Morgunblaðið - 22.07.2003, Side 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 17
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Einar
Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Skipholti 29a
105 Reykjavík
sími 530 6500
fax 530 6505
heimili@heimili.is
www.heimili.is
Vantar allar gerðir eigna á skrá
SMÁRARIMI Sérlega fallegt og vel
skipulagt ca 178 fm einbýlishús á einni hæð
ásamt ca 40 fm bílskúr. Björt og góð stofa
og borðstofa með vönduðu parketi og mik-
illi lofthæð. Fjögur svefnherbergi. Fallegur
garður í rækt með tveimur stórum verönd-
um. Húsið er vel staðsett innst í botnlanga.
ROÐASALIR Vorum að fá í einkasölu
þetta stórglæsilega einbýli. Húsið er um
193 fm og er sérlega vandað í alla staði.
Glæsileg stofa með mikilli lofthæð. Stórt
glæsilegt eldhús. Gullfallegt baðherbergi.
Bílskúrinn er fullbúinn. Húsið stendur í
botnlanga og er fullbúið fyrir utan lóðarfrá-
gang.
SUÐURÁS Í ÁRBÆ - GLÆSI-
LEGT ENDARAÐHÚS Vorum að
fá í sölu stórglæsilegt ca 192 fm endarað-
hús á tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr á þessum vinsæla stað. Húsið er
vandað að allri gerð svo sem innréttingar
gólfefni o.fl. Sérlega góður afgirtur garður
með stórum sólpalli.
HÁLSASEL Vorum að fá í sölu 186 fm
endaraðhús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. 4-5 svefnherbergi og
björt og góð stofa. Þetta er gott fjölskyldu-
hús í næsta nágrenni við skóla og aðra
þjónustu. Verð 21,9 millj.
ÁSHOLT - GLÆSILEGT RAÐ-
HÚS MIÐSVÆÐIS Í RVÍK Stór-
glæsilegt 144 fm raðhús á tveim hæðum.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi og stórar stof-
ur. Inngangur úr lokuðum verðlaunagarði.
Húsvörður - góðir nágrannar. Tvö stæði í
bílageymslu fylgja. Falleg eign fyrir vand-
láta. Verð 21,9 millj.
BÚSTAÐAVEGUR - SKEMMTI-
LEG HÆÐ OG RIS Hér er um að
ræða mjög skemmtilega 125 fm hæð og ris
á besta stað við Fossvoginn. 3-4 rúmgóð
svefnherbergi, fallegar stofur, björt her-
bergi, sérinngangur. Þetta er eign sem
vert er að skoða.
RÁNARGATA - 4RA Í RISI -
TVENNAR SVALIR - ÚTSÝNI
Nýkomin í einkasölu vel skipulögð risíbúð.
Þrjú rúmgóð herb. og björt stofa. Tvennar
stórar suðursvalir með útsýni. Parket á gólf-
um. Góð lofthæð í stofu. Góð staðsetning
við miðbæinn. Áhv. 5,7 millj.
MELABRAUT - SELTJARNARNES
Fallegt parhús á tveimur hæðum ásamt
ca 40 fm bílskúr á góðum stað á Nesinu.
Nýlegur og vandaður sólskáli liggur við
stofu og tengir vel saman garð og hús.
Húsið afhendist með nýju járni á þaki.
Laust við kaupsamning. Áhv. ca 6,0
millj. Verð 20,4 millj.
HRYGGJARSEL - SÉRLEGA GOTT EINBÝLI
MEÐ AUKAÍBÚÐ OG TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR
Vorum að fá í sölu ca 220 fm einbýlishús með stúdíó-íbúð í kj. og ca 55 fm tvöföldum
bílskúr á þessum eftirsótta stað í Seljahverfi. Þetta er sérlega gott fjöldskylduhús með
fjórum góðum svefnherbergjum og mjög góðri stúdíó-íbúð í kjallara sem hentar vel
til útleigu. Óskráð rými í kjallara. Stór tvöfaldur bílskúr með geymslulofti. Verð 27,5
millj.
KÓRSALIR - MEÐ STÆÐI Í
BÍLAGEYMSLU - LAUS STRAX
Vönduð 4ra herbergja íbúð í góðu nýlegu
lyftuhúsi. Þrjú herbergi og björt stofa. Vand-
aðar mahóní-innréttingar. Íbúðinni fylgir
stórt sérmerkt bílastæði bæði í bíla-
geymslu og við hús sem gæti verið sérlega
hentugt FYRIR FATLAÐA. Áhv. ca 11,0
millj. Verð 16,5 millj.
SÓLTÚN Fimm herbergja íbúð björt og
falleg ca 108 fm endaíbúð á 5. hæð (bjalla
merkt 0501) í nýlegu lyftuhúsi á þessum frá-
bæra stað miðsvæðis í Rvík. Fjögur rúmgóð
herbergi og björt stofa með suðursvölum.
Sérinngangur af svalagangi. Fallegt útsýni.
Íbúðin er laus strax.
GLÆSILEG ÍBÚÐ Í SMÍÐUM Í
HJARTA BORGARINNAR Vorum
að fá í einkasölu íbúð í smíðum á Ægisgötu.
Íbúðinni verður skilað fullfrágenginni með
vönduðum innréttingum og gólfefnum.
Skipulag íbúðarinnar er mjög gott og er út-
gengi í skjólsælan bakgarð. Hér er tækifæri
til að eignast nýja eign í grónu hverfi. Íbúðin
er 93 fm að stærð. Verð aðeins 13,8 millj.
VESTURBERG - GÓÐ 3JA Í
LYFTUHÚSI Vel skipulögð og björt 3ja
herb. íbúð í lyftuhúsi. Tvö herbergi og stofa
með svölum í suður. Parket á gólfum.
Þvottahús á hæðinni. Góð staðsetning þar
sem stutt er í alla þjónustu. Áhv. ca 5,3 millj.
Verð 9,4 millj.
HLÍÐARHJALLI - KÓPAV. Vorum
að fá í sölu fallega ca 83 fm íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í suður-
hlíðum Kópavogs. Björt og góð stofa og
rúmgóð herberbergi. Verð 11,9 millj.
MÁNAGATA Falleg og björt um 40 fm
íbúð. Íbúðin nýtist mjög vel og skiptist í
stofu, eldhús og herbergi. Mjög góð stað-
setning í grónu hverfi miðsvæðis.
BREIÐHOLT - MJÖG SNYRTI-
LEG ÍBÚÐ Erum með bjarta og snyrti-
lega 2ja herbergja íbúð í Asparfelli. Íbúðin
er 63 fm að stærð og virkar mjög rúmgóð.
Verð 7,5 millj.
ENGJASEL Mikið endurnýjuð stúdíó-
íbúð á jarðhæð. Opin stofa og eldhús ásamt
svefnkrók. Altt nýtt á baði og í eldhúsi. Park-
et á gólfum. Góð íbúð og vel skipulögð.
Áhv. ca 3,0 millj. hagst. lán. Verð 5,9 millj.
Guðsþjónusta verður
í Glerárkirkju
í kvöld klukkan 20.30
Tónlist og söng á léttum nótum annast
Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving.
Persónulegar fyrirbænir.
Sóknarprestur
GLERÁRKIRKJA
TÆPLEGA 2.000 manns sóttu hina
árlegu fjölskylduhátíð fullveldisins í
Hrísey um síðustu helgi. Gestir voru
heldur færri en heimamenn von-
uðust eftir en Hjördís Ýrr Skúla-
dóttir ferðamálafulltrúi sagði að há-
tíðin hefði verið mjög vel heppnuð og
gestir hinir ánægðustu. Ungmenni
yngri en 18 ára fengu ekki aðgang að
hátíðinni nema í fylgd með full-
orðnum og að sögn Hjördísar þurfti
að vísa nokkrum fjölda ungmenna
frá.
„Dagskrá hátíðarinnar höfðaði til
allra aldurshópa og hér skemmtu
sér allir vel um helgina. Föstudags-
kvöldið var einstaklega vel heppnað,
þar sem yngsta kynslóðin naut sín
vel á diskóteki og við karokesöng
langt fram á kvöld. Þá var það mjög
tilkomumikið þegar ekið var með
fjölda fólks um eyjuna í vögnum eða
kössum aftan á 15–20 dráttarvélum.
Á laugardagskvöld var svo varð-
eldur, brekkusöngur og flugeldasýn-
ing í yndislegu veðri og vel heppn-
aður dansleikur með Pöpunum,“
sagði Hjördís.
Hríseyingar hafa undanfarið unn-
ið að því að gera upp hús sem Há-
karla-Jörundur Jónsson lét byggja
árið 1885 og þar var fomlega opnað
Hákarlasetur sl. föstudag. Á Há-
karlasetrinu getur fólk fræðst um
sögu hákarlsins og í framtíðinni er
meiningin að sýna þar hákarlaverk-
un og sýna muni sem tengjast há-
karlaveiðum.
Morgunblaðið/HIH
Líf og fjör á fjölskylduhátíð fullveldisins í Hrísey.
Vel heppnuð fjöl-
skylduhátíð í Hrísey
IGOR Zavadasky harmónikkuleikari
heldur tónleika í Deiglunni í kvöld í
kl. 21.00. Hann er fæddur í Rúss-
landi árið 1966 en útskrifaðist frá
Chaikovsky Kviv í Kiev 1991, þar
sem hann lærði hjá Nikolay Davidov.
Igor er vel þekktur og vinsæll,
ekki aðeins í Úkraínu, heldur um alla
Evrópu og hefur haldið fjöldann all-
an af einleikstónleikum, m.a. í Úkr-
aínu, Rússlandi, Pólandi, Ungverja-
landi, Ítalíu, Spáni, Portúgal,
Þýskalandi, Frakklandi og nú síðast
á harmónikkuhátíðinni í Reykjavík.
Árið 2002 hlaut Igor titilinn „Heið-
urslistamaður Úkraínu.“ Hann hefur
einnig unnið margar samkeppnir og
verðlaun, m.a. Grand Prix í Frakk-
landi og Grand Prix Stefano Bizzari
á Ítalíu.
Igor spilar klassíska tónlist, sem
hann hefur sjálfur útsett, sem og
úkraínska og rússneska þjóðlagatón-
list. Hann hefur gefið út fjölda
geisladiska og kom sá síðasti út á
þessu ári „Angel Trill“ þar sem m.a.
má finna sónötu eftir Tartini „Devils
trills,“ sem Igor hefur sjálfur útsett.
Aðgangseyrir á tónleikana er
1.000 krónur.
Harmónikku-
leikur í Deiglunni
4 stk. í pakka verð kr. 2.300.
Kanna í stíl kr. 2.995.
5 mismunandi gerðir.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
DARTINGTON GLÖS
1.995.
4