Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 27
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 27
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Innritun í síma 561 5620
frá kl. 14.00–18.00.
Íbúar í Grafarvogi
og nágrenni
ATHUGIÐ:
Kennt verður
í Hamraskóla.
Kennsla hefst
um miðjan september
Allir aldurshópar frá 4ra ára
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
7
1
9
Ingvar Helgason hf. · Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is
frá 3.289.000 kr.
TERRANO
frá 4.590.000 kr.
PATROL
frá 2.490.000 kr.
DOUBLE CAB
frá 2.760.000 kr.
X-TRAIL
frá 3.860.000 kr.
MAXIMA
frá 2.260.000 kr.
PRIMERA
frá 1.650.000 kr.
ALMERA
frá 1.390.000 kr.
MICRA
Hann er japanskur og var valinn áreiðanlegasti bíll í sínum flokki af bresku neytendasamtökunum. Könnunin tók til bilanatíðni og
gangsetningar og það var okkar bíll, Nissan Almera sem náði hæstu einkunn, einfaldlega 100% áreiðanlegur bíll. Nissan Almera er
á einstöku verði miðað við búnað, þægindi og aksturseiginleika.
Komdu í reynsluakstur, 100% bíllinn stendur þér til boða fyrir aðeins 29.929 kr. á mánuði.
ÞETTA ER BÍLLINN
NISSAN ALMERA frá
29.929
á rekstrarleigu í 3 ár.
kr./mán.
Innifalið: Leiga til 36 mánaða, akstur
allt að 20.000 km á ári, smur- og
þjónustueftirlit samkvæmt þjónustubók.
Consumers’ Association
100%
Var valinn áreiðanlegastibíll í sínum flokki af breskuneytendasamtökunum
áreiðanlegur
UM ÞESSAR mundir er verið að
fullgera heilan knattspyrnuvöll
undir þaki í Grafarvogi. Það er
verið að byggja keppnissundhöll í
Laugardal, þó að við hliðina sé 50
metra sundlaug með stórum áhorf-
endastúkum. Verið er að stækka
Laugardalshöllina um helming, og
nú er það krafa Knattspyrnusam-
bands Íslands að áhorfendasvæði
Laugardalsvallar verði stækkað úr
7.000 sætum í 14.000. Þessi stækk-
un kostar 1 milljarð að mati Egg-
erts Magnússonar, formanns KSÍ.
Nú spyr ég: Hversu oft eru yfir
sjöþúsund manns á knattspyrnu-
leik í Reykjavík? Hve oft á ári er
keppt í sundi? Hve margir áhorf-
endur eru að meðaltali á sundmót-
um?
Af hverju hafa íþróttirnar svona
mikinn forgang fram yfir aðra
menningarstarfsemi?
Af hverju eru alltaf til peningar
til að byggja íþróttamannvirki en
engir til þess að byggja tónlistar-
hús? Við eigum afreksmenn í
íþróttum en við eigum líka afreks-
menn í tónlist og þeim hefur ekki
verið sami sómi sýndur. Það getur
vel verið skömm að því að við eig-
um ekki þjóðarleikvang sem rúmar
20 þúsund manns í sæti en það er
hundrað sinnum meiri skömm að
eina tónleikahús höfuðborgar Ís-
lands sé bíósalur.
GUNNAR MÁR HAUKSSON,
bankamaður,
Sundlaugavegi 24,
Reykjavík.
Íþrótta-
mannvirki/
tónlistarhús
Frá Gunnari Má Haukssyni:
BARNIÐ er arftakinn, sem tekur
við af okkur í veröldinni, sem alltaf
líður áfram endalaust í Guðs
geimi, sem við erum ábyrg fyrir til
framhaldslífsins hér í heimi.
Hið nýfædda ungbarn tekur því
sem hið nýja umhverfi réttir því
hvar sem er á hnettinum, og verð-
ur að semja sig að öllum þjóðsið-
um og tungu þeirrar þjóðar hvar
sem það er fætt, svo undursamleg
er sköpun lífsins í heiminum. Allir
menn hafa fengið þá hæfileika í
vöggugjöf að geta samið sig að sið-
um og lært mál þess lands sem
þeir eru settir í. Aðeins eru menn
eðlislega ólíkir í náttúrugreind.
Skaparinn hefur gefið öllum hæfi-
leika til að þroska greind sína. Svo
vel hefur Drottinn allífsins sáð
hinu góða sæði yfir allt mannkyn-
ið, aðeins vantar ræktunina!
Barnið þarf strax og það lærir
málið, að heyra aðeins hið fagra,
sannleika, réttlæti, trú, og kær-
leika. Það þarf að uppræta illgres-
ið hér í heimi með hinu góða sæði
Guðsorðs svo að hið illa fyrirfinn-
ist ekki lengur, fyrir hið unga líf
sem kemur úr Guðsríki, svo að
birta himnaríkis fái að skína hér í
heimi.
Kristnifræðsla er mjög takmörk-
uð í barna- og unglingafræðslu
hérlendis, og er mjög fábreytt.
Gaman og gott væri ef dæmisögur
Biblíunnar væri hægt að færa í
myndrænan búning, og víst yrði
hin kristilega kennsla auðlærðari
og líflegri í myndformi, áhrifa-
ríkari og eftirminnilegri. Stöðugt
eftirlit þarf að vera með börnum
og eins unglingum, barnið er lengi
að komast til þroska, freistingarn-
ar eru margar og gott væri að
auka samverustundir undir eftirliti
með góðum og glöðum skemmti-
atriðum – til fagnaðar og gleði.
Fráleitt finnst mér að áfengis-
sala sé leyfð unglingum þótt átján
ára séu orðnir – og hví þarf áfeng-
isverslun að vera leyfð? Hvaða
gleði gefur hún, þar sem svo mikið
er í boði af allsnægtum og svo er
almenn ofneysla áfengis til skað-
ræðis, jafnvel til öryrkju, heimili
lögð í rúst og börnin þurfa að
gjalda á heimilunum. Það er sak-
næmt athæfi hinna fullorðnu að
leyfa áfengissölu.
Bókmenntirnar tækju breyting-
um við kristilegt hugarfar, listirn-
ar mundu taka fegurri stefnu og
náttúran mundi skapa fegurri og
áhrifaríkari verk. Skólarnir ættu
að fara með nemendurna út í góðu
veðri og tala til ungviðisins. Öll
skrípakúnst mundi smáhverfa og
fögur hugverk verða til, og nýtt líf
skapast í heiminum. Hinir full-
orðnu eru ábyrgir.
Hljómlistin mundi slá á nýja
strengi á hörpu sinni við að sitja
við nið fossins sem fellur niður af
hömrunum ef nemendur mundu fá
kennslustundir við fossniðinn.
Náttúran er svo unaðsleg og færir
okkur til guðdómsins. Söngvarinn
nær rödd náttúrunnar og allar list-
ir blómstra í nýjum hljómum úti í
náttúru Guðs sköpunar.
Barnið er hnoss frá Guði á
himnum sem okkur ber að varð-
veita. Höfum alltaf eftirlit með því
hvar það er og hvað það er að
gera.
Guð varðveiti ungviði heimsins
og gefi því þroska til þess að bæta
veröldina.
JÓHANNA B. WATHNE,
Lindargötu 61,
101 Reykjavík.
Barnið – arftakinn
Frá Jóhönnu B. Wathne:
SMS FRÉTTIR mbl.is