Morgunblaðið - 22.07.2003, Page 20
LANDIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTLIÐINN föstudag var tek-
inn í notkun nýr vatnstankur í landi
Ásatúns í Langholtsfjalli. Boðuðu
sveitarstjórn og forstöðumenn
Vatnsveitu Hrunamanna verktaka
sem og aðra er staðið hafa að verk-
inu á sinn fund síðastliðinn föstudag
til að fagna þessum áfanga.
Um eitt hundrað orlofshús og 25
lögbýli njóta góðs af þessari fram-
kvæmd í suðurhluta sveitarinnar.
Vatnsveita Flúða er mikið fyrirtæki
sem miðlar heitu og köldu vatni víðs-
vegar um sveitarfélagið, einkum
neðri hluta hreppsins.
Verktakafyritækið Selás Bygg-
ingar ehf. átti lægsta tilboð í að
byggja upp tankinn og sagði Hákon
Páll Gunnlaugsson, eigandi fyr-
irtækisins, í ávarpi sínu að allt hefði
gengið eftir áætlun og þakkaði hann
það ekki hvað síst góðum und-
irverktökum, sem voru margir, sem
og góðu tíðarfari í vetur en byrjað
var á verkinu í febrúarbyrjun. Ár-
virkinn hf. á Selfossi sá um að setja
upp eitt fullkomnasta stýrikerfi á
landinu sem er hannað af Raftó ehf.
á Akureyri.
Hannibal Kjartansson veitustjóri
segir þessa framkvæmd mikið fram-
faraspor í vatnsveitumálum sveit-
arinnar. Veruleg vandræði hefðu t.d.
orðið nú í þessari Evrópublíðu sem
var í síðustu viku hefði þessi fram-
kvæmd ekki verið komin til.
Ný vatns-
veita mik-
ið fram-
faraspor
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sigurður Ingi Jóhannsson, oddviti Hrunamanna, opnaði kampavínsflösku
við opnun vatnsveitunnar fyrir Hákon Pál Gunnlaugsson verktaka og
Hannibal Kjartansson vatnsveitustjóra.
Hrunamannahreppur
Á DÝRÐLEGUM dögum á Djúpa-
vogi um helgina var mikið um að
vera og efnt til ýmissa viðburða í
bænum mönnum til upplyftingar í
amstri dagsins. Hér sjást listakon-
urnar Sigríður E. Guðmundsdóttir
og Ingiríður Óðinsdóttir bera Birni
Hafþóri Guðmundssyni sveitarstjóra
og konu hans Hlíf Herbjörnsdóttur
grískan veislukost í tilefni dagsins.
Ljósmynd/Signý Óskarsdóttir
Grískt borið á borð
fyrir sveitarstjórann
Djúpivogur
HELGI Björnsson á Kvískerjum í
Öræfum var að slá suður af bænum í
blíðviðri í síðustu viku. Að baki gnæf-
ir jökullinn við himin og baðar sig í
sólinni. Undir hlíðinni sér til bæjar á
Kvískerjum. Í þvílíku veðri er tilver-
an stórkostleg og nauðsynlegt að
gefa sér stund til að stöðva bílinn og
spjalla við heimamenn.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Öræfi
Slegið
undir
Vatnajökli
HJÓLABÁTAFERÐIR eru mjög skemmtileg afþreying
fyrir ferðamenn. Hjólabátar sigla út frá tveimur stöð-
um í Mýrdalnum þ.e frá Dyrhólum og Vík og fara þeir í
ferðir í kring um Dyrhólaey og Reynisdranga. Þegar
komið er í návígi sést best hvað Reynisdrangar eru
stórir en frá landi virðast þetta bara smá klettar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Á hjólabát út fyrir Reynisdranga
Fagridalur
FJÖLBREYTT íþróttastarf er
stundað í Stykkishólmi. Til er fé-
lagið Glaumur sem æfir krikket.
Á sunnudag fékk félagið heim-
sókn frá bresku liði sem kom til
Íslands. Gestirnir eru í áhuga-
mannaliði frá breska fjárfesting-
arbankanum EFG.
Glaumur tók á móti gestunum
með fullskipað lið, 11 manns.
Keppnin hófst kl. 18 og lauk eftir
miðnætti með naumum sigri gest-
anna 110–109, tvísýn keppni það.
Kári Pétur Ólafsson er í for-
svari fyrir Glaum. Hann sagði
eftir leikinn að Hólmararnir
hefðu lært heilmikið á þessari
heimsókn. Gestirnir kenndu þeim
ýmis „trikk“ og benti þeim á
margt sem betur má fara. Glaum-
ur hefur tvívegis tekið þátt í Ís-
landsmeistaramóti og eftir þenn-
an leik hefur þeim vaxið
sjálfstraustið. Liðið er skipað
ungum drengjum sem vonandi
halda áfram að æfa og læra inn á
reglurnar í krikket, sem eru
margar og flóknar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Krikketfélagið Glaumur í keppni við breskt áhugamannalið á íþrótta-
vellinum í Stykkishólmi. Hér er Björn Guðmundsson í fullum skrúða,
tilbúinn að slá boltann, og Bretarnir fylgjast grannt með á bak við.
Kepptu við
breskt krikketlið
Stykkishólmur
ÞAÐ ER nýlunda að gámaskip komi á
Hvammstangahöfn. Nú fyrir skemmstu kom
myndarlegt skip á höfnina. Var það að flytja
rækju af Flæmska hattinum, veidda af
norskri útgerð. Farmurinn var í frystigám-
um, losaði 300 tonn og fluttur fyrir Meleyri
ehf.
Að sögn Ólafs Halldórssonar, aðaleiganda
Meleyrar ehf., er þessi flutningsleið hagstæð-
ari fyrir fyrirtækið en landflutningar á hrá-
efni, en félagið vantar meira frystirými á
staðnum. Meleyri vinnur úr um 3.000 tonnum
af rækju árlega og er unnið á einni vakt. Af-
koma rækjuiðnaðarins sveiflast mjög á milli
ára, bæði á mörkuðum erlendis og eins vegna
gengisþróunar. Aðalmarkaðir Meleyrar ehf.
eru í Bretlandi, Danmörku, Frakklandi svo
og innlendur markaður.
Þrjúhundruð tonn af rækju
voru losuð úr gámaskipi
Hvammstangi
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson