Morgunblaðið - 14.07.2003, Page 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 11
OLYMPUS C-120 DIGITAL Camedia C-730 Zoom Camedia C-50ZOOMOLYMPUS Mju 300
Camedia C-350
ROMAN Abramovits, nýr eigandi knatt-spyrnuliðsins Chelsea, er annar ríkastimaður í Rússlandi og sá 19. ríkasti íEvrópu, næstur á eftir forsætisráð-
herra Ítalíu Silvio Berlusconi. Fréttamaður BBC
sem tók viðtal við Abramovits hefur sagt að í útliti
sé maðurinn sláandi líkur bandaríska kvikmynda-
leikstjóranum Woody Allen án gleraugna en al-
mennt þykir Abramovits hæglátur maður sem
berst lítið á.
Mönnum ber ekki alveg saman um verðmæti
eigna Abramovits. Forbes tímaritið bandaríska
áætlar það 5,7 milljarða Bandaríkjadala, eða í
kringum 440,7 milljarða íslenskra króna, en
Sunday Times hefur sagt það vera 6,3 milljarða
dala, eða 487 milljarða. Það eitt er víst að aurarnir
sem hann borgaði fyrir Chelsea voru nánast eins
og skiptimynt í hans augum en hann greiddi 60
milljónir sterlingspunda fyrir félagið, eða 7,54
milljarða íslenskra króna, og tók að auki yfir skuld-
ir félagsins að andvirði 10 milljarða króna.
Í valdahring Jeltsíns
En hver er þessi Abramovits og hvar komst
hann yfir þessa fjármuni sína?
Abramovits er 36 ára gamall. Hann missti móður
sína úr veikindum átján mánaða gamall og faðir
hans lést í vinnuslysi þegar Roman var á fjórða ári.
Fyrst um sinn bjó hann hjá frænda sínum í
Moskvu en varði unglingsárunum hjá afa sínum og
ömmu í héraðinu Komi í Norður-Rússlandi.
Abramovits lauk aldrei menntaskóla, en skráði
sig í lögfræði við lagaháskólann í Moskvu árið 2000
og lauk prófi á innan við ári.
Árið 1992 fóru hjólin að snúast hjá Abramovits
þegar hann kynntist áhrifaríkum manni í valda-
hring Boris Jeltsíns þáverandi forseta Rússlands,
Borís Berezovsky, en hann er einn af hinum svo-
kölluðu Oligörkum eða viðskiptahöldum, sem
auðguðust stórkostlega á því að kaupa ríkisfyrir-
tæki á spottprís eftir fall kommúnismans.
Eftir að Vladimir Pútín forseti komst til valda
árið 2000 tók Abramovits yfir eignir Berezovskys í
olíu- og fjölmiðlaiðnaðinum, enda lenti Berezovsky
í ónáð hjá Pútín og hrökklaðist úr landi og býr nú í
sjálfskipaðri útlegð í London. Abramovits eign-
aðist olíufyrirtækið Sibneft, fimmta stærsta olíu-
fyrirtæki Rússlands, árið 1996 og hann á 50% af
Rusal, sem hefur einokunarstöðu á álmarkaði
landsins. Þá átti hann þar til nýlega 26% af rúss-
neska flugfélaginu Aeroflot, en hefur nú selt allan
hlut sinn í félaginu og segja menn að hagnaðurinn
af sölunni hafi verið notaður til að kaupa Chelsea.
Þegar Sibneft var sameinað stærsta olíu-
fyrirtæki Rússlands og fjórða stærsta olíu-
fyrirtæki heims, Yokos Oil, fyrr á þessu ári seldi
Abramovits 20% hlut í fyrirtækinu til Yokos fyrir
þrjá milljarða Bandaríkjadala eða 231 milljarð
króna. Þeim 72%, sem eftir stóðu af alls 92% hlut
hans í Sibneft, var breytt í hlutabréf í hinu samein-
aða félagi YokosSibneft, sem hann á nú rúmlega
25% hlut í. Markaðsvirði Yokos eingöngu er sam-
kvæmt rússneska dagblaðinu The Moscow Times
rúmlega 30 milljarðar Bandaríkjadala.
Abramovits er búsettur í glæsihýsi á 42 hektara
lóð í útjaðri Moskvu ásamt eiginkonu sinni og fjór-
um börnum.
Landstjórinn borgar brúsann
Abramovits hefur ekki látið viðskiptin nægja
heldur hefur hann seilst til áhrifa í stjórnmálum og
segir bandaríska tímaritið Time sem fjallaði um
hann nýlega, að Abramovits virðist njóta sín vel í
pólitíkinni. Stjórnmálaafskipti hans hófust þegar
hann var kjörinn þingmaður héraðsins Chukotka á
rússneska þinginu, Dúmunni, árið 1999. Þá var
námaiðnaður þar í molum, atvinnuleysi mjög mikið
og skortur á nauðsynjum á borð við eldsneyti og
mat.
Chukotka er á austasta tanga Rússlands við
Beringssund sem skilur að Rússland og Alaska.
Íbúar eru 73.000 og hefur þeim farið fækkandi síð-
ustu ár. Til samanburðar bjuggu þar 113.000
manns árið 1995.
Abramovits bætti t.d. 2,5 milljörðum við 5,4
milljarða tekjustofn héraðsins einfaldlega með því
að flytja lögheimili sitt þangað og borga þar með
sína skatta til héraðsins. Þá segir Time að hann
hafi sent 8.500 börn frá Chukotka til Svartahafsins
í sumarleyfi og borgað brúsann sjálfur. Einnig hafi
hann sent sykur, hrísgrjón og smjör til sveltandi
íbúa héraðsins.
Þegar Abramovits hafi orðið var við að stór hluti
þeirrar fjárhæðar sem hann varði til uppbyggingar
í héraðinu endaði í vösum embættismanna, hafi
hann ákveðið að bjóða sig fram til landstjóra. Hann
fékk 92% atkvæða í kosningunum í desember 2000
en helsti keppinautur hans, Alexander Nazarov,
sem áður var landstjóri, dró framboð sitt til baka
viku fyrir kosningarnar.
Time segir að Abramovits hafi á síðustu árum
greitt fyrir smíði 46 nýrra heimila, sem hvert kost-
aði um fjórar milljónir íslenskra króna, fjármagnað
fyrsta gistihús svæðisins sem og baðstað og rak-
arastofu. Þá hefur hann varið 16–24 milljörðum af
eigin fé í stórmarkaði, kvikmyndahús og annað í
þeim dúr. Sjálfur segist hann ekki vita hversu
miklu hann hafi varið til uppbyggingarinnar.
Íslendingar útvega heitt vatn
Íslendingar hafa átt þátt í uppbyggingunni í
Chukotka en Abramovits hefur fengið fyrirtæki til
héraðsins til að leita að heitu vatni og til að hanna
hitaveitu til að hita upp þorp og bæi héraðsins.
Knútur Árnason, eðlisfræðingur hjá Íslenskum
orkurannsóknum, sem starfar á vegum fyrirtækis-
ins Kamhnit ltd., sem sér um að hanna hitaveitur
fyrir Chukotka, hefur farið eina vinnuferð til Chuk-
otka til að leita að heitu vatni á svæðinu. Hann er
þessa stundina í sinni annarri ferð austur eftir.
Knútur hitti Roman Abramovits á fundi sl. haust
þar sem honum var gerð grein fyrir niðurstöðum
jarðhitarannsókna sumarið 2002. Knútur segir að
Abramovits hafi komið sér fyrir sjónir sem elsku-
legur maður og blátt áfram. Hann sé frægur fyrir
að berast lítið á, hvort sem er í klæðaburði eða
öðru. „Ég var í Chukotka um mánaðamótin ágúst-
september í fyrra og hann gaf sér hálftíma til að
hitta okkur og hlýða á niðurstöður rannsóknanna,“
sagði Knútur. Hann segir að Abramovits hafi sýnt
rannsóknunum mikinn áhuga, enda sé hann mikill
áhugamaður um uppbyggingu svæðisins.
Knútur segir að héraðið sé á stærð við Frakk-
land. Héraðið sé fátækt og íbúar lifi að miklu leyti á
veiðum.
„Öllum sem hafa hitt hann ber saman um að
hann sé hæglátur og kurteis maður.“
Knútur segir að aðstæður í héraðinu séu frekar
frumstæðar. Þorpin séu lítil og húsnæði í misgóðu
ásigkomulagi. Mikil uppbygging hefur þó orðið í
höfuðborginni Anadyr, sem er 15.000 manna bær á
stærð við Akureyri.
Knútur hefur einnig starfað við þorpið Loríno en
nú er ferðinni heitið til þorpsins Úelen, austasta
þorps í Síberíu þar sem á að gera jarðhitarann-
sóknir til að undirbúa gerð hitaveitu.
Knútur segir að tekjur Chukotka héraðs séu
mestmegnis af veiðum, enda hafi héraðið frum-
byggjakvóta og veiddir séu hvalir, rostungar og
selir, svo og lax og silungur m.a. Hann segir að fólk
í þorpunum hafi helst tekjur af því að selja minja-
gripi, útskorna í rostungstennur m.a.
Aðspurður segir Knútur að það sé ekki mikill
vestrænn bragur á daglega lífinu í Chukotka en
fólkið sé indælt og raungott.
Hann segir að kalt sé þarna á veturna en sumrin
séu eins og sumar á Vestfjörðum, eins og hann
orðar það.
Knútur segir að sér virðist sem Roman
Abramovits sé vel liðinn af sínu fólki og mikil bjart-
sýni ríki á svæðinu.
Chukotka hefur verið aðalhvalveiðihérað Rússa
síðastliðin ár en Roman Abramovits er einmitt í
sendinefnd Rússa hjá Alþjóða hvalveiðiráðinu.
Hluti af mynstri
Í greininni í Time segir að í hverjum mánuði eyði
Abramovits þó nokkrum dögum í kuldanum í
Chukotka. Þar segir einnig að skyndilegur áhugi
hans á héraðinu sé hugsanlega hluti af mynstri sem
hafi komið fram í Sovétríkjunum fyrrverandi.
Landstjórar hafi mjög mikil völd, þeir ráði t.d.
hvernig náttúrulegar auðlindir svæðanna eru nýtt-
ar og eru fleiri dæmi um að efnamiklir og áhrifa-
ríkir menn í iðnaði hafi tekið við stjórnartaumun-
um á ýmsum landsvæðum.
Í Time spyr blaðamaður sig hvers vegna
Abromovits láti svo mikið fé í frosið og fámennt
hérað, og skyldi engan furða. Er haft eftir Anatoli
Tsjúbajs, starfsmannastjóra Borís Jeltsín, fyrrver-
andi forseta landsins, að Abramovits sé líklega
áhrifamestur ungra auðjöfra í Rússlandi. Chuk-
otska sé gæluverkefni hans en gagnrýnendur hans
segja að hann vilji stjórna öllum auðlindum
héraðsins og hugsanlega nota Chukotska sem
stökkpall til áhrifa í Moskvu. Sjálfur segir
Abramovits að þetta sé einskonar tilraun hjá sér.
„Ég hef aldrei stjórnað landsvæði. Ég hef aldrei
talað opinberlega við fólk. Ég verð að prófa það til
að vita hvort það eigi við mig,“ er haft eftir honum í
Time.
Hægláti millj-
arðamæringurinn
Roman Abramovits, nýr eigandi knattspyrnuliðsins
Chelsea og nýr vinnuveitandi Eiðs Smára Guðjohnsen,
þykir sláandi líkur Woody Allen og veit vart aura sinna tal.
Þóroddur Bjarnason bregður upp svipmynd af manninum
og segir frá tengslum hans við Ísland.
Reuters
Roman Abramovits er giftur fjögurra barna fað-
ir með lögheimili í Chukotka í Rússlandi.
AP
Rússneski viðskiptajöfurinn Roman
Abramovits ásamt Ken Bates, sem á dög-
unum seldi Abramovich ráðandi hlut í
knattspyrnufélaginu Chelsea.
tobj@mbl.is
HÁDEGISVERÐUR með Warren
E. Buffett, næst ríkasta manni í
heimi, hefur verið seldur fyrir
250.100 Banda-
ríkjadali, jafnvirði
tæplega 20 millj-
ónir íslenskra
króna. Þetta var
niðurstaða upp-
boðs á netmiðlin-
um eBay og er til
styrktar góðgerð-
arstofnun í San
Francisco, sem
helgar sig málefnum heimilislausra.
Greint var frá þessu á vefsíðu BBC.
Sá sem bauð hæst í að fá tækifæri
til að snæða með Buffett má taka sjö
gesti með sér í hádegisverðinn. Í
frétt BBC segir að auk þess sem
matargestirnir fái tækifæri til að láta
gott af sér leiða fyrir hina heimilis-
lausu, þá fái þeir einstakt tækifæri til
að spyrja Buffett, sem er einn fræg-
asti fjárfestir í heimi, spjörunum úr
um fjárfestingar.
Hádegisverðurinn með Buffett
verður á veitingastað í New York.
Hinn 72 ára Buffett er sagður sér-
stakur áhugamaður um skyndibita-
mat og Coca-Cola.
Dýrt að borða
með Buffett
Warren Buffett
ÍÞRÓTTAVÖRUFYRIRTÆKIÐ
Nike hefur keypt skóframleiðand-
ann Converse fyrir 305 milljónir
Bandaríkjadala, sem svarar til tæp-
lega 24 milljarða íslenskra króna.
Litið er á kaupin sem lið í að
auka markaðshlutdeild Nike í
íþróttaskóm.
Bandaríska skófyrirtækið Con-
verse selur framleiðslu sína til rúm-
lega 100 landa og í Bandaríkjunum
einum eru Converse-skór seldir í 12
þúsund verslunum.
Sölutekjur Converse á síðasta ári
voru 390 milljón dollarar. Sölu-
tekjur Nike á síðasta rekstrarári,
sem lauk hinn 31. maí sl., námu 10,7
milljörðum dala.
Morgunblaðið/Kristinn
Nike hefur keypt skóframleið-
andann Converse.
Nike kaupir
Converse
HAGNAÐUR netmiðilsins Yahoo
nam 50,8 milljónum dollara, sem
svarar til 3,9 milljarða króna, á öðr-
um ársfjórðungi. Á sama tímabili í
fyrra nam hagnaður félagsins 21,4
milljónum dollara.
Tekjur félagsins jukust í fjórð-
ungnum úr 225,8 milljónum dollara í
321,4 milljónir dollara. Hafa tekjur
Yahoo aldrei áður verið jafnmiklar á
einum ársfjórðungi.
Í kjölfar birtingar ársfjórðungs-
uppgjörsins hefur Yahoo hækkað
tekjuspá fyrir þriðja ársfjórðung úr
318 milljónum dala í 338 milljónir
dala. Fyrir árið í heild hljóðar spá fé-
lagsins upp á 1,31 milljarð dala.
Það sem af er ári hafa bréf Yahoo
hækkað um ríflega 100% og hafa
ekki verið hærri frá því febrúar 2001.
Aukinn hagnaður
hjá Yahoo
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦