Morgunblaðið - 26.06.2003, Page 44
ÍÞRÓTTIR
44 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Steinar Þór Guðgeirsson, þjálfariFram, var mjög ánægður í
leikslok, enda fyrsti sigur liðsins í
deildinni í höfn. „Ég
er mjög ánægður
enda var þetta rosa-
lega mikilvægur sig-
ur. Íslandsmótið er
mjög jafnt og það er enginn leikur
auðveldur í mótinu. Það hefur sýnt
sig í sumar að þau lið sem sýna meiri
baráttu sigra og við sönnuðum það í
kvöld að það er ekkert lið sem getur
bókað sigur gegn okkur. Það sem ég
var sérstaklega ánægður með var
hvernig liðið vann sig til baka eftir að
hafa lent undir og strákarnir sýndu
að þeir hafa lært af mistökunum sem
þeir gerðu í Eyjum.
Leikmennirnir mínir sýndu með
því að jafna metin og komast yfir að
það býr ýmislegt í þeim og innkoma
Kristjáns var frábær og hann sýndi
að hann er ótrúlegur upp við mark-
ið.“ Spilamennska Framara var
Steinari að skapi. „Við spiluðum vel
og boltinn gekk vel á milli manna.
Leikaðferðin gekk upp hjá okkur en
hins vegar fengum við tvö klaufaleg
mörk og við þurfum að passa að fá
ekki svona ódýr mörk á okkur í
næstu leikjum.“
Kristján Brooks, hetja Framara,
vonar að frammistaða sín verði til
þess að hann verði í byrjunarliðinu
næst. „Ég var ekki sáttur við að vera
settur úr liðinu og það var mjög gott
að koma inn á og skora tvö mörk.
Þessi sigur var mikilvægur og ég
vona að þessi úrslit verði til þess að
við séum komnir á beinu brautina.
Mikil-
vægur
sigur
Eftir
Atla
Sævarsson
HEIMIR Guðjónsson, fyrirliði FH,
var hundóánægður með úrslitin og
taldi að einbeitingarleysi hefði orð-
ið FH-ingum að falli.
„Við áttum að vera öruggir með
sigurinn eftir að við komumst yfir
en einbeitingarleysi varð okkur að
falli. Við fengum á okkur tvö mörk
úr föstum leikatriðum en við eigum
ekki að gefa svoleiðis mörk miðað
við alla stóru leikmennina í liðinu.
Það var skandall hjá okkur að gera
þessi mistök og svona einbeiting-
arleysi á ekki að sjást hjá okkur,“
sagði Heimir við Morgunblaðið.
Heimir Guðjónsson var mjög
ósáttur við spilamennsku FH-inga í
fyrri hálfleik.
„Fyrri hálfleikurinn var mjög lé-
legur hjá okkur og við gátum varla
annað en skánað í þeim síðari. Við
bættum okkur í byrjun fyrri hálf-
leiks og náðum að komast yfir. Við
fengum nokkur ágætis færi til að
skora fleiri mörk en þetta féll ekki
fyrir okkur í kvöld. Aðalmálið er
hins vegar einbeitingarleysið í lið-
inu eftir að við náðum forystunni
og það kostaði okkur sigurinn.“
„Þetta var skand-
all hjá okkur“
Það mátti búast við mörkum íKaplakrikanum því FH og
Fram eru vön að skora þegar þau eig-
ast við í deildinni. Og
það brást ekki í gær-
kvöld, enda þótt leik-
urinn væri í rólegra
lagi lengi vel. Bæði lið
léku góðan fótbolta á löngum köflum,
þau vilja bæði spila boltanum vel í
gegnum miðjuna en FH-ingum gekk
mun betur en Frömurum lengi vel að
byggja upp hættulegar sóknir út frá
því. Fh var betri aðilinn í fyrri hálfleik
og það var gegn gangi mála þegar
Andri Fannar Ottósson skoraði undir
lok hans, 1:0 fyrir Fram.
Eftir hlé hertu FH-ingar tökin og
höfðu skorað tvö mörk að 20 mínútum
liðnum, fyrst Ásgeir Gunnar Ásgeirs-
son og síðan Jónas Grani Garðarsson
og ekkert annað en FH-sigur virtist í
spilunum. Þeir héldu áfram að sækja
fyrst eftir annað markið en um það
leyti breytti Steinar Guðgeirsson,
þjálfari Fram, um leikaðferð. Hann
sendi Kristján Brooks og Þorbjörn
Atla Sveinsson í framlínuna, breytti
yfir í 4-3-3 og þar með gaf hann tóninn
fyrir geysifjörugan lokakafla. Þor-
björn Atli lék þar sinn fyrsta leik frá
því á síðasta ári. Síðasta stundarfjórð-
unginn sóttu liðin af krafti á víxl.
Kristján jafnaði, 2:2, og eftir það
fengu bæði liðin dauðafæri til að ná
forystunni. Jónas Grani skaut yfir
mark Fram á óskiljanlegan hátt eftir
að hafa leikið varnarmenn grátt og
hinum megin nýttu Ingvar Ólason og
Þorbjörn Atli ekki upplögð færi. En
það var Kristján sem átti lokaorðið,
með marki sem án efa hleypir nýju lífi
í Safamýrarliðið og galopnar neðri
hlutann í deildinni.
Kristján kom
til bjargar
VARAMAÐURINN Kristján Brooks var aðeins með Frömurum í tæp-
ar 20 mínútur í Kaplakrika í gærkvöld. Þessi marksækni leikmaður
hafði ekki skorað mark á tímabilinu og missti sæti sitt í byrjunarlið-
inu fyrir leikinn við FH. Þegar hann kom til sögunnar var staða
Framara erfið, 2:1 fyrir FH, og enn einn ósigurinn blasti við Safa-
mýrarliðinu. En það var Kristján sem breytti öllu, hann skoraði tví-
vegis á lokakaflanum og sigurmarkið, 3:2, hálfri þriðju mínútu áður
en Kristinn Jakobsson flautaði til leiksloka. Þar með færði hann
Fram sinn fyrsta sigur á tímabilinu og kom jafnframt í veg fyrir að
Hafnfirðingar næðu forystunni í deildinni.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Laugardalsvöllur: Þróttur R. - ÍBV ....19.15
1. deild karla:
Njarðvíkurvöllur: Njarðvík - Breiðablik..20
Víkingsvöllur: Víkingur R. - Stjarnan......20
2. deild karla:
Fjölnisvöllur: Fjölnir - Léttir....................20
3. deild karla:
Fífan: Drangur - Númi ..............................20
Þorlákshafnarvöllur: Ægir - Freyr ..........20
Vilhjálmsvöllur: Höttur - Leiknir F. ........20
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla
Landsbankadeild
FH - Fram .................................................2:3
KR - Grindavík ..........................................1:2
ÍA - Fylkir..................................................1:1
KA - Valur..................................................1:2
Staðan:
Fylkir 7 4 1 2 12:6 13
FH 7 3 2 2 12:9 11
ÍA 7 2 4 1 9:6 10
KR 7 3 1 3 8:10 10
ÍBV 6 3 0 3 12:10 9
Þróttur R. 6 3 0 3 9:9 9
Valur 7 3 0 4 10:13 9
Grindavík 7 3 0 4 9:12 9
KA 6 2 2 2 9:8 8
Fram 6 1 2 3 7:14 5
Markahæstir:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 7
Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 5
Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 4
Jónas Grani Garðarsson, FH ..................... 4
Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 4
Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 3
Guðjón H. Sveinsson, ÍA............................. 3
Hreinn Hringsson, KA ............................... 3
Sigurbjörn Hreiðarsson, Valur.................. 3
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .............. 3
Sören Hermansen, Þróttur R. ................... 3
Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylkir............... 2
Gunnar Þór Pétursson, Fylkir ................... 2
Hjálmar Þórarinsson, Þróttur R. .............. 2
Kristján Brooks, Fram ............................... 2
Pálmi Rafn Pálmason, KA.......................... 2
Steinar Tenden, KA .................................... 2
Tommy Nielsen, FH ................................... 2
Veigar Páll Gunnarsson, KR...................... 2
1. deild kvenna
A-RIÐILL:
Breiðablik-2 - RKV ...................................6:2
Staðan:
Breiðablik-2 5 5 0 0 37:6 15
HK/Víkingur 5 3 1 1 15:5 10
RKV 5 3 1 1 16:14 10
ÍR 6 3 0 3 26:14 9
Fjölnir 5 3 0 2 15:13 9
Þróttur/Hauk.-2 5 0 0 5 4:29 0
HSH 5 0 0 5 7:39 0
B-RIÐILL:
Fjarðabyggð - Höttur ...............................2:0
Staðan:
Fjarðabyggð 6 5 0 1 20:8 15
Höttur 5 4 0 1 18:4 12
Tindastóll 2 2 0 0 13:1 6
Sindri 3 2 0 1 8:7 6
Leiftur/Dalvík 5 1 0 4 12:25 3
Einherji 4 0 0 4 5:17 0
Leiknir F. 3 0 0 3 2:16 0
Noregur
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Ålesund - Hödd......................................... 4:2
Fredrikstad - Lilleström ......................... 1:2
HamKam - Lyn......................................... 2:3
Levanger - Tromsö .................................. 0:3
Lofoten - Rosenborg ................................ 1:6
Mandalskameratene - Start .................... 3:0
Molde - Skeid ............................................ 0:1
Moss - Stabæk .......................................... 1:2
Odd Grenland - Örn Horten .................... 1:2
Raufoss - Hönefoss ...................................2:2
Raufoss vann 6:3 eftir vítaspyrnukeppni.
Sogndal - Byåsen...................................... 1:0
Tromsdalen - Bodö/Glimt ........................ 1:2
Vålerenga - Sandefjord............................ 2:1
Viking - Nest Sotra .................................. 3:0
Svíþjóð
Halmstad - Hammarby.............................3:1
Staðan:
Djurgården 11 7 1 3 26:10 22
Hammarby 11 6 4 1 17:11 22
AIK 11 6 2 3 20:13 20
Örebro 11 6 1 4 19:18 19
Malmö 11 5 3 3 17:12 18
Helsingborg 11 5 3 3 14:14 18
Halmstad 11 5 2 4 18:15 17
Elfsborg 11 4 4 3 14:17 16
Örgryte 11 4 2 5 14:19 14
Gautaborg 11 3 4 4 18:13 13
Sundsvall 11 2 4 5 11:15 10
Landskrona 11 2 4 5 13:18 10
Öster 11 2 2 7 10:20 8
Enköping 11 1 2 8 11:27 5
NÚ ER ljóst að Jóhannes Karl Guð-
jónsson, leikmaður Real Betis og ís-
lenska landsliðsins, mun ekki leika
með Aston Villa í ensku úrvals-
deildinni á næstu leiktíð. Doug Ell-
is, stjórnarformaður Aston Villa,
skýrði frá því í fyrrakvöld að David
O’Leary, knattspyrnustjóri, hefði
ekki áhuga á að kaupa Jóhannes.
„Aston Villa er komið með nýjan
knattspyrnustjóra sem hefur aðrar
hugmyndir en forveri hans og hann
vill ekki kaupa Jóhannes. Ég vil
þakka Jóhannesi fyrir þann tíma
sem hann var hjá okkur og ég óska
honum alls hins besta í framtíð-
inni,“ sagði Doug Ellis sem lét þess
ennfremur getið að hann hefði rætt
við Jóhannes og föður hans, Guðjón
Þórðarson, og þeir hefðu sýnt mál-
inu skilning. Lengi vel leit út fyrir
að Villa ætlaði að kaupa Jóhannes
en eftir að David O’Leary tók við af
Graham Taylor sem knatt-
spyrnustjóri minnkaði áhugi liðsins
á íslenska landsliðsmanninum.
Jóhannes Karl ekki til Villa
FH 2:3 Fram
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
7. umferð
Kaplakriki
Miðvikudaginn 25. júní 2003
Aðstæður:
Hliðarvindur, rigning í seinni
hálfleik, 11 stiga hiti.
Ágætur völlur.
Áhorfendur: Um 750
Dómari:
Kristinn Jakobsson, KR, 5
Aðstoðardómarar:
Sigurður Þór Þórsson,
Ingvar Guðfinnsson
Skot á mark: 14(7) - 9(4)
Hornspyrnur: 4 - 3
Rangstöður: 1 - 5
Leikskipulag: 4-4-2
Daði Lárusson
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson M
Sverrir Garðarsson
Tommy Nielsen M
Freyr Bjarnason
Baldur Bett M
Heimir Guðjónsson M
Jónas Grani Garðarsson M
Jón Þorgrímur Stefánsson
Atli Viðar Björnsson M
Hermann Albertsson
(Emil Hallfreðsson 63.)
Gunnar Sigurðsson
Ragnar Árnason
Baldur Þór Bjarnason
Eggert Stefánsson M
Gunnar Þór Gunnarsson M
Daði Guðmundsson
(Kristján Brooks 72.) M
Freyr Karlsson M
(Viðar Guðjónsson 84.)
Ágúst Gylfason M
Ingvar Ólason
Andri Fannar Ottósson M
Guðmundur Steinarsson
(Þorbjörn Atli Sveinsson 67.)
0:1 (43.) Guðmundur Steinarsson sendi boltann fyrir mark FH frá hægri og rétt
utan markteigs, móts við stöngina nær, kom Andri Fannar Ottósson,
kastaði sér fram og skoraði með laglegum skalla, niður í markhornið
fjær.
1:1 (55.) Ásgeir Gunnar Ásgeirsson fékk boltann um 15 metrum fyrir framan
miðju, á hægri kantinum, og sendi hann inn að marki Fram. Jónas
Grani Garðarsson truflaði Gunnar Sigurðsson markvörð og boltinn
sigldi óáreittur framhjá þeim báðum og í markhornið fjær.
2:1 (66.) Atli Viðar Björnsson braust laglega inn í vítateig Framara hægra megin
og komst inn undir markteig. Þar tók Jónas Grani Garðarsson við bolt-
anum af honum og skoraði með viðstöðulausu skoti.
2:2 (79.) Ágúst Gylfason tók hornspyrnu frá vinstri og sendi boltann fyrir mark
FH. Ingvar Ólason fleytti honum áfram með höfðinu, á Kristján Brooks
sem var aðeins einn metra frá marki og stýrði honum í netið.
2:3 (88.) Ágúst Gylfason tók stutta hornspyrnu frá hægri, gaf á Andra Fannar
sem sendi boltann fyrir og í markteignum var Kristján Brooks mættur
og sneiddi boltann með höfðinu í markið.
Gul spjöld:
Ágúst Gylfason, Fram (32.) fyrir brot
Andri Fannar Ottósson, Fram (75.) fyrir brot
Rauð spjöld: Engin
Golfklúbbur Hveragerðis
Opna Búnaðarbankamótið verður haldið
laugardaginn 28. júní 2003 á Gufudalsvelli
í Hveragerði.
Leikið verður Texas scramble.
Verðlaun fyrir þrjú efstu liðin og tvenn nándarverðlaun
frá golfbúðinni Strandgötu 28 Hafnarfirði.
Rástímar frá kl. 8–10 og 13-15.
Skráning í síma 659 4022 og á golf.is
Þátttökugjald kr. 2.500.
Styrktaraðilar: Búnaðarbankinn Hveragerði
Golfbúðin Strandgötu 28, Hafnarfirði.
Valkyrjumótið
Opið kvennamót á Svarfhólsvelli við
Selfoss sunnudaginn 29. júní
Leikin verður punktakeppni með fullri forgjöf,
rástímar frá kl. 10.00.
Fjöldi góðra vinninga að hætti Valkyrja.
Mótsgjald kr. 2.500.