Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 15
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 15 Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband F JÖLBREYTT tónlistar- dagskrá verður í Tí- brárröð Salarins á vor- misseri. 10. janúar verða söngtónleikar, þar sem fram koma Elsa Waage, alt, og Jónas Ingi- mundarson, píanó. Á efnisskrá verða ítalskir söngv- ar eftir Ottorino Respighi, Frauen- liebe und Leben eftir Schumann, Rückert-ljóðin eftir Mahler, og sönglög eftir ítalska höfunda. Vín, Vín, þú aðeins ein … er yf- irskrift Vínartónleika 17. janúar. Fram koma Hanna Dóra Sturlu- dóttir og salonhljómsveit skipuð Sigrúnu Eðvaldsdóttur konsert- meistara, Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur píanó, Sigurði Ingva Snorrasyni klarinett o.fl. 20. janúar leika Rúnar Óskarsson klarínetta, Þórunn Ósk Marinós- dóttir víóla og Árni Heimir Ingólfs- son píanó. Efnisskrá: Tríó í Es-dúr KV 498 eftir Mozart, 4 verk op. 83 eftir Bruch, Märchenerzälhlungen op. 132 eftir Schumann, Fantasia Breve eftir Olav Berg, The North Shore eftir Gavin Bryars og Klein- es Konzert eftir Alfred Uhl. Ljóðatónleikar verða haldnir 24. janúar. Helga Rós Indriðadóttir, sópran, syngur við undirleik El- isabethar Föll, píanóleikara. Á efn- isskrá verða ljóðasöngvar eftir Schumann, Grieg, Sibelius og ís- lensk sönglög. Helga Rós Indriða- dóttir heyrist þarna í fyrsta sinn í Tíbrá. Hún hefur verið í fastaliði óperunnar í Stuttgart frá árinu 1999. 28. janúar er röðin komin að Ómblæ – tónsmíðum Guðna Franz- sonar – í flutningi hans og val- inkunnra einleikara og dansara, með fulltingi nýjustu hljómtækja, ljósa og myndtækja Salarins. Febrúar 3. febrúar stíga á svið Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Hanna Dóra Sturludóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó. Á efn- isskrá eru Sónata fyrir fiðlu og pí- anó í g-moll, Djöflatrillusónatan eftir Tartini/Kreisler, Vocalisa eft- ir Hjálmar H. Ragnarsson fyrir fiðlu, söngrödd og píanó, og són- ötur fyrir fiðlu og píanó eftir Jan- ácek og Schumann. 8. febrúar flytur KaSa-hópurinn lítt þekkt kammerverk eftir austurríska tónskáldið Johann Nepomuk Hummel. Þau eru Són- ata op. 50 í D-dúr fyrir flautu og píanó; Tríó op. 35 í G-dúr fyrir fiðlu, selló og píanó; og Adagio, Variations and Rondo (Schöne Minka) op. 78 fyrir flautu, selló og píanó. Kammerhóp Salarins, KaSa, skipa Sif Tulinius, fiðla, Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla, Helga Þór- arinsdóttir, víóla, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló, Áshildur Haraldsdóttir flauta, Miklós Dalmay píanó, Peter Máté píanó og Nína Margrét Grímsdóttir pí- anó en Nína Margrét og Áshildur eru jafnframt listrænir stjórn- endur hópsins. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, Einar Jóhannesson klarinett og Valgerður Andrésdóttir píanó koma fram 18. febrúar. Efnisskrá: Verk eftir Lachner, Jón Ásgeirs- son, Atla Heimi Sveinsson, Mozart, Schubert, Seiber og McCabe. 25. febrúar verða tónleikar með tveimur píanóum. Guðríður St. Sigurðardóttir og Kristinn Örn Kristinsson leika. Efnisskrá: Són- ata fyrir tvö píanó í D-dúr eftir Mozart; Tilbrigði við stef Haydns eftir Brahms; og Svíta nr. 2 fyrir tvö píanó eftir Rachmaninoff. Mars 2. mars verða tónleikar undir yf- irskriftinni Frá Bach til Boulez. Kolbeinn Bjarnason, flauta, og Geoffrey Douglas Madge, píanó, leika. Á efnisskrá verða Sónatína fyrir flautu og píanó eftir Pierre Boulez frá 1946, tónlist eftir J.S. Bach og verk eftir klassísk tón- skáld og tuttugustu aldar höfunda, svo sem Skalkottas, Sorabji o.fl. „Í tuttugu og tvö ár hef ég leitað án árangurs að píanóleikara sem hefði áhuga á að flytja með mér Sónatínu Boulez frá 1946. Í upp- tökuhléi í Salnum fyrir rúmu ári spurði Geoffrey Madge mig óvænt hvort ég hefði spilað þetta verk. Þar með var hugmyndin að tón- leikum kvöldsins fædd,“ segir Kol- beinn. 10. mars verða söngtónleikar. Þar syngja Hulda Björk Garðars- dóttir, sópran, Sigríður Aðalsteins- dóttir, mezzósópran, Garðar Thór Cortes, tenór, og Davíð Ólafsson, bassi. Daníel Þorsteinsson og Val- gerður Andrésdóttir leika með á píanó. Fluttir verða Kvartettar eft- ir Johannes Brahms; Liebeslieder- Walzer op. 52 og op. 65 og Zigeun- erlieder op. 103 og op. 112. 14. mars kynnir KaSa-hópurinn ungt og efnilegt tónlistarfólk í sam- starfi við tónlistarskólana. Frum- flutt verður verk eftir Huga Guð- mundsson, hljómsveitin Búdrýgindi og fiðlunemandinn Páll Palomares frá Tónlistarskóla Kópavogs koma fram ásamt KaSa-hópnum. Þarna fléttast stílbrigði og tónlistarstefnur meira saman en áð- ur þannig að hugtakið tónlist er best skilgreint sem víðtækt sam- heiti tjáningar í tónum. Efnisskráin býður upp á samruna ýmissa stíl- brigða í tónlist. Nemendur tónlist- arskólanna eru boðnir velkomnir með ókeypis aðgöngumiðum. 20. mars er dagskráin Kventett – konur á 20. öldinni. Karen Stur- laugsdóttir, trompet, Ásdís Þórð- ardóttir, trompet, Lilja Valdimars- dóttir, horn, Vilborg Jónsdóttir, básúna, og Þórhildur Guðmunds- dóttir, túba, skipa fyrsta íslenska kvenmálmblásarakvintettinn. Á efnisskrá er tónlist fyrir málmblásarakvintett, samin á 20. öld, með léttu yfirbragði. 27. mars verður dagskráin Ástir skáldsins. Snorri Wium, tenór, syngur við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Efnisskrá: Ástar- söngvar, og Dichterliebe Schu- manns op. 48. 28. mars er röðin komin að Mikl- ós Dalmay píanóleikara að flytja ungverska tónlist. Chapelle de G. Tell, Les cloches de Genéve og Val- lée d’Obermann eftir Franz Liszt; Suite op. 14 og Allegro barbaro eft- ir Béla Bartók; og Games I og II (Játékok) eftir György Kurtág. 29. mars koma fram Barnabás Kelemen, fiðla, og Gergely Bog- ányi, píanó. Efnisskrá: Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Ravel, Sólósón- ata fyrir fiðlu eftir Bartók, D-dúr sónatínan eftir Schubert og d-moll sónatan eftir Brahms. Barnabás Kelemen og Gergely Bogányi eru ungir ungverskir tónlistarmenn í fremstu röð. Þeir hafa báðir þegar glæstan feril að baki og koma við í Salnum á leið sinni til tónleikahalds í Carnegie Hall í New York. Kelemen vann fyrir stuttu alþjóð- legu fiðlukeppnina í Indianapolis og hluti verðlaunanna eru tónleikar í Carnegie Hall. Apríl 1. apríl leikur Tvíhliða tríóið. Það skipa Guðrún S. Birgisdóttir bar- okkflauta/flauta, Sigurður Hall- dórsson, barokkselló/selló, og Rich- ard Simm, sembal/píanó. Á efnisskrá eru Sónata í C-dúr fyrir barokkflautu, sembal og barokk- selló eftir J. S. Bach; Sónata í B- dúr KV 15 fyrir sembal, flautu og selló eftir Mozart; Tríó í g-moll eft- ir Weber; Vox Balenae fyrir raf- flautu, rafselló og sérstaklega und- irbúið píanó eftir G. Crumb. 14. apríl stíga á svið Helga Þórarinsdóttir víóla, Alina Dubik mezzósópran og Ann Taffel píanó. Efnisskrá: Fimm sígaunalög eftir Shostakovitsj, nýtt verk fyrir víólu og píanó eftir Þórð Magnússon og sönglög fyrir mezzósópran, víólu og píanó eftir Brahms, Borodin o.fl. KaSa-hópurinn flytur á síðustu KaSa-tónleikum starfsársins, 18. apríl, þrjá konserta fyrir píanó og strengi KV 106 sem að öllum lík- indum heyrast hér í fyrsta sinn. Þetta eru upprunalega píanósón- ötur eftir Johann Christian Bach eða Lundúna-Bach sem var hinum unga Mozart mikil fyrirmynd. Talið er að Mozart hafi umskrifað són- öturnar sextán ára að aldri, sér til þjálfunar í tónsmíðum. Mozart flutti þessa mini-píanókonserta margoft opinberlega við ýmis tæki- færi. 25. apríl leikur Igor Kamenz á píanó. Efnisskrá: Sónata í D-dúr og Sónata í C-dúr, „Waldstein- sónatan“, eftir Beethoven, Prelúdí- ur eftir Sckrjabin og Sónatan í h- moll eftir Liszt. Igor Kamenz er fæddur í Síberíu 1965 og hóf mjög ungur tónlistarnám, ekki aðeins í píanóleik, heldur einnig í fiðluleik og hljómsveitarstjórn, og vakti strax athygli. Hann var barnungur orðinn gestastjórnandi hjá Út- varpshljómsveitinni í Moskvu og í Bolshoi. Þrettán ára stjórnaði hann verkum eftir Shostakovitsj í Kreml fyrir æðstu ráðamenn ríkisins, meðal annars Leonid Brezhnev. Ár- ið 1978 flutti Kamenz vestur yfir, settist að í Þýskalandi og hélt áfram ströngu alhliða tónlistar- námi. Hann á nú að baki fádæma glæsilegan feril, hefur unnið hverja keppnina á fætur annarri, bæði sem píanisti og hljómsveitarstjóri, haldið tónleika og stjórnað stórum hljómsveitum í öllum helstu tónlist- arhúsum veraldar – og nú í Saln- um. „Fínustu blæbrigði og tilfinning og ótrúleg tækni,“ sagði Frank- furter Allgemeine Zeitung um Kamenz og Süddeutsche Zeitung sagði: „Píanistískt undur, meðal ungra píanóleikara skipar hann sér- stakan sess, afburðalistamaður.“ Maí 2. maí kemur fram Caterina Demetz, fiðla og píanó, ásamt Jónasi Ingimundarsyni, píanó. Efnisskrá: Fiðlusónata í D-dúr eftir Schubert, Sólósónata Bachs nr. 2 og Sónata op. 3, nr. 6 eftir Pag- anini, Fantasíulög op. 12 eftir Schu- mann, Webern-tilbrigði op. 27, Scherzo nr. 3 eftir Chopin og Pre- lúdíur eftir Rachmaninoff. Þrátt fyrir ungan aldur, fædd 1989, hefur Caterina Demetz vakið verulega athygli í heimalandi sínu, Ítalíu, og víðar. Hún hefur unnið til margvíslegra verðlauna í alþjóð- legum keppnum bæði fyrir píanó- leik og fiðluleik. Sex ára gömul vann hún fyrstu verðlaun í al- þjóðlegri keppni í píanóleik í Aþenu, 2001 fyrstu verðlaun í Sal- oniki á Grikklandi og 2002 fyrstu verðlaun í Alexandríu í Egypta- landi. Caterina leikur jöfnum hönd- um á píanó og fiðlu og stundar einnig nám í tónsmíðum við Gius- eppe Verdi-tónlistarháskólann í Mílanó þar sem hún hefur hlotið allar æðstu viðurkenningar sem skólinn veitir. 11. maí syngja Guð- rún Jóhanna Ólafs- dóttir mezzósópran og Eyjólfur Eyjólfsson tenór við undirleik Jónasar Ingimund- arsonar. Efnisskrá: Einsöngslög og dúettar eftir íslenska og erlenda höfunda. Margir og fjölbreyttir tónleikar verða haldnir á vormisseri í Tíbrárröð Salarins í Kópavogi Miklós Dalmay Hanna Dóra Sturludóttir Kolbeinn Bjarnason Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Jónas Ingimundarson KaSa-hópurinn verður áberandi í Salnum í vetur. Fjórtán ára fiðlu- og píanóleikari meðal gesta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.