Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 12
VESTURLAND 12 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is GSM VERSLUN • VERKSTÆ‹I Radíófljónusta Sigga Har›ar Handfrjáls búna›ur Miki› úrval Vertu me› bá›ar hendur á st‡ri w w w .d es ig n. is © 20 03 ÞAKRENNUR Frábært verð! B Y G G I N G AV Ö R U R www.merkur.is 594 6000 Bæjarflöt 4, 112 R. 20 MANNA hópur nemenda frá Háskólanum í Guelph í Kanada kom nýverið í heimsókn að Hvanneyri. Hópurinn var í náms- ferð sem var skipulögð í sam- vinnu Háskóla Íslands, LBH, Há- skólans á Akureyri og Hólaskóla sem liður í nemendaskiptum skól- anna. Nemendur dvöldu í fjóra daga. Fóru í vettvangsferðir und- ir leiðsögn þeirra Önnu Guðrúnar Þórhallsdóttur, Björns Þorsteins- sonar og Ríkharðs Brynjólfs- sonar. Hlýddu á fyrirlestur um erfðafræði íslensku sauðkind- arinnar hjá Emmu Eyþórsdóttur. Auður Sveinsdóttir og Hermann G. Gunnlaugsson fræddu nem- endur um menningarlandslag á Íslandi. Skoðuð var uppgræðslan undir Hafnarfjalli, svo eitthvað sé upptalið úr þessari 4 daga vel heppnuðu námskeiðsdvöl við Landbúnaðarháskólann á Hvann- eyri. Morgunblaðið/Pétur DavíðssonNemendur í vettvangsferð. Háskólanemar frá Guelph í heimsókn á Hvanneyri Skorradalur FORELDRAFÉLAG leikskólans Klettaborg hélt sína árlegu grill- veislu nú í ágústlok. Grillaðar pylsur og safi voru á boðstólum og Trúðurinn Tralli kom í heimsókn. Mæting var mjög góð enda grillveislan fyrir öll börnin á leik- skólanum ásamt foreldrum og systkinum auk þess sem þau börn sem í vor útskrifuðust af leikskól- anum voru sérstaklega boðin vel- komin. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Tralli trúður í barnahópnum. Pylsurnar standa alltaf fyrir sínu. Grillveisla á Klettaborg Borgarnes GUÐSTEINN Einarsson kaup- félagsstjóri KB afhenti á dögunum Borgarbyggð lyklana að húsnæði Byggingarvörudeildar KB í gamla miðbænum í Borgarnesi. Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri veitti lykl- unum viðtöku, að bæjarfulltrúum viðstöddum. Byggingarvörudeild KB flutti í sumar í nýtt húsnæði að Egilsholti við Vesturlandsveg. Kaupfélagið hefur þar með flutt alla starfsemi sína og eignaumsvif úr gamla mið- bænum. Síðustu tvo áratugi var Byggingavörudeild KB þarna til húsa en áður var þar Mjólkur- samlag Borgfirðinga. Mat Guð- steins kaupfélagsstjóra er að húsið sé ónýtt og best fari á að rífa það. Ekki liggur fyrir hvort eða hvernig Borgarbyggð hyggst nýta hús- næðið þótt ýmsar hugmyndir hafi verið reifaðar. Á vegum Borgar- byggðar er nú unnið að skipulagi varðandi svæðið frá Egilsgötu að Brákarsundi. Morgunblaðið/Guðrðún Vala Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri afhendir Páli S. Brynjarssyni bæjar- stjóra lykilinn að gamla mjólkursamlagshúsinu sem síðustu tuttugu árin hýsti KB-byggingarvörur. Afhenti lyklana að húsnæði KB Borgarnes Í SUMAR hefur verið unnið við byggingu 13 íbúða í Grundarfirði en ef miðað er við sl haust eru þær orðnar 17 talsins á ýmsu byggingarstigi. Lætur nærri að um 5% aukningu á íbúðafjölda sé að ræða. Byrjað er að slá upp fyrir útveggjum 7 íbúða fyrir aldraðra í Ölkeldudal ofan við Dvalarheimilið Fellaskjól, en það verk annast Tré- smiðja Guðmundar Friðrikssonar í Grundarfirði. Fyrsta íbúðin á að afhendast um næstu áramót. Öll- um þessum íbúðum hefur verið út- hlutað. Trésmiðjan Gráborg reisti 4 íbúða raðhús við Fagurhól. Eru út- veggir þeirra úr forsteyptum ein- ingum frá Loftorku í Borgarnesi. Fyrstu íbúarnir fluttir inn í eina þeirra fyrir nokkru en unnið er við frágang á hinum þremur. Eitt einbýlishús hefur verið reist frá því í vor. Það stendur við Hellna- fell á svokölluðu Hjaltalínsholti og er það sömuleiðis byggt úr út- veggjaeiningum frá Loftorku. Fluttu eigendur þess inn í það fyr- ir skömmu. Annað einbýlishús er verið að reisa örlítið ofar á holtinu er þar um að ræða kanadískt ein- ingahús. Þá eru fjórar íbúðir fok- heldar frá því sl. haust við ut- anverða Grundargötu. Bygging fjölbrautaskóla undirbúin Undirbúningur er hafinn að byggingu nýs Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem hefja mun starf- semi haustið 2004 og hefur Sig- urður Björgúlfsson hjá VA arki- tektum verið ráðinn til að annast hönnun skólans. Samningur um hönnun skólans var gerður 20. júní sl. og gert ráð fyrir að uppsteypa skólabyggingar fari fram á þessu ári. Þrettán íbúðir byggðar á einu sumri Grundarfjörður Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson Kranar við vinnu á tveimur stöðum. Nær á myndinni er verið að reisa ein- ingahús frá Kanada og fjær má sjá krana við steypumót þar sem rísa munu íbúðir aldraðra. Dvalarheimilið Fellaskjól er húsnæðið með gula þakinu. ÞÆR mæðgur Birna Þor- steinsdóttir og Sigríður Jóns- dóttir gáfu Grunnskólanum í Borgarnesi skólasöng og af- hentu formlega við setningu hans nú í vikunni. Hilmar Már Arason skólastjóri tók við ,,gjöfinni“ og nokkrar stúlkur sungu lagið við undirleik Birnu. Lagið samdi Birna og Sigríður textann sem endar á ,,Hér í Borgarbyggð þar er viskan tryggð fyrir börnin okkar allra.“ Morgunblaðið/Guðrún Vala Birna Þorsteinsdóttir, Hilmar Már Arason og Sigríður Jóns- dóttir. Viskan tryggð í Borgarbyggð Borgarnes Danssýning Sporsins var aðaldag- skrárliður menningardagsins, en á annað hundrað manns sótti hátíðina. Mesta hrifningu áhorfenda vakti Vefarinn, sem var dansaður á Íslandi um aldamótin 1900, en þar líkja dansararnir eftir því þegar klæði er ofið í vefstól. Einnig dansaði hópur- inn í borginni Sopron í Ungverja- landi og á Rósahátíðinni í Baden rétt við Vín, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Með hópnum í förinni voru þeir Sigurður Rúnar Jónsson og Hilmar Hjartarson sem léku undir dönsun- um á fiðlu og harmoniku, auk þess sem Sigurður Rúnar (Diddi fiðla) sýndi og sagði frá gömlum íslenskum hljóðfærum á menningardeginum í Vín. Danshópurinn Sporið starfar mik- ið á Borgarfjarðarsvæðinu, í Reykja- vík og á Akranesi. Hópurinn hefur æft þjóðdansa sl. átta ár undir leið- sögn Helgu Þórarinsdóttur og sýnir að jafnaði tuttugu sinnum á ári. DANSHÓPURINN Sporið er ný- kominn úr ferð til Austurríkis þar sem hann sýndi þjóðdansa á íslensk- um menningardegi sem er haldinn í Majorats-höllinni í miðborg Vínar. Dönsuðu á íslenskum menningardegi í Vín Borgarfjörður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.