Morgunblaðið - 01.09.2003, Síða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 11
VÖRUSKIPTIN við útlönd voru
óhagstæð um sex milljarða króna
fyrstu sjö mánuði ársins. Á tíma-
bilinu voru fluttar út vörur fyrir
107,6 milljarða en inn fyrir 113,5
milljarða fob. Á sama tímabili í fyrra
voru vöruskiptin hagstæð um 8,7
milljarða króna á föstu gengi. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var því 14,7 millj-
örðum lakari á fyrstu sjö mánuðum
ársins en á sama tímabili í fyrra.
Í júlímánuði voru fluttar út vörur
fyrir 14,9 milljarða króna og inn fyrir
20,0 milljarða króna fob. Vöruskiptin
í júlí voru því óhagstæð um 5,1 millj-
arð króna en í júlí í fyrra voru þau
óhagstæð um tæpan milljarð.
Verðmæti sjávarafurða dregst
saman um 8%
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
sjö mánuði ársins var 7,0 milljörðum
eða 6% minna á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Sjávarafurðir
voru 62% af öllum útflutningi og var
verðmæti þeirra 8% minna en á sama
tíma árið áður, að því er segir í frétt
frá Hagstofu Íslands. Mestur sam-
dráttur varð í verðmæti fiskimjöls,
saltfisks og frystra flaka en á móti
kom að aukning varð í verðmæti út-
flutts lýsis. Verðmæti útfluttra iðn-
aðarvara var 2% minna á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Útflutn-
ingur á áli dróst saman en á móti
kom aukning á útfluttu kísiljárni.
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu
sjö mánuði ársins var 7,7 milljörðum
eða 7% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Aukning varð í inn-
flutningi á fjárfestingarvörum, fólks-
bílum, flutningatækjum til atvinnu-
rekstrar og neysluvörum en á móti
kom að kaup á flugvélum, reiknuð á
föstu gengi, urðu 4,3 milljörðum
minni í ár en í fyrra.
Mesti halli ársins
Samkvæmt upplýsingum frá
Greiningu Íslandsbanka hefur ekki
verið jafnmikill halli á vöruskiptum í
neinum mánuði ársins eins og júlí-
mánuði. Greining Íslandsbanka
væntir þess að á næstu mánuðum og
misserum verði áframhaldandi halli
á vöruskiptajöfnuði og að þegar nær
dregur hápunkti stóriðjufram-
kvæmda muni hann aukast enn frek-
ar. Halli síðustu mánaða sé því ein-
ungis upphafið að þróun sem mun
spanna tímabilið fram til ársins 2007
eða þegar stóriðjuframkvæmdum
lýkur.
Undir þetta tekur Landsbankinn í
mánaðarriti sínu en þar kemur fram
að nokkur vöxtur sé hlaupinn í einka-
neyslu og bendir á tæplega 60%
meiri bílainnflutning á fyrstu sex
mánuðum ársins. Spáir bankinn um
15 milljarða viðskiptahalla á árinu.
Greiningardeild Kaupþings Bún-
aðarbanka tekur einnig í svipaðan
streng en í hálf fimm fréttum kemur
fram að neysla almennings hafi vaxið
hratt að undanförnu og hefur inn-
flutningur hálfvaranlegra neyslu-
vara aukist um 12% og varanlegra
um 20%. Athygli vekur að innflutn-
ingur fjárfestingavara hefur aukist
um 22% sem bendir til að fjárfesting
fari vaxandi og að áhrif stóriðjufram-
kvæmda séu farin að segja til sín í
vöruskiptum, að því er segir í hálf-
fimm fréttum.
Vöruskiptin óhagstæð um 6
milljarða fyrstu 7 mánuðina
Morgunblaðið/Arnaldur
Í júlí voru vöurskiptin við útlönd óhagstæð um 5,1 milljarð og er það mesti
halli á vöruskiptum í einum mánuði það sem af er ári.
TAP varð á rekstri Kaldbaks hf. á
fyrri hluta ársins, sem nemur 124
milljónum króna eftir skatta. Á
sama tímabili í fyrra var hagn-
aðurinn 896 milljónir króna. Inn-
leystur hagnaður nam 332 m.kr.,
samanborið við 58 m.kr. á sama
tímabili í fyrra, en óinnleyst tap af
verðbréfum var 498 milljónir, bor-
ið saman við óinnleystan hagnað
upp á 668 milljónir í fyrra.
Eigið fé var 6.029 m.kr. um mitt
ár, borið saman við 5.191 milljón
um áramót. Heildareignir voru
8.558 milljónir og var eiginfjár-
hlutfall því 70%, samanborið við
56% um áramót, þegar heildar-
eignir voru 9.293 milljónir króna.
Lækkun á bréfum
Í tilkynningu frá félaginu segir:
„Skýring á verri heildarafkomu fé-
lagsins nú má aðallega rekja til
lækkunar á gengi hlutabréfa Sam-
herja hf. en vísitala sjávarútvegs-
fyrirtækja hefur lækkað um rúm-
lega 7% frá áramótum. Á
tímabilinu seldi Kaldbakur hf.
eignarhluti sína í Íslenskum
aðalverktökum hf., Bústólpa ehf.,
Akva ehf., Fjárstoð ehf. og Nýju
kaffibrennslunni ehf. Á sama tíma-
bili keypti félagið eignarhluti í
Tryggingamiðstöðinni hf. og Sjöfn
hf.“
!""#
$%
!
"
!#
$
%
%
&
! !
%
$%
&'$()*&
'+,,-*&
(.
Milljarðs-
sveifla hjá
Kaldbaki
HAGNAÐUR af rekstri Hrað-
frystihússins-Gunnvarar hf. nam
304 milljónum króna á fyrri árs-
helmingi. Á sama tímabili árið áður
var hagnaður félagsins 474 millj-
ónir króna og nemur samdráttur-
inn 36% á milli ára. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði dróst
saman um 51% og nam 264 millj-
ónum í ár. Framlegð lækkaði úr
30,5% í 18,9% á milli ára og hefur
styrking krónunnar þar veruleg
áhrif.
Tekjur félagsins lækkuðu um
21% frá sama tímabili í fyrra en
rekstrargjöld um 8%. Skýring fé-
lagsins á lækkun tekna er mun
sterkari króna nú en í fyrra og
lækkandi afurðaverð sem og minni
afli frystiskips. Aukning fjármuna-
liða nam hins vegar 32%. Þá nam
söluhagnaður af hlutabréfum í SH
233 milljónum króna.
Um horfur í rekstri segir í til-
kynningu að þróun gengis íslensku
krónunnar muni hafa afgerandi
áhrif á rekstrarniðurstöðu félags-
ins á árinu en sé miðað við núver-
andi aðstæður þá verði félagið gert
upp með nokkrum hagnaði í ár.
!""#
-
!
'
() !
*#
"
+
&
+&
#$
%
%&
$
!
"
!#
')
!
&
&$ ,
&$,
+ %
+
$%$
%
$ !
$,
&$&,
&'$()*&
'+,,-*&
(.
Hagnaður
Gunnvarar
dregst
saman
HAGNAÐUR Sparisjóðs Norðlend-
inga var rúmlega 31 milljón króna á
fyrstu sex mánuðum ársins saman-
borið við ríflega 25 milljóna króna
hagnað á sama tímabili í fyrra.
Vaxtatekjur námu 211,9 milljónum
króna en vaxtagjöld 116,2 milljón-
um. Hreinar vaxtatekjur voru því
95,7 milljónir króna samanborið við
85,4 milljónir á sama tímabili í fyrra
og er það hækkun um 12%. Arðsemi
eigin fjár var 15,2% fyrstu sex mán-
uði ársins.
Aðrar rekstrartekjur námu 58,9
milljónum króna en þær voru 49,1
milljón króna á sama tímabili 2002.
Framlag til afskriftareiknings út-
lána nam 19,9 milljónum króna,
samanborðið við 20,3 milljónir árið
áður.
Eigið fé Sparisjóðs Norðlendinga
30. júní 2003 nam 441,6 milljónum
króna en var um áramót 410,4 millj-
ónir króna. CAD hlutfallið var
14,4% miðað við 30. júní. Skuldir og
eigið fé samtals námu 4.237 millj-
ónum króna og er það hækkun um
3,3%. Innlán í Sparisjóð Norðlend-
inga námu ríflega 3.107 milljónum
króna þann 30. júní, sem er aukning
um 13,4% frá áramótum. Útlán
námu 2.974 milljónum króna og
hækkuðu um 5,6% frá áramótum.
Rekstrargjöld námu 95,9 milljónum
króna, samanborið við 81,8 milljónir
króna á sama tímabili í fyrra. Kostn-
aður sem hlutfall af hreinum rekstr-
artekjum var 62% á fyrstu sex mán-
uðum ársins.
Sex mánaða uppgjör Sparisjóðs Norðlendinga
31 milljón króna í hagnað
HAGNAÐUR Hlutabréfamarkaðar-
ins hf. (Hmarks) á fyrri helmingi
ársins nam 21 m.kr. eftir skatta.
Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var
42,3 milljónir.
Hreinar rekstrartekjur voru 10,4
m.kr., rekstrargjöld voru 2,9 m.kr.
og innleyst tap var 13,3 m.kr. Óinn-
leystur hagnaður af verðbréfaeign
var 33,9 m.kr.
Eigið fé í lok tímabilsins var 316
m.kr. og innra virði hlutabréfa fé-
lagsins var 2,52. Heildareignir
Hmarks í lok júní námu 319 m.kr.
Þar af voru eignir í erlendum hluta-
bréfum 296 m.kr., eignir í innlendum
hlutabréfum 12 m.kr. og handbært
fé 10 m.kr.
Hagnaður
hjá Hmark
HAGNAÐUR varð af rekstri Guð-
mundar Runólfssonar hf. á fyrri árs-
helmingi sem nam tæpum 39 millj-
ónum króna. Á sama tímabili í fyrra
varð 171 milljónar króna hagnaður
af rekstrinum. Samdráttur hagnaðar
frá fyrra ári nemur því 77%.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
munaliði (EBITDA) var 80 milljónir
króna, eða um 21% tekna félagsins,
og dróst hann saman um 40% frá
fyrra ári.
Rekstrartekjur félagsins lækkuðu
um 24% frá sama tímabili í fyrra og
námu 382 milljónum króna á fyrstu
sex mánuðum ársins í ár. Í tilkynn-
ingu er tekjulækkunin rakin til
sterkrar stöðu íslensku krónunnar
og lægra afurðaverðs. Rekstrargjöld
félagsins lækkuðu um 18% á milli ára
en fjármagnsliðir drógust saman um
71%.
Ytri skilyrði hafa verið fremur
óhagstæð í rekstri Guðmundar Run-
ólfssonar hf., að því er segir í til-
kynningu. Sterk staða krónunnar og
erfiðir markaðir fyrir afurðir félags-
ins hafi einkennt fyrstu sex mánuði
ársins. Um framtíðarhorfur segir að
rekstur félagsins hafi verið sveiflu-
kenndur eftir ársfjórðungum og 3.
ársfjórðungur hafi að öllu jöfnu verið
hvað lakastur. Hins vegar hafi sá 4.
jafnan komið best út. Telja forsvars-
menn félagsins að þetta ár verði eng-
in undantekning þar á. Jákvæð þró-
un hafi átt sér stað varðandi gengi
krónunnar og eftirspurn eftir afurð-
um félagsins hafi verið að aukast.
!""#
-
%
&
.
!
'
()
!
"
&
+
+
!
%
!
"-
!#
')
!
$,
%$ ,
%
+
%
+
&%&
%&
%
$,
$,
&'$()*&
'+,,-*&
' (
(.
' (
Hagnaður
dregst
saman hjá
Guðmundi
Runólfssyni
STEFÁN Bjarnason hefur ákveðið
að láta af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Thorarensen-Lyfja,
dótturfélags Lífs, frá og með deg-
inum í dag, mánudag. Stefán mun
eftir sem áður sitja í stjórn Thor-
arensen Lyfja og Lífs.
Við starfi framkvæmdastjóra
Thorarensen Lyfja tekur Thomas
Möller sem verið hefur aðstoðar-
framkvæmdarstjóri Lífs hf.
Líf var rekið með tæplega 15
milljóna króna hagnaði eftir skatta
á fyrstu sex mánuðum ársins, sam-
anborið við 177 milljóna hagnað á
sama tímabili í fyrra. Tap varð þó á
rekstri á öðrum ársfjórðungi, sem
nemur 27 milljónum, en gengistap
nam þá 110 milljónum króna. Á öðr-
um ársfjórðungi í fyrra var hagn-
aður upp á 97 milljónir króna.
Í tilkynningu frá félaginu segir:
„Þrátt fyrir að afkoma Lífs hf. af
reglulegri starfsemi fari batnandi
er niðurstaða sex mánaða uppgjörs-
ins enn langt frá því að vera við-
unandi að mati stjórnenda félags-
ins. Hagræðingaraðgerðir hafa
þegar byrjað að skila sér í betri
rekstri á öðrum ársfjórðungi.
Reiknað er með að hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) á 3. og 4. ársfjórðungi
verði betri en á öðrum ársfjórð-
ungi.“
Rekstrartekjur félagsins á fyrri
hluta ársins námu 4.135 milljónum
króna, en 3.341 milljón í fyrra.
Rekstrargjöld voru 3.994 milljónir,
en 3.218 milljónir á fyrra ári. Hagn-
aður fyrir skatta var 37 m.kr. á
fyrri helmingi ársins, en 211 millj-
ónir á fyrri hluta ársins 2002.
Eignir félagsins 30. júní námu
5.377 milljónum króna, en voru
5.138 milljónir um síðustu áramót.
Skuldir og skuldbindingar voru
4.309 m.kr. nú, en 3.924 milljónir
um áramót. Veltufé frá rekstri var
129 milljónir á fyrri hluta ársins en
200 milljónir á fyrri hluta ársins
2002. Veltufjárhlutfall var 1,64 á
tímabilinu janúar–júní 2003 en 1,22
á sama tímabili 2002.
Líf með 15 milljónir í hagnað
Thomas Möller nýr framkvæmda-
stjóri Thorarensen-Lyfja
♦ ♦ ♦