Morgunblaðið - 14.07.2003, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 27
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
kl. 8 og 10. B.i. 16.Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6.10, 6.50, 8.30, 9.10 og 10.50
Englarnir eru mættir aftur!
Geggjaðar gellur í gæjalegustu
mynd sumarsins!YFIR 20.000 GESTIR!
Á AÐEINS 10 DÖGUM
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 9 og 11.30.
Sýnd kl. 6.30, 9 og 11:15.
www.laugarasbio.is
YFIR 20.000 GESTIR!
Á AÐEINS 10 DÖGUM
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2 ih@ih.is www.ih.is · opið virka daga kl. 9-18
Það eru alltaf frábær
tilboð í gangi á Netinu
á ih.is/notadir
notaðir bílarIngvarHelgason
TILBOÐS
BÍLAR!
STOPP
ÞAÐ var mikið um að vera á Eiríks-
stöðum um helgina þegar Leifshátíð
Dalamanna var haldin. Í víkingabúð-
unum var hægt að fylgjast með vík-
ingum við vinnu sína, sjá þá elda mat
að fornum sið, skera út hluti úr tré og
beini, smíða úr járni og sýna bar-
dagalistir og bogfimi. Meðal víking-
anna var spákona sem spáði í rúnir
fyrir gestina. Börnunum var boðið að
taka þátt í leikjum víkinganna og
voru mörg þeirra mætt í sínum fín-
ustu víkingabúningum. Setning há-
tíðarinnar var í höndum Þorsteins
Jónssonar, nýskipaðs oddvita Dala-
byggðar, og mun þetta hafa verið
fyrsta opinbera starf hans.
Grjótkast kvenna fjölmennast
Á víkingakappleikum Ungmenna-
sambands Dalamanna og Norður-
Breiðfirðinga (UDN) kepptu menn í
hlaupi og grjótkasti. Fjölmennast var
í grjótkasti kvenna og sigraði fyrrum
Eiríksstaðabúinn og víkingurinn
Helga Guðmundsdóttir með yfir-
burðum. Þá sté Sigurður Atlason
galdramaður af Ströndum á svið og
kenndi mönnum að særa upp drauga.
Það sem menn biðu hvað spenntastir
eftir var þrælauppboð lögsögukonu
Dala-goðorðs, Önnu Birnu Þráins-
dóttur. Hún mætti í salinn ásamt
fríðu föruneyti „þræla bæði karl- og
kvenkyns og á misjöfnum aldri, mis-
mikið notaðra“ og voru þrælarnir
teymdir inn í hlekkjum. Anna Birna
fór mikinn og tók þrælana fyrir einn
og einn, skoðaði þá í bak og fyrir,
kleip í rassa og upphandleggsvöðva
og athugaði með tennur þeirra. Gaf
hún gestum greinagóða lýsingu á
þrælnum og bað fólk að bjóða í. Fólk
bauð ýmsan varning í skiptum fyrir
þræla, heilu jarðahlutana, nýja jeppa,
mjólkurkýr, sauðfé og fleira. Í lok
föstudagskvöldsins spilaði hljóm-
sveitin „Synir Dóar“ fram eftir nóttu
en „Ábrestir“ léku fyrir dansi á laug-
ardagskvöld.
Á Leifshátíð er flest gert að víkingasið og bera
áhöld og fatnaður þess glögglega merki.
Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir
Þrælauppboðið var þrælfjörugt eins og sjá má.
Mikið er lagt í búninga og tjöld. Eiríksstaðir verða
eins og alvöru víkingaþorp á Leifshátíð.
Þrælauppboð í
víkingabúðum
Leifshátíð á Eiríksstöðum í Dölum haldin í fjórða sinn
Svo virðist sem móðir söngkonunnar
ungu, Charlotte Church, hafi haft
rétt fyrir sér um að hinn nýi kærasti
hennar, plötusnúðurinn og súkku-
laðistrákurinn Steven Johnson, sé
pörupiltur hinn mesti. Þau Charlotte
og Steven hafa verið kærustupar um
nokkurt skeið en þau fóru saman í
gleðskap á skemmtistað í Lund-
únum þar sem listamaðurinn sem
kallar sig Mr. Cheeks fagnaði. Þau
Steven og Charlotta tóku einnig með
sér Samiru, tvíburasystur Stevens,
en fyrrum kærasti Samiru var á
staðnum og fór að atast í henni. Eftir
nokkurt ölþamb fór að færast harka
í leikinn og gamli kærasti Samiru fór
að hafa uppi einhver dónaleg köll.
Síðan á hann að hafa rykkt í hand-
legg Samiru og eitthvað þaðan af
dónalegra. Þá gat Steven ekki hamið
bræði sína lengur heldur þaut í
kauða og upphófust slagsmál sem
stóðu þar til öryggisverðir á staðn-
um stíuðu þeim í
sundur…Hnoss-
gætið Brad Pitt
hyggur á að taka
námskeið í elda-
mennsku með
spúsu sinni
Jennifer An-
iston. Heimildir
segja þau hjónin
orðin mjög áhugasöm um allt sem
tengist eldamennsku og þau séu
aðdáendur klæðlitla kokksins Jamie
Oliver auk þess sem þau horfi iðu-
lega á sjónvarpsstöð vestra sem
helguð er matargerð. Brad mun
þykja matargerð göfugt listform og
ætla þau hjónin að stunda hana í
sameiningu.
FÓLK Ífréttum