Morgunblaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 52
KVIKMYNDIRNAR Nói albínói eftir Dag
Kára Pétursson og Stormviðri (Stormy
Weather) eftir Sólveigu Anspach verða
sýndar í opinberri dagskrá á kvik-
myndahátíðinni í Toronto.
Hátíðin fer fram dagana 3.–14. sept-
ember og munu íslensku myndirnar til-
heyra dagskrá sem ber yfirskriftina Con-
temporary World Cinema, eða
Heimskvikmyndir samtímans.
Pierce Handling, framkvæmdastjóra
hátíðarinnar, sýnist á myndunum tveimur
að íslensk kvikmyndagerð sé í öruggum
höndum og spáir þeim góðu gengi í Norð-
ur-Ameríku.
Íslenskar
kvikmyndir í
Toronto
Nói albínói/49
Úr Nóa albínóa og Stormviðri.
SAMKEPPNI á sementsmarkaði hefur ver-
ið mikil síðan Aalborg Portland hóf innflutn-
ing á sementi árið 2000. Fram að þeim tíma
hafði Sementsverksmiðjan á Akranesi setið
ein að markaðinum. Fram til þessa hefur
Sementsverksmiðjan haft meirihluta á sem-
entsmarkaði. Hlutföllin hafa nú snúist við og
Aalborg Portland er komið með 50–60%
markaðshlutdeild á markaðinum hérlendis.
Breytingin á hlutföllum þessara tveggja
samkeppnisaðila kemur í kjölfar eigenda-
skipta hjá Steypustöðinni hf. sem nýlega tók
upp viðskipti við Aalborg Portland.
Sviptingar
á sements-
markaði
Aalborg Portland
með stærri hluta en
Sementsverksmiðjan
Umrót/B6
HÉR á landi er
staddur bandaríski
leikarinn Eric
Szmanda. Hann er
íslenskum sjón-
varpsáhorfendum
kunnur sem einn að-
alleikarinn í saka-
málaþáttunum CSI -
Crime Scene Invest-
igation sem sýndir
hafa verið á Skjá einum undanfarið.
Meginástæðan fyrir komu Szmanda til
landsins er að taka þátt í kynningu al-
þjóðlegs golfmóts sem nú stendur yfir.
Í samtali við Morgunblaðið segist
hann þó hafa komið áður til Íslands
enda sé hann hugfanginn af landi og
þjóð. Hann sé því alvarlega að íhuga að
kaupa sér íbúð hér á landi og muni
jafnvel skoða fasteignir áður en hann
fer af landi brott á morgun.
Leikari úr CSI
á Íslandi
Eric Szmanda
Liggur ekki/46
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkur er með siglinga-
námskeið í Nauthólsvík á hverju
sumri sem krakkar á aldrinum
níu til fimmtán ára sækja. Nokk-
ur þeirra koma mörg sumur í röð
og eru ýmsu vön þegar kemur að
sjósetningu og siglingu seglbáta.
„Þetta er í fyrsta skipti hjá mér,“
sagði Styrmir Óðinsson en Atli
Guðjónsson sagðist hafa farið á
námskeiðið þrisvar sinnum.
„Þetta var fjör,“ eru orð sem
margir létu falla þegar blaða-
maður fylgdist með hópnum í
gær. Þá hafði einn báturinn oltið
og krakkarnir dottið í sjóinn.
Þau létu það lítið á sig fá og
sögðu að vestin hefðu bjargað
þeim. Starfsmenn ÍTR fylgjast
líka grannt með að fyllsta örygg-
is sé gætt.
Þrátt fyrir volkið var krökk-
unum ekkert kalt þegar þau skol-
uðu af sér saltan sjóinn, alklædd í
útisturtu fyrir utan aðsetur báta-
klúbbsins. Nokkur sögðust hafa
orðið hissa þegar þau duttu í sjó-
inn og brugðið pínulítið. En
spenningurinn varð hræðslunni
yfirsterkari enda verkefnin
mörg.
Morgunblaðið/Arnaldur
Spennan í kringum sjóinn
hræðslunni yfirsterkari
HJÁ lyfsölukeðjunni Lyf & heilsa
er athugun hafin á þeim möguleika
að hefja rekstur apóteka á erlendri
grund. Í upphafi er einkum horft til
Suður-Evrópu og austurhluta Mið-
Evrópu.
Stjórn Lyfja & heilsu hefur
ákveðið að Karl Wernersson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, taki við
stöðu starfandi stjórnarformanns.
Auk þess að fylgja enn frekar eftir
markaðri stefnu fyrirtækisins um
frekari uppbyggingu innanlands
verður helsta verkefni hans að
kanna og eftir atvikum hefja rekst-
ur apóteka á erlendri grund. Hann
er þegar fluttur ásamt fjölskyldu
sinni til Ítalíu í þessum tilgangi.
Karl segir að farið verði í þetta
verkefni af fullri varkárni. Mark-
miðið sé að kortleggja ákveðin lönd
á því svæði sem til skoðunar sé. Að
því loknu þurfi að taka ákvörðun um
með hvaða hætti næsta skref sé
stigið.
Við starfi framkvæmdastjóra
Lyfja & heilsu mun taka Hrund Ru-
dolfsdóttir, hinn 1. júlí næstkom-
andi, en hún hefur verið rekstrar-
stjóri fyrirtækisins frá árinu 2001.
Hraður vöxtur
Lyf & heilsa hefur vaxið hratt frá
stofnun á árinu 1999. Áætlanir gera
ráð fyrir að velta keðjunnar verði
fjórum sinnum meiri á þessu ári en
árið 1999, verði um 4,3 milljarðar
króna í ár en hún var um einn millj-
arður árið 1999.
Þegar Lyf & heilsa tók til starfa
var fjöldi lyfjaverslana innan keðj-
unnar samtals 12 en þær eru nú 28.
Stefnt er að því að verslanirnar
verði samtals 31 í lok þessa árs.
Lyfsölukeðjan Lyf &
heilsa hf. hefur athug-
un á mögulegri útrás
Nýta
fengna
reynslu
Lyf og heilsa/B1
ERLENDIR ferðamenn og aðrir sem leigja
bíla hérlendis þurfa ekki að kaupa slysatrygg-
ingu ökumanns þar sem slík trygging er lög-
boðin og á ábyrgð bílaleiga. Tryggingin veitir
ökumönnum rétt á allt að 100 milljóna króna
kröfu á hendur íslenskum tryggingafélögum,
lendi þeir í slysi.
Þetta fyrirkomulag er fyrir löngu úrelt að
mati stjórnenda AVIS bílaleigu sem tafarlaust
vill breyta reglum þannig að ökumenn kaupi
sér umrædda slysatryggingu. Núverandi fyrir-
komulag sé verulega íþyngjandi fyrir trygg-
ingafélög og ferðaþjónustuna í landinu.
„Að auki mun þetta íþyngja almenningi með
hækkandi tryggingaiðgjöldum, eftir því sem
greiða þarf út bætur vegna fleiri tjóna, á með-
an þessar skyldutryggingar fást ókeypis, sem
er algjört einsdæmi hérlendis,“ segir Þórunn
Reynisdóttir, forstjóri AVIS bílaleigu. „Með
hækkun iðgjalda vegna þessara tjóna er ljóst
að við verðum ekki samkeppnishæf við önnur
lönd um val á áfangastöðum.“ Hún tekur raun-
verulegt dæmi frá því í fyrra um áhrif núver-
andi fyrirkomulags.
„Hingað kom erlendur ferðamaður og leigði
bíl. Hann vildi ekki kaupa neinar tryggingar
hérlendis, líklega vegna þess að hann var sjálf-
krafa tryggður þegar hann tók bílinn á leigu.
Hann lenti síðan í alvarlegu slysi er hann ók út
af í lausamöl án þess að vera í bílbelti og lam-
aðist fyrir neðan mitti.“
Iðgjöld bílaleiga hækka verulega í
kjölfar tjóna erlendra ökumanna
Samkvæmt íslenskum lögum á hann allt að
100 milljóna króna kröfu á hendur trygginga-
félagi AVIS bílaleigu. Hann fékk 70 milljónir
greiddar í bætur. Þetta tjón hefur þau áhrif að
tryggingaiðgjöld AVIS hækka verulega, að
sögn Þórunnar. „Það eru til mörg svipuð tilvik
hérlendis og talsmenn tryggingafélaganna
segja þessi tjón gríðarlega þungan bagga á
rekstri þeirra. Eðlilegra væri að leigutökum
væri boðið upp á að kaupa sér slysatryggingu
ökumanns með lægri tjónabótaupphæð eins og
tíðkast víða erlendis.“
Um 600 bílaleigubílar eru til útleigu hjá
AVIS og segir Þórunn að undanskilja ætti bíla-
leigur frá reglum um hina umræddu slysa-
tryggingu.
„Undir stýri á bílaleigubílum geta verið gríð-
arlega mismunandi ökumenn og við teljum ekki
eðlilegt að bílaleigur eigi að tryggja ökumenn-
ina gegn því tjóni sem þeir kunna að valda
sjálfum sér, enda eru þeir að leigja ökutæki.
Hér er um að ræða þá tegund ferðamennsku
sem er í mestum vexti og vegir hérlendis eru
víða varasamir.“
Til samanburðar eiga Íslendingar á ferðalög-
um erlendis ekki kröfu á hendur erlendum
tryggingafélögum slasist þeir undir stýri á bíla-
leigubílum, nema þeir hafi keypt sér slysa-
tryggingu ökumanns.
AVIS fór þess á leit við dómsmálaráðherra í
vor að hann breytti reglum sem um þetta gilda
hérlendis og mun ítreka þá beiðni á næstunni.
Nefnd um bílaleigumál vill að ökumenn greiði sjálfir slysatryggingu
Núverandi staða íþyng-
ir ferðaþjónustunni