Morgunblaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segir að sér
finnist það einkennileg framganga
að færa bandaríska varnarliðsmann-
inn, sem ákærður er fyrir tilraun til
manndráps, í gæsluvarðhald á varn-
arsvæðinu.
„Mér finnst þetta einkennileg
framganga í ljósi þess að Héraðs-
dómur Reykjavíkur var búinn að úr-
skurða manninn í gæsluvarðhald,“
segir Guðjón. „Ég átta mig ekki á því
hvers vegna þetta var gert.“
Guðjón segir að afstaða sín í öllu
málinu sé sú að refsimálið gagnvart
varnarliðsmanninum eigi að vera á
grundvelli íslenskrar lögsögu. Málið
snúist um sjálfstæði íslenskra dóm-
stóla.
Einkenni-
leg fram-
ganga
Guðjón A. Kristjánsson
ÞRJÁR GJAFIR voru formlega af-
hentar Reykholtskirkju við messu í
kirkjunni gær. Þær eru tveir
gluggar, eða listgler, eftir Valgerði
Bergsdóttur, útilistaverk eftir Jó-
hann Eyfells og grátur fyrir altari,
en það er gjöf sóknarprestsins, Geir
Waage og konu hans Dagnýjar Em-
ilsdóttur.
Listglerinu, eftir listakonuna
Valgerði, hefur verið komið fyrir í
tveimur rósettugluggum, öðrum yf-
ir altari kirkjunnar og hinum yfir
orgelloftinu. Valgerður var valin til
að gera gluggana eða listglerin eft-
ir hugmyndasamkeppni sem haldin
var fyrir nokkrum árum.
Hágluggar á hliðum kirkjuskips-
ins bíða þess að fá einnig listgler
sem Valgerður hefur hannað.
Gluggarnir tveir eru sérstök gjöf
frá Margréti Garðarsdóttur í minn-
ingu manns hennar, Halldórs H.
Jónssonar arkitekts, sem rekur ætt-
ir sínar í Borgarfjörð. Margrét er
móðir Garðars Halldórssonar,
húsameistara ríkisins sem er arki-
tekt hússins.
Gefa útilistaverk
Útilistaverkið „Triarchy II“ frá
1992 eftir Jóhann Eyfells listamann
var einnig formlega afhent í gær, í
minningu sr. Einars Pálssonar sem
var prestur í Reykholti á fyrstu ára-
tugum síðustu aldar og konu hans
Jóhönnu Katrínar Kristjönu Briem.
Verkið er gefið af afkomendum
þeirra hjóna og hefur verið komið
fyrir í kirkjugarði Reykholtskirkju.
Jóhann er einnig barnabarn prests-
hjónanna og eins og fram kom í
ávarpi mun uppruni verksins eiga
sér rætur frá því þegar Jóhann
dvaldi hér í Reykholti hjá afa sínum
og ömmu, fyrir 73 árum.
Áletrun á skildi á verkinu er ljóð-
línan „Römm er sú taug“ úr forn-
grísku kvæði í þýðingu Svein-
bjarnar Egilssonar. Verkið er unnið
úr áli og fékk verðlaun á Fen-
eyjatvíæringnum.
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Listamennirnir Jóhann Eyfells, til vinstri, og Valgerður Bergsdóttir heilsa
formanni sóknarnefndar, Guðlaugi Óskarssyni, en listaverk þeirra voru
formlega afhent Reykholtskirkju í gær.
Útilistaverk eftir Jó-
hann Eyfells, en því hef-
ur verið komið fyrir í
kirkjugarði Reykholts-
kirkju.
Reykholtskirkja
fær góðar gjafir
Glerlistaverk eftir Val-
gerði Bergsdóttur lista-
konu. Á því er setning
úr Jólaguðspjalli Jó-
hannesar og stendur
þar „orðið varð hold
(og) hann bjó með oss –
fullur náðar og sann-
leika.“
Reykholti. Morgunblaðið.
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, segir að það hafi
verið undarlegur gerningur að færa
bandaríska varnarliðsmanninn, sem
ríkissaksóknari hefur ákært fyrir til-
raun til manndráps, yfir í varðhald til
Bandaríkjamanna. „Ég varð fyrir
miklum vonbrigðum með að ríkissak-
sóknari skyldi ekki halda sínu striki,
ekki síst í ljósi þess að framundan er
úrskurður Hæstaréttar. Ég átta mig
ekki á hvaða merkingu, ef einhverja,
þetta hefur.“
Steingrímur segir „gerninginn“
mjög undarlegan ef hann hafi enga
lagalega þýðingu, þ.e. ef litið sé svo á
að Bandaríkjamenn eigi að „passa
manninn sem sé í gæsluvarðhaldi á
grundvelli íslenskrar lögsögu og ís-
lenskra laga.“ Á hinn bóginn sé það
verra ef litið sé svo á að með gjörn-
ingnum hafi lögsagan að einhverju
leyti verið gefin eftir. Steingrímur
tekur fram að hans efnislega afstaða
sé sú að lögsagan eigi að vera íslensk í
svona málum. Annað væri fráleitt.
Samningar bak við tjöldin
Steingrímur segir einnig að það
hafi verið athyglisvert að fylgjast með
því að undanförnu hvernig það hafi
smátt og smátt verið að koma fram í
dagsljósið hvernig samið var um lög-
sögu í málum sem þessum, bak við
tjöldin, þegar gengið var frá varnar-
samningnum á sínum tíma. Stein-
grímur segir m.ö.o. að ekki hafi „allir
hlutir verið gerðir opinberir“ um það
hvernig gengið hafi verið frá „þessum
málum á sínum tíma.“ Vísar Stein-
grímur m.a til þess, máli sínu til
stuðnings, að Jónatan Þórmundsson
prófessor sé farinn að ganga út frá því
sem vísu að til sé óbirt bókun um að
Íslendingar afsali sér lögsögu í mál-
um er varða varnarliðsmenn. „Ég sé
að Jónatan er farinn að ganga út frá
því að til sé slíkt skjal. En hann segir
réttilega að mínu mati að það hafi
ekkert lagagildi; það sé ekki lögskýr-
ingargagn, því það hafi ekki verið
hluti af fylgiskjölum með frumvarp-
inu á sínum tíma þegar Alþingi setti
lögin [um varnarsamninginn].“ Stein-
grímur segir að það muni reyna á það
á næstunni hvort gerð verði grein fyr-
ir því með fullnægjandi hætti hvernig
gengið var frá þessum samningum á
sínum tíma. „Mig klæjar í lófana að
geta farið að ræða þessi mál á grund-
velli þess að þetta verði allt saman
gert opinbert,“ segir hann að lokum.
Steingrímur J. Sigfússon um flutning varnarliðsmannsins
Undarlegur gerningur
ÞRISTURINN Páll Sveinsson,
DC-3 landgræðsluflugvélin sem
orðin er 60 ára gömul, fer í sumar í
hringflug um landið í tilefni ýmissa
afmælisáfanga í flugstarfsemi í ár.
Verður ferð vélarinnar þannig eins
konar upphitun fyrir flughátíð sem
dótturfyrirtæki Flugleiða, Ice-
landair, skipuleggur á Reykjavík-
urflugvelli laugardaginn 16. ágúst í
samvinnu við ýmsa aðila.
Í ár er þess m.a. minnst að 30 ár
eru liðin frá stofnun Flugleiða og
jafnlangt síðan fyrirtækið gaf
Landgræðslunni DC-3 vélina til
áburðarflugs en landgræðsluflugið
hófst fyrir 45 árum. Þá verða í des-
ember í ár 100 ár frá fyrsta flugi
Wright bræðra í Bandaríkjunum.
Auk Icelandair hafa Land-
græðslan, Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna, Flugfreyjufélags Ís-
lands, komið við sögu undir-
búningsins og aðrir þátttakendur
eru m.a. Landhelgisgæslan, Bo-
eing flugvélaframleiðandinn og
Flugbjörgunarsveitin. Hátíðin
verður hluti af dagskrá menning-
arnætur Reykjavíkur.
Á flughátíðinni í Reykjavík er
ætlunin að sýna ýmsar flugvélar
sem tengst hafa sögu Icelandair,
áður Flugleiða og Flugfélags Ís-
lands, einkennisbúninga flug-
áhafna og sýnt verður listflug en
skipulagning dagskrár liggur ekki
fyrir í smáatriðum.
Gert er ráð fyrir Þristurinn
verði á ferð um landið tvær eða
þrjár helgar fyrir sjálfa hátíðina.
Verður staðnæmst á nokkrum
stöðum þar sem gestum gefst kost-
ur á að skoða vélina. Flugvélin var
í upphafi í eigu Flugfélags Íslands
sem gaf hana til landgræslustarfa
við sameiningu félagsins og Loft-
leiða í Flugleiðir. Hefur hún verið
notuð allar götur síðan til að dreifa
áburði og fræi til uppgræðslu
landsins.
Þristurinn í hringflug um landið
Morgunblaðið/RAX
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson á flugi við Þingvallavatn.