Morgunblaðið - 14.07.2003, Qupperneq 24
DAGBÓK
24 MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Baldvin kemur í dag,
Princess Danae fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss og Ludvik
Andersen koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa. Félagsvist í dag
kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 11
boccia. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan er
lokuð vegna sum-
arleyfa. Kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–17 fótaaðgerð, kl.
10–11.30 sam-
verustund.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð og mynd-
list, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 13
frjáls spilamennska
(brids).
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–
16 spilað, kl. 10–13
verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16, félagsvist kl. 14,
kl. 9–12 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
spilað í Ölveri. S.
588 2111.
Gerðuberg, félags-
starf. Lokað vegna
sumarleyfa frá 30. júní
til 12. ágúst. Sund og
leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug á
mánud., miðvikud. og
föstud.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–12.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan og
fótaaðgerðarstofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
13 frjáls spila-
mennska. Fótaaðgerð-
ir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15
fótaaðgerð.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl.11–12
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 hand-
mennt og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
frjáls spil.
Ferðaklúbburinn
Flækjufótur. Vegna
forfalla eru tvö sæti
laus í sumarferðina
19.–23. júlí. Uppl. í
síma 898 2468.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag mánudaginn 14.
júlí kl. 10 við Fróðengi
og kl. 14 við Frosta-
skjól. Og á morgun
þriðjudaginn 15. júlí
kl. 10 við Rauðalæk og
kl. 14 við Vesturberg.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vest-
fjörðum: Jón Jóhann
Jónsson, Hlíf II, Ísa-
firði, s. 456 3380 Jón-
ína Högnadóttir, Esso-
verslunin, Ísafirði, s.
456 3990 Jóhann
Kárason, Engjavegi 8,
Ísafirði, s. 456 3538
Kristín Karvelsdóttir,
Miðstræti 14, Bolung-
arvík, s. 456 7358.
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, eru afgreidd
í síma 551-7868 á
skrifstofutíma og í öll-
um helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endurhæf-
ingardeildar Landspít-
alans Kópavogi (fyrr-
verandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700
og skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins,
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-
5727. Allur ágóði
rennur til starfsemi
félagsins.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru
til sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni, s. 555-0383
eða 899-1161.
Í dag er mánudagur 14. júlí, 195.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Ef þér fyrirgefið mönnum mis-
gjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Orri Páll Jóhannssonbúfræðingur skrifar
pistil í vefritið Sellan.is
og býsnast yfir afstöðu
landbúnaðarráðherra til
landbúnaðarskólanna á
Hólum, Hvanneyri og
Reykjum í Ölfusi.
Orri Páll vitnar til um-mæla Guðna Ágústs-
sonar í Bændablaðinu,
þar sem hann segir m.a.:
„Ég sé ekki fyrir mér að
landbúnaðarskólarnir
verði sameinaðir. Þeir
standa faglega mjög
sterkt allir og hafa
markað með sér verka-
skiptingu og sérstöðu.“ Í
viðtalinu segir Guðni
jafnframt að fáar stéttir
sæki nú jafnmikið í end-
urmenntun og bændur
og þeirra fólk, þess
vegna hafi hann lagt
áherzlu á að bæði Hóla-
skóli og Garðyrkjuskól-
inn að Reykjum yrðu há-
skólastofnanir.
Tilsvör ráðherra komumér búfræðingnum
verulega á óvart,“ skrif-
ar Orri Páll. „Við Land-
búnaðarháskólann á
Hvanneyri stunduðu ein-
hverjir 140 nemendur
nám sl. vetur og stór
hluti þeirra, eins og ráð-
herra bendir á, einhvers
konar endurmenntun
eða fjarnám. Hlutfall
nemenda sem eru í fullu
námi heima á eyrinni er
því töluvert lægra.
Vissulega hefur Land-
búnaðarháskólinn á
Hvanneyri ákveðna sér-
stöðu meðal háskólanna
á Íslandi enda býr ekki
nokkur þjóð í heiminum,
svo fámenn sem við er-
um, við jafnmarga há-
skóla eða möguleika til
þess að ljúka prófgráðu
á háskólastigi. En er
þetta rökrétt þróun? Í
samanburði við Ný-
fundnaland, sem orðið er
eitt þrettán héraða í
Kanada, þá eru Nýfund-
lendingar um 500.000 en
við Íslendingar rétt rúm-
lega helmingur þeirra. Á
meðan við státum af
a.m.k. átta háskólum og
viljum þá helst fleiri, þá
er aðeins einn háskóli á
Nýfundnalandi!“
Orri heldur áfram:„Hvað gera Nýfund-
lendingar sem vilja
stunda nám í landbún-
aði? Jú, sameinast
grönnum sínum úr fjór-
um öðrum héruðum af
austurströnd Kanada í
einum, fámennum land-
búnaðarháskóla í Nova
Scotia. Allt er þetta jú
innan sama landsins, en
þarna þjónar litli skólinn
í Nova Scotia öllum þeim
nemendum sem hafa
huga á að nema landbún-
aðarfræði. Og dugir
það? Gott betur, því eft-
irspurnin eftir námi sem
þessu er afskaplega tak-
mörkuð, hér sem erlend-
is.
…Ég tel fyrir víst að
ef menn ekki vilja við-
urkenna veikan mátt
landbúnaðarskólanna
vegna smæðar þeirra, þá
leysa þeir aldrei vanda-
málið með því að koma
þeim öllum á há-
skólastig.“
STAKSTEINAR
Of margir land-
búnaðarháskólar?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA finnst gaman að sjásýnd mörkin sem skoruð eru í
efstu deild karla í knattspyrnu. Bæði
á Ríkissjónvarpinu og Stöð 2/Sýn
eru menn duglegir við að sýna svo-
kallaðar markasyrpur eftir að spiluð
hefur verið umferð í deildinni. Eitt
finnst Víkverja þó kyndugt hjá
íþróttadeild Ríkissjónvarpsins. Það
er þegar verið er að sýna stutt brot
úr leikjum dagsins og sjónvarps-
menn sjá ástæðu til að sýna sér-
staklega frá því þegar flautað er til
leikhlés og leikmenn ganga til bún-
ingsklefa. Varla er það af því að svo
fá spennuþrungin augnablik eru í
leikjunum almennt sem ástæða þyk-
ir til að sýna slík brot (sem eru
hreint út sagt ekkert spennandi)?
x x x
FYRIR skömmu rann út árskortsem Víkverji hefur haft hjá lík-
amsræktarstöðinni World Class.
Víkverji tók þá ákvörðun að kaupa
sér ekki nýtt kort að sinni, enda um
það bil að bregða sér af landi brott í
sumarfrí og taldi skynsamlegra að
bíða fram í september með kaupin á
nýju korti. Um daginn fékk hann
hins vegar mikla þörf til að hreyfa
sig og datt í hug að hann gæti bara
keypt sér stakan tíma í líkamsrækt-
arstöðinni. Á daginn kom hins vegar
að stakur tími hjá World Class kost-
ar rúmar eitt þúsund krónur. Það
fannst Víkverja býsna mikið og fór
frekar og keypti sér tíu miða sund-
kort fyrir fimmtán hundruð krónur.
x x x
VÍKVERJA hefur um nokkra hríðþótt gott að fá sér kaffi á Súfist-
anum, kaffihúsinu sem rekið er á efri
hæð bókabúðar Máls og menningar
á Laugavegi. Hægt er að næla sér í
tímarit niðri í versluninni (fá lánað)
og hafa með upp, svona til að hafa
eitthvað að lesa. Nú er hins vegar
svo komið að fleiri en Víkverji hafa
áttað sig á tilurð þessa ágæta af-
dreps; a.m.k. þurfti hann frá að
hverfa nokkra daga í þessari viku og
skipti engu þó að komið væri á þeim
tíma dags, þegar halda mætti að
minna væri að gera.
Víkverji ætlast auðvitað ekki til
þess að sitja einn að gæðunum og
auðvitað er hann ánægður að fleiri
skuli nú kunna að njóta þessa ágæta
kaffihúss en áður. Því er þó ekki að
neita að hann hefur oft verið glað-
lyndari en á miðvikudag, þegar hann
varð frá að hverfa í þriðja sinn í
sömu vikunni!
Morgunblaðið/Jim SmartÞað er hollt að hreyfa sig.
Borgfirðingar
bjóða ekki upp á
kaffihlaðborð
ÁSDÍS hafði samband við
Velvakanda og kvaðst hissa
á því að ekki væri hægt að
komast í kaffihlaðborð í
Borgarfirði. Hún dvaldist í
Munaðarnesi og að hennar
sögn er enginn veitinga-
staður þar í nágrenninu
sem býður upp á kaffihlað-
borð. Henni finnst Borg-
firðingar ekki hafa nýtt sér
nægilega þá möguleika sem
felast í þeim fjölda ferða-
manna sem þarna dveljast.
Þeir ættu að taka Árnes-
inga sér til fyrirmyndar í
þessum efnum, en þar er
auðvelt að komast í kaffi-
hlaðborð.
Öllum
brögðum beitt
KÆRI lesandi, ímyndaðu
þér land þar sem lög og
réttur ná aðeins til þess
eigin ríkisborgara, þar sem
útlendingum er hiklaust
stungið í steininn án upp-
gefinna sakargifta og án
þess að fá aðgang að lög-
fræðingi. Ímyndaðu þér að
síðan sé réttað yfir þeim af
herdómstóli fyrir luktum
dyrum, þeir dæmdir og
hugsanlega teknir af lífi án
þess að koma nokkrum
vörnum við.
Ímyndaðu þér svo að
stjórnvöld þessa lands beiti
öllum brögðum til að neyða
aðrar þjóðir til að undan-
skilja borgara sína ákvæð-
um um alþjóðlegan glæpa-
dómstól, hiki ekki við að
kúga þær til hlýðni í þeim
efnum.
Er ekki full ástæða til
þess að ríkisstjórnin vari ís-
lenska ríkisborgara við
ferðalögum til slíks lands?
Er yfirleitt hægt að eiga í
einhverjum samskiptum
við slíkt land? Er ekki bein-
línis hlægilegt að tala um
að slíkt land annist varnir
okkar?
Húsmóðir í
Austurbænum.
Húfan er ekki
ásættanleg
ÞÆR eru öfundsverðar
færeysku konurnar sem
skörtuðu þjóðbúningum
sínum í Ólafsvík á dögun-
um. Þeirra þjóðbúningur er
mjög líkur þeim íslenska
nema húfan, sem þær eru
svo heppnar að losna við.
Ég á íslenskan búning en
nota hann mjög sjaldan
vegna húfunnar sem ég
mun aldrei geta sætt mig
við. Ég veit um fleiri sem
vilja ekki nota búninginn
vegna húfunnar. Gaman
væri að fá álit fleiri kvenna
á notkun húfunnar á ís-
lenska búningnum.
Elín.
Falleg hringtorg
ÖRN hafði samband við
Velvakanda og var djúpt
snortinn yfir fegurð hring-
torga í Grafarvoginum.
Hann kvaðst ekki hafa séð
svo falleg og vel hirt hring-
torg á allri sinni ævi.
Hringtorgin eru vel hirt og
skarta fallegum blómum.
Örn vildi hvetja sem flesta
til þess að veita þessum
hringtorgum eftirtekt.
Athugull áhorfandi.
Tapað/fundið
Kannast þú við
þessa mynd?
ÉG FANN forláta mynda-
vél og framkallaði filmuna
sem í henni var. Meðfylgj-
andi mynd er ein af þeim.
Kannist þú við myndina
væri ráð að hafa samband í
síma 894 5362.
Sigurður Guðmundsson.
Bangsi tapaðist
Í VETUR tapaðist brúnn
bangsi í skólaferðalagi út á
Gróttu. Hans er sárt sakn-
að. Vinsamlegast hringið í
552 5922 ef þið hafið bangs-
ann undir höndum.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
LÁRÉTT
1 hrærð, 4 getið um, 7
dans, 8 sló, 9 arinn,11
renningur, 13 skrifa, 14
þáttur, 15 hanga, 17 tré-
ílát, 20 kyrrsævi, 22
kveif, 23 viðurkennir, 24
rétta við, 25 þvo.
LÓÐRÉTT
1 málmur, 2 fiskum, 3
ístra, 4 sögn í spilum, 5
fól, 6 sjúga, 10 seinka,
12 keyra, 13 bók, 15
slátrar, 16 snjói, 18 nag-
dýrs, 19 súta, 20 bein, 21
tóbak.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 teprulegt, 8 málum, 9 gemsa, 10 jag, 11 narra,
13 seigt, 15 hvarf, 18 hrasa, 21 lár, 22 feita, 23 akrar, 24
tungutaki.
Lóðrétt: 2 eflir, 3 rymja, 4 leggs, 5 gumsi, 6 smán, 7
fatt, 12 rýr, 14 eir, 15 hafi, 16 atinu, 17 flagg, 18 hratt,
19 afrek, 20 aurs.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16