Morgunblaðið - 01.09.2003, Page 24

Morgunblaðið - 01.09.2003, Page 24
FRÉTTIR 24 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ríkislögreglustjórinn Laust afleysingastarf á skrifstofu ríkislögreglustjórans Staða skrifstofumanns Við embætti ríkislögreglustjórans er laus til umsóknar tímabundin staða skrifstofumanns vegna fæðingarorlofs o.fl. Gert er ráð fyrir því að ráðið verði í stöðuna í eitt ár. Viðkomandi mun sinna almennum skrifstofustörfum, svo sem skráningum í skjalavörslukerfi embættis- ins, frágangi skjala í skjalasafn, símsvörun og ljósritun. Reynsla af skrifstofustörfum áskilin. Ráðningarkjör fara samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélagi ríkisstofnana, SFR. Nánari upplýsingar gefur Steinar Adolfsson, lögfræðingur, í síma 570 2568. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum um- sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin af ríkislögreglu- stjóra. Umsóknum skal skilað til embættis ríkis- lögreglustjóra, Skúlagötu 21, 101 Reykja- vík, en umsóknarfrestur rennur út þann 5. september 2003. Reykjavík, 29. ágúst 2003, Ríkislögreglustjórinn. RAÐAUGLÝSINGAR ATVINNUHÚSNÆÐI Tunguháls 170 fm - til leigu Glæsilegt iðnaðarbil með 5 m lofthæð. Inn- keyrsluhurð 4,8 m með sjálfvirkum búnaði. Malbikað bílaplan. Góð og áberandi staðsetn- ing. Laus strax. Skútahraun - til leigu Mjög gott þjónustu- og skrifstofuhúsnæði á 1. og 2. hæð. Mögulegar stærðir allt frá 30 til 600 fm á hvorri hæð. Gott bílaplan. Góð stað- setning. Hagstæð leiga. Laust strax. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Kynningarfundur — Stangaveiði erlendis verður í sal SVFR á Háaleitisbraut 68 þriðjudag- inn 2. september kl. 20.00. Justin Staal, markaðsstjóri Frontiers í London, mun kynna veiðimöguleika á vegum Frontiers víða um heim. Kynningin er öllum opin og hvetjum við alla áhugamenn um stangaveiði til að mæta. Stjórnin. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I FRÁ árinu 1999 og fram til júníbyrj- unar 2003 hafa 310 mannvirki risið á Selfossi. Segja má að um algera bylt- ingu hafi verið að ræða því árin 1996– 1998 risu 25 mannvirki. Þessa miklu aukningu má meðal annars rekja til margföldunar á lóðaframboði sem varð við þá nýbreytni að einkaaðilar buðu upp á byggingarlóðir jafnframt því sem sveitarfélagið bauð fram lóð- ir fyrir íbúðarhús. Fossmenn ehf. keyptu svonefnt Fossland í eigu Sel- fossbænda, 35 hektara lands og var kaupverð 50 milljónir. Landið hafði staðið falt fyrir sveitarfélagið um langan tíma en það ekki séð sér fært að kaupa. Gerður var samningur við sveitarfélagið um skipulag svæðis- ins, sem liggur vestan Eyravegar, en þar átti sveitarfélagið 15 hektara. Fossmenn tóku að sér alla gatnagerð og deiliskipulag, lögðu holræsi og vatnslagnir í götur ásamt því að setja bundið slitlag á götur og gangstéttar. Fyrirtækið fékk í staðinn að leggja á gatnagerðargjöld eftir sömu gjald- skrá og sveitarfélagið notar. Sam- komulag þetta var liður í þeirri stefnu bæjarins á þeim tíma að einkaaðilar fengju tækifæri til að standa fyrir skipulagi lóða og sölu á þeim. Nú er verið að selja lóðir í síð- asta hluta Fosslandsins með 96 íbúð- um en alls eru 300 íbúðir á þessum 35 hekturum. Hæpnar forsendur Fossmenn ehf. hugðust halda áfram þessari starfsemi og byggðu á því mati manna að aðflutningur fólks til Selfoss muni halda áfram og jafn- vel aukast til muna með stöðugt vax- andi þjónustu. Fyrirtækið keypti land í næsta nágrenni Fosslandsins, sem nefnt hefur verið flugvallar- svæði. Eigendur landsins voru bændur í Sandvíkurhverfi og á Stekkum. Um var að ræða 60 hekt- ara lands. Þessi kaup ollu uppnámi hjá flugáhugamönnum og mikil um- ræða varð á Selfossi um þessi mál. Segja má að málinu hafi lyktað með því að sveitarfélagið Árborg nýtti sér forkaupsrétt að flugvallarlandinu samkvæmt lögum. Fossmenn kærðu ekki þessa niðurstöðu bæjaryfir- valda þó að þeir teldu gjörninginn mjög hæpinn. Eigendur landsins voru og mjög óánægðir með þetta ráðslag bæjaryfirvalda og hafa sagst munu leita til dómstóla. „Bærinn nýtti sér forkaupsréttinn að flugvallarlandinu á grundvelli jarðalaga sem er hæpin forsenda því landið verður aldrei nýtt undir land- búnað,“ segir Guðmundur Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Fossmanna ehf. og einn eigenda. „Það hafa geng- ið dómar í svona málum sem hafa verið sveitarfélögunum í óhag. Ástæða þess að við kærðum ekki þessa gjörð bæjaryfirvalda var sú að við skipulag lands, bæði aðal- og deiliskipulag hefur bærinn algjört forræði varðandi framgang skipu- lagsins. Við töldum ekki vænlegt að standa í stríði við bæjaryfirvöld í þessum málum, vitandi hvað gerðist í Garðabæ hjá Jóni Ólafssyni sem sat uppi með land sem hann keypti og fékk ekki að skipuleggja það.“ „Ég held að við höfum staðið vel að málum í Fosslandinu, höfum verið búnir að ganga frá götum áður en framkvæmdir hefjast líkt og er gert í Reykjavík en í nýjum hverfum bæj- arins á Selfossi hefur þetta tekið lengri tíma. Það má alveg nefna það að þegar við gengum frá fyrstu göt- unum í Fosslandinu fékk bærinn at- hugasemdir frá fólki í nýja Suður- byggðahverfinu sem fannst hlutirnir ganga of hægt varðandi gatnagerð þar í samanburði við Fosslandið. Með því að bærinn sé ekki í sam- keppni þá stýrir hann hraðanum og þar er kannski að einhverju leyti komin ástæða þess að menn vildu neyta forkaupsréttar og losna við samkeppnina.“ Spöruðu bænum 150 milljónir Gatnagerðin í Fosslandinu kostar um 300 milljónir. Það er þekkt stærð að bærinn hefur náð að fjármagna 60–70% af gatnagerðinni með gatna- gerðargjöldum en hefur þurft að fjármagna það sem á vantar með greiðslum úr bæjarsjóði. „Það má því segja að þetta fyrirkomulag í Foss- landinu hafi sparað bænum fjárútlát við gatnagerð og landakaup sem nemur 150 milljónum króna. Það er auðvitað gaman að geta þess að nýi leikskólinn sem bærinn reisti í hverf- inu kostaði þá upphæð. En þetta er auðvitað pólitísk stefnubreyting og bærinn ætlar greinilega að sjá um þessa þætti í framtíðinni með meiri kostnaði fyrir bæjarsjóð. Það sem mér finnst aftur á móti verst er að svo virðist sem fallegasta byggingarsvæði bæjarins fari undir flugvöll. Þetta er mjög gott bygging- arland þar sem stutt er á fast og út- sýnið er fallegt. Þetta er nefnilega úrtökugott land til bygginga og það á auðvitað að nýta það sem slíkt. Það er ekkert mál að færa flugvöllinn, það er svona viku vinna fyrir öflugan verktaka að framkvæma það. Þessi flugvöllur getur verið hvar sem er hér í nágrenninu. Við hjá Fossmönnum höfum átt gott samstarf við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um uppbygginguna en það fyrirtæki keypti Hagalandið milli Fosslandsins og flugvallar- svæðisins og hefur óskað eftir leyfi til að deiliskipuleggja það fyrir íbúð- arbyggð en ekki fengið svör sem sýn- ir farveginn sem bæjarstjórnin hefur mótað.“ „Við fyrirhuguðum að gera íbúð- arbyggð á flugvallarsvæðinu með op- inberri þjónustu og öllu sem fylgir slíkum svæðum. Þetta 60 hektara land ætluðum við að byggja upp á 10 árum en gera má ráð fyrir að það tæki styttri tíma miðað við þann að- flutning af fólki sem hér hefur komið. Í áætlunum okkar Fossmanna töld- um við að það tæki 10 ár að byggja upp Fosslandið en sýnt er að það tek- ur helmingi skemmri tíma og gera má ráð fyrir að það verði fullbyggt 2005. Þannig gengur uppbyggingin hraðar fyrir sig en menn töldu enda Selfoss öflugt þjónustusvæði með sterka byggðakjarna í nágrenninu og mikla uppbyggingu og vöxt í upp- sveitum Árnessýslu. Þessi mikla hringiða myndar sog inn á svæðið í heild. Okkur telst svo til að það sé verið að byggja á 15–20 hektara lands á ári hér á Selfossi og með sama áframhaldi eru það 150 – 200 hektarar sem þarf undir nýja byggð á næstu 10–12 árum. Ef sama regla gildir að fyrir hverja 35 hektara sparist fjárútlát hjá bæjarsjóði sem nemur 150 millj- ónum þá sparast 270–300 milljónir á flugvallarlandinu og með því að beita sömu aðferðum á 200 hektara nemur þessi sparnaður bæjarsjóðs 700–800 milljónum sem gott er fyrir bæjar- sjóð að hafa til að byggja upp lög- bundna stoðþjónustu fyrir íbúana, að ekki sé talað um þegar rekstur sveit- arfélagsins er kominn í 97% af tekjum og allar nýjar framkvæmdir eru fjármagnaðar með lánsfé. Ef haldið er áfram á sömu braut fer það bara á einn veg,“ segir Guðmundur Sigurðsson. Önnur sveitarfélög sýna áhuga Það er Guðmundi og félögum hans mikil vonbrigði að Fossmenn þurfi að hverfa af þeirri braut sem þeim gekk vel á. Hann telur stefnubreyt- ingu bæjaryfirvalda afturför hafa í för með sér kostnaðaraukingu fyrir íbúana því bærinn hafi alveg sömu tekjur af húsbyggingum sem eru á Fosslandinu og á öðrum svæðum en sleppi við aukafjárútlát vegna gatna- gerðar og landakaup. En eru Fossmenn þá hættir starf- semi? „Nei, nei, það eru fleiri fiskar í sjónum. Til okkar hafa leitað tvö sveitarfélög á Austfjörðum og eitt sveitarfélag á Suðurlandi og spurt hvort við værum tilbúnir að taka að okkur sambærileg verkefni og við gerðum hér í Fosslandinu. En það er allt á umræðustigi ennþá og ekki unnt að greina frá því. Það er auðvitað deginum ljósara að um leið og við höfum verið að selja lóðir höfum við verið að selja Selfoss því við höfum notað allan okkar slag- kraft í að selja lóðirnar og markaðs- setja staðinn. Við teljum að með þessu móti hafi fjölgað mun meira hérna en ef lóðaframboð hefði verið minna. Auk þess hefur þetta eflt at- vinnu á Selfossi til muna,“ segir Guð- mundur. Sveitarfélagið Árborg nýtti forkaupsrétt að flugvallarlandi Stöðvar framhald þess að einkaaðilar bjóði byggingarland á Selfossi Morgunblaðið/Sig. Jóns. Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fossmanna ehf., og Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri Ræktunarsambands Flóa og Skeiða, standa við enda einnar nýju götunnar í Fosslandinu þar sem lóðir eru tilbúnar. Fossmenn harma það að ekki skuli byggt á flug- vallarsvæðinu. Í samtali við Sigurð Jónsson fréttaritara segja þeir að óhagkvæmara sé fyr- ir bæinn að standa sjálf- ur að uppbyggingunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.