Morgunblaðið - 14.07.2003, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 25
DAGBÓK
Súlumót frá formaco
● úr pappa
● einföld og þægileg í notkun
● fæst í mörgum lengdum
og breiddum
Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík
Sími 577 2050 • Fax 577 2055
formaco@formaco.is • www.formaco.is
Ertu slæm í húðinni?
Micro Peeling húðhreinsi-
klúturinn er lausnin
Klúturinn fjarlægir mjúklega allar dauðar
húðfrumur og „djúp-hreinsar“ húðina.
Klúturinn hreinsar farðaleifar, jafnvel úr
fínustu svitaholum, gefur húðinni ferskt út-
lit og örvar blóðstreymi til húðarinnar.
Hann hentar því sérstaklega vel fyrir við-
kvæma húð. Klúturinn er margnota og þol-
ir þvott í 100 skipti.
Lyfja, Lyf & heilsa, Plús-apótek
Apótekið, Apótek og Hagkaup
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt auðvelt með að heilla
aðra. Þú hefur alltaf eitthvað
merkilegt að segja og það
kunna aðrir að meta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Innilegar samræður við vini
skipta þig miklu máli í dag.
Þú þarft að segja ein-
hverjum eitthvað mikilvægt.
Láttu verða af því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Byrjaðu vikuna á því að
skarta þínu fegursta. Það
mun vera tekið meira eftir
þér en ella í dag. Þú mátt
búast við því að tala við mik-
ilvæga persónu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur sterka löngun til
þess að gera eitthvað spenn-
andi í dag. Ekki láta halda
aftur af þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir haft áhyggjur af
eigum þínum eða einhverri
tiltekinni persónu í dag. Það
er alger óþarfi að hafa
áhyggjur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Sýndu stillingu í sam-
skiptum þínum við hið op-
inbera í dag. Þú átt það á
hættu að láta tilfinning-
arnar bera þig ofurliði.
Slakaðu á.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert tilbúin(n) til þess að
fórna þínum eigin þörfum
og ánægjustundum til þess
að hjálpa öðrum. Þetta er
gott framtak.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er gaman að lifa! Þú hef-
ur yndi að því að daðra í
dag. Saklaust daður hefur
aldrei skaðað neinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vertu viss um að ganga frá
öllu sem varðar heimilið áð-
ur en þú ferð að sinna öðru.
Það er mikilvægt að ræða
málin í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn í dag er frábær
byrjun á vikunni. Þér líður
vel og ert eins og þú átt að
þér að vera. Stuðboltinn
þinn!
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Talaðu við vini og vanda-
menn um fjármál í dag. Þú
gætir fengið góða viðskipta-
hugmynd, eða a.m.k. gert
góð kaup.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er líkt og þú eigir eitt-
hvað inni hjá almættinu. Þú
getur borið fram hvaða ósk
sem er og að öllum líkindum
mun hún rætast.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur ekki mikla löngun
til þess að vinna í dag.
Reyndu að fá meiri útrás.
Það mun hjálpa þér að halda
einbeitingu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ARNLJÓTUR GELLINI
Lausa mjöll á skógi skefur,
skyggnist tunglið yfir hlíð;
eru á ferli úlfur og refur,
örn í furu toppi sefur;
nístir kuldi um næturtíð.
Fer í gegnum skóg á skíðum
sköruglegur halur einn,
skarlats kyrtli sveiptur síðum,
sára gyrður þorni fríðum;
geislinn hans er gambanteinn.
Eftir honum úlfar þjóta
ilbleikir með strengdan kvið;
gríðar stóðið gráa og fljóta
greitt má taka og hart til fóta,
ef að hafa á það við.
– – –
Grímur Thomsen.
LJÓÐABROT
DANINN Niels Krojgaard
er mikill maður vexti og oft
kynntur til sögunnar á al-
þjóðlegum bridsmótum sem
„The Great Dane“. Í frétta-
blaði Evrópumótsins í
Menton segir samlandi
hans, Peter Lund, frá eftir-
farandi afreki Danans mik-
ilfenglega:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 6
♥ ÁG3
♦ ÁKDG432
♣Á10
Vestur Austur
♠ D32 ♠ G9754
♥ 98764 ♥ KD5
♦ 875 ♦ --
♣94 ♣K7652
Suður
♠ ÁK108
♥ 102
♦ 1096
♣DG83
Spilið kom upp í paratví-
menningnum og Krojgaard
varð sagnhafi í sex gröndum
í suður:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 grönd Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartanía.
Hvernig á að ná í tólf
slagi?
Slemman er skotheld í
norður gagnvart öllum út-
spilum, en suður þolir illa
útkomu í hjarta. Krojgaard
fann þó einu vinningsleiðina.
Hann mat það svo að tví-
svíning í hjarta væri ekki
líkleg til að heppnast, því út-
spilið – nían – benti til að
austur ætti hjónin. Lauf-
svíning kom auðvitað til
greina, en ekkert lá á í þeim
efnum og Krojgaard ákvað
að taka fyrst alla toppslag-
ina. Hann stakk upp hjarta-
ás, tók sjö slagi á tígul og
henti heima DG8 í laufi og
einum spaða. Síðan tók
hann ÁK í spaða:
Norður
♠ –
♥ G
♦ –
♣Á10
Vestur Austur
♠ D ♠ –
♥ – ♥ KD
♦ – ♦ –
♣94 ♣K7
Suður
♠ 10
♥ 10
♦ –
♣3
Austur á eftir að kasta af
sér í þessari stöðu. Ef hann
hendir hjarta, verður hon-
um spilað þar inn og ef hann
hendir laufi, fellur kóng-
urinn. Vissulega þarf sagn-
hafi að lesa rétt í spilin og
það gerði Krojgaard – hann
felldi laufkónginn þegar
austur kaus að henda
laufsjöunni.
Tökum eftir tvennu: Ann-
ars vegar að ekki mátti
dúkka fyrsta slaginn, því þá
rýfur austur samganginn
með því að spila spaða. Enn-
fremur var nauðsynlegt að
afblokkera laufið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4.
cxd5 cxd4 5. Da4+ Bd7 6.
Dxd4 exd5 7. Dxd5 Rf6 8.
Dd3 Rc6 9. Rf3 Rb4
10. Db1 Bc5 11. Bg5
0-0 12. a3 Db6 13.
axb4 Bxf2+ 14. Kd1
Hfd8 15. Rd2 Hac8
16. Ha3 Dxb4 17.
Dc2 Dc5 18. h4 b5
19. Db1 b4 20. Bxf6
Bf5 21. Bxd8 Bxb1
22. Ha5 Dd4 23. Hd5
Staðan kom upp í
bréfskákkeppni þar
sem þemað var að
tefla Schara-
Henning bragðið.
Fléttukóngurinn
Kári Elísson hafði
svart gegn Þjóðverjanum
Hajo Gnirk. 23. …bxc3! 24.
Hxd4 c2+ 25. Kc1 Bxd4 og
hvítur gafst upp enda
drottning að renna upp hjá
svörtum eftir t.d. 26. Rxb1
Bxb2+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
HLUTAVELTA
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Stävie-kirkju í Svíþjóð
Charlotte Helgason og Jimmy Akesson. Brúðarmeyjar voru
Þórhildur Helgason, Anna Nilsson og Marie Johansson.
Svaramaður var Andreas Johansson.
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu 580 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru Ingunn Kristjana
Þorkelsdóttir og Victor Margeirsson.
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–
24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl.
9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími
585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112
ÞJÓNUSTA