Morgunblaðið - 01.09.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 9
Hallveigarstíg 1, s. 588 4848
Mikið úrval
af flottum yfirhöfnum
Ný sending af peysum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Máttarstólpar
og menningin
Tækifæri, samstarf, skyldur og reynsla
Opinn fundur um samstarf menningar-
og atvinnulífs á föstudaginn
Föstudaginn 5. september kl. 13.30 til 17.00 gangast Listahátíð
í Reykjavík og Höfuðborgarstofa í samvinnu við Samtök
atvinnulífsins fyrir opnum fundi í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, um samstarf menningar- og atvinnulífs.
Aðalfyrirlesari fundarins verður Mikael Strandänger,
framkvæmdastjóri alþjóðlegu samtakanna Arts and Business
(Kultur och Näringsliv) í Svíþjóð.
Dagskrá:
Fundurinn er öllum opinn
þátttakendur eru beðnir um að skrá sig með tölvupósti á
artfest@artfest.is, info@visitreykjavik.is eða í síma 561 2444, á
skrifstofu Listahátíðar í Reykjavík
Valur Valsson, formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík og
Útflutningsráðs, setur fundinn
Mikael Strandänger framkvæmdastjóri Arts & Business í Svíþjóð. Í
fyrirlestri sínum segir hann m.a. stuttlega frá samtökunum Arts and
Business, fjallar um mikilvægi góðs samstarfs á þessu sviði, skattalöggjöf
sem hvetjandi afl fyrir samstarf atvinnu- og menningarlífs, sameiginleg
markmið og hagsmuni. Jafnframt tekur hann dæmi af góðu samstarfi
menningar- og atvinnulífs. (Fyrirlesturinn verður á ensku)
Kaffihlé
Pallborðsumræður: Þátttakendur Mikael Strandänger, Bogi Pálsson,
viðskiptafræðingur, Hulda Dóra Styrmisdóttir, framkvæmdastjóri markaðs-
og kynningarmála, Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs,
Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður og Þórunn Sigurðardóttir,
stjórnandi. Stjórnandi pallborðs, Dagur B. Eggertsson, formaður stjórnar
Höfuðborgarstofu. (Pallborðsumræður fara fram á íslensku)
Fyrirspurnir og umræður
Móttaka fyrir fundargesti í Hafnarhúsinu
Skólafötin
sem krakkarnir vilja
Kringlunni - Smáralind
NÝ SENDING
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988
Lagerhreinsun
1.-13. september
Prjóna- og heklugarn, hlægilegt verð!
Meðal annars Regia sokkagarn
og Peluche pelsgarn.
Fjölbreytt úrval.
Jólaútsaumur 40% afsl.
Heilsársútsaumur 40% afsl.
Strammamyndir 40% afsl.
Ath. takmarkað magn.
Garn og gaman
Suðurhlíðarskóli
Einkaskóli á grunnskólastigi
Neðst í suðurhlíðum Fossvogsins. Suðurhlíð 36, 105 Rvík, sími 568 7870
netfang: sudurhlidarskoli@simnet.is, vefslóð: www.sudurhlidarskoli.is
Tveimur árgöngum kennt saman
Nemendafjöldinn er að jafnaði 60 til 65
nemendur á vetri og er miðað við að
12–16 nemendur séu í hverri stofu og
er tveimur árgöngum kennt saman.
Skólaárinu er skipt í þrjár annir til að
dreifa vinnuálaginu og til að létta
nemendum námið.
Góð kjör – greiðsludreifing
Getum bætt við nokkrum nemendum í
1.–4. bekk. Skólagjaldið er 19.760 kr.
á mánuði. Dæmi um greiðslutilhögun:
Greiðsludreifing til 12 mánaða, 15.643
kr. á mánuði. Gæsla fyrir og eftir skóla
er innifalin í gjaldinu.
„Þessi skóli er bara miklu betri
og rólegri, ekki eins mikið verið að
stríða og lemja og svoleiðis“
Getum bætt við
nokkrum krökkum í
yngstu bekkina
Elstu bekkirnir eru fullsetnir
Sagði strákur í 7. bekk, í könnun 10. bekkjar meðal nemenda í Suðurhlíðarskóla
LÍKNARFÉLAGIÐ Bergmál hef-
ur verið starfandi í rúman áratug,
og hefur haldið orlofsvikur fyrir
krabbameinssjúka og langveikt fólk
tvisvar á ári allt frá árinu 1995.
Blaðamaður og ljósmyndari Morg-
unblaðsins áttu leið um Sólheima í
Grímsnesi á dögunum og hittu þar
fyrir Kolbrúnu Karlsdóttur, for-
mann stjórnar Bergmáls, og fjölda
manns sem dvaldist í góðu yfirlæti
að Sólheimum. Sólheimar leggja fé-
laginu til húsakost til orlofsdval-
arinnar, og fjöldi fólks kemur til
sjálfboðavinnu til að gera orlofsvik-
una mögulega.
„Vikan er búin að vera stórkost-
leg að vanda,“ sagði Kolbrún í sam-
tali við Morgunblaðið. „Hér hafa
dvalið rúmlega fjörtíu manns í
viku, og við höfum nýtt allt pláss
sem við höfum. Hér bjóðum við
fólki upp á margs konar umönnun
og afþreyingu, sem hefur fallið í
góðan jarðveg.“
Kærleikurinn umvefur starfið
Eydís Búadóttir er ein gesta á
orlofsviku Bergmáls að þessu sinni.
Hún segir það einstakt að fá að
vera þess aðnjótandi að fá að fara
með í orlofsferðina. „Það hefur allt
verið yndislegt, og við höfum notið
alls hins besta hér á staðnum.
Veðrið hefur líka leikið við okkur.
Við höfum fengið svæðanudd,
kynnst höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð og staðið til boða
hárgreiðsla og fótsnyrting ásamt
sundi, svo eitthvað sé nefnt. Við er-
um frjáls með að skipuleggja tíma
okkar, og getum valið úr fjölda
góðra atriða. Við höfum farið í
ferðalag um nágrennið, og svo eru
kvöldvökur alla vikuna þar sem
þjóðkunnir listamenn hafa
skemmt,“ segir Eydís.
„Hér hef ég eignast fjölda nýrra
vina, og er Bergmáli afskaplega
þakklát. Það er ótrúleg starfsemi
sem félagið heldur úti, sem margir
vita ekki af. Ég frétti af starfi
Bergmáls í samtökum sem ég er í
vegna sjúkdóms míns. Ég ákvað að
sækja um að fá að fara með í or-
lofsferðina. Ég var svo heppin að fá
inni í ferðinni í sumar. Þetta er
engu líkt að fá að vera hér, og hef
ég byggt mig upp fyrir áframhald-
andi meðferð við sjúkdómnum. Síð-
ast en ekki síst hef ég orðið svo
snortin af þeim ótrúlega kærleik
sem ríkir hér,“ segir Eydís að lok-
um.
Orlofsvika líknarfélagsins Bergmáls að Sólheimum
Umvafin kærleik
og góðvilja
Morgunblaðið/Þorkell
Kolbrún Karlsdóttir greiðir Berg-
ljótu Snorradóttur frá Lindarbæ
fyrir lokaballið í orlofsvikunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Þóranna Eiríksdóttir sjálfboðaliði í
óðaönn við kökuskreytingar. Hún
er einnig umsjónarmaður með einu
húsanna sem Bergmál hefur til um-
ráða. „Hér gilda aðeins ein lög,“
segir hún. „Það eru faðmlög!“
Morgunblaðið/Þorkell
Eydís Búadóttir er ein þeirra sem
notið hafa dvalarinnar í orlofsviku
Bergmáls að Sólheimum.