Morgunblaðið - 14.07.2003, Side 15
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 15
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
AF orðum eiganda Dáðar frá Hall-
dórsstöðum, Kristjáns Eysteins-
sonar, virðist nokkuð ljóst að Dáð
frá Halldórsstöðum fari hvergi og
þýðir það að Haukur Tryggvason
er þar með dottinn út úr liðinu en
hann tryggði sér og hryssunni sæti
í úrtökunni fyrir rúmum mánuði.
Sagði Kristján að aldrei hafi staðið
til að láta hryssuna fara utan án
þess að búið væri að selja hana og
taldi hann engar líkur á að hún yrði
seld héðan af. „Ég hafði reyndar
alltaf hugsað mér að fá eitt eða tvö
folöld úr henni áður en ég léti hana
frá mér en það er hinsvegar aldrei
að vita hvaða freistingum maður
félli fyrir ef gott boð kæmi í hana,“
sagði Kristján ennfremur.
Í gærkveldi var ekki ljóst hvað
Sigurður myndi velja í stað þeirra
en eins og hann sagði í samtali við
Morgunblaðið hefur hann fullkom-
lega frjálsar hendur um val þótt
Haukur og Dáð hafi unnið sig í lið-
ið fyrir árangur í töltkeppni.
Líklegt má telja að Sigurður
muni velja knapa með skeiðhest og
er þá líklega efstur á blaði Sigur-
björn Bárðarson með Óðin frá Búð-
ardal en þeir náðu frábærum tíma
undir Íslandsmeti og gildandi
heimsmeti á Íslandsmótinu á dög-
unum. Einnig gæti Svanhildur
Kristjánsdóttir með Sif frá Háv-
arðarkoti verið mjög sterklega inn í
myndinni. Þá er það spurning með
Sigurð Sigurðarson og Fjölva frá
Hafsteinsstöðum en hann er góður
kostur í gæðingaskeiðið. Standi
spurningin um gæðingaskeiðið fara
nú böndin að beinast að sjálfum
landsliðseinvaldinum því hann er jú
Íslandsmeistari í greininni og með
langhæstu einkunn ársins hér á
landi á þeim vettvangi. Yrði hann
þá það sem kallað er í boltanum
spilandi þjálfari. Fyrir eru í liðinu
tveir skeiðhestar. Sveinn Ragnars-
son vann sér rétt með besta tíma í
úrtökunni á Skjóna frá Hofi og fyr-
ir ekki löngu valdi Sigurður Guð-
mund Einarsson og Hersi frá Hvít-
árholti í liðið en þeir hafa gert það
gott undanfarið í skeiðinu, bæði
250 metrunum og eins 100 metra
flugskeiði. Jöfnuðu þeir meðal ann-
ars gildandi heimsmetstíma í 250
metrunum. Það lítur því allt út fyr-
ir að þrír gammvakrir hestar muni
verða í íslenska liðinu að þessu
sinni.
En það verður sem sagt síðar í
dag sem ljóst verður hvort Haukur
og Dáð sitji sem fastast eða þá nýtt
par verði valið inn í liðið.
Nýstárlegt útspil hjá Sigurði
Þau sem síðast voru valin í liðið
áður en þessi staða kom upp voru
Karen Líndal Marteinsdóttir með
hryssuna Náttfaradís frá Wreda
sem hún fær að láni hjá Magnúsi
Skúlasyni og Önnu Björnsson konu
hans í Svíþjóð. Þarna leikur Sig-
urður nýjan leik sem rýmkaðar
reglur um val á liðsmönnum gefur
svigrúm fyrir. Hann leiðir saman
knapa og hest. Hugmynd að þess-
um leik varð til á þýska meistara-
mótinu í samtali hans við Magnús
Skúlason þar sem hann skaut því
inn hvort hann vantaði ekki hest í
íslenska liðið. Upp úr þessu kvikn-
aði sú hugmynd að setja Karen á
þessa hryssu sem er ekki alveg
ókunn heimsmeistaramótum því
Magnús sýndi hana í kynbótasýn-
ingu mótsins fyrir tveimur árum.
Er þarna um að ræða feikna sterka
hryssu en Karen kemur inn í liðið
sem ungmenni og verður fróðlegt
að sjá hvernig þessu óvænta útspili
Sigurðar muni reiða af.
„Byrjendur“ í slaktaumatöltið
Þá hefur Sigurður valið Tómas
Örn Snorrason og Skörung frá
Bragholti og verður hann helsta út-
spil Íslands í slaktaumatölti. Tómas
og Skörungur urðu Íslandsmeist-
arar í þessari grein með 7,87 í ein-
kunn en þetta var í fyrsta skipti
sem þeir kepptu á þessum vett-
vangi. Var það sannarlega snjall
leikur hjá Tómasi að skipta yfir í
slaktauminn. Þeir höfðu reynt fyrir
sér í úrtökunni í tölti og fjórgangi
en voru þar all nokkuð frá því að
komast inn í mynd einvaldsins.
Virðist þetta besti kostur Íslands í
þessa grein og ekki að efa að þeir
félagar muni spjara sig vel.
Tveir öflugir í töltinu
Jóhann R. Skúlason og Snarp frá
Kjartansstöðum valdi Sigurður
strax að loknu danska meistara-
mótinu en þar sigruðu þeir með
miklum yfirburðum í tölti, voru
með einkunn 8,61 og telja margir
þá verðuga sigurkandídata í töltinu
í Herning.
Hafliði Halldórsson mætir með
gæðahryssuna Ásdísi frá Lækjar-
botnum í töltið og eftir tilburðum
þeirra að dæma á síðustu mótum
er nokkuð ljóst að Ármótabóndinn
setur stefnuna þar á sigur og ekk-
ert annað. Hafliði kemur inn sem
ríkjandi heimsmeistari en þeir hafa
rétt á að mæta á næsta mót og
geta þar ráðið hvaða hross þeir
koma með og hvaða greinum þeir
taka þátt í.
Rykið dustað af Klakki
Sama gildir um Vigni Jónasson
sem varð tvöfaldur heimsmeistari.
Hann mætir með sinn gamla
hest Klakk frá Búlandi en Sigurður
sagðist vera búinn að skrá þá sam-
an.
Þriðji heimsmeistari Íslendinga,
Styrmir Árnason, mætir hinsvegar
með nýjan hest, Hamar frá Þúfu,
sem eins og kunnugt er mun vera
albróðir stóðhestanna Sveins Her-
vars og Nagla frá Þúfu. Verður
Styrmir okkar aðaltromp í fjór-
gangi ásamt Berglindi Ragnars-
dóttur sem mætir með Bassa frá
Möðruvöllum en þau eru þrefaldir
Íslandsmeistarar og hafa verið afar
drjúg í fjórgangi. Eru menn nokk-
uð ánægðir með stöðuna bæði í
tölti og fjórgangi þar sem sigurlík-
ur eru býsna góðar.
Hin tvö ungmennin sem fara á
mótið auk Karenar með hross eru
vinirnir og félagarnir úr Sörla,
Daníel Ingi Smárason með Tyson
frá Búlandi og nýbakaður Íslands-
meistari í fimmgangi meistara Eyj-
ólfur Þorsteinsson með hina hrein-
hvítu Súlu frá Hóli.
Sigurður V. Matthíasson tryggði
sér öruggt sæti á Fálka frá Sauð-
árkróki í úrtökunni og er talinn
mjög sigurstranglegur í fimmgangi.
Eru þá taldir upp allir sem hafa
tryggt sér sæti og gott betur því
endanleg staða mun skýrast í dag.
Sex kynbótahross koma fram
fyrir hönd Íslands á mótinu en þau
eru í flokki stóðhesta 7 vetra og
eldri Sjóli frá Dalbæ, knapi Daníel
Jónsson. Í flokki 6 vetra stóðhesta
Góðu-Greifi frá Stóra-Hofi, knapi
Johannes Hoyos. Í flokki 5 vetra
stóðhesta verður það Lykill frá
Blesastöðum, knapi Ule Reber.
Í flokki hryssna 7 vetra og eldri
mætir Irene Reber með Sölku frá
Litlu-Sandvík. Í 6 vetra flokkinn
mætir Hallveig frá Kjartansstöðum
sem Árni B. Pálsson mun sýna og 5
vetra hryssuna mun Ule Reber
sýna en það er Ósk frá Þorláks-
höfn. Íslendingar eiga því mikið
undir útlendingum þegar kemur að
ræktunarheiðri þar sem þeir munu
sýna fjögur af sex hrossum Íslands
og þar af eru Reber-hjónin með
þrjú.
Fjögur gull voru uppskorin fyrir
tveimur árum auk verðlauna í kyn-
bótasýningum. Þessi hópur sem
hér er nefndur til sögunnar virðist
sterkur á pappírnum og er nú að
sjá hvernig Sigurði landsliðsein-
valdi tekst að spila úr spilunum að
þessu sinni. Hingað til hefur hann
og liðsmenn hans gert ótrúlega
hluti og spurning er því sú hvort
von sé á áframhaldandi velgengni.
Landsliðseinvaldur tilkynnir endanlega liðsskipan íslenska liðsins í dag
Enn er eitt
sæti laust í
landsliðinu
Morgunblaðið/Vakri
Sex knapar tryggðu sér sæti í úrtökunni en svo virðist sem einn þeirra, Haukur Tryggvason á Dáð (þriðji frá vinstri), fari ekki með liðinu út.
Landslið Íslands sem fer til Danmerkur í
þeim tilgangi að verja þá titla sem unnust á
síðasta heimsmeistaramóti verður kynnt í
dag. Fyrstu liðsmenn voru valdir fyrir rúm-
um mánuði og síðan hefur landsliðseinvald-
urinn Sigurður Sæmundsson af djúpri
íhygli valið einn liðsmanninn af öðrum.
Valdimar Kristinsson fer hér í gegnum
þann hóp sem líklega verður með í slagnum.
Hafliði hafði óbilandi trú á sigri fyrir tveimur árum en nú er hann orð-
varari með Ásdísi sína þótt hann telji sig eiga mjög góða möguleika.
Sigurði Sæmundssyni er fleira til lista lagt en að stjórna knöpum utan vall-
ar og er nú spurning hvort hann velur sjálfan sig í landsliðið þar sem hann
er Íslandsmeistari í gæðingaskeiði og þar er veikur hlekkur í liðinu.