Morgunblaðið - 22.07.2003, Qupperneq 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 31
fyrir tjón á bílum. Vafalaust hafa
ekki allir farið ánægðir frá hans
borði, en ég held samt að honum
hafi tekist ótrúlega vel að leysa mál
þannig að allir væru sáttir.
Þorgeir bar einlæga umhyggju
fyrir fjölskyldu sinni. Umhyggja
hans fyrir móður sinni og tengda-
móður var einstæð. Meðan þær
lifðu hafði hann samband við þær
báðar á hverjum degi og sá um að
þær vanhagaði ekki um neitt. Börn
hans, tengdabörn og barnabörn
fóru heldur ekki varhluta af þessari
umhyggju og þá ekki síst dóttur-
synirnir tveir. Þau munu öll finna
sárt fyrir því stóra skarði í lífi
þeirra sem verður við fráfall Þor-
geirs.
Ég sendi Láru, minni kæru vin-
konu í gegnum öll þessi ár, og allri
fjölskyldunni mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gunnar Már Hauksson.
Góður vinur er fallinn frá. Þor-
geir Halldórsson lést eftir baráttu
við illvígan sjúkdóm, krabbamein
sem lagði þennan góða dreng að
velli.
Kynni okkar voru löng og góð og
vináttan hélst alla tíð þótt leiðir
skildu um hríð. Leiðir okkar lágu
fyrst saman í Menntaskólanum í
Reykjavík en þaðan útskrifuðumst
við vorið 1957. Í Menntaskólanum
naut Þorgeir trausts skólafélaganna
og var m.a kjörinn formaður sjötta
bekkjar ráðs menntaskólans. Við
vorum samferða um tíma í Háskóla
Íslands og síðar urðum við vinnu-
félagar hjá Loftleiðum á Idlewild-
flugvelli í New York-borg, sem síð-
ar hlaut nafn John F. Kennedy og
hjá Loftleiðum á Keflavíkurflug-
velli. Þaðan hélt Þorgeir til starfa
hjá Viðlagasjóði og síðar til VÍS,
Vátryggingafélags Íslands, en þar
starfaði hann til hinsta dags.
Ung að árum kynntust hann og
eiginkona hans, Lára Hansdóttir,
sem varð stoð hans og stytta, vinur
og félagi alla tíð. Hún var hans gleði
og gæfa. Þau eignuðust þrjú mann-
vænleg börn: Hrafn Þorgeirsson,
forstöðumann hjá Flugleiðum,
kvæntur Margréti Ágústsdóttur,
Halldór Þorgeirsson kvikmynda-
gerðarmann, kvæntur Guðnýju
Halldórsdóttur og Arndísi Þorgeirs-
dóttur, blaðamann hjá DV, gift
Helga Sverrissyni og barnabörnin
eru sex.
Þorgeir vinur minn var glæsi-
menni á árum áður, þéttur á velli,
og alla tíð karlmannlegur og tígu-
legur. Hann var glaðlyndur og gam-
ansamur í sínum hópi og kímnigáf-
an var góð og án kerskni. Hann var
góður viðræðu en hafði sínar skoð-
anir og gat verið geðríkur en án ill-
inda. Hann var skarpgreindur og
stálminnugur, fróðleiksfús og fróður
vel, gefandi og vinmargur og þau
hjón höfðingjar heim að sækja.
Hans verður sárt saknað af vin-
um og félögum en mestur er missir
hans ástríku fjölskyldu og sérstak-
lega eiginkonu sem sér að baki elsk-
uðum ævifélaga. Við vottum þeim
innilega samúð. Við biðjum guð að
styrkja þau í missinum og sorginni
en við þökkum jafnframt fyrir að
hafa fengið að kynnast honum og
átt vináttu hans í tæp fimmtíu ár.
Blessuð sé minning hans.
Grétar Br. Kristjánsson.
Fleiri minningargreinar um Þor-
geir Halldórsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Eiginmaður minn,
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
fréttamaður,
Brúarflöt 9,
Garðabæ,
sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. júlí,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði í dag, þriðjudaginn 22. júlí, kl. 10:30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélags Íslands.
Matthea Guðný Ólafsdóttir,
Katrín Brynja Hermannsdóttir, Auðunn Sv. Guðmundsson,
Laufey Guðlaugsdóttir,
Hulda Sveinbjörnsdóttir,
Sveinn Sveinbjörnsson, Margrét Samúelsdóttir,
Sigurður Sveinbjörnsson, Guðbjörg Friðjónsdóttir,
Anna Maren Sveinbjörnsdóttir, Jónas Jónsson,
Gunnar Sveinbjörnsson, Elísabet Grettisdóttir,
Ólafur Sveinbjörnsson, Ingibjörg Stefánsdóttir
og afastrákurinn Máni Freyr.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ANDRÉSSON,
frá Snotrunesi,
Borgarfirði-Eystri
sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn
13. júlí, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
miðvikudaginn 23. júlí kl. 13.30.
Jólín Ingvarsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir, Sævar Lýðsson,
Kristín Jónsdóttir, Bjarni Bjarnason,
Sigrún Jónsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Föðurbróðir minn,
GÍSLI SIGURÐSSON
flugvélasmiður,
varð bráðkvaddur laugardaginn 19. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Bjarnason.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Sími 893 8638
Komum heim til aðstoðar
við undirbúning
útfarar sé þess óskað
Sími 567 9110
www.utfararstofan.is
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og
afi,
ÓLAFUR JENSSON,
Skúlagötu 40,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 20. júlí.
Jarðarförin tilkynnt síðar.
María Guðmundsdóttir,
Elín María Ólafsdóttir, Jóhannes Gíslason,
Auður Ólafsdóttir, Stefán Pétursson,
Kristín Ólafsdóttir,
Jens Ólafsson, Kristín Eggertsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og
langafi,
HREGGVIÐUR STEFÁNSSON,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
sem lést að kvöldi miðvikudagsins 16. júlí,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
miðvikudaginn 23. júlí kl. 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins
látna, er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Þórunn Björgúlfsdóttir,
Guðrún Hreggviðsdóttir, Jim Crosbie,
Þórunn Hreggviðsdóttir, Finnbogi Rútur Arnarson,
Ása Hreggviðsdóttir, Birgir E. Birgisson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FJÓLA SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum við
Snorrabraut aðfaranótt föstudagsins 18. júlí sl.
Börn hinnar látnu.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA ÓLAFÍA JAKOBSDÓTTIR,
áður Norðurbraut 25,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
19. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín Engiljónsdóttir, Lonny Duchien,
Jón Rafn Bjarnason,
Anna Kristín Bjarnadóttir, Guðbjörn Sigurþórsson,
Hörður Bjarnason, Guðbjörg Ása Gylfadóttir,
Thelma Rós Harðardóttir,
Fannar Smári Harðarson,
Engiljón Aron Guðbjörnsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR JÓHANN JÓNSSON
flugstjóri,
sem lést fimmtudaginn 17. júlí sl., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
23. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.
F.h. vandamanna,
Ingrid Krüger,
Jón Hallgrímsson, Svanhildur Sigurðardóttir,
Margrét Hallgrímsdóttir Plaice, Dennis Plaice,
Óskar G. Hallgrímsson, Valgerður Bjarnardóttir,
Sigríður Hallgrímsdóttir,
Rannveig Garðarsdóttir, Guðmundur Hauksson,
Gísli Baldur Garðarsson, Helga Baldursdóttir,
fósturbörn, barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
Elsku litli drengurinn okkar, bróðir okkar,
mágur og barnabarn,
BRYNJAR PÁLL GUÐMUNDSSON,
lést af slysförum sunnudaginn 20. júlí.
Áslaug Pálsdóttir, Guðmundur Jónsson,
Jón Ingibergur Guðmundsson,
Þórhildur Svava Svavarsdóttir, Torfi Ragnar Sigurðsson,
Páll Jónsson, Þórhildur Svava Þorsteinsdóttir,
Bryndís Sveinsdóttir.
Ástkær unnusta mín, dóttir, stjúpdóttir, systir,
barnabarn og tengdadóttir,
TINNA HRÖNN TRYGGVADÓTTIR,
lést á heimili sínu, Háteigi 21, Keflavík, laugar-
daginn 19. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Haukur Aðalsteinsson,
Hrafnhildur Bjarnadóttir, Ólafur Ragnar Elísson,
Tryggvi Þórir Egilsson, Ásta Sigríður Guðmundsdóttir,
Bjarni Þórir Ragnarsson, Egill Tryggvason,
Signý Ósk Ólafsdóttir, Ásgeir Tryggvason,
Ólafur Hrafn Ólafsson, Stefanía Ásta Tryggvadóttir,
Tómas Orri Ólafsson,
Margrét Jensdóttir,
Egill Sveinsson, Brynja Tryggvadóttir,
Aðalsteinn Guðbergsson, Guðríður Hauksdóttir.