Morgunblaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 49
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10. Bi. 12
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Bi. 12
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.15.
KRINGLAN
Kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12
Bein
t
á to
ppin
n
í US
A!
Svalasta mynd
sumarsins
er komin.
POWE
R
SÝNIN
G
KL. 10
.15.
Í SAM
BÍÓUN
UM
Kring
lunni
I
. .
.
Í
Í
ri l
i
KVIKMYNDIR.IS
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
Radíó X
AÐ MINNSTA kosti tvær íslenskar
kvikmyndir verða sýndar á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tor-
onto í september, Nói albinói eftir
Dag Kára Pétursson og Stormy
Weather eftir Sólveigu Anspach.
„Við erum mjög stolt af því að
geta sýnt Nóa albinóa og Stormy
Weather, en það á eftir að koma í
ljós hvort við sýnum fleiri íslenskar
myndir þetta árið. Svo gæti vel far-
ið,“ sagði Steve Gravestock, einn af
þeim sem velja myndir á hátíðina, í
samtali við tíðindamann Morgun-
blaðsins.
Gravestock bætti því við að sér
sýndust norrænu myndirnar á hátíð-
inni mjög sterkar í ár, en auk þeirra
íslensku verða m.a. sýndar Dogville
frá Danmörku og Kitchen Stories
frá Noregi. Gravestock telur Nóa
albinóa eina bestu kvikmynd sem
komið hefur frá Norðurlöndunum
síðustu ár.
Pierce Handling, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, sá Nóa albinóa á
kvikmyndahátíðinni í Rotterdam og
sagði að myndin ætti það sameig-
inlegt með mörgum öðrum norræn-
um myndum að frásögnin kæmi
áhorfandanum á óvart.
„Maður er stöðugt að setja spurn-
ingarmerki við eigin viðbrögð, líkt
og þegar maður horfir á myndir eft-
ir Lars von Trier og Aki Kaur-
ismäki. Framtíð íslenskrar kvik-
myndagerðar virðist vera í góðum
höndum og þessum myndum á eftir
að ganga vel í Norður-Ameríku.“
Íslensku myndirnar verða hluti af
dagskrá sem kallast Contemporary
World Cinema, eða Heimskvik-
myndir samtímans, en kvikmynda-
hátíðin í Toronto er jafnan talin ein
af mikilsverðustu kvikmyndahátíð-
um í heimi.
Toronto-hátíðin mun standa yfir
dagana 4.-13. september. Opnunar-
myndin verður kanadíska myndin
Innrás Barbaranna (Les invasions
barbares) eftir Denys Arcand en
hún hlaut tvenn verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes á dög-
unum, þar sem hún var frumsýnd.
Aðrar athyglisverðar myndir sem
frumsýndar verða á Toronto-
hátíðinni eru m.a. Dansflokkurinn
(The Company) ný mynd Roberts
Altmans þar sem þessi gamalreyndi
bandaríski kvikmyndagerðarmaður
tekur fyrir heim dansins. Landi Alt-
mans, John Sayles, frumsýnir nýj-
ustu mynd sína Barnahúsið (Casa de
los babys) og Jacques Rivett frum-
sýnir Söguna um Maríu og Júlíu
(L’histoire de Marie et Julien).
Nói albínói og Stormviðri
verða fulltrúar íslenskrar
kvikmyndagerðar á Tor-
onto-hátíðinni sem fram
fer dagana 4.-13. sept-
ember nk.
Nói albínói og Storm-
viðri á Toronto-hátíð
Toronto. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jón Gústafsson
Pierce Handling, framkvæmda-
stjóri Toronto-hátíðarinnar, segir
framtíð íslenskra kvikmyndagerð-
ar vera í góðum höndum.
GRÍNLEIK-
ARINN Adam
Sandler gekk í
hjónaband í
fyrradag. Hans
heittelskaða er
tískusýningar-
stúlkan Jackie
Titone. Brúð-
kaupið fór fram
í Malibu í Kalif-
orníu að viðstöddum nánustu vin-
um og vandamönnum þeirra.
Sandler er orðinn 37 ára og er af
gyðingaætt-
um … Ástralska
leikkonan
Portia de
Rossi, sem
einkum er kunn
fyrir leik sinn í
sjónvarpsþátt-
unum um Ally
McBeal ætlar
að ganga í stað-
festa samvist með vinkonu sinni,
Francescu Gregorini, sem er
stjúpdóttir Ringos Starrs, fyrrver-
andi Bítils. Vonast þær Rossi og
Gregorini til að geta staðfest sam-
vist sína á heimili Ringos í
Vancouver í Kanada en kanadísk
stjórnvöld hafa sett reglur þar sem
slíkt er heimilað.
Þær Rossi og Gregorini hafa verið
saman um nokkurt skeið en fram
að því hafði Rossi ekki gert upp-
skátt að hún væri samkynhneigð.
Hún var áður gift í Ástralíu og
einnig m.a. orðuð við breska leik-
arann Hugh Grant þegar þau léku
saman í myndinni Sirens árið 1994.
Þær Rossi og Gregorini hafa keypt
sér hús í Los
Angeles. …
Írski tónlistar-
maðurinn Bono,
söngvari U2,
hefur fengið
morðhótanir
bréflega og hafa
bresk póst-
yfirvöld leitað
aðstoðar bresku
lögreglunnar Scotland Yard við
rannsókn málsins. Blaðið Sunday
Mirror segir að allt að 25 hótunar-
bréf hafi borist, að því er virðist
frá sama manninum, þar sem Bono
er úthúðað fyrir að stunda hjálp-
arstarf meðal Afríkuþjóða og víðar
þegar honum væri nær að hjálpa
þeim sem standi honum næst.
Bono hefur starfað með mörgum
hjálparsamtökum og tók nýlega
höndum saman við tónlistarmann-
inn Bob Geldof um að hvetja Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
til að styðja við Afríkuríki. Bono
hefur einnig beitt sér fyrir því að
skuldir þróunarríkja hjá alþjóða-
stofnunum og ríkum vestrænum
þjóðum verði felldar niður.
Bresk lögregla rannsakar nú bréf-
in, sem sögð eru hafa borist á und-
anförnum tveimur árum en verið
stöðvuð í póstflokkunarstöðvum í
Lundúnum. Blaðið hefur eftir tals-
manni bresku póstþjónustunnar að
bréfin hafi öll verið skrifuð með
sérkennilegu grænu bleki. Flest
voru bréfin póstlögð í suðaustur-
hluta Lundúna. Finnist sökudólg-
urinn muni hann án efa eiga yfir
höfði sér ákæru fyrir morðhótanir.
Bono er sagður hafa hert öryggis-
gæslu en vinir hans segja að hann
muni ekki láta þetta hafa áhrif á
störf sín.
FÓLK Ífréttum