Morgunblaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2003 43
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.40, 6.15, 8.30 og 10.50.
Englarnir eru mættir aftur!
Geggjaðar gellur í gæjalegustu
mynd sumarsins!YFIR 22.000 GESTIR!
kl. 8 og 10. B.i. 16.Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Mögnuð tvöföld forsýning kl. 20:00 - Sjáðu T2 (ótextuð) og T3.
Miðaverð
aðeins
1000kr.
All
ra s
íð.
sýn
.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6, 9 og 10:30.
Sýnd kl. 6.30, 9 og 11.
www.laugarasbio.is
YFIR 22.000 GESTIR!
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
KVIKMYNDIR.IS
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Mögnuð tvöföld forsýning
kl. 20:00 - Sjáðu T2 (ótextuð) og T3.
Hverfisgötu 551 9000
Miðaverð
aðeins
1000kr.
COMPAY Segundo, hinn sjarmer-
andi liðsmaður Buena Vista Social
Club frá Kúbu, er látinn 95 ára að
aldri.
Segundo, sem spilaði á gítar, og
félagar hans í Buena Vista Social
Club vöktu heimsathygli þegar
kvikmynd Wim Wenders um tónlist-
arhópinn var tekin til sýningar árið
1999. Samnefnd plata kom hins veg-
ar út haustið 1997 og hefur selst í
rúmlega fjórum milljónum eintaka
um heim allan. Hugmyndina að
henni átti gítarleikarinn Ry Cooder
og sá hann um að leiða það verkefni
til enda. Auk þess að varpa ljósi á
hæfileika Segundo urðu píanóleik-
arinn Ruben Gonzalez og söngvar-
arnir Ibrahim Ferrer og Omara
Portuondo að stjörnum og fjöldi
platna með hinum ýmsu meðlimum
hefur komið út í kjölfarið.
Segundo hafði verði rúmfastur á
heimili sínu í Miramar-héraði um
tíma áður en hann lést. Hann var
fæddur í bænum Siboney, nálægt
tónlistarbænum Santiago á austan-
verðri Kúbu árið 1907. Fjölskylda
hans fluttist svo til Santiago þegar
hann var níu ára og var hann farinn
að leika á klarinett með hljómsveit
þar fjórtán ára gamall. Hann gerðist
svo atvinnutónlistarmaður á þriðja
áratugnum. Hann
hætti svo tónlistar-
iðkun opinberlega
eftir byltingu
kommúnista á
Kúbu árið 1958.
Hann hafði þá verið
hljómsveitarstjóri
hjá nokkrum sveit-
um og bjó hann sér
m.a. til sérstakan
sjö strengja gítar
sem hann kallaði
„armonikku“.
Nafnið „Compay“
er gælunafn, til-
komið þar sem
hann lagði jafnan til seinni rödd í
sveitum sínum (samanber enska
orðið „companion“ sem þýðir félagi
eða förunautur).
Segundo sneri aftur í sviðsljósið
síðla á níunda áratugnum en hafði
meðal annars unnið í vindlaverk-
smiðju til að hafa ofan af sér (nefnd-
ur Ferrer var t.d. skóburstari áður
en Buena Vista kom til). Sumir tón-
listarfræðingar töldu hann þá látinn!
Compay gerðist afar iðinn við list
sína og áður en Buena Vista æv-
intýrið hófst hafði hann notið tölu-
verðra vinsælda á Spáni á árunum
1994–1999.
Buena Vista Social Club kom svo
hingað til lands árið 2001 og hélt
tónleika við miklar vinsældir.
Segundo þótti ótrúlega ern og
heilsuhraustur, en hann púaði vindla
ótt og títt fram til þess síðasta. Í
kjölfar vinsælda Buena Vista gaf
hann aukinheldur út tvo sólódiska
ásamt því að ferðast um veröld víða
og leika tónlist. Síðustu tónleika
sína hélt hann í maí á þessu ári.
„Einhvern tíma upplifa allir
blóma lífsins,“ er haft eftir Segundo.
„Menn verða þá að vera tilbúnir. Ég
sjálfur blómstraði er ég var kominn
yfir nírætt.“
Compay Segundo, 1907–2003
Liðsmaður Buena Vista
Social Club fellur frá
Compay Segundo í góðum gír.
Reuters
ÞRIÐJA myndin um Tortímand-
ann verður frumsýnd um helgina í
kvikmyndahúsum landsins.
Í kvöld verður hins vegar tekið
forskot á sæluna og myndin for-
sýnd í Regnboganum. Það er
reyndar ekki í frásögur færandi,
enda forsýningar orðnar daglegt
brauð hér á landi.
Hitt er merkilegra að sýndar
verða tvær myndir á forsýning-
unni því á undan þriðju myndinni
verður hin margfræga T2 sýnd,
svona til upprifjunar.
T2 þótti byltingarkennd í meira
lagi er hún var frumsýnd fyrst
1992 og sannaði James Cameron
þá endanlega yfirburðahæfni sína
sem spennumyndaleikstjóri. Með
aðalhlutverk fer Addi Svakanagg
eða meistari Arnold Schwarz-
enegger.
Tvöfaldur Tortímandi
Það verður nóg að gera hjá Arnold í kvöld.
Tvöfalda Tortímandasýningin er í
Regnboganum og hefst kl. 20.
Miðaverð er 1.000 kr. og T2
verður sýnd ótextuð.
BENNY Carter, einn af áhrifa-
mestu djassistum sögunnar, er
látinn.
Fyrir utan það að hafa verið
áhrifamikill tónlistarstjóri, fram-
sækinn saxófónleikari og lista-
góður trompetleikari vó hann
þungt í réttindabaráttu blökku-
manna í Hollywood. T.a.m. stofn-
aði hann fyrstu blönduðu sveit
heims í Hollandi á fjórða ára-
tugnum, þar sem dökkir og ljósir
léku hlið við hlið, sem þótti fá-
heyrt.
Hann lék með öðrum djass-
risum eins og Miles Davis, Fats
Waller, Dizzy Gillespie, Benny
Goodman og Count Basie auk
þess sem hann kom Ellu Fitzger-
ald á framfæri á sínum tíma.
Andlátið bar fremur fljótt að
og Carter var býsna hress fram
undir það síðasta.
Benny Carter, 1907–2003
Djass-
goðsögn
kveður
Benny Carter