Morgunblaðið - 26.06.2003, Side 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 43
SIGRARNIR á Færeyjum og Lithá-
en fleyta Íslandi heldur betur upp
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, en nýr listi var
gefinn út í gær. Á honum eru Ísland
og Skotland jöfn í 59. sætinu en fyr-
ir mánuði var Ísland í 70. sæti og
hafði þá fallið um tólf sæti frá ára-
mótum.
Ísland er nú í 30. sæti í hópi 50
Evrópuþjóða en samtals eru 204
þjóðir heims á FIFA-listanum.
Brasilía er áfram í toppsætinu og
síðan koma Frakkland og Spánn.
Argentína og Holland lyfta sér upp
í 4. og 5. sætið, á kostnað Þýska-
lands sem dettur niður í 6. sætið.
Tyrkir fara upp fyrir Englendinga í
7. sætið, Bandaríkjamenn eru ní-
undu og Tékkar tíundu.
Ísland ellefu
sæti upp
KA lék án þriggja sterkra leik-
manna gegn Val. Dean Martin hvíldi
sig en hann hefur verið meiddur.
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson var
í leikbanni og Daninn Ronnie Hart-
vig er í Danmörku að taka próf.
JÓHANN Georg Möller lék síðari
hálfleikinn fyrir Val. Hann hafði
skorað á Akureyri með liðum sínum
síðustu fjögur ár en í gær klikkaði
eitthvað og hann komst ekki á blað.
KA og Valur hafa ekki mæst í
efstu deild síðan 1992. Síðasti leik-
maður KA til að skora gegn Val í
efstu deild var Gunnar Gíslason.
VALUR vann sinn fjórða leik í röð
gegn KA í efstu deild. Síðast vann
KA 1:0 árið 1991. Af 25 leikjum þess-
ara liða hafa Valsmenn unnið 14 en
KA aðeins 5. Þar af var einn leikur
sem KA vann á kæru, árið 1982.
Markatalan er 46:23 Valí hag.
KR-ingar léku án Sigurvins Ólafs-
sonar, Veigars Páls Gunnarssonar
og Garðars Jóhannssonar sem allir
eru meiddir.
JÓHANN B. Guðmundsson var á
skotskónum í 3. umferð norsku bik-
arkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Jóhann skoraði fyrsta mark Lyn
sem lagði Ham-Kam, 3:2. Helgi Sig-
urðsson var eins og Jóhann B. í byrj-
unarliði Lyn.
HARALDUR Ingólfsson skoraði
eitt marka Raufoss í vítaspyrnu-
keppni í leik liðsins gegn Hönefoss,
en staðan var 2:2 að loknum venju-
legum leiktíma og framlengingu.
Raufoss skoraði úr fjórum spyrnum
en Hönefoss aðeins úr einni, 6:3.
ÁRNI Gautur Arason lék síðari
hálfleikinn fyrir Rosenborg sem
sigraði Lofoten, 6:1, eftir að hafa
lent undir í upphafi síðari hálfleiks.
INDRIÐI Sigurðsson var í byrj-
unarliði Lilleström sem marði 2:1-
sigur á Fredrikstad. Gylfi Einarsson
lék síðari hálfleikinn og Davíð Þór
Viðarsson síðustu 20 mínúturnar.
TRYGGVI Guðmundsson var í liði
Stabæk sem vann nauman sigur á
Moss, 2:1.
BJARNI Þorsteinsson lék allan
tímann fyrir Molde sem tapaði á
heimavelli fyrir Skeid, 1:0.
FÓLK
Grindvíkingar hafa í gegnum tíð-ina ekki átt góðu gengi að fagna
gegn vesturbæjarliðinu og fyrir leik-
inn í gærkvöldi höfðu
KR-ingar unnið tíu af
16 rimmum liðanna
en Grindvíkingar að-
eins tvo og til að kór-
óna gott tak KR-inga á suðurnesjalið-
inu hafði því ekki tekist að vinna KR í
síðustu níu viðureignum.Liðsmenn
Grindvíkinga hafa sjálfsagt ekki ver-
ið með hugann við þessa tölfræði því
allt frá því Garðar Örn Hinriksson
flautaði leikinn á var greinilegt að
Grindvíkingar voru mættir í vestur-
bæinn til að taka stigin þrjú sem í
boði voru og endurtaka leikinn frá
árinu 1997 þegar Zoran Ljubicic
tryggði Grindvíkingum fyrsta sigur
þeirra í vesturbænum. Gestirnir voru
gífurlega vel stemmdir og andlausir
KR-ingar vissu vart hvaðan á þá stóð
veðrið. Fyrri hálfleikurinn var nánast
eign Grindvíkinga og KR-ingar
máttu teljast heppnir að vera ekki
nema einu marki undir þegar hálf-
leikurinn var úti því áður en Óli Stef-
án Flóventsson skoraði markið á 28.
mínútu höfðu Grindvíkingar gert
harða hríð að KR-markinu. KR gekk
líkt og í mörgum leikjum í sumar illa
að skapa sér færi og leikur þeirra af-
ar ómarkviss og bitlaus.
Grindvíkingar léku af mikilli skyn-
semi í síðari hálfleik og héldu KR-
ingum algjörlega í skefjum. Grind-
víkingar, sem færðu sig örlítið aftar á
völlinn í síðari hálfleik, beittu stór-
hættulegum skyndisóknum. Óli Stef-
án fékk upp úr einni slíkri upplagt
færi á 54. mínútu þegar hann skaut
yfir KR-markið eftir undirbúning Al-
freðs Jóhannssonar en hálftíma síðar
höfðu þeir hlutverkaskipti. Alfreð
skoraði eftir fínan undirbúning Óla.
KR-ingar náðu aðeins að klóra í
bakkann undir lokin þegar Sigurður
Ragnar skoraði fallegt mark en nær
komust þeir ekki.
Grindavíkurliðið lék án alls vafa
sinn besta leik í sumar. Leikur þeirra
var afar heilsteyptur, liðsheildin öfl-
ug og baráttan í liðinu aðdáunarverð.
Sinisa Kekic var aftur kominn í sína
gömlu stöðu í vörninni og hann og
Ólafur Örn Bjarnason voru eins og
kóngar í ríki sínu. Óðinn Árnason átti
góðan leik í bakvarðarstöðunni, skil-
aði boltanum vel frá sér og var dug-
legur að taka þátt í sókninni. Paul
McShane var óþreytandi á miðjunni
með Óla Stefán og Eyþór Atla í fínu
formi og í fremstu víglínu gerði hinn
stóri og sterki Alfreð Jóhannsson
varnarmönnum KR-inga lífið leitt.
KR-liðinu má líkja við bíl sem á við
alvarlegar gangtruflanir að stríða.
Það gengur hvorki né rekur hjá
meistaraliðinu og sérstaklega er
sóknarleikurinn mikill höfuðverkur.
Skarðið sem Veigar Páll Gunnarsson
og Sigurvin Ólafsson hafa skilið eftir
sig hafa KR-ingar ekki náð að fylla en
þeir tvímenningar eru meiddir og á
meðan vantar leikstjórnanda í liðið
sem Sigurvin er og leikmann til að
fríska upp á sóknina en þar hefur
Veigar farið mikinn þegar hans hefur
notið við. Kristján Örn Sigurðsson
komst skammlaust frá hlutverki sínu
og var skásti leikmaðurinn í slöppu
og andlausu liði KR. Tvíburarnir
Arnar og Bjarki voru langt frá sínu
besta og voru mest í því að dúlla með
knöttinn úti á vellinum, Einar Þór
Daníelsson er ekki nema skugginn af
sjálfum sér og meðan þessir menn ná
sér ekki á strik ásamt því að KR-inga
skortir tilfinnanlega Sigurvin og
Veigar má reikna með því að meist-
ararnir haldi áfram að hökta.
Grindavík
miklu betri
GRINDVÍKINGAR gripu KR-inga heldur betur í bólinu á KR-vellinum
í gær og unnu verðskuldaðan 2:1 sigur. Með viljann að vopni ásamt
gífurlegri baráttu höfðu Grindvíkingar meistarana undir nánast á
öllum sviðum og eftir afar brösótt gengi hafa lærisveinar Bjarna Jó-
hannssonar nú unnið tvo leiki í röð. Það sama verður ekki sagt um
lið KR-inga. Þeir hafa tapað tveimur síðustu leikjum sínum og eru
ekki nema svipur hjá sjón miðað við síðustu leiktíð.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Morgunblaðið/Árni Torfason
KR 1: 2 Grindavík
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
7. umferð
KR-völlur
Miðvikudaginn 25. júní,
2003
Aðstæður:
Stinningskaldi af austri, rign-
ing með köflum og 12 stiga
hiti. Völlurinn góður.
Áhorfendur: 1.661
Dómari:
Garðar Örn Hinriksson, Þrótt-
ur R., 3
Aðstoðardómarar:
Einar Sigurðsson, Gunnar
Gylfason
Skot á mark: 7(3) – 11(4)
Hornspyrnur: 4 – 6
Rangstöður: 2 – 1
Leikskipulag: 4-5-1
Kristján Finnbogason M
Sigþór Júlíusson
(Sigursteinn Gíslason 83.)
Kristján Örn Sigurðsson M
Gunnar Einarsson
Jökull I. Elísabetarson
Bjarki B. Gunnlaugsson
Kristinn Hafliðason
Þórhallur Örn Hinriksson
Einar Þór Daníelsson
Arnar B. Gunnlaugsson
(Arnar Jón Sigurgeirsson 79.)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Ólafur Gottskálksson M
Óðinn Árnason M
Sinisa Kekic M
Ólafur Örn Bjarnason M
Gestur Gylfason
Óli Stefán Flóventsson M
Paul McShane MM
Guðmundur A. Bjarnason
Eyþór Atli Einarsson M
Ray Anthony Jónsson M
(Michael Jónsson 73.)
Alfreð Elías Jóhannsson M
(Helgi Jónas Guðfinnsson 85.)
0:1 (28.) Eyþór Atli Einarsson tók langt innkast upp við vítateig KR-inga. Boltinn
sveif yfir varnarmenn KR og þar kom Óli Stefán Flóventsson aðvífandi
og skallaði knöttinn í netið.
0:2 (83.) Óðinn Árnason átti góða sendingu upp hægri kantinn. Þar tók Óli Stef-
án við boltanum, lék á varnarmann KR upp við endamörkin og átti
glæsilega fyrirgjöf beint á kollinn á Alfreð Elíasi Jóhannssyni sem
skallaði í netið.
1:2 (87.) Sigursteinn Gíslason átti sendingu inn í vítateig Grindvíkinga. Þórhall-
ur Hinriksson skallaði til Sigurðar Ragnars Eyjólfssoar sem skoraði
með fallegri bakfallsspyrnu.
Gul spjöld: Sinisa Kekic, Grindavík (25.) fyrir brot Paul McShane, Grindavík (34.) fyrir
mótmæli Óli Stefán Flóventsson, Grindavík (36.) fyrir brot Þórhallur Örn
Hinriksson, KR (59.) fyrir brot Ray Anthony Jónsson, Grindavík (67.) fyrir
brot.
Rauð spjöld: Engin.
HÓPUR fjárfesta undir forystu
Baldurs Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra breska fjármálafyr-
irtækisins Avalon Finance Ltd,
komst í gær að samkomulagi við
Peter Doyle, eiganda knattspyrnu-
félagsins Barnsley, um kaup á 60
prósenta hlut í félaginu.
Baldur sagði við Morgunblaðið í
gær að samkomulagið væri skilyrt
og nú færi í hönd 4–5 daga endur-
skoðunarvinna þar sem farið yrði yf-
ir öll gögn hjá Barnsley og gengið
úr skugga um að staða félagsins
væri sú sem kynnt hefði verið.
„Ef þetta gengur allt eðlilega fyr-
ir sig munum við taka yfir félagið
um miðja næstu viku, og ég er bjart-
sýnn á að svo verði,“ sagði Baldur en
fyrirtæki hans verður á meðal hlut-
hafa í Barnsley ef svo fer sem horfir.
Baldur sagðist ekki vilja tjá sig
um þau ummæli Guðjóns Þórðar-
sonar að hann væri búinn að slíta
samstarfinu við Baldur og fjárfest-
ana. „Við Guðjón höfum rætt mikið
saman að undanförnu, líka í dag, og
staðan hvað hann varðar er alveg
óbreytt,“ sagði Baldur Sigurðsson.
Í Morgunblaðinu í gær sagði Guð-
jón að trúnaðarbrestur hefði orðið
þeirra á milli og hann myndi ekki
eiga frekari samskipti við Baldur
fyrir vikið. Það var í kjölfar þess að
Baldur sagði að Guðjón færi ekki
fyrir hópi fjárfestanna, og að ekki
væri sjálfgefið að hann yrði knatt-
spyrnustjóri Barnsley ef af kaup-
unum yrði, heldur kæmi hann til
greina eins og margir fleiri.
Baldur og félagar
sömdu við Barnsley