Morgunblaðið - 01.09.2003, Síða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10. Fé-
lagsvist í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 11
boccia. Handa-
vinnustofan er opin. Kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Púttvöllur
opinn mánudag til
föstudags kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 samverustund.
Félagsstaf aldraðra í
Garðabæ. Leikfimi
kvenna kl. 9.30 og kl.
10.30.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofa félags eldri
borgara í Kópavogi er
opin í dag frá kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16, félagsvist kl. 14,
kl. 9–12 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Línudans-
kennsla fyrir byrj-
endur kl. 18. Dans-
kennsla,
samkvæmisdansar,
framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. Kenn-
ari Sigvaldi. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Opin vinnu-
stofa frá kl. 9–16.30,
frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 15.15 dans.
Hádegis- og kaffiveit-
ingar í Kaffi Berg.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum frá kl. 9–17.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, perlu-
saumur, kortagerð og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
sögustund og spjall, kl.
13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
13 frjáls spilamennska.
Fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 10–
11 ganga, kl. 13–16.45
opnar vinnustofur.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 hand-
mennt og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerð
og boccia, kl. 13 frjáls
spil.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður:
Blóm og gjafavörur,
Aðalgötu 7. Hvamms-
tangi: Verslunin Hlín,
Hvammstangabraut
28. Akureyri:
Bókabúð Jónasar,
Hafnarstræti 108,
Möppudýrin, Sunnu-
hlíð 12c. Mývatnssveit:
Pósthúsið í Reykjahlíð.
Húsavík:
Blómasetrið, Héðins-
braut 1. Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vest-
urlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borg-
arnes: Dalbrún, Brák-
arbraut 3. Grund-
arfjörður:
Hrannarbúð sf.,
Hrannarstíg 5. Stykk-
ishólmur:
Hjá Sesselju Pálsd.,
Silfurgötu 36. Ísafjörð-
ur: Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís
Guðmundsd., Laug-
arholti, Brú.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Birgir Hallvarðsson,
Botnahlíð 14, Seyð-
isfirði, s. 472 -1173;
Blómabær, Miðvangi,
Egilsstöðum, s. 471
-2230; Nesbær ehf.,
Egilsbraut 5, 740 Nes-
kaupstað, s. 477 -1115;
Gréta Friðriksdóttir,
Brekkugötu 13, Reyð-
arfirði, s. 474-1177; Að-
alheiður Ingimundar-
dóttir, Bleiksárhlíð 57,
Eskifirði, s. 476- 1223;
María Óskarsdóttir,
Hlíðargötu 26, Fá-
skrúðsfirði, s. 475-
1273; Sigríður Magn-
úsdóttir, Heiðmörk 11,
Stöðvarfjörður, s. 475-
8854.
Í dag er mánudagur 1. sept-
ember, 244. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Látið Krist ríkja í
hjörtum yðar, því að til friðar vor-
uð þér kallaðir sem limir í einum
líkama. Verið þakklátir.
(Kól. 3, 15.)
Vefþjóðviljinn fjallarum ritstjórnarlegt
frelsi: „Það kom sér illa
fyrir fréttastofu Stöðvar
2 í vikunni að hafa Árna
Snævarr ekki lengur í liði
sínu. Árni hefur nefni-
lega fréttanef og hefði ef-
laust náð að þefa uppi þá
frétt að Árna Snævarr,
fréttamanni á Stöð 2,
hefði verið sagt upp
störfum. En Árni var
horfinn á braut og þess
vegna var Stöð 2 eini fjöl-
miðill landsins sem ekki
frétti af starfslokum
Árna. Öllum öðrum fjöl-
miðlum þótti þetta hins
vegar fréttnæmt og
fluttu löng viðtöl við
fréttamanninn fyrrver-
andi sem lýsti ofríki sem
hann taldi eigendur
Stöðvar 2 beita frétta-
stofuna.
Nú er auðvitað leið-inlegt þegar fólk
missir vinnuna og sjálf-
sagt tekur það fólk sárar
þegar það gerist fyrir
allra augum eins og í til-
felli Árna og ýmissa fyrr-
verandi starfsfélaga hans
á síðustu vikum. Engu að
síður hafa fréttamenn
annarra miðla rætt þess-
ar uppsagnir ítrekað og
gjarnan hnýtt við þær
umræður nokkrum orð-
um um það sem þeir kalla
„ritstjórnarlegt frelsi
fréttastofu“. Það hugtak
er hins vegar svona og
svona. Í því felst einfald-
lega að tilteknir starfs-
menn fyrirtækis skuli
stjórna því – eða stjórna
því á ákveðnu sviði – en
eigendur þess megi ekki
hafa áhrif þar á. Þetta
sjónarmið er hæpið. Það
er í raun ekkert að því að
eigandi fjölmiðils ákveði
hvaða fréttir fjölmiðillinn
segir eða við hvern hann
talar. Ef Karl Garð-
arsson, fréttastjóri Stöðv-
ar 2, kaupir stöðina í
fyrramálið, þá má hann
alveg halda áfram að
ákveða hvaða fréttir eru
sagðar. Ætli ekki megi
ímynda sér að á flestum
fréttastofum sé einhver
einn maður æðstur og
hafi vald til að skera úr
um álitamál. Það hvort
þessi maður á fjölmið-
ilinn eða ekki skiptir ekki
máli. Það hvort þessi
maður er Karl Garð-
arsson fréttastjóri, Sig-
urður G. Guðjónsson for-
stjóri eða Jón Ólafsson
aðaleigandi er frá al-
mennu sjónarmiðu auka-
atriði. Eða hvað ef Jón
ákveður að ráða Sigurð
sem fréttastjóra, mætti
Sigurður þá ekki stjórna
fréttastofunni? Eða ef
Jón ákveður að ráða Jón,
mætti Jón þá ekki stjórna
fréttastofunni, bara af
því að hann er eigandi?
Hvað ef einhver maðurákveður að stofna
fjölmiðil og vera eini
starfsmaður hans? Þá
myndi hann auðvitað
vera einráður um það
sem birtist þar. En ef
hann myndi nú ráða fleiri
starfsmenn, mætti hann
þá allt í einu ekki lengur
skipta sér af, því þá væri
hann farinn að „ógna“
einhverju „ritstjórnar-
legu sjálfstæði“?“ spyrja
Vefþjóðviljamenn.
STAKSTEINAR
Er ritstjórnarlegu sjálf-
stæði Stöðvar 2 ógnað?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA hefur borist harðortbréf frá reiðum lesanda sem
krefst þess að hann eða Morgun-
blaðið biðjist afsökunar á pistli sem
hann skrifaði mánudaginn 18. ágúst.
Þar segir Víkverji að fátt fari „meira
í taugarnar á sér en nánast
ókunnugt fólk sem tekur upp á því
að kalla hann elskuna sína eða vin-
una“ og að hann „vildi helst að fólk
sleppti slíkum gælunöfnum“. Bréf-
ritari segir alls ekki sæma Morg-
unblaðinu eða starfsmönnum þess
„að sveigja að fólki með svo grófum
hætti sem Víkverji gerði í pistli sín-
um“.
Í bréfi lesandans segir: „Veit þessi
blaðamaður ekki að þetta er ramm-
íslenskt tungutak, notað til þess eins
að tjá vinsemd eða þakklæti. Þessi
orðnotkun á ekkert skylt við
ágengni af neinu tagi, síst kynferð-
islega, né heldur það að reyna að
koma sér í mjúkinn hjá viðmælanda
sínum.“
Víkverji kann því illa þegar
ókunnugt fólk endar setningu á því
að segja „elskan“ eða „vinan“ enda
er það oft sagt í niðrandi skyni, í því
fellst lítillækkun, nokkurs konar
dulbúin ókurteisi. Eins og Víkverji
bendir á í pistli sínum 18. ágúst veit
hann að viðkomandi meinar þó oft
vel eða vill vera vinalegur og skiptir
þá einnig máli hvernig tónn er not-
aður. Honum þykir þó miður að
bréfritari hafi reiðst pistli hans.
Bréfritari sparar ekki stóru orðin:
„Þessum þóttafulla Víkverja hefði
verið sæmra að skrifa undir fullu
nafni úr því hann taldi sig þurfa að
koma þessari siðbótartillögu sinni á
framfæri við þjóðina í stað þess að
sverta Morgunblaðið með nafn-
leysinu.“
Og áfram heldur bréfritari: „Ég
verð líka að segja að þótt Víkverji
þessi kunni að vera hin fegursta
manneskja þá má hann ekki ganga
með þær grillur að hitt kynið horfi
allt slefandi á eftir honum. Nei, ekki
aldeilis. Ekki einu sinni við, þessir
gömlu.“ Þvert á móti. Víkverji hefur
af því þungar áhyggjur að eftir því
sem hann eldist virðist hitt kynið
steinhætt að sýna honum minnsta
áhuga, ekki einu sinni „eldri menn“.
Hann skilur ekkert í hvernig á því
stendur því að hann er jú einmitt hin
laglegasta manneskja.
x x x
TVÆR vinkonur Víkverja brugðusér nýlega á eitt af öldurhúsum
borgarinnar til að fagna háskóla-
útskrift annarrar þeirra. Í tilefni
dagsins ákváðu þær að fá sér kokteil
á barnum. Pöntuðu þær algenga
tegund sem þjónninn setti saman af
mikilli list og og bragðaðist blandan
ágætlega. Þegar þjónninn nefndi
verðið svelgdist þeim hins vegar á
því að fyrir tvo kokteila áttu þær að
greiða 3.200 krónur! Víkverja finnst
verðlagningin með ólíkindum og
skilur ekki að nokkur manneskja láti
sig hafa það að greiða 1.600 krónur
fyrir drykk í glasi.
Hvað á drykkurinn að kosta?
Fagurgali bankanna
Á BAKSÍÐU Fréttablaðs-
ins mánudaginn 25. ágúst
síðastliðinn auglýsir Bún-
aðarbankinn bestu náms-
mannakjörin. Nú geta
námsmenn landsins fengið
allt að 250 þúsund króna yf-
irdráttarheimild, 300 þús-
und króna tölvulán, fyrsta
ársgjaldið af kreditkortinu
frítt og greiðsludreifingu.
Auk þess flottar inngöngu-
gjafir og ýmiss konar þjón-
ustu. Aðrir bankar auglýsa
svipað.
Íslandsbanki auglýsir
t.d. að hann geri næstum
allt fyrir nemendur. Á aug-
lýsingunum gefur að líta
ungt, fallegt, brosandi fólk
sem er greinilega ákaflega
ánægt með sitt hlutskipti.
Ungt fólk sem getur með
aðstoð lánastofnana keypt
sér lífsnauðsynlega hluti
eins og tölvur, síma og nýj-
ar gallabuxur. Ungt fólk
sem nú getur steypt sér í
skuldir fyrirhafnarlaust
jafnvel áður en það verður
tvítugt.
Sannleikurinn er sá að
hér er verið að ginna ungt
fólk til að hleypa sér í stór-
skuldir á okurvöxtum. Háir
útlánsvextir banka á Ís-
landi eru frægir að endem-
um um víða veröld, ekki síst
vextir á yfirdráttarheimild-
um. Margur hefði talið
ólöglegt að auglýsa á svo
villandi hátt. Dregin er upp
ein stór glansmynd af hinni
svokölluðu „aðstoð“ við
nemendur landsins en
hvergi minnst á kostnað-
inn. Þetta lítur út fyrir að
vera hrein guðsgjöf og í
augum unglinga, sem hafa
alist upp við auglýsingar og
gegndarlausa neyslu-
hyggju síðustu ára, er þetta
áreiðanlega afskaplega eft-
irsóknarvert. Það þarf
nefnilega bæði aldur og
reynslu, nokkuð sem þessir
krakkar hafa kannski ekki
svo mikið af, til að sjá í
gegnum fagurgalann. Eng-
in tilviljun er að hagnaður
bankanna hér tvöfaldast
milli ára.
Tökum höndum saman
og verjum unga fólkið okk-
ar fyrir þessari lævíslegu
tilraun til að veiða það í ok-
urvaxtanetið. Þess tími
mun víst áreiðanlega koma
nógu snemma samt.
Foreldri í Hafnarfirði.
Svar við
fyrirspurn
VEGNA fyrirspurnar um
vísu í Velvakanda nýlega vil
ég koma vísunni á fram-
færi. Hún hljóðar svona:
Úllen, dúllan doff,
kikkelani koff,
koffilani, bikkibani,
úllen dúllan doff.
Þessu fylgir leikur og ef
fyrirspyrjandi vill frekari
upplýsingar getur hann
haft samband í síma
551 6366.
Góð þjónusta
ÉG var nýlega að kaupa
málningu o.fl. hjá Hörpu-
Sjöfn á Snorrabraut og af-
greiddi mig dökkhærður,
hávaxinn maður. Ég var
svo ánægð með hvað þessi
maður sýndi mikla þjón-
ustulund, hann bæði gaf
mér góð ráð og svo gaf
hann sér góðan tíma til að
sinna mér. Að lokum bar
hann vörurnar fyrir mig út
í bíl.
Finnst hann eiga hrós
skilið fyrir góða þjónustu.
Viðskiptavinur.
Auglýst verð
stenst ekki
ÉG hafði nýlega samband
við Flugleiðir og ætlaði að
fá upplýsingar um tilboð á 2
fyrir 1 til Minneapolis í
Bandaríkjunum sem Flug-
leiðir auglýsa í blöðunum.
Var mér sagt að þessi ferð
kostaði 56.140 fyrir mann-
inn með gistingu í 1 viku. Í
ferðabæklingi Flugleiða
eru venjuleg pakkafargjöld
á sama stað á sama tíma á
sama hóteli á 53.600 á
manninn í 1 viku. Þegar ég
talaði við sölukonu Flug-
leiða undraði mig að þetta
tilboð 2 fyrir 1 væri dýrara
en auglýst pakkaferð á
mann í bæklingi félagsins
og vildi fá skýringu á því.
Sagði þá sölukonan að það
væri hækkun vegna gengis
dollarans.
Tel ég að það sé ekki
rétt, gengið hefur ekki
hækkað svona mikið í
ágústmánuði.
Hef ég oft rekið mig á að
auglýst verð hjá Flugleið-
um stenst ekki þegar á
reynir og eru þá notaðar
ýmsar afsakanir.
241049-6209.
Tapað/fundið
Horfið hjól
RAUTT Mongoose Rocka-
dile 21 gíra hjól hvarf frá
Langholtsvegi 163a mánu-
daginn 25. ágúst. Hjólið er
með bláan keðjulás. Ef ein-
hver hefur orðið var við
hjólið vinsamlegast hafið
samband í síma 568 0079
eða 848 4626.
Dýrahald
Kattholt.is
VELVAKANDI bendir
þeim lesendum sínum, sem
eru að leita að kisum eða
eru með kisur í óskilum, að
Kattholt hefur opnað vef-
inn kattholt.is en þar er
hægt að auglýsa eftir kis-
um eða leita að týndri kisu.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 hlífðarlaust, 8 end-
urbót, 9 falla, 10 sár, 11
oft, 13 flanaði, 15 endur-
tekningar, 18 formæður,
21 bjargbúa, 22 snúin, 23
dysjar, 24 hörkutóls.
LÓÐRÉTT
2 heyskapartæki, 3 gleðj-
um, 4 hugleysingi, 5
gjálfra, 6 tómt, 7 opi, 12
ekki gömul, 14 tók, 15 at,
16 gamla, 17 happið, 18
ranga, 19 milli-
göngumann, 20 magurt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 raust, 4 gepil, 7 bútur, 8 reyfi, 9 fit, 11 iðni, 12
bana, 14 nagla, 15 senn, 17 krás, 20 mis, 22 lukka, 23
kópur, 24 asnar, 25 lánið.
Lóðrétt: 1 rebbi, 2 urtan, 3 torf, 4 gort, 5 peyja, 6 leifa,
10 Ingvi, 12 inn, 13 bak, 15 selja, 16 nakin, 18 ræpan, 19
skráð, 20 maur, 21 skál.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16