Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TÖLUR um búferlaflutninga af landsbyggðinni eru ekki alveg eins og þær sýnast. Upplýsingar Hag- stofunnar segja okkur að hægt hafi á búferlaflutn- ingunum, þó að sannarlega sé sagan misjöfn á milli svæða. Þó að vissulega veki það von um að betur horfi um íbúaþróunina almennt er samt sem áður ljóst að vandinn er mikill og hann er öðru fremur bundinn við tiltekna aldurshópa. Sigurður Sigurðsson hjá Iðnvest á Blönduósi dró saman athyglisverðar upplýsingar á aðalfundi Sam- taka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra nú um helgina. Þar kemur fram að almennt hafi samsetn- ing íbúa á Norðurlandi vestra breyst á þann veg á síðustu tíu árum að fækkun hafi einkanlega átt sér stað í hópi fólks á aldursbilinu 20 til 40 ára og síðan í yngstu aldurshópunum. Þetta eru vond tíðindi og eiga ábyggilega við um landsbyggðina víðar. Þarna er því verkefnið. Til þess að snúa við neikvæðri íbúaþróun þarf að hyggja sérstaklega að þessum aldurshópi. En af hverju fer unga fólkið? En hvað rekur þetta fólk úr byggðarlögunum sín- um? Ástæðurnar eru ábyggilega margvíslegar. En eitt blasir sannarlega við. Fólk þarf að yfirgefa heimahagana til þess að leita sér menntunar á háskólastigi var til skamms tíma einkum á borgarsvæðinu. Þeir sem vildu leita sér men þurftu því að fara suður. Þegar námi lauk v stæður breyttar. Starf sem hentaði náminu til staðar í neinum mæli nema á höfuðborga inu og menn áttu ekki lengur neitt val. Búse óhjákvæmilega ákveðin; fyrir sunnan. Börn fólks fæðast síðan í nýjum heimkynnum for anna. Ergo. Það fækkar í aldurshópnum frá 40 ára og þeim yngsta, líkt og tölur Sigurða okkur. Jafnt hlutfallslega og tölulega. Sem betur fer hefur vel tekist til í mennt á síðustu árum. Sérstaklega á þetta við í me málum landsbyggðarfólks. Námsmöguleikar almennt talað í landinu orðnir fleiri og fjölb Unga fólkið í dag á um margfalt fleiri kosti en unga fólkið átti fyrir áratug. Námsframb fjölbreyttara. Skólarnir eru fleiri og námsle allt aðrar og margbreytilegri. Skólum á hás hefur fjölgað mikið. Svo dæmi sé nefnt um h Norðvesturkjördæmi þá starfa þar þrír hásk Bifröst, á Hólum og á Hvanneyri. Ungt fólk landsbyggðinni á þarna fleiri kosti, eins og j aldrar þess í Reykjavík. Reynslan sýnir okk dæmis frá Háskólanum á Akureyri að ungt nemur þar við skólann er margfalt líklegra Af hverju flytu fólkið af landsb Eftir Einar K. Guðfinnsson SAMKOMULAG UM SAMHEITALYF Eftir mikið þóf hefur loks náðstsamkomulag á vegum Heims-viðskiptastofnunarinnar, WTO, um heimild fyrir fátæk ríki til að flytja inn ódýr samheitalyf gegn banvænum smitsjúkdómum á borð við HIV/alnæmi, malaríu og berkla. Samkomulagið var samþykkt ein- róma og í ræðuhöldum þegar það var kynnt var sagt að það gæti bjargað milljónum mannslífa. Ýmis Afríkuríki hafa ásamt góð- gerðarsamtökum barist fyrir sam- komulagi um samheitalyf svo árum skiptir. Samkvæmt samkomulaginu geta fátæk ríki flutt inn ódýrari út- gáfur af lyfjum frá löndum á borð við Indland og Brasilíu án þess að brjóta viðskiptalög, sem vernda einkarétt. Tvö ár eru síðan það var samþykkt í grundvallaratriðum að leyfa aðgang að ódýrum útgáfum að helstu lyfjum, en það hefur dregist úr hömlu að hrinda samkomulaginu í framkvæmd. Helstu lyfjafyrirtækin eru í Banda- ríkjunum, ríkjum Evrópusambands- ins og Sviss. ESB og Sviss höfðu loks gengið að samkomulaginu, en Banda- ríkjastjórn, sem var undir miklum þrýstingi frá bandarískum lyfjafram- leiðendum, hafnaði því í desember. Það var ekki fyrr en fallist hafði verið á að bæta við í samkomulagið yfirlýs- ingu um að ríki nýttu sér það ekki til að hagnast á því heldur hefðu al- mannaheill að leiðarljósi að Banda- ríkjamenn létu af mótstöðu sinni. Ýmis samtök sögðu um helgina að orðalagið, sem Bandaríkjamenn knúðu fram að yrði bætt við, væri dauðadómur samkomulagsins vegna þess að það hefði í för með sér slíkar flækjur og skriffinnsku að fátæk ríki myndu ekki geta flutt inn nauðynleg lyf. Reglur um einkaleyfi, sem er í gildi í 20 ár frá því að lyf kemur á markað, myndu einnig halda áfram að leiða til hærra lyfjaverðs. Banda- rískir lyfjaframleiðendur lýstu hins vegar yfir því að nú þegar leyst hefði verið úr deilunni ættu ríkisstjórnir og heilbrigðisyfirvöld að einbeita sér að því að koma lyfjum til sjúklinga í fá- tækustu ríkjum heims. Í samningaviðræðunum núna héldu fulltrúar frá Afríku því fram að frá því að samkomulaginu var hafnað í desember hefðu 2,4 milljónir Afríku- búa látið lífið af HIV/alnæmi, malaríu og berklum. Samkomulagið, sem gert var um helgina, er löngu tímabært og það er erfitt að átta sig á hvernig hægt er að sitja og þrefa á meðan milljónir manna berjast við lífs- hættulega sjúkdóma, en það sýnir um leið hversu gríðarlegir hagsmunir eru húfi hjá lyfjafyrirtækjunum, sem fyrst koma lyfjum á markað eftir rannsóknir og þróunarvinnu. Nú er samkomulagið hins vegar loks í höfn og ríður á að láta á það reyna hvort loks er hægt að koma lyfjum til þjóða, sem eru að sligast vegna banvænna sjúkdóma og lina þjáningar milljóna manna, sem hing- að til hafa ekki eygt neina von. Vona verður að bölspár um skilvirkni sam- komulagsins reynist ekki á rökum reistar, en sé það rétt að enn eigi eftir að ryðja úr vegi hindrunum verður að gera það tafarlaust. Biðin er orðin nógu löng. EITUR hryðjuverka hefur nú gegnsýrt mannúðarstarf Sameinuðu þjóðanna með hinni hörmulegu sprengju- árás á höfuðstöðvar samtakanna í Írak. Tugir saklausra einstaklinga létu lífið, þar á meðal einn helsti friðar- frömuður veraldar, Sergio Vieira de Mello. Líkt og bú- ast mátti við ítrekaði George W. Bush Bandaríkjaforseti staðfestu sína í baráttunni gegn hryðjuverkum. Aðrir leiðtogar lýstu því yfir að SÞ ættu ekki að hætta starfi sínu í Írak. Þrátt fyrir það vekur sprengingin upp póli- tískar spurningar sem krefjast svara. Í stað þess að efla hernám sitt ættu Bandaríkjamenn að yfirgefa Írak og láta SÞ halda starfi sínu áfram. Við upphaf tuttugustu aldarinnar gátu heimsveldi haldið heilu þjóðunum niðri. Sú er ekki raunin lengur. Hugmyndafræði þjóðernishyggju og andheimsveldis- stefnu ásamt auknu læsi og pólitískri þátttöku hafa fyrir löngu gert að verkum að heimsveldisyfirráð eru nær úti- lokuð. Það á ekki síst við í Mið-Austurlöndum þar sem and-nýlendustefna hefur tekið höndum saman við heit- trúarstefnu. Það var fífldirska af hálfu Bandaríkjanna að gera ráð fyrir að hægt væri að hafa herlið í Írak án þess að við tæki langt tímabil ofbeldis og blóðsúthell- inga. Leiðtogar Bandaríkjanna töldu að Bandaríkjunum yrði fagnað sem frelsurum. Bandaríkjastjórn og margir þeirra er fylgjast með málum telja að ef Bandaríkja- mönnum tekst að koma á grundvallarþjónustu í Bagdad og hugsanlega klófesta Saddam Hussein verði vanda- málin úr sögunni. Markmiðið virðist vera að koma á stjórn undir forystu einkavina Pentagon á borð við Ahmed Chalabi. Þeirri stjórn er síðan ætlað að biðja Bandaríkjaher um að dvelja lengur í landinu og tryggja bandaríska olíuiðnaðinum fyrirgreiðslu. Slík stjórn verður hins vegar aldrei lögmæt og mun þurfa að búa við launmorð, pólitíska ólgu og hryðju- verkaárásir. Þegar upp er staðið mun það kasta manns- lífum á glæ, líkt og lífi hinna hugrökku og staðföstu starfsmanna SÞ, að ekki sé minnst á hundruð milljarða dollara. Það er hneykslanlegt að Bandaríkin skuli nú eyða fjórum milljörðum dollara á mánuði vegna herset- unnar í Írak á sama tíma Bush berst líkt og óður maður fyrir því að framlag Bandaríkjanna til Heimssjóðarins í baráttunni gegn alnæmi, berklum og malaríu verði ekki hærra en 200 milljónir dollara á ári. Í Bandaríkjunum er nú farið að bera á því sjónarmiði að þó svo að stríðið í Írak hafi ekki verið góð hugmynd, verði Bandaríkin (og Sameinuðu þjóðirnar) að vera um kyrrt í landinu til að vernda heiður þjóðarinnar og sýna að ekki sé hægt að hræða Bandaríkin á brott með hryðjuverkum. Viðbrögð sem þessi við hryðjuverkum fá góðan hljómgrunn meðal bandarísku þjóðarinnar. Eng- inn vill láta valta yfir sig og enginn Bandaríkjamaður vill að hægt sé að hræða eða kúga Bandaríkin með grimmilegum fólskuverkum þeirra er beita bíl- sprengjum. Þau tilfinningalegu viðbrögð að spyrna við hælum magna hins vegar einungis þau pólitísku mistök er gerð voru með stríðinu sjálfu. Bandaríkin eru ekki í stöðu til að koma á friði og stöðugleika í Bagdad eða vernda starfsmenn SÞ og aðra er starfa við hlið hernámsliðsins, jafnvel þá er starfa að mannúðarmálum. Hryðjuverk eru í þessu tilviki ekki einungis heigulsháttur heldur endurspegla þau hina eitruðu stjórnmálabará bandarískrar hersetu. Því er þörf á pólitísku a Malaysía, sem er nútímalegt múslimaríki se hefur árangri og stöðugleika, hitti naglann á h stað þess að standa vörð um hið hetjulega star ur ríkisstjórn Malaysíu réttilega hvatt Banda að fara frá Írak. Syem Hamid Albar utanríkis benti af visku sinni á að „öryggisógnin í Írak v staðar á meðan ekki er tekið á hinni djúpstæð fólks í garð hersetunnar með réttlátum og san gjörnum hætti. Það má ekki gerast að litið sé hluta af og þátttakanda í hersetunni“. Enn eru bandarískir hermenn reglulega fel Írak og vegna hins mikla mannfalls í sprengju inu gegn höfuðstöðvum SÞ leggjast Bandarík því að veita SÞ aukin völd hvað þá að hersveit Burt frá Bag Eftir Jeffrey D. Sachs © The Project Syndicate IÐGJÖLD OG AFKOMA Í BÍLATRYGGINGUM Iðgjöld vegna bílatrygginga eruumtalsverður útgjaldaliður í heimilisbókhaldi flestra fjölskyldna á Íslandi. Þessi kostnaðarliður verður ekki umflúinn, eigi fólk á annað borð bíl, enda er ábyrgðartrygging lögboð- in. Bifreiðatryggingarnar skila tryggingafélögunum vaxandi hagn- aði, að því er fram kom í Viðskipta- blaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag. Þannig nam samanlagður hagnaður stóru tryggingafélaganna þriggja af bílatryggingum meira en milljarði króna á fyrri helmingi ársins og jókst um rúmlega 20% frá sama tímabili í fyrra. Í Morgunblaðinu á föstudag kemur fram að frá árinu 1999 hafa iðgjöld lögboðinna bifreiðatrygginga hækk- að um 86,6%, en á sama tíma hækkaði vísitala neyzluverðs um 20,1%. Hækkunin á fyrri hluta tímabilsins, 1999–2001, var þó sýnu meiri en hækkun iðgjaldanna frá ársbyrjun 2002. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir í Morgun- blaðinu á laugardag að á trygginga- félögunum hvíli sú skylda að taka for- sendur iðgjaldaákvarðana sinna reglulega til endurskoðunar, til hækkunar eða lækkunar, í ljósi feng- innar reynslu. Jafnframt geri Fjár- málaeftirlitið kröfu til þess að hvert vátryggingafélag rökstyðji verulegar iðgjaldahækkanir fyrir viðskipta- mönnum eða almenningi, með vísan til fyrri reynslu af iðgjöldum og tjóna- kostnaði, auk almennrar fjárhags- stöðu félaganna. Þetta eigi sérstak- lega við um lögboðnar tryggingar. Hinar miklu hækkanir á árunum 1999–2001 áttu sér stað eftir að stóru tryggingafélögin lækkuðu verð tíma- bundið vegna samkeppni frá FÍB- tryggingu. Tryggingafélögin rök- studdu hækkanirnar þá m.a. með áhrifum nýrra skaðabótalaga, með því að tjón væru of mörg og iðgjöldin stæðu ekki undir viðunandi afkomu af bílatryggingunum. Nú liggur fyrir að tjónum hefur fækkað og afkoman batnað, auk þess sem reikningar tryggingafélaganna sýna að staða þeirra er sterk. Sé tekið mið af rök- stuðningi talsmanna tryggingafélag- anna á því tímabili, er tryggingarnar hækkuðu sem mest í verði, hljóta neytendur nú að vænta þess að ið- gjöldin lækki á ný. Neytendur ganga að sjálfsögðu líka út frá því að á markaðnum fyrir bíla- tryggingar ríki virk samkeppni og að einstök félög, sem ná miklum afkomu- bata, nýti hann til að lækka verðið og ná til sín nýjum viðskiptavinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.