Morgunblaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 5
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 5
Í NÝRRI skýrslu Hagstofu Íslands
um fjölmiðlun og menningu kemur
fram að 77,9% Íslendinga höfðu að-
gang að Netinu frá heimili sínu í
nóvember á síðasta ári. Þá höfðu
81,1% aðgang að Netinu annað-
hvort heiman frá sér eða í
vinnunni í október 2002.
Eins kemur fram að árið 2001
var hlutfall nettengdra hæst á Ís-
landi af 44 löndum sem skoðuð eru
í skýrslu Hagstofunnar. Þá notuðu
67% Íslendinga Netið en Lichten-
stein og Noregur komu þar á eftir.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að í nóvember 2002 höfðu 83,2% Ís-
lendinga aðgang að heimilistölvu
en 92% þeirra voru tengd við Net-
ið.
Í júní 1995 höfðu aðeins 1,9% Ís-
lendinga aðgang að Netinu frá
heimili sínu og hefur aðgangur að
Netinu farið stöðugt og hratt vax-
andi á þessum sjö árum. Háhraða-
tenginum við Netið hefur fjölgað
mjög hratt á síðustu árum, svoköll-
uðum xdsl-tengingum (t.d. adsl)
fjölgaði úr 81 árið 1999 í 23.484 í
fyrra.
Í mars árið 2000 sýndu kannanir
að yfir helmingur Íslendinga var
kominn með nettengingu inn á
heimili sitt.
Í skýrslu Hagstofunnar kemur
einnig fram að íslenskir netverjar
vörðu að meðaltali 5,4 klukku-
stundum á Netinu á viku í mars
2001. Notkunin var mest meðal
fólks á aldrinum 20 til 24 ára og
meiri meðal karla en kvenna.
Fjöldi netþjóna var 68.282 í jan-
úar á þessu ári en í janúar árið
1991 voru þeir aðeins tuttugu tals-
ins. Í samanburðargögnum í
skýrslunni kemur fram að árið
2001 voru 19,8 netþjónar á hverja
100 Íslendinga og er það lang-
hæsta hlutfall í þeim löndum sem
samanburðurinn náði til. Finnland
var í öðru sæti með 18,0 og Dan-
mörk kom þar á eftir með 11,8.
Bandaríkin voru ekki með í þess-
um samanburði en talan sem not-
ast er við er fjöldi vefsíðna með
rótarlén tiltekins lands (s.s. eins og
.is fyrir Ísland).
Í desember sl. var vefsíða Morg-
unblaðsins, mbl.is, mest sótta
heimasíða landsins með 98.384
gesti að meðaltali á viku.
Íslendingar mjög framarlega í flokki í notkun á Netinu
Tæp 80% hafa aðgang að Netinu heima
MEÐFRAM suðurströndinni standa
víða björgunarsveitarskýli sem eru
ætluð til að veita hröktum ferðalöng-
um húsaskjól í neyð. Sunnan undir
Hjörleifshöfða stendur eitt slíkt skýli
og hefur það efalaust í upphafi verið
reist þarna útaf tíðum skipströndum
við suðurströndina. Ef einhver skip-
reka sjómaður myndi komast á land
ætti hann möguleika á að bjargast í
hús.
Framan við húsið voru settar upp
leiðarstikur með stuttu millibili alla
leið fram á fjörukambinn og eftir allri
fjörunni í báðar áttir. Þessar stikur
eru nú allar fallnar nema ein sem enn
stendur á miðjum sandi og vísar örin
efst í toppnum á björgunarsveitar-
skýlið.
Hætt var fyrir nokkrum árum að
halda þessum stikum við vegna þess
að ekki var talin þörf fyrir þær lengur
vegna mikillar fjarskiptatækni. Í sól
og blíðu virðist erfitt að hugsa sér að
þeirra hafi einhvern tímann verið þörf
en þegar horft er yfir sandflæmið
milli Hjörleifshöfða og sjávar er þó
hægt að ímynda sér hvernig væri að
vera þarna staddur fótgangandi í
þoku eða byl og sjá ekkert nema sand.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mýrdalssandur sunnan við Hjör-
leifshöfða. Síðasta leiðarstikan á
leiðinni fram að sjó.
Leiðarstikur
að hverfa á
Mýrdalssandi
Fagradal. Morgunblaðið.
BJÖRGUN fjölveiðiskipsins Guðrún-
ar Gísladóttur, sem sökk fyrir rúmu
ári við strendur Lófóten í Noregi, hélt
áfram um helgina. Á föstudag var haf-
ist handa við að dæla lofti í þá tanka
sem búið var að sökkva niður að skip-
inu og festa við það en á laugardaginn
varð það óhapp að einn tankurinn
losnaði frá skipinu og rakst utan í
björgunarskipið, Stakkanes, með
þeim afleiðingum að skemmdir urðu á
stjórnborðssíðu skipsins.
Ekki er ljóst hvernig til kom að
tankurinn losnaði.
Stakkanesinu var í kjölfarið siglt til
Svolver í Noregi, 28 mílum frá strand-
stað, þar sem skipið verður lagfært
næstu daga.
Haukur Guðmundsson, Íshúsi
Njarðvíkur og eigandi skipsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann
reiknaði með að aðgerðir mundu tefj-
ast um tvo til þrjá daga út af óhappinu
en hann sagði að tankurinn hafi ekki
skemmst að ráði. Að sögn Hauks
hafði allt gengið mjög vel fram að
þessu enda veður gott á svæðinu en
veður gerði björgunarmönnum oft
erfitt fyrir í vetur.
Haukur sagði að næstu daga
mundu þeir fá stóran pramma til að
vera með þeim á svæðinu og það ætti
að tryggja að verkið gangi hraðar fyr-
ir sig. Hann reiknaði með að aðgerðir
yrðu komnar á fullt aftur seinni part
vikunnar.
Tankur slóst
utan í Stakka-
nesið og olli
skemmdum
♦ ♦ ♦