Morgunblaðið - 14.07.2003, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
BRAGI Steinarsson vararíkissak-
sóknari segir að ákvörðun um að
flytja til Keflavíkurflugvallar varn-
arliðsmanninn, sem ákærður er fyr-
ir tilraun til manndráps með því að
hafa stungið mann í Hafnarstræti í
vor, byggist á gæsluvarðhaldsúr-
skurðinum. Hann lítur svo á að að-
eins sé um breyttan vistunarstað í
gæsluvarðhaldi að ræða, líkt og ef
hann væri fluttur á milli íslenskra
fangelsa. Að vísu sé hann í gæslu-
varðhaldi inni á varnarsvæðinu og
sé í vörslu bandarískra heryfir-
valda, en þau framkvæmi gæslu-
varðhaldið sem sakborningur sætir
samkvæmt úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Aðspurður hvers vegna Sveinn
Andri Sveinsson, skipaður verjandi
varnarliðsmannsins, hafi ekki verið
látinn vita af flutningnum segir
Bragi að ekkert hafi farið fram
nema lögreglan flutti manninn milli
fangelsa. Hann viti ekki til þess að
maðurinn hafi verið andvígur flutn-
ingnum.
Endanleg beiðni kom um
kvöldmatarleytið á föstudag
Hann bendir á að flutningurinn
hafi farið fram á föstudagskvöldið
því Bandaríkjamenn hafi ekki kom-
ið með síðustu formlegu beiðnina í
utanríkisráðuneytið fyrr en um
kvöldmatarleytið sama dag. „Þeir
höfðu óskað eftir flutningi og komu
svo með endanlega beiðni og sam-
þykki fyrir okkar skilyrðum. Varn-
arliðsmenn voru í utanríkisráðu-
neytinu fram undir kvöld, við
fengum beiðnina síðan á faxi og svo
fór þetta í gang í framhaldi af því.“
Bragi segir að flutningur varn-
arliðsmannsins hafi tekið nokkurn
tíma og ekki hafi verið komið með
hann suðureftir fyrr en um mið-
nætti. Hann hafi verið á Litla-
Hrauni og átti að fara þangað aftur
ef ekki væri gengið að öllum skil-
yrðum íslenskra yfirvalda.
Bragi á von á að Hæstiréttur úr-
skurði um gæsluvarðhaldið yfir
manninum fyrri hluta þessarar
viku. Síðan er sjálft málið til með-
ferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur.
„Þá verða öll vitni yfirheyrð, sem
eru yfir fjörutíu að ég held,“ segir
hann.
Grunur hefur leikið á að fleiri
menn hafi verið að verki í Hafnar-
stræti í vor og segir Bragi að það
ráðist af rannsókn málsins hvort
fleiri verði ákærðir. „Dómstóllinn
rannsakar málið áður en hann
dæmir, yfirheyrir öll vitni. Ég veit
ekki hvort það kemur eitthvað út úr
því, en það ræðst af dómsmeðferð-
inni hvort það skýrist betur,“ segir
hann.
Vararíkissaksóknari um flutning varnarliðsmannsins
Aðeins um breyttan
vistunarstað að ræða
Undarlegur gerningur/10
SÚ staða gæti komið upp að Sigurður Sæmunds-
son, landsliðseinvaldur íslenska landsliðsins í hesta-
íþróttum, veldi sjálfan sig og hest sinn í liðið sem
senn fer utan til þátttöku í heimsmeistaramótinu á
íslenskum hestum sem hefst í Danmörku í lok júlí.
Sagðist Sigurður í samtali við Mbl. ekki neita því
að menn hefðu bent sér á og hvatt sig til að velja
þennan kost. Það mun væntanlega skýrast í dag
hver skipar þetta eina lausa sæti sem eftir er í lið-
inu.
Þá hefur sú breyting orðið á að Vignir Jónasson
heimsmeistari í fimmgangi og samanlögðu mun
keppa á sínum gamla hesti Klakki frá Búlandi en
hestur sá er hann hugðist mæta með forfallaðist. Er
Vignir nú þegar kominn með sinn gamla gæðing í
þjálfun til Svíþjóðar þar sem hann býr.
Landsliðseinvald-
ur í landsliðið?
Eitt sæti laust/15
öllum gestum var boðið í kaffi.
Í Hraunkirkju í Keldudal héldu
þau Þórir Örn Guðmundsson og
séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir
kynningu á munum kirkjunnar og
sögu hennar í gærkvöldi og í kjöl-
farið hélt Guðrún messu í kirkj-
unni, sem var reist 1885 en hætt
var að messa í kirkjunni 1971.
Á Baugsstöðum í Flóa er gam-
alt rjómabú sem var opið í gær og
voru gamlar vélar gangsettar fyr-
ir gesti. Áður en búinu var lokað í
kringum 1950 ákvað síðasta bú-
stýran, Margrét Júníusdóttir, að
taka upp vörusölu á staðnum og
að halda í öll tækin enda viss um
að Mjólkurbú Flóamanna lenti í
erfiðleikum fyrr eða síðar. Upp úr
1970 var ákveðið að gera búið
upp enda var það hið eina á land-
inu sem átti enn heilan tækjakost.
Safn var svo opnað á Baugs-
stöðum árið 1975.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ stóð fyrir
kynningu á húsum í sinni vörslu á
ýmsum stöðum víðs vegar um
land í gær á íslenskum safnadegi
og boðið var upp á leiðsögn fyrir
gesti. Talsverður fjöldi gesta
skoðaði söfn og gömul hús í tilefni
dagsins.
Á Hólum í Hjaltadal hélt Þór
Hjaltalín erindi um endur-
uppbyggingu staðarins á 19. öld í
kjölfar þess að skólinn var fluttur
frá staðnum 1801. Þór sýndi gest-
um jafnframt Nýjabæ, sem séra
Benedikt Vigfússon byggði árið
1860.
Á Hvítanesi í Skötufirði við Ísa-
fjarðardjúp tóku þau hjónin Sig-
ríður Hafliðadóttir og Kristján
Kristjánsson á móti um 60 gestum
yfir daginn og sýndu þeim grjót-
hleðslur, hringlaga byrgi og
Litla-Bæ sem verið er að gera upp
um þessar mundir auk þess sem
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Starfsmaður Lyfjafræðisafnsins í Nesstofu sýnir töflugerð. Í safninu eru helstu tæki sem notuð hafa verið til lyfjagerðar í mörg hundruð ár.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Í gamla rjómabúinu við Baugsstaði var opið hús í tilefni íslenska
safnadagsins í gær og gamlar vélar voru gangsettar fyrir gesti.
Söfn og gömul hús kynnt á safnadegi
ÍBÚÐARHVERFIÐ í Grafarholti
hefur byggst upp á skömmum tíma
og nú er svo komið að hitaveitulögn-
in, sem liggur í gegnum hverfið,
klýfur það í tvennt.
Tómas Guðmarsson, deildarstjóri
Nesjavallavirkjunar, segir að á
áætlun sé að koma lögninni í jörð í
haust. Það hafi verið ákveðið strax í
upphafi er skipulagning hverfisins
hófst. Hann bendir hins vegar á að
það sé í sjálfu sér bæði kostnaðar-
samt og mikið verk, því hafi þetta
verið í farvatninu þennan tíma.
Tómas á von á því að verkið hefj-
ist á næstunni en pípan er í notkun.
Ný pípa verður grafin í jörð til hlið-
ar að stærstum hluta og sá hluti á að
vera tilbúinn 15. september. Þá á að
vera hægt að fjarlægja ofanjarðar-
pípuna og tengja nýju pípuna í stað-
inn.
„Verkinu á að vera lokið um miðj-
an október og kostnaðurinn er eitt-
hvað yfir 30 milljónir króna,“ segir
hann. „Þetta er háð allri vatnsöflun
og þess vegna er ekki hægt að taka
þessa æð út fyrr en 15. september.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Ný lögn grafin í jörðu
BJÖRGUNARSVEITARMENN frá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg fundu tvær svissneskar konur
með tvö börn, 12 og 13 ára, á vegslóða sem liggur inn
að Austurbotnum við Þórisvatn síðdegis í gær. Kon-
urnar höfðu óskað eftir aðstoð lögreglu þegar jepp-
lingur þeirra festist í sandi og aur.
Konurnar lögðu upp frá Hrauneyjum áleiðis eftir
fjallvegi 26 en fyrir mistök beygðu þær inn á Veiði-
vatnaafleggjara við skilti sem á stóð 26, en þar var
átt við kílómetrafjölda að Veiðivötnum en ekki veg-
númer eins og þær héldu, að sögn Lárusar Þor-
steinssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Dag-
renningar á Hvolsvelli. Þær héldu ró sinni þrátt
fyrir vandræðin og héldu áfram norður á Blönduós
þegar búið var að bjarga þeim. „Þær voru ótrúlega
rólegar og voru ekki í neinni lífshættu,“ segir Lárus.
„Þessi skilti breytast og snúast í alls konar veðrum
og það þyrfti að endurskoða þau.“
Þegar konurnar höfðu samband við lögreglu, með
GSM-síma, gátu þær ekki gefið nánari upplýsingar
um staðsetningu en þær að þær hefðu tekið bensín í
Hrauneyjum tveimur klukkustundum fyrr og því
varð að ræsa út björgunarsveitir til að finna bílinn
og koma þeim til hjálpar.
Vegfarandi sem átti leið um hafði hins vegar
hjálpað konunum að losa bílinn áður en björgunar-
sveitarmenn komu að þeim. Hann hafði hins vegar
farið að því loknu og ekki látið neinn vita.
Ferðamenn
með börn í
hremmingum
♦ ♦ ♦