Morgunblaðið - 01.09.2003, Side 20

Morgunblaðið - 01.09.2003, Side 20
HESTAR 20 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI A-flokkur atvinnumenn 1. Börkur frá Stóra-Hofi, Dreyra, kn.: Logi Laxdal, 8,45 2. Saga frá Lynghaga, Fáki, kn.: Hulda Gústafsdóttir, 8,49 3. Þytur frá Kálfhól, Sleipni, kn.: Sigríður Pjetursdóttir, 8,59 4. Glampi frá Efri-Rauðalæk, Fáki, kn.: Hinrik Bragason, 8,48 5. Spóla frá Bjargshóli, Þyt, kn.: Sigurður V. Matthías- son, 8,34 6. Aríel frá Höskuldsstöðum, Neista, kn.: Logi Laxdal/ Þórður Þorgeirsson, 8,21 7. Ydda frá Kirkjulandi. Gusti, kn.: Jakob Sigurðsson, 8,42 8. Skvetta frá Krækishólum, Fáki, kn.: Sigurbjörn Bárð- arson, 8,39 B-flokkur atvinnumenn 1. Sæli frá Skálakoti, Mána, kn.: Jakob Sigurðsson, 8,77 2. Bruni frá Hafsteinsstöðum, Mána, kn.: Sigurður Sigurð- arson, 8,79 3. Kári frá Búlandi, Fáki, kn.:Sigurbjörn Bárðarson Fákur atvinnumenn, 8,58 4. Sólon frá Stóra-Hofi, And- vara, kn.: Þórður Þorgeirs- son, 8,50 5. Vonandi frá Dallandi, Herði, kn.: Halldór Guðjónsson, 8,40 6. Hrólfur frá Hrólfsstöðum, Sörla, kn.: Ragnar Ágústs- son, 8,41 7. Sprettur frá Glóru, Sleipni, kn.: Hugrún Jóhannsdóttir, 8,35 8. Trostan frá Sandhólaferju, Herði, kn.: Friðdóra B. Frið- riksdóttir, 8,40 A-flokkur áhugamenn 1. Skafl frá Norður-Hvammi, Herði, kn.: Jón Styrmisson 2. Birtingur frá Selá, Gusti, kn.: Halldór Svansson 3. Kafteinn frá Rauðuskriðu, Geysi, kn.: Mailinn Solér 4. Nótt frá Efri-Gegnishólum, Fáki, kn.: Valdimar Berg- stað 5. Hreimur frá Ölversstöðum IV, Herði, kn.: Hlöðver Hlöðversson 6. Gosi frá Ási, Sörla, kn.: Unn- ur O. Ingvarsdóttir 7. Fröken Sara frá Hvít- árvöllum, Sörla, Viggó Sig- urðsson 8. Adrían frá Stafholts- veggjum, Sörla, kn.: Perla Dögg Þórðardóttir B-flokkur áhugamenn 1. Þytur frá Krithóli, Herði, kn.: Jón Styrmisson, 8,26 2. Töfri frá Selfossi, Sleipni, kn.: Ingimar Baldvinsson, 8,33 3. Hrafn frá Úlfsstöðum, Blæ, kn.: Sigurður Sveinbjörns- son, 8,24 4. Hrafnar frá Álfhólum, Fáki, kn.: Rósa Valdimarsdóttir, 8,23 5. Kasper frá Hólkoti, Skaga- firði, Sörla, kn.: Theódór Ómarsson, 8,23 6. Þorri frá Eyri, Faxa, kn.: Katrín Ólafsdóttir, 8,08 7. Ás frá Feti, Sörla, kn.: Einar Einarsson, 8,09 8. Sörvi frá Tölthestum, Ljúf, kn.: Björg Ólafsdóttir, 8,10 Ungmenni 1. Hnota frá Garðabæ, And- vara, kn.: Bylgja Gauks- dóttir, 8,52 2. Háfeti frá Þingnesi, Fáki, kn.: Anna Kristín Krist- insdóttir, Fáki, 8,41 3. Hjörtur frá Hjarðarhaga, Fáki, kn.: Sylvía Sig- urbjörnsdóttir, 8,34 4. Glaður frá Breiðabólstað, Sörla, kn.: Aron Már Al- bertsson. 8,19 Úrslit FÉLAGAR í Andvara halda upp- teknum hætti og eiga síðasta orðið í mótahaldi þessa árs með veglegu móti á Andvaravöllum um næstu helgi. Mótið verður með hefð- bundnu sniði það er gæðingakeppni á beinni braut þar sem sleppt verð- ur feti og stökki, skeiðkeppni í flóð- ljósum og vegleg verðlaun. Að sögn Odds Hafsteinssonar í mótsstjórn verða örlitlar áherslubreytingar þannig að verðlaunafé í A- og B- flokki, tölti og flugskeiði verður hækkað. Þá mun verða sýnt beint frá mótinu í ríkissjónvarpinu á sunnudag. Ljósaskeiðið verður á laugardagskvöldið að venju en keppnin hefst síðdegis á föstudag. Lokapunkturinn í höndum Andvara að venju EKKI verður annað sagt en býsna vel hafi til tekist með þetta hrað- soðna Faxaflóamót, þátttaka nokkuð góð, í kringum 200 skráningar, hestakostur allþokkalegur og góður andi svífandi yfir vötnum. Helst voru það daprar vallaraðstæður sem skyggðu á góðan mótsbrag en við því var brugðist með því að draga til dæmis úr kröfum um hraða á stökki í gæðingakeppninni og knapar beðn- ir að keyra með gát í beygjum á yf- irferðartölti og svo framvegis. Staðreyndin er sú að Hvamms- völlurinn er fráleitt í nógu góðu ástandi um þessar mundir og ljóst að sparsamir Fáksmenn verða að opna budduna til að laga þennan mjög svo vinsæla og mikið notaða völl. En keppnin var spennandi og ekk- ert gefið eftir eins og sjá má á úrslit- um þar sem sætaskipti voru mikil og enginn öruggur með fyrsta sæti í úr- slitum þótt vel hafi gengið í for- keppninni. Sigurbjörn Bárðarson var með glæsisýningu á Kára frá Búlandi í forkeppni B-flokks sem þó dugði honum einungis í þriðja sætið því tveir aðrir voru einfaldlega betri þeir Bruni frá Hafsteinsstöðum sem Sigurður Sigurðarson sýndi með glæsibrag og síðan kom Jakob Sig- urðsson með stórgóða sýningu á Sæla frá Skálakoti sem er mjög at- hygliverður hestur enda höfðu þeir Jakob sigur í úrslitum og var Sæli jafnframt valinn glæsilegasti gæð- ingur mótsins. Svipað var upp á teningnum í A- flokki þar sem Logi Laxdal á Berki frá Stóra-Hofi var ekki með neina óþarfa sjentilmennsku í keppninni við dömurnar Huldu Gústafsdóttur á Sögu frá Lynghaga og Sigríði Pjet- ursdóttur á Þyti frá Kálfhóli en þær voru fyrir ofan Loga og Börk eftir forkeppnina sem tóku af skarið í úr- slitunum. Annar Stóra-Hofshestur Sólon er á góðri siglingu þessa dag- ana hjá Þórði Þorgeirssyni og unnu þeir sigur í töltkeppninni auk þess að vera í úrslitum í B-flokki. Boðið var upp á 100 metra flug- skeið fyrir keppendur 16 ára og yngri sem er mjög virðingarvert framtak. Ætla má að þessi grein sé afar heppilegur vettvangur fyrir unga knapa til að öðlast getu og reynslu sem skeiðknapar. Þar sigr- aði Valdimar Bergstað á Nótt frá Gegnishólum en Logi Laxdal og Feykivindur frá Svignaskarði virð- ast sprækastir í þessari grein um þessar mundir – svo sprækir að hinn undurfljóti Óðinn frá Búðardal hjá Sigurbirni Bárðarsyni virðist ekki eiga sjéns í hann. Vísast gengur Sig- urbjörn ekki sáttur með slíka niður- stöðu til leiks um næstu helgi þar sem einhverjir fjármunir verða í verðlaun í þessari grein hjá And- vara. Morgunblaðið/Kristinn Þeir drógu ekki af sér í drullunni að lokinni verðlaunafhendingu, Jakob og Sæli lengst til vinstri og þá koma Sigurður og Bruni og Sigurbjörn og Kári. Spennandi Faxaflóamóti slegið upp í skyndi í Víðidal Hörð keppni í þungri færð Gap reyndist vera um nýliðna helgi í mótaskrá hestamanna og voru keppnisglaðir menn á Faxaflóasvæðinu fljótir til að fylla upp í það, nokkurs konar flóabandalag var myndað í hvelli og boðið upp á opna gæðingakeppni, tölt og skeiðkappreiðar í Víðidalnum. Valdimar Kristinsson kíkti á keppnina og sá þar ýmislegt sem gladdi augað. Sigurbjörn og Kári frá Búlandi voru með mjög góða sýningu í forkeppni B- flokks sem færði þeim þriðja sætið en spennandi verður að sjá Kára á næsta ári hjá Sigurbirni, en hann þykir lofa góðu þótt ekki sé hann neitt unglamb lengur. Sæli frá Skálakoti átti góðan dag í þungri færð, sigraði í B-flokki og var valinn glæsilegasti gæðingurinn, knapi er Jakob Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.