar fyrrverandi frönsku ný-
lendu og svart fólk hefur verið
drepið í tugþúsunda tali. Pólitískir
andstæðingar hans hafa verið
fangelsaðir og hann hefur svindlað
sér í gegnum þær fáu kosningar
sem haldnar hafa verið síðan hann
tók við völdum. Þessi maður er
einn versti einræðisherra sem ríkir
núna á jörðinni, en merkilegt nokk,
hans er aldrei getið í fjölmiðlum.
Engar líkur eru á því að honum
verði vikið frá völdum (a la Sadd-
am Hussein) því að hann er einn
„besti vinur“ Bandaríkjastjórnar
og hefur lýst yfir stuðningi við Ísr-
ael í átökunum þar – enda fær
Máritanía mikla efnahagsaðstoð
frá Bandaríkjunum.
Í þau fáu skipti sem maður hefur
heyrt um byltinguna í Máritaníu
(sem síðustu fréttir herma að hafi
verið bæld niður) hefur verið talað
um uppreisnarmennina sem
„óánægða yfirmenn í hernum“.
Raunin er sú, að ungir hermenn og
stjórnarandstæðingar, sem sakaðir
eru um að hafa verið stuðnings-
menn Saddams Husseins, gerðu
uppreisnina. Þetta minnir svolítið
á mótmælendurna í Írak sem hafa
verið drepnir í stórum stíl eða
fangelsaðir og síðan verið kallaðir
stuðningsmenn Saddams í fjölmiðl-
um.
Málið er það að fjölmiðlarnir
virðast sjá málin í svörtu og hvítu.
Þeir halda að ef þú mótmælir
stríðinu í Írak hljótirðu að vilja
Saddam Hussein aftur. Bandarísk-
ir og breskir hermenn í Írak hafa
beitt innfædda hörku og jafnvel
handtekið 6 ára börn fyrir það eitt
að mótmæla því að vera enn í sömu
aðstöðu og fyrir stríðið, undir ólýð-
ræðislegri herstjórn. En til að ein-
falda málið segja fjölmiðlar að þau
þrái Saddam aftur og hati vesa-
lings frelsarana. Ég efast stórlega
um að mótmælendurnir hafi skil-
greint sig sem stuðningsmenn
Saddams.
Þess vegna skora ég á fjölmiðla
landsins að flytja víðtækari og
hlutlausari fréttir. Það geisa fleiri
stríð en í Írak og það eru til mik-
ilvægari fréttir en hvaða Holly-
wood-par var að skilja og að ævi-
saga Hillary Clinton skuli loksins
vera komin í búðirnar. Það er upp-
reisnarher í Mexíkó, fjöldamorð í
Namibíu og mótmæli gegn alþjóða-
væðingu sem fjölmiðlar hunsa nær
algjörlega. Því skora ég á fjölmiðla
að hætta að horfa á heiminn í
svart/hvítu og flytja líka fréttir af
fjarlægari og fátækari löndum.
STEINDÓR GRÉTAR
JÓNSSON, nemi,
Brávallagötu 14,
101 Reykjavík.
Svart/hvítir
fjölmiðlar
Frá Steindóri Grétari Jónssyni:
LAUGARDAGINN 28. júní birtist
hér grein eftir Bjarna Jónsson undir
fyrirsögninni: Jónína Ben. á botnin-
um. Höfundur er trúleysingi og
finnst að sér vegið með ummælum
Jónínu Benediktsdóttur um barna-
níðinga: „Trúleysi, siðleysi og ill-
mennska einkennir alla þá sem við-
hafa og geta framkvæmt slík
ódæðisverk, þ.e. að svipta börn sak-
leysinu og sjálfsvirðingunni eða rétt-
ara sagt að taka börn af lífi.“
Þetta segir Jónína trúlega m.a.
vegna þess að það samræmist ekki
siðferðisboðskap trúarbragða að mis-
nota börn; að barnaníðingur geti ekki
með réttu kallað sig t.a.m. kristinn
mann. Undanfarið hafa svokallaðir
kristniboðar víða um heim einmitt
orðið uppvísir að þessum glæpum.
Bjarni lítur aftur á móti á lýsingu
hennar sem einhvers konar jafngild-
isvensl. Þetta er hugsanavilla sem
veldur því væntanlega að Bjarni tek-
ur ýmislegt nærri sér að ástæðu-
lausu.
Það má segja ýmislegt um barna-
níðinga. Ef ég slæ því fram að þeir
séu veikir og uppátækjasamir,
móðga ég þá berklasjúklinga og upp-
finningamenn? Ég tek ekki áhættuna
en fullyrði þess í stað að það einkenn-
ir banana að þeir eru gulir og bognir.
Ég bið samt ekki sólina og gúrkurnar
afsökunar á að hafa uppnefnt þau
banana.
ÞORVALDUR BLÖNDAL,
Laugarnesvegi 84,
Reykjavík.
Trúleysingjar og
barnaníðingar
Frá Þorvaldi Blöndal:
www.fotur.net