Morgunblaðið - 01.09.2003, Síða 22

Morgunblaðið - 01.09.2003, Síða 22
MINNINGAR 22 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristbjörg Ein-arsdóttir fæddist í Reykjavík 13. des- ember 1914. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Einar H. Sigurðsson klæð- skeri, f. 1882, d. 1961, og kona hans, Þórunn Jónsdóttir, f. 1888, d. 1973. Kristbjörg átti fjóra bræður: Val, f. 1909, d. 1980; Guðjón, f. 1921, kona hans er Kristín Eiríks- dóttir, f. 1925; Eggert, f. 1926, d. 1999; og Jón, f. 1926. Kristbjörg giftist hinn 25. des- ember 1942 Benjamín H.J. Eiríks- syni hagfræðingi, f. í Hafnarfirði 19. október 1910, d. 23. júlí 2000. Foreldrar hans voru Eiríkur Jónsson sjómaður, f. 1856, d. 1922, og kona hans, Sólveig Guð- finna Benjamínsdóttir, f. 1867, d. 1949. Börn Kristbjargar og Benjamíns eru: 1) Þórunn kenn- ari, f. 1945, gift Magnúsi K. Sig- urjónssyni; þeirra börn: Krist- Frá 16 ára aldri, að lokinni skólagöngu, stundaði Kristbjörg fiskvinnu og síðan saumastörf hjá Sjóklæðagerðinni í Reykjavík. Hún var kjörin í stjórn Iðju, Fé- lags verksmiðjufólks, árið 1936 og starfaði að verkalýðsmálum fram til 1941, en síðla það ár sigldi hún til Bandaríkjanna með það fyrir augum að leggja stund á söngnám, en Kristbjörg hafði sungið með Dómkórnum um ára- bil. Hún fékk vinnu sem húshjálp hjá frú Östlund í New York og síðar hjá fjölskyldu að nafni Strauss. 25. desember 1942 giftist hún Benjamín H.J. Eiríkssyni, hagfræðingi, í Minneapolis og bjuggu þau fyrst í Seattle, síðan í Minneapolis, þá í Cambridge, Mass., og að lokum í Washington D.C. Í Bandaríkjunum vann hún á tímabili á vöktum við að sauma fatnað á bandaríska hermenn í seinni heimsstyrjöldinni. Vorið 1951 fluttu þau Benjamín, ásamt þremur elstu börnum sínum til Ís- lands. Þau bjuggu að Bárugötu 35 og varð heimilið hennar starfs- vettvangur upp frá því. Þegar heilsu hennar tók að hraka, árið 1997, flutti hún á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, og dvaldi Benjamín þar með henni frá árinu 1999. Útför Kristbjargar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. björg, f. 1969, gift Þorsteini Jóhanns- syni, börn: Hrannar Páll, f. 1995, Elvar Örn, f. 2001; Árni, f. 1974; Sigríður, f. 1987. 2) Eiríkur læknir, f. 1946, ókvæntur; dóttir hans: Árný Margrét, f. 1968. 3) Einar Haukur fram- kvæmdastjóri, f. 1948, kvæntur Erlu M. Indriðadóttur; þeirra börn: Birgir, f. 1968, kvæntur Sig- rúnu Daníelsdóttur, barn: Silja Sóley, f. 2000; Bryndís, f. 1975, gift Erik Davidek, barn: Isabella Maria, f. 2001; Bjarki, f. 1982. 4) Sólveig læknir, f. 1952, gift Árna Páli Jóhannssyni; þeirra börn: Sigurður Páll, f. 1975, kvæntur Halldóru Jónsdóttur, hennar börn Ísold, f. 1995 og Hólmfríður f. 1997; Þorkell Ólafur, f. 1983; Benjamín f. 1985. 5) Guðbjörg Erla ráðgjafi, f. 1958, gift Gunn- ari Á. Harðarsyni; þeirra börn: Sigríður Vala, f. 1980, Katrín, f. 1986, Sólveig María, f. 1998. Flýg ég og flýg yfir furuskóg, yfir mörk og mó, yfir mosató, yfir haf og heiði, yfir hraun og sand, yfir vötn og vídd, inn á vorsins land. Flýg ég og flýg yfir fjallaskörð, yfir brekkubörð, yfir bleikan svörð, yfir foss í gili, yfir fuglasveim, yfir lyng í laut, inn í ljóssins heim. (Hugrún.) Kær tengdamóðir er kvödd. Margar ljúfar minningar koma í hugann þegar litið er til baka. Í meira en þrjátíu ár hafa leiðir okkar legið saman. Ég man alltaf eftir fyrstu heimsókninni á Bárugötuna. Örlítill kvíði var í brjósti, sem hvarf með öllu við hlýjar móttökur tengda- foreldra minna. Eftir það var Bárugata 35 fastur punktur í tilverunni. Um helgar komu öll systkinin og fjölskyldur í kaffi. Sest var í borðstofuna, heimsmálin rædd og blöðin lesin, Mogginn, Times eða Spiegel, öll blöð voru keypt. Það var alltaf til kók í gleri frammi á gangi og kaka uppi á ísskáp, oftast hnetupæ eða eplapæ. Uppskriftir sem tengda- mamma kom með frá Ameríku. Hún var meistarakokkur, matnum var ekki bara skellt í pott, heldur var staðið yfir pottunum og upp úr þeim komu dýrindis réttir. Kartöflumúsin á mínu heimili er frá henni komin og frómasinn hennar er ómissandi á jól- unum, ekki bara hjá fjölskyldunni heldur fjölmörgum öðrum. Tengdamóðir mín var ein sú já- kvæðasta manneskja sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Hún var hlý, ein- staklega skemmtileg og fróð og það var endalaust hægt að spjalla við hana. Í boðum var hún hrókur alls fagnaðar og hlátrasköllin heyrðust langar leiðir. Hún hafði mikinn áhuga á fólki og ósjaldan hljóp hún fram í stofu til að fletta upp í bókum til að fræðast um ættir samferðamanna okkar. Tengdamóðir mín var í senn glæsi- leg heimskona og hógvær alþýðu- kona. Hún hafði yndi af að ferðast til annarra landa og talaði reiprennandi ensku. Vegna starfa tengdaföður míns á árum áður fékk hún tækifæri til að ferðast með honum og taka þátt í hinum ýmsu samkvæmum. Eftir að hann veiktist lét hún sig ekki muna um að ferðast ein, fór t.d. til Kanarí- eyja og til vinafólks í Portúgal. Margar ferðir fórum við í Ölvers- holt þar sem fjölskyldan hefur rækt- að skóg frá árinu 1958. Þar undi hún sér vel. Afleggjarinn var langur og oft erfiður, ekkert vatn og ekkert raf- magn. Ég minnist þess að einu sinni að vorlagi þurftum við að ganga þessa þrjá kílómetra með útsæðið, áburð- inn, mat, vatn o.fl. Síðan þurftum við að fara aðra ferð og sækja dótið sem eftir var. Tengdamamma varð nefni- lega að setja niður kartöflur. Viðkvæðið hjá tengdapabba var alltaf: „Það er alltaf sól í Ölversholti.“ Og ég sé hana tengdamömmu mína fyrir mér sitja í sólinni og kyrrðinni fyrir utan gamla bæinn í Ölversholti reytandi illgresi frá trjánum. Tíminn stóð í stað í þá daga. Ómissandi voru líka ferðir okkar til fólksins míns í Grímsnesið. Í mörg ár fórum við á Stærri-Bæ til að gera slátur og var þá mikið skrafað og hlegið, jafnvel slegið í spil að kvöldi. Fyrir sjö árum þegar heilsan fór að bila flutti tengdamóðir mín á Grund. Eins og áður var fjölskyldan alltaf í fyrirrúmi og var hún alltaf þakklát fyrir heimsóknirnar og gleymdi aldr- ei að spyrja frétta af barnabörnunum. Hún breyttist ekki, hélt áfram að vera jákvæð og létt í lund. Hún var elskuð af starfsfólkinu sem hugsaði einstaklega vel um hana alla tíð. Fyrir það viljum við þakka af heilum hug. Það verður eflaust tómarúm og skrýt- ið að fara ekki lengur út á Grund. Elsku tengdamamma eða „amma“ eins og ég kallaði þig alltaf, ég þakka þér kærlega fyrir samfylgdina og bið góðan Guð að geyma þig. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Erla. Það mun hafa verið vorið 1977 sem ég var fyrst kynntur fyrir tengda- móður minni á Bárugötu 35. Ég var þá bæði síðhærður og skeggjaður, en hún kippti sér ekkert upp við það, enda löngu orðin vön því að umgang- ast skeggjaða og síðhærða menn. Auk þess vissi hún öll deili á mér, því að Þórunn, móðir hennar, og Guðbjörg, móðursystir hennar, höfðu verið vin- konur Guðrúnar, föðurömmu minnar. Til dæmis kom það upp úr dúrnum að sláturuppskrift Kristbjargar var frá ömmu minni komin. Á Bárugötunni hafði verið stórt heimili og fjölmennt og þar var enn gestkvæmt þegar ég kynntist þeim Benjamín og Kristbjörgu, þó að heim- ilið hafi verið umsvifameira áður fyrr. Þar var margt á aðra lund en ég hafði vanist, mikið talað og hlegið hátt og margar sögur sagðar, og ef öll fjöl- skyldan var saman komin töluðu allir í einu. Í setustofunni var flygill sem Kristbjörg var hætt að spila á, en hún mun hafa haft góða mezzósópran- rödd á árum áður. Í staðinn var flyg- illinn notaður undir myndir af börn- um og barnabörnum. Einnig áttu þau grænt bridge-spilaborð sem var mik- ið notað um tíma. Annars var borð- stofan og borðstofuborðið miðja heimilisins, þar var vinnuborð hús- bóndans, þar voru haldin matarboð og kaffiveislur, þar saumaði húsmóð- irin út og þar dottaði hún yfir sjón- varpinu á kvöldin, jafnt gamanþáttum sem spennuþáttum, og er ég ekki frá því að sá eiginleiki sé ættgengur. Og við borðstofuborðið sat hún með kaffi- bollann og spilakapalinn og svaraði hlæjandi: „Já, já, hafðu það bara eins og þú vilt, góði minn!“ þegar eigin- maður hennar útskýrði fyrir henni og mér stórtíðindi heimsmálanna, og hélt áfram að leggja kapalinn. Þau hjón voru nokkuð samstiga í stjórnmálaskoðunum, enda þótt Benjamín hefði nánast orðið Alþýðu- flokksmaður undir það síðasta vegna skoðana sinna á veiðigjalds- og vel- ferðarmálum, en hún var sjálfstæð- iskona sem kaus Flokkinn staðfast- lega alveg fram undir það síðasta, og fór stundum í ferðir á vegum sjálf- stæðisfélaga. Hún hafði mikla ánægju af ferðalögum, og fór til dæmis alloft til Spánar og Kanaríeyja á efri árum, og jafnvel eftir að sjón hennar versn- aði naut hún þess að fara stuttar öku- ferðir um gamlar slóðir sér til upp- lyftingar og upprifjunar. Einnig var það sérstakt eftirlæti hennar að spila bridge við vinkonur sínar, bæði í Reykjavík og í Hveragerði, þar sem hún dvaldist um tíma sér til heilsubót- ar. Árin tíu í Bandaríkjunum (1941– 1951) höfðu greinilega verið viðburða- ríkur og ánægjulegur tími og kunni Kristbjörg margt að segja frá því; bæði frá þeim tíma þegar hún var í vist í New York og síðar eftir að þau Benjamín höfðu ruglað saman reyt- um í Minneapolis og víðar. Hún sagði meðal annars frá því þegar hún hlust- aði á Maríu Markan syngja í Metro- politan-óperunni, og frá því þegar hún vann á næturvöktum í fataverk- smiðju við að sauma fatnað á banda- ríska hermenn á vesturvígstöðvun- um. Þegar Kristbjörg lá á sæng að öðru barni þeirra hjóna var húsbónd- inn niðursokkinn í ritstörf, en þurfti að annast innkaupin og fór þá með elstu dótturina niður í bæ á náttföt- unum án þess að veita því neina at- hygli. Einnig kunni hún margt að segja frá fólki í Reykjavík og Hafn- arfirði. Eftir að heim kom tók við annasamur tími á stóru heimili ásamt þátttöku í félagslífinu. Árin eftir að Benjamín hætti í bankanum voru á hinn bóginn erfið, bæði fjárhagslega og félagslega, og það er til marks um fordóma þeirra tíma að sumir fyrri kunningjar hættu jafnvel að heilsa henni á götu. Hún átti þó alltaf nokkr- ar góðar vinkonur, sumar allt frá barnæsku. Bæði fyrir og eftir þetta átti hún margar góðar stundir í Ölversholti í Holtum, eyðijörð sem þau Benjamín keyptu 1956, meðal annars í þeim til- gangi að stunda skógrækt. Þar dvald- ist hún oft með börnum sínum á sumrin og seinna, eftir að þau voru uppkomin, hafði hún þar kálgarð; á tímabili var í Ölversholti sérstakur „ömmuskúr“ í skógarjaðrinum sem hún hafði fyrir sitt afdrep. Birtist þar sú hlið hennar sem kalla má náttúru- barnið í henni. En þar fyrir utan kunni Kristbjörg vel að meta lysti- semdir siðmenningarinnar, enda var hún sjálf annáluð matreiðslukona og góð heim að sækja. Hún hafði erft húseignina að Öldugötu 2 eftir móð- ursystur sína og þetta hús varð aðset- ur fjölmargra barna og barnabarna og þar bjuggu og bræður hennar tveir lengi vel. Dætur mínar áttu oft innhlaup til ömmu og afa í hádeginu úr skólanum. Þar kenndi hún þeim meðal annars spilakapla og útsaum, og flygillinn fór aftur að hljóma í kjöl- farið á píanótímum. Ekki voru þær þó hrifnar af því að amma þeirra reykti, en því hætti hún 77 ára gömul og sá víst ekkert eftir því. Kristbjörg var fremur breiðleit en fínleg í andliti, dökk yfirlitum með hátt enni, liðað, svart hár sem gránaði fallega með aldrinum og kvik dökk- brún augu sem geisluðu af kímni og hlýleika. Hún hafði næma greind, var kát og félagslynd, ættfróð og mikill mannþekkjari, enda með óþrjótandi áhuga á mannlífinu. Hún hafði ein- staklega létta lund og ríka kímnigáfu, sem ásamt mátulegu kæruleysi átti áreiðanlega sinn þátt í að fleyta henni gegnum lífið. Þessum persónuein- kennum sínum hélt hún allt til enda. Hún var ákaflega vinsæl af starfsfólki Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar sem sinnti henni af stakri al- úð allt þar til hún lést, á 89. aldursári, eftir langa sjúkdómslegu. Við minnumst hennar með miklum hlýhug og þakklæti. Gunnar Harðarson. Elsku amma mín. Nú ertu líklegast komin í fangið á honum afa. Ég er viss um að þú hefur fengið hlýlegar móttökur. Auðvitað á ég eftir að sakna þín mjög mikið, en svona er víst lífið. Amma, þú ert sú blíðasta manneskja sem ég hef nokk- urn tímann kynnst. Sterkustu minn- ingar mínar um þig munu vera þess- ar: hlýja, væntumþykja og hlátur. Þú varst alltaf svo glöð og skemmtileg. Fölsku tennurnar voru heilu skemmtiatriðin þegar við mættum á Bárugötuna. Þar sast þú, í stólnum þínum, klædd í kjól dagsins og með nál og tvinna á milli handanna. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Takk fyrir að vera svo blíð og góð. Takk fyrir allt síríussúkkulaðið úr efri skápnum. Takk, amma mín. Takk fyrir að vera besta amma í heimi. Síðast en ekki síst, takk fyrir að elska okkur öll. Við elskum þig líka. Þín Bryndís. Hún var ein af nánustu vinkonum móður minnar. Þeirra fyrstu kynni urðu, þegar Baldur, móðurbróðir minn, kom með hana til Seyðisfjarðar eftir trúlofun þeirra til þess að kynna hana fyrir fjölskyldu sinni. En það lá ekki fyrir þeim Baldri að eigast, og svo fór, að leiðir skildu. Mér var sagt, að amma mín hefði séð mikið eftir henni, þegar svo fór, enda kom þeim jafnan vel saman. Ég var ekki hissa á því, eftir að ég kynntist Kristbjörgu sjálf. Hún sleit samt aldrei alveg sam- bandinu við fjölskyldu Baldurs, þótt hún giftist Benjamín síðar, enda rifj- uðu þær móðir mín upp fyrri kynni nokkrum árum eftir komuna frá Am- eríku og stofnuðu til órjúfanlegrar vináttu, sem entist þeim alla tíð og aldrei bar skugga á. Svo vel vildi til, að faðir minn þekkti Benjamín úr Hafnarfirði, og vissi deili á Krist- björgu líka, svo að það var auðvelt fyrir þessar tvær fjölskyldur að tengjast vináttuböndum. Kristbjörg var sérstakur aufúsu- gestur á bernskuheimili mínu, og það var alltaf sérstakt tilhlökkunarefni að fá hana í heimsókn, enda hafði hún jafnan frá mörgu að segja, þar sem hún var bæði virk í félagsstarfsemi og alltaf var nóg að gerast á fjölmennu heimili, sem var hægt að segja frá. Geðslag hennar var líka þannig, að það var bæði auðvelt að kynnast henni og alltaf gaman að eiga sam- félag við hana. Það sópaði að henni, hvar sem hún fór, og glaðværðin smit- aði fljótt út frá sér og fyllti andrúms- loftið. Það var einstakt að koma til þeirra Benjamíns á Bárugötuna, enda bar heimilið smekkvísi og fegurðarskyni húsfreyjunnar gott vitni. Hún var líka höfðingi heim að sækja. Kristbjörg skilur eftir sig margar, ómetanlegar minningar hjá þeim, sem kynntust henni, og skilur þá auð- ugri eftir. Þegar ég nú kveð hana er mér efst í huga ómælt þakklæti fyrir góð og gjöful kynni og þá ómetanlegu vin- áttu og tryggð sem hún sýndi mér og foreldrum mínum alla tíð, auk allra tækifærisgjafanna gegnum árin. Ég bið algóðan Guð að blessa hana þar sem hún er og vera með fjölskyldu hennar. Blessuð sé minning mætrar konu. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. KRISTBJÖRG EINARSDÓTTIR Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar og tengdamóðir, HILDUR ARNDÍS KJARTANSDÓTTIR, Ljósheimum 16b, sem lést miðvikudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 2. september kl. 13.30. Sigurjón Guðbjörnsson, Oddný Björg Hólmbergsdóttir, Jón Guðmundsson, Rósa Hallgeirsdóttir, Lárus H. Lárusson, Guðmunda Hallgeirsdóttir, Kjartan Hallgeirsson, Soffía Guðrún Magnúsdóttir, Halla Hallgeirsdóttir. Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGILEIF KÁRADÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður Espigerði 2, Reykjavík, lést að kvöldi föstudagsins 29. ágúst. Kolbrún Björnsdóttir, Jón Björnsson, Anna Ottesen, Björn Björnsson, Áslaug Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.