Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÖRNUM FJÖLGAR Arnarvarp gekk mjög vel í sumar og hafa ekki jafnmörg arnarpör orp- ið um langt árabil. Alls fundust 57 pör við reglubundna talningu í vor og urpu 39 þeirra. Eyða skal gagnagrunni Lyfjastofnun skal eyða gagna- grunni, sem inniheldur upplýsingar um lyfjaneyslu einstaklinga, eigi síð- ar en 1. janúar 2005. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar. Vilja kaupa Norðlenska Stjórn KEA samþykkti á fundi seint á laugardagskvöldið að ganga til samninga við Kaldbak hf. um kaup á öllum hlutabréfum í Norð- lenska. Markmið KEA er að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtæk- isins. Kæruleysi orsökin Sergei Ívanov, varnarmálaráð- herra Rússlands, hefur sett tíma- bundið bann við því að úreltir kjarn- orkukafbátar séu dregnir til niðurrifs í kjölfar þess að einn slíkur sökk á Barentshafi aðfaranótt laug- ardags. Níu manns fórust. Sagði Ívanov að kæruleysi væri ein aðal- orsök slyssins. Leita aðstoðar FBI Yfirvöld í írösku borginni Najaf hafa leitað eftir aðstoð bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, við rann- sókn á sprengjutilræði sl. föstudag er varð 125 að bana, þ.á m. einum helsta stjórnmála- og trúarleiðtoga sjíamúslíma í landinu. 2003  MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A GR ÍSLANDSMEISTARI Í SVEITAKEPPNI Í GOLFI / B11 Helgi nýtti ekki víta- spyrnu og Lyn tapaði HELGI Sigurðsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, nýtti ekki gullið tækifæri til þess að tryggja Lyn dýrmætt stig gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Þegar komið var framyfir leiktímann fékk Lyn vítaspyrnu sem Helgi tók en Jon Knudsen, markvörður Stabæk, gerði sér lítið fyrir og varði. Þar með sigraði Stabæk, 3:2, og staða Lyn versnar enn. Helgi og Jóhann B. Guðmundsson voru báðir í byrjunarliði Lyn en Jóhann var tekinn af velli á 57. mínútu. Tryggvi Guðmundsson er enn fjarri góðu gamni hjá Stabæk vegna meiðsla. Ólafur Stígsson lék síðustu tuttugu mín- úturnar með Molde sem vann Bryne, 3:2, og Hannes Þ. Sigurðsson var með síðustu sjö mín- úturnar hjá Viking sem sigraði Ålesund, 4:0. Árni Gautur Arason var sem fyrr á vara- mannabekk Rosenborg sem gerði jafntefli, 1:1, við Sogndal á útivelli. QUEENS Park Rangers, sem leikur í 2. deild ensku knattspyrnunnar, hefur gert úrvalsdeildarfélaginu Wolves tilboð í landsliðsmanninn Ívar Ingimarsson. QPR er í þriðja sæti eftir fimm umferðir og er talið sigurstranglegt í deildinni í vetur. Skýrt var frá áhuga QPR á hon- um á fréttavef BBC í gærkvöld en jafnframt sagt að félagið ætti í erf- iðleikum með að ná samkomulagi við hann um kaup og kjör, enda mikill launamunur á úrvalsdeild og 2. deild. Ólafur Garðarsson, umboðs- maður Ívars, staðfesti við Morgun- blaðið að tilboð hefði borist frá QPR, auk þess sem fleiri lið í 1. og 2. deild hefðu sýnt áhuga á að fá hann til liðs við sig. Þar á meðal er 2. deildarlið Brighton, sem Ívar lék með sem lánsmaður í 1. deildinni seinnipart síðasta tímabils. Knatt- spyrnustjóri þar er Steve Coppell, en Ívar lék undir hans stjórn hjá Brentford, og síðan Brighton. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins reyndi 1. deildarlið Reading að fá Ívar fyrir skömmu en Wolves hafn- aði tilboði þaðan. Ívar hefur ekkert fengið að spreyta sig með aðalliði Wolves frá því í nóvember í fyrra. Þá var hann settur út úr leikmannahópnum eftir að hann tók vináttuleik með íslenska landsliðinu fram yfir leik hjá Wolves. Hann hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins í fyrstu um- ferðum úrvalsdeildarinnar í haust. QPR vill fá Ívar frá Wolves Morgunblaðið/Kristinn KR-ingar tryggðu sér Íslandmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna annað árið í röð á laugardaginn þegar þeir lögðu Stjörnuna, 5:1, á heimavelli. Í leikslok „tolleruðu“ leikmenn KR þjálfara sinn, Vöndu Sigurgeirsdóttur, en hún hyggst nú taka sér frí frá þjálfun. Fyrir mig skipti öllu máli að getahaldið öllu opnu eftir þetta tíma- bil. Fredrikstad er í þriðja sæti 1. deildar og á góða möguleika á að fara upp í úrvalsdeildina, en það er tvennt ólíkt að spila í þessum tveimur deild- um og því vildi ég ekki binda mig hér til lengri tíma. En mér líst mjög vel á mig, Fredrikstad er gamalt stórveldi í norsku knattspyrnunni, kom upp úr 2. deild í fyrra, er með mjög góða að- sókn á leikjum og þjálfarinn, Tor- björn Eggen, byggir á því að spila skemmtilegan sóknarfótbolta. Ég kannast við hann síðan hann reyndi að fá mig til Moss á sínum tíma og það verður spennandi að spila undir stjórn hans. Hér á svæðinu búa um 150 þúsund manns og möguleikarnir eru því miklir ef liðinu tekst að ná lengra,“ sagði Ríkharður við Morgun- blaðið í gær. Hann fékk aðeins tækifæri í fimm leikjum með Lilleström í úrvalsdeild- inni í sumar en það var fyrst og fremst vegna þess að ef hann hefði spilað nokkra leiki til viðbótar hefði Lilleström þurft að greiða Stoke City tíu milljónir króna til viðbótar fyrir hann. Félagið á í miklum fjárhagsörð- ugleikum og þar með var Ríkharði haldið utan liðsins og hann látinn spila með varaliðinu í 2. deild. „Það var ömurlegt að vera þarna og fá ekki að spila með aðalliðinu af ástæðum sem komu frammistöðu minni á vellinum ekkert við. Eftir að ég var orðinn endanlega heill af meiðslunum, í byrjun júlí, var mér sagt að ég fengi ekki að spila nema í mesta lagi 2–3 leiki til viðbótar á tíma- bilinu. Ég hef spilað eina tíu leiki í 2. deildinni í sumar en það er ekki sér- lega spennandi og því ákvað ég að breyta til,“ sagði Ríkharður. Hann hefur glímt við hnjámeiðsli síðustu árin en hefur verið góður af þeim undanfarna mánuði. „Ég stóðst læknisskoðunina hjá Fredrikstad, en að sjálfsögðu með þeim formerkjum að allir vita að ég hef átt í vandræðum með hnéð.“ Ríkharður hefur skorað 52 mörk í 80 leikjum með Viking og Lilleström í norsku úrvalsdeildinni og koma hans til Fredrikstad hefur því vakið tals- verða athygli. Ríkharður fylgdist með hinum nýju félögum sínum vinna góð- an heimasigur á Örn-Horten í gær og þar styrkti liðið enn stöðu sína. Höne- foss er efst í 1. deild með 48 stig, HamKam er með 44, Fredrikstad 43 og Haraldur Ingólfsson og félagar í Raufoss eru með 40 stig en Raufoss og HamKam skildu jöfn í gær, 2:2. Fredrikstad er eitt sigursælasta fé- lag í sögu norsku knattspyrnunnar. Það hefur níu sinnum unnið meistara- titilinn og aðeins Rosenborg hefur gert betur. Síðasti sigur Fredrikstad í deildinni var hins vegar árið 1961. Fé- lagið hefur tíu sinnum orðið bikar- meistari, síðast árið 1984, og það var síðast með í Evrópukeppni árið 1985. Það hefur leikið í neðri deildum um árabil en vann sig upp úr 2. deild í fyrra og fór beint í toppslaginn í 1. deildinni í ár. Ríkharður samdi við Fredrikstad út tímabilið RÍKHARÐUR Daðason knattspyrnumaður komst í gær að sam- komulagi við norska 1. deildarliðið Fredrikstad um að leika með því út þetta keppnistímabil, eða síðustu níu deildaleikina. Ríkharður gerði starfslokasamning við Lilleström fyrir helgina en það skýrðist ekki fyrr en í gær hvort af því yrði að hann færi til Fredrikstad. mánudagur 1. september 2003 mbl.is Sumarhúsalán Búnaðarbankans er nýjung Lánið getur verið til allt að 15 ára Lánið er veitt gegn veði í sumarhúsinu Veðsetning getur verið allt að 50% af markaðsvirði sumarhússins Kynntu þér málið í næsta útibúi Búnaðarbankans, á www.bi.is eða í síma 525 6000F í t o n / S Í A F I 0 0 7 4 4 2 Verð við allra hæfi Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Fasteignablaðið // Heita vatnið Eiga menn á hættu að allar endurbætur á hitakerfum, sem minnka eyðslu á heitu vatni, oftast óþarfa eyðslu og sóun, komi þeim í koll með hækkun á verði heita vatnsins?  6 // Bílastæði Jafnan eru löglíkur fyrir því að bílastæði á lóð fjölbýlishúss sé í sameign. Sá, sem gerir til- kall til tiltekins bílastæðis verður að sanna eignarrétt sinn eða rétt til sérafnota.  29 // Góð staðsetning Við Fögrubrekku 15 í Kópavogi er til sölu gott einbýlishús á frábærum stað. Þetta er steinhús á einni hæð, með bílskúr, viðbygg- ingu, garðhúsi og fallegum garði.  31 // Hús í miðborginni Lækjargata 10, þetta gamla og virðulega hús á horni Skólabrúar og Lækjargötu, sómir sér vel enn þann dag í dag. Það var hlaðið úr grágrýti og býr yfir mikilli sögu.  42                                  ! " "" #  " $ % %                                  #  % " $ ! % " "                     &'()  (  )   % *  +,-   .  )/  0  *  1  2--    3 (4 %  3 (4 !( '  3 (4 %  3 (4     5 6 56       5 5        !!!"    5      7 7  7  5  #       $ #%  & % % '   (             8 5 85 9         % (            #     58 6  KAUP á sumarhúsum eru að ýmsu leyti frábrugðin kaupum á íbúðarhús- næði og þá fyrst og fremst vegna þess, að húsbréfalán fást ekki út á sumarhús. Algengt verð á sumarhús- um er á bilinu 4-8 millj. kr. Einstaka hús fer þó á mun hærra verði en það fer að sjálfsögðu eftir stærð, lóð og staðsetningu. Samgöngur og fjarlægð frá þétt- býlisstöðunum og þá einkum frá höf- uðborgarsvæðinu skipta máli. Eftir- sóttustu svæðin eru á Suðurlandi, einkum í uppsveitum Árnessýslu. En eftir að Hvalfjarðargöngin voru opn- uð, hefur ásókn í sumarhúsasvæði á Vesturlandi aukizt verulega, ekki hvað sízt í Borgarfirði. Sennilega hafa sumarhús í Skorradal aldrei ver- ið jafn eftirsótt og nú, enda vatnið og umhverfi þess afar fallegt. Heitið sumarbústaðir eða sumar- hús eiga raunar vart við lengur. Heiti eins og orlofshús eða frístundahús eiga miklu betur við, enda mörg af þessum húsum nú svo vel úr garði gerð, að það er hægt að vera í þeim jafnt vetur sem sumar. Samt hafa orðin sumarbústaður og sumarhús orðið býsna lífseig í málinu og end- urspegla kannski þrá landans eftir sól og yl. Sumarhús nálægt Hvítá Grímsnes í Árnessýslu hefur lengi verið afar eftirsótt sumarhúsasvæði. Í landi Vaðness er Eignamiðlunin nú með til sölu sumarhús, sem er 46 ferm., byggt 1972 úr timbri og því fylgir 15 ferm. geymsluhús. Húsið stendur á 3,2 hekturum lands og að sögn Magneu Sverrisdóttur hjá Eignamiðluninni væri hægt að byggja fleiri hús á landinu. „Landið sem húsið stendur á er mjög fallegt og gróið með miklum trjám, m.a. birki, greni, ösp og berja- lyngi. Sérvegur er heima að bústaðn- um, “ sagði Magnea ennfremur. „Bústaðurinn stendur nálægt Hvítá og er með fallegu útsýni. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, snyrtingu, tvö herbergi og stofu. Stór verönd er við hlið hússins og þar er heitur pott- ur og lítið útiskýli með sturtu og bún- ingsaðstöðu. Að innan er húsið panel- klætt og með parketi á gólfum. Heitt vatn, rafmagn og kalt vatn er í húsinu og heitt vatn fylgir fyrir ann- an bústað. Mikil eftirspurn hefur ver- ið eftir bústöðum í þessari fjarlægð frá Reykjavík, en tæpur klukku- stundar akstur er í bústaðinn frá höf- uðborgarsvæðinu.“ „Það er góð eftirspurn eftir bústöð- um á vinsælum svæðum, en verð hef- ur haldizt nokkuð stöðugt,“ sagði Magnea Sverrisdóttir að lokum. Góð eftirspurn einkennir sumarhúsamarkaðinn Þetta fallega sumarhús við Hvítárbraut 19 í Grímsnesi er til sölu hjá Eignamiðl- uninni. Húsið er 46 ferm. á 3,2 hekturum lands. Geymsluskúr, sem er 15 ferm. fylgir. Óskað er eftir tilboðum. GÓÐ hreyfing hefur verið á fast- eignamarkaði á Austurlandi að und- anförnu og töluverð eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Greinilegt er, að væntingar vegna fyrirhugaðra stór- iðjuframkvæmda eru þegar farnar að hafa áhrif á fasteignamarkaðinn á þessu svæði. Hjá Fasteigna- og skipasölu Austurlands eru nú til sölu íbúðir í sjö hæða lyftuhúsi, sem er að rísa við Kelduskóga á Egilsstöðum. Íbúðirnar eru alls 21, en húsið er byggt úr steinsteyptum einingum. „Við hönnun hússins var sú hugsun höfð að leiðarljósi, að það þyrfti sem minnst viðhald,“ segir Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður og fasteignasali hjá Fasteigna- og skipasölu Austurlands, sem hefur aðsetur á Egilsstöðum.  26 Nýjar íbúðir áEgilsstöðum Yf ir l i t Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið „FAGRA VERÖLD“ 2003–2004 frá Heimsklúbbi Ingólfs. Tímaritinu er dreift á landsbyggðinni. Í dag Sigmund 8 Bréf 26/27 Viðskipti 11 Dagbók 28/29 Erlent 14/13 Kirkjustarf 29 Listir 15/16 Leikhús 30 Umræðan 17 Fólk 30/33 Forystugrein 18 Bíó 30/33 Hestar 20 Ljósvakar 34 Minningar 21/23 Veður 35 * * * MARKMIÐ stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga með kaupum á nánast öllum hlutabréfum í Norðlenska matborðinu ehf. er að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækisins og eyða ótta meðal bænda um að félagið geti ekki gert upp við þá innlegg í sláturtíðinni. Hugmyndin er að selja bændum síðar meirihluta hlutafjárins. Stjórn KEA samþykkti á fundi seint á laug- ardagskvöldið að ganga til samninga við Kald- bak hf. um kaup á öllum hlutabréfum félagsins í Norðlenska en Kaldbakur á 99% eignarhlut. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, vonast til að samningar um kaupin náist í vikunni. Þá verði hafist handa um stofnun félagsins með bændum og er ætlunin að það kaupi verulegan hluta af hlutabréfaeigninni af KEA. Til þess verða væntanlega, meðal annars, notuð þau 4% af afurðainnleggi bænda í haust sem núverandi stjórnendur Norðlenska setja að skilyrði fyrir því að taka fé til slátrunar. Andri segir einnig hugmyndir um að aðrir aðilar komi þarna að og nefnir sveitarfélög á svæðinu í því sambandi. Skuldum breytt í hlutafé Norðlenska varð til árið 2000 með sameiningu Kjötiðju KÞ á Húsavík og Kjötiðnaðar KEA á Akureyri. Síðar sameinaðist Nýja bautabúrið á Akureyri Norðlenska og það keypti kjötvinnslur Kjötumboðsins í Reykjavík (Goða). Hjá því starfa 180 manns. Stærsti hluthafinn var fjár- festingarfélagið Kaldbakur hf. sem var skipt út úr KEA í byrjun síðasta árs. Eftir það hefur KEA ekki verið með beinan atvinnurekstur en á hlut í nokkrum félögum. Framkvæmdastjórinn er eini starfsmaður félagsins. Rekstur Norðlenska hefur gengið illa síðustu tvö árin og tapaði það öllu eigin fé sínu. Fjár- hagsleg endurskipulagning hófst á síðasta aðal- fundi með því að hlutafé félagsins var fært niður í núll og Kaldbakur gaf vilyrði fyrir 50 milljóna króna nýju hlutafé. Norðlenska skuldar um 1.400 milljónir kr., þar á meðal mörg hundruð milljónir til Kaldbaks. Andri Teitsson segir að gert sé ráð fyrir því að hluta af skuldum þess við Kaldbak verði breytt í hlutafé og öðrum hluta breytt í lán til lengri tíma. Með því að létta þannig á skuldastöðu félagsins vonast Andri til að reksturinn nálgist jafnvægi. Segir hann ekki fyrirhugað að KEA leggi nýtt hlutafé í rekst- urinn. Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu Norðlenska hef- ur gætt ótta meðal bænda um að félagið gæti ekki gert upp innlegg í sláturtíðinni í haust. Leggur Andri áherslu á að sá ótti sé ástæðulaus. KEA á um tvo milljarða króna hreina eign og er rekið sem svokallað byggðafestufélag. „Það hefur burði til að takast á við stór verkefni. Okkur finnst það falla vel að hlutverki þess að taka myndarlegan þátt í þessu, tímabundið,“ segir Andri. Viðræður um kaup KEA á Norðlenska af Kaldbaki Vilja tryggja áframhald- andi rekstur fyrirtækisins Á BÖKKUM Grímsár í Borgarfirði stendur gamall grunnur með nýtt hlutverk. Steinar Berg Ísleifsson gaf veitingastaðnum Hvernum í Mývatnssveit nýtt hlutverk, lét þrjá stóra flutningabíla flytja húsið í Borgarfjörðinn í fjórum pörtum um helgina, þangað sem áður stóð gamalt sláturhús. Þar ætlar hann að opna nýtt veitingahús með nafn- inu Tíminn og vatnið. Er það vísun í verk skáldsins Steins Steinarr, ömmubróður Steinars Berg, og breytt hlutverk árinnar síðustu 50 ár. „Hér í Borgarfirðinum var verið að úrelda síðasta sláturhúsið. Á sama degi var eitt elsta sláturhúsið rifið í landi Fossatúns á bökkum Grímsár,“ segir Steinar Berg. Slát- urhúsinu var þar valinn staður fyr- ir rétt um 50 árum af hagkvæmnis- ástæðum. „Hagkvæmnin lá í því að setja húsið á bakkann þar sem um 5–6 metra fallhæð er í ána, og úr- gangi var hleypt í rennum út í á. Svona var áin nýtt til að fleyta úr- ganginum út í sjó.“ Steinar Berg segir tímana al- deilis breytta. „Þar sem þetta er einstaklega fallegur útsýnisstaður hef ég fengið leyfi til að breyta um not á þessu húsi, sem áður var skil- greint fyrir landbúnað. Nú fer þetta veitingahús á þennan grunn þar sem gamla sláturhúsið stóð áð- ur. Þaðan mun fólk njóta sér- staklega fallegs útsýnis og veitinga í framtíðinni,“ segir hann. Húsið híft á gamla grunninn Á laugardaginn komu flutn- ingabílarnir að Fossatúni, þar sem Steinar Berg býr, með veitinga- húsið í pörtum á pallinum alla leið úr Mývatnssveit. Var það híft á grunn gamla sláturhússins og því púslað þar saman. Húsið er fullbúið tæpir 140 fermetrar að flatarmáli og ætlar Steinar að standsetja það í vetur, byggja við, bæta og fegra svo aðstaðan verði tilbúin næsta vor. „Þessi staðsetning er mjög áhrifamikil. Áin er þarna um 70–80 metra breið og fellur fram í fossum sem eru ekki mikið þekktir,“ segir Steinar. Borgarfjarðarbraut liggi fyrir ofan þennan stað þó að stórt plan hafi af og til dregið rútur þangað með ferðamenn. Veitingastaðurinn er aðeins hluti af hugmynd sem Steinar er að þróa og samanstendur af mörgum öðr- um þáttum þó að veitinga- reksturinn verði mjög mikilvægur. Í framtíðinni mun á Fossatúni hljóma tónlist að sögn Steinars Berg. Sumir sögðu þetta draumóra „Ég er búinn að ganga með þetta í kollinum í mjög langan tíma. Þeir sem þekkja mig eru búnir að heyra mig tala um þetta lengi og hafa haldið þetta draumóra. Allir urðu því mjög hissa þegar ég lét verða af því að kaupa þessa miklu, fallegu og dýru jörð. Fólk er nú farið að skilja þetta og þeir sem koma hing- að vita hvað ég er að fara,“ segir Steinar. Hann segist hafa verið búinn að finna nafn á þetta veitingahús fyrir löngu. Tíminn og vatnið mun það heita enda er Steinar Berg aðdá- andi nafna síns Steinarr eins og margir af hans kynslóð. Sömuleiðis segir hann að tíminn hafi breytt notkun vatnsins sem rennur í Grímsá frá því sem áður var. „Þá var það notað til að flytja þennan úrgang. Nú er það sjónrænt fyrir fólk að horfa á.“ Morgunblaðið/Guðrún Vala Kranar flutningabílanna sáu um að lyfta veitingahúsinu á grunninn þar sem áður stóð sláturhús. Steinar Berg Ísleifsson notar tímann og vatnið Flutti veitingahús úr Mývatns- sveit að bökkum Grímsár Morgunblaðið/Guðrún Vala Steinar Berg Ísleifsson HREFNUVEIÐAR Íslendinga og tilmæli breska sjávarútvegsráðherr- ans, Bens Bradshaws, til Breta um að sniðganga íslenskar vörur og ferðir til Íslands hafa lítil sem engin áhrif haft á sölu íslensks fisks í þar. Þetta er mat Agnars Friðrikssonar, forstjóra Coldwater Seafood Ltd., dótturfyrir- tækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna (SH) í Bretlandi, sem Morgun- blaðið ræddi við í gær. Coldwater Seafood framleiðir aðal- lega unnar fiskvörur til verslana og veitingahúsa. Agnar segir að í kjölfar ummæla Bradshaws hafi tveir stórir viðskiptavinir sent fyrirspurnir og þeim hafi verið svarað með þeim upp- lýsingum og gögnum sem fyrirtækið hafi aflað sér frá Íslandi, aðallega frá sjávarútvegsráðuneytinu. Upplýsing- arnar hafi verið lagðar fram hlutlaust. „Viðskiptavinir okkar munu bregðast við eftir því hvaða afstöðu breskir neytendur munu taka. Ef þrýstingur kemur frá neytendum um að snið- ganga íslenskan fisk þá gætu hlutirn- ir eitthvað breyst. Þetta mál hefur lít- ið verið í umræðunni hérna í Bretlandi miðað við hvað maður taldi í upphafi. Hrefnuveiðarnar hafa til dæmis lítið verið í sjónvarpsfréttum ennþá,“ segir Agnar. Hrefnuveiðar Íslendinga Lítil sem engin áhrif á fisksölu í Bretlandi TVÆR líkamsárásir voru kærðar til lögreglunnar í Reykjavík eftir skemmtanahald aðfaranætur sunnu- dags. Maður var sleginn niður á Stuð- mannadansleik í íþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði og einnig brotnuðu í honum tennur. Árásarmaðurinn var handtekinn. Ráðist var á annan mann í miðborginni í fyrrinótt og sparkað ítrekað í höfuð hans fyrir ut- an skemmtistaðinn Amsterdam. Var maðurinn fluttur nær meðvitundar- laus á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en atvikið náðist á mynd í eftirlitsmyndavélum. Árásarmenn- irnir voru tveir og voru þeir báðir handteknir á hlaupum. Að loknum yfirheyrslum í gær var þeim sleppt. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var mikill erill í borginni þessa nótt. Tvær líkams- árásir kærðar ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.