Morgunblaðið - 12.07.2003, Síða 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL og vaxandi ólga er inn-
an ríkisstjórnar Silvios Berl-
usconis og einkum milli tveggja
flokka, sem að henni standa.
Gianfranco Fini, aðstoðarfor-
sætisráðherra og leiðtogi Þjóð-
fylkingarinnar, sagði í gær, að
ef Berlusconi tæki ekki í lurg-
inn á Umberto Bossi, leiðtoga
Norðurbandalagsins, væri
hætta á, að stjórnin spryngi.
Kvaðst hann ekki una lengur
eilífum hótunum Bossis, sem
hefði allt of mikil völd miðað við
3%, sem flokkur hans hefði
fengið á landsvísu. Eftir það,
sem á undan er gengið hjá
Berlusconi, brosa margir í
Brussel að þessu heimilisböli
hans. „Svo lengi sem hann er
upptekinn heimafyrir, hefur
hann lítinn tíma til að rífast við
nágrannana,“ var haft eftir ein-
um embættismanninum.
Aðstoðarferðamálaráðherr-
ann Stefano Stefani, flokks-
bróðir Bossis, sagði af sér í gær
vegna móðgandi ummæla sem
hann lét falla um þýska ferða-
menn í síðustu viku og urðu til
þess að Gerhard Schröder
Þýskalandskanslari hætti við
að fara í sumarfrí til Ítalíu.
Mjög hafði verið þrýst á Stefani
að víkja úr embætti.
Morð í
frjálsu falli
BRESKUR fallhlífarstökks-
maður, Stephen Hilder, tvítug-
ur að aldri, var myrtur fyrir
viku með þeim hætti, að skorið
var á báðar línur, jafnt í aðal-
sem varafallhlíf. Kom það í ljós
eftir að hann hafði fallið 4.000
metra til jarðar. Dagana áður
hafði hann notað fallhlífina og
gengið frá henni sjálfur. Það er
því ljóst, að einhver, sem kann
til verka, hugsanlega annar
fallhlífarstökkvari, hefur átt við
hana í millitíðinni.
Japanskar
langlífastar
JAPANSKAR konur voru
langlífastar á árinu 2002 og
náðu þá að meðaltali að verða
rúmlega 85 ára. Hafa þær haft
þessa forystu í 18 ár samfleytt.
Á hæla þeim koma síðan konur
í Hong Kong, Frakklandi, Ástr-
alíu, Ítalíu og Kanada. Meðal-
ævitími karlmanna var lengst-
ur í Hong Kong, 79,4 ár, og
síðan komu karlmenn í Japan,
Íslandi (78,1 ár), Svíþjóð, Ástr-
alíu og Sviss.
Mikill halli
á BBC
BÚIST er við, að halli á rekstri
BBC, breska ríkisútvarpsins, á
síðasta rekstrarári hafi verið
um 300 millj. punda, 37 millj-
arðar ísl. kr. Munar mestu um
mikið tap á fjárfestingum líf-
eyrissjóðs stofnunarinnar.
Koma þessar fréttir á slæmum
tíma vegna þeirra deilna, sem
hún hefur átt í við bresku rík-
isstjórnina út af Íraksmálinu.
STUTT
Hriktir í
Ítalíustjórn
Umberto Bossi, leiðtogi Norður-
bandalagsins, og Silvio Berlusconi.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að yfirmenn banda-
rískra leyniþjónustustofnana hefðu
lesið stefnuræðu hans áður en hann
flutti hana í janúar og ekki gert nein-
ar athugasemdir við hana, meðal
annars þá staðhæfingu hans að Írak-
ar hefðu falast eftir úrani, sem hægt
væri að nota í kjarnavopn, í Afríku-
ríkinu Níger.
Daginn áður höfðu bandarískir
embættismenn sagt að fyrir og eftir
stefnuræðu Bush 28. janúar hefði
bandaríska leyniþjónustan CIA látið
í ljósi efasemdir um breska leyni-
þjónustuskýrslu sem Bush vitnaði í
til að rökstyðja fullyrðingu sína. Áð-
ur höfðu embættismenn í Hvíta hús-
inu viðurkennt að rangt hefði verið
að setja þessa fullyrðingu í ræðuna.
Powell hafði
efasemdir
„Ég flutti stefnuræðu sem leyni-
þjónustustofnanir höfðu lagt blessun
sína yfir. Í þessari ræðu var lýst í
smáatriðum fyrir bandarísku þjóð-
inni hvaða hætta stafaði af stjórn
Saddams Husseins,“ sagði Bush í
Úganda eftir fund með forseta
landsins, Yoweri Museveni. „Stjórn
mín gerði viðeigandi ráðstafanir
vegna þessarar hættu og niðurstað-
an er sú að heimurinn er öruggari og
friðsamari en hann var áður.“
Condoleezza Rice, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjanna, sagði einnig
að yfirmenn CIA hefðu lesið ræðuna
án þess að gera athugasemdir við
hana. Ef rétt væri að George Tenet,
yfirmaður leyniþjónustunnar, hefði
haft einhverjar efasemdir um full-
yrðinguna hefði hann ekki skýrt
Bush eða aðstoðarmönnum forset-
ans frá því.
„Ef CIA – eða yfirmaður leyni-
þjónustunnar – hefði sagt að sleppa
ætti þessari setningu hefði það verið
gert,“ sagði Rice. Þegar hún var
spurð hvort Bush treysti enn leyni-
þjónustunni svaraði hún: „Algjör-
lega.“
Hún viðurkenndi þó að Colin Pow-
ell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefði haft efasemdir um ásök-
unina og ákveðið að minnast ekki á
hana þegar hann ávarpaði öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna nokkrum
dögum eftir stefnuræðu Bush.
Embættismenn í Hvíta húsinu í
Washington viðurkenndu fyrr í
vikunni að í ræðunni hefði verið gert
of mikið úr meintri kjarnavopna-
áætlun Íraka. Ásökunin á hendur
Írökum byggðist á fölsuðum skjölum
um að stjórn Saddams hefði falast
eftir úrani í Níger og á öðrum gögn-
um um að hún hefði einnig reynt að
kaupa geislavirk efni í öðrum Afr-
íkuríkjum.
Colin Powell neitaði því í fyrradag
að Bush hefði blekkt þjóðina í
stefnuræðunni. Hann sagði að alltof
mikið hefði verið gert úr málinu í
Bandaríkjunum og kvað ekkert hæft
í því að stjórnin hefði hagrætt leyni-
þjónustugögnum til að réttlæta
stríðið í Írak.
Powell viðurkenndi þó að þegar
hann flutti ræðuna í öryggisráðinu
hefðu upplýsingarnar um að Írakar
hefðu falast eftir úrani verið álitnar
óáreiðanlegar.
The Washington Post skýrði frá
því í gær að CIA hefði talið, allt frá
því í september, að upplýsingarnar
væru ótraustar og reynt að telja
bresku stjórnina á að geta þeirra
ekki í skýrslu til breska þingsins.
CIA lét í ljósi efasemdir
við bresku stjórnina
„Haft var samráð við okkur og við
ráðlögðum þeim að nota ekki þetta
efni,“ hafði blaðið eftir háttsettum
embættismanni í Washington.
Breska stjórnin hafnaði þessari
tillögu CIA og kvaðst hafa önnur
leyniþjónustugögn um málið sem
Bandaríkjamenn hefðu ekki.
The Washington Post sagði að á
þessum tíma hefði CIA verið að
semja skýrslu þar sem mat var lagt á
meintar efna-, sýkla- og kjarna-
vopnaáætlanir Íraka.
Í skýrslunni hefði verið minnst á
upplýsingar um að Írakar hefðu
reynt að kaupa úran í þremur
Afríkuríkjum en CIA hefði hins
vegar tekið fram að bandaríska
varnarmálaráðuneytið efaðist um
áreiðanleika gagnanna hvað varðaði
Níger og starfsmenn CIA teldu að
gögnin um hin Afríkuríkin væru
„gloppótt“.
CIA samþykkti ásökun
Bush í stefnuræðunni
Entebbe, Washington. AFP, AP.
Forsetinn segir leyniþjónustuna hafa
lagt blessun yfir vafasama fullyrðingu
FYRRVERANDI yfirmaður bresku
leyniþjónustunefndarinnar (JIC) sak-
aði í fyrradag ríkisstjórnina um að
hafa „stórlega ýkt“ hættuna á hryðju-
verkum í Bretlandi í aðdraganda
Íraksstríðsins. Sagði hann, að það
hefði hún gert með ítrekuðum yfirlýs-
ingum um „yfirvofandi hryðju-
verkaárás“ í London og á Heathrow-
flugvelli. Í viðtali við Channel 4 sagði
Sir Rodric Braithwaite, sem var yf-
irmaður leyniþjónustunefndarinnar í
tíð Íhaldsflokksins á árunum 1992–
1993, að ýktar viðvaranir um hryðju-
verkahættu hefðu verið gefnar í
fyrra, þegar andstaða við hugsanlega
innrás í Írak var mikil meðal almenn-
ings og virtist fara vaxandi. Þá hefði
fólk verið hvatt til að birgja sig upp og
skriðdrekar látnir athafna sig við
Heathrow-flugvöll. Kom þetta fram í
Guardian í gær.
Sir Rodric nefnir þetta líka í bréfi
til Financial Times en í því segir
hann: „Fisksalar selja fisk og stríðs-
æsingamenn selja stríð. Hvorir-
tveggju eru vissir um ágæti sinnar
vöru.“ Sir Rodric segist þó trúa því,
að Blair forsætisráðherra hafi sjálfur
verið sannfærður um nauðsyn innrás-
arinnar í Írak.
„Stórlega
ýkt“ hryðju-
verkahætta
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, lofaði stjórnvöld í Úg-
anda fyrir góðan árangur í barátt-
unni við alnæmi er hann heimsótti
landið í gær.
„Það er eitt að heyra um eyði-
legginguna sem alnæmi veldur en
annað að sjá hana með berum
augum,“ sagði hann eftir að hafa
heimsótt heilsugæslustöð fyrir
HIV-smitaða ásamt konu sinni,
Lauru Bush. Úganda er það ríki
sem þykir hafa tekist hvað best að
stemma stigu við alnæmi sem lék
þjóðina grátt á níunda og tíunda
áratugnum. Á nokkrum árum hef-
ur tekist að minnka tíðni smita úr
30% í 5% hjá íbúum landsins en
fræðsluherferðir um öruggt kynlíf
þykja hafa borið góðan árangur.
„Þið hafið sýnt heiminum hvað er
hægt að gera til að fækka HIV-
smittilfellum,“ sagði Bush er hann
hitti Yoweri Museveni, forseta Úg-
anda.
Minntist ekki á aðild að
borgarastríðinu í Kongó
Í ræðu við heilsugæslustöðina
talaði Bush um 15 milljarða dala
áætlun sína sem miðar að því að
hefta útbreiðslu alnæmis í heim-
inum en minntist ekki á að nokkr-
um klukkustundum áður hafði
fulltrúadeild Bandaríkjaþings
ákveðið lækka upphæðina sem
veita á til verkefnisins á næsta ári
úr þremur milljörðun dollara í
tvo. Verkefni Bush byggist einmitt
á aðferðum sem notaðar hafa ver-
ið í Úganda.
Bush lofaði Museveni forseta
fyrir að vera sterkur talsmaður
frjálsrar verslunar og friðar í Mið-
Afríku en minntist ekki á aðild
Úganda að fimm ára borgarastyrj-
öld í nágrannaríkinu Kongó þegar
ríkið sendi þangað her til stuðn-
ings uppreisnarmönnum árið
1998. Herinn hefur verið dreginn
til baka en mannréttindasamtök
saka ríkið um að halda áfram að
kynda undir ófriði í austur- og
norðausturhluta Kongó. Samtökin
Amnesty International höfðu hvatt
Bush til að þrýsta á ríkisstjórn
Úganda að láta af hernaðarstuðn-
ingi við uppreisnarhópa.
Bush og fylgdarlið yfirgáfu
landið eftir fjögurra tíma heim-
sókn og héldu áleiðis til Nígeríu
sem er síðasti viðkomustaður for-
setans á ferð hans um Afríku.
George W. Bush Bandaríkjaforseti heimsótti Úganda í gær
AP
George W. Bush Bandaríkjaforseti heilsar HIV-smituðu fólki í heilsugæslustöð í Entebbe í Úganda í gær.
Lofaði góðan árangur
í baráttunni við alnæmi
Entebbe. AP, AFP.
WTO eða Heimsviðskiptastofn-
unin hefur komist að þeirri nið-
urstöðu, að tollarnir, sem Banda-
ríkjastjórn setti á innflutt stál,
séu ólöglegir. Vísaði nefnd
þriggja sérfræðinga á bug þeirri
röksemd Bandaríkjastjórnar, að
tollarnir væru réttlætanlegir
vegna þess, að innflutningurinn
ógnaði innlendri framleiðslu.
Það var Evrópusambandið,
sem höfðaði málið og naut í því
stuðnings Kína, Japan, Nýja-Sjá-
lands, Noregs, S-Kóreu, Sviss og
Brasilíu. Fögnuðu talsmenn
þeirra niðurstöðunni í gær en
Bandaríkjastjórn hyggst áfrýja
henni.
Bandarískir
stáltollar
ólöglegir