Morgunblaðið - 01.09.2003, Side 32

Morgunblaðið - 01.09.2003, Side 32
32 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12. AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. KRINGLAN Sýnd kl .6, 7, 8, 9 og 10. B.i. 12. 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! Frábær tónlist, m.a. lagið Times like these með Foo Fighters Sýnd á klukkutíma fresti NÓI ALBINÓI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL Sýnd. kl. 6. Enskur texti - With english subtitles 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“ stórkostleg”!  KVIKMYNDIR.COM  Skonrokk FM 90.9 Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára. BLOODY SUNDAY Sýnd kl. 5.50. THE MAGDALENE SISTERS Sýnd kl. 5.45. ALL OR NOTHING Sýnd kl. 8. CROUPIER Sýnd kl. 8. PURELY BELTER Sýnd kl. 8. SWEET SIXTEEN Sýnd kl. 10. PLOTS WITH A VIEW Sýnd kl. 10.30. PURE Sýnd kl. 10. Á MORGUN verða haldnir á Gauki á Stöng minningartón- leikar um Bjarka Friðriksson tónlistarmann, sem lést af völd- um heilahimnubólgu fyrir tíu ár- um, tæplega tvítugur að aldri. Bjarki kom víða við í tónlistinni þótt ungur væri og snerti líf margra tónlistarmanna sem í dag eru framarlega í tónlistarflóru Íslands. Allar sveitirnar sem koma fram á tónleikunum tengd- ust honum á einn eða annan hátt. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, systir Bjarka, segir hugmyndina hafa kviknað í vor. „Ég fékk þessa flugu í hausinn og hringdi í Alla besta vin hans og síðan í landlækni, og spurði hvort hann væri til að hjálpa okkur með þetta. Landlæknir tók mjög vel í þetta og við ákváðum að reyna að undirbúa þetta í sumar og smala saman öllum hljómsveit- unum sem hann var í og síðan þeim hljómsveitum sem þeir hljómsveitarmeðlimir hafa farið út í. Við viljum líka skapa um- fjöllun um þennan sjúkdóm, vegna þess að hann kemur reglu- lega upp. Hann lýsir sér fyrst eins og flensa, en áður en þú veist ertu kominn upp á spítala. Munurinn milli lífs og dauða get- ur hlaupið á mínútum. Það skipt- ir miklu máli að vera vakandi fyrir því ef barnið þitt veikist eða þú finnur fyrir stífni í hálsi og slíkum einkennum. Það má líka finna meiri upplýsingar um sjúk- dóminn á heimasíðu landlækn- isembættisins www.landlaeknir- .is.“ Eftirtaldar hljómsveitir og tónlistarmenn munu koma fram á tónleikunum: Maus Botnleðja Jan Mayen Tube Reggae on Ice The Flavors In Bloom Ðí Kommitments Eyjólfur Kristjánsson Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Davíð Þór Jónsson Kynnir á tónleikunum verður Rúnar Freyr Gíslason leikari og hefjast þeir klukkan 21:30. Að sögn landlæknis er heila- himnubólga tíðari á Íslandi en í öðrum löndum og margt órann- sakað um orsakir hennar. Allur ágóði vegna tónleikanna mun renna til rannsókna á heila- himnubólgu í samstarfi við land- lækni. Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum geta líka lagt peninga inn á bankareikning: 1175-26- 20000 hjá Sparisjóði vélstjóra í Borgartúni. Morgunblaðið/Árni Torfason Bjarki Friðriksson lést úr heilahimnubólgu fyrir tíu árum síðan, ein- ungis nítján ára gamall. Spilað gegn heilahimnubólgu Hljómsveitin Maus er meðal þeirra sem Bjarki hefur snert, en Birgir Örn, gítarleik- ari og söngvari sveitarinnar, var með Bjarka í sinni fyrstu hljómsveit. snúningum og hnakkareigingum. Tangóinn er ættaður frá Arg- entínu og eru rætur hans um- deildar, sumir vilja meina að hann hafi fæðst í vændishúsum Buenos Aires fyrir hundrað og fimmtíu árum, en aðrir telja lík- legri skýringu að tangóinn hafi orðið til í bakgörðum blokka fá- tækrahverfanna, þar sem alþýðan kom saman eftir vinnu og lék á gítar og dansaði. Þaðan hafi ÁHUGAFÓLK um siðmenntaða skemmtun fékk svo sannarlega sinn skerf af gleði á fimmtudags- kvöldið, en þá hélt Egill Ólafsson, ásamt hljómsveit, forláta tangó- tónleika. Það var ekki laust við að fólk kitlaði í danstaugarnar, enda hefur tangóinn afar lokk- andi hrynjandi og tónfall. Danspar sá um að ljá tónleik- unum ósvikna tangóstemningu með tilheyrandi sveiflum, Tignarlegur tangó stiginn á NASA BUSAVÍGSLA fór fram í Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á föstudag á Reykjaströnd í Skaga- firði. Busarnir komu saman um há- degisbilið fyrir utan bóknámshús skólans og fóru með rútu upp að Grettislaug þar sem ýmis verkefni í langri þrautabraut voru lögð fyrir þá. Þar á meðal má nefna fjölda- söng í hlöðu rétt hjá Grettislaug, steinalyftu og grútarbað. Er þessu var lokið áttu svo busarnir að fara með afar illa kveðna vísu sem ekki telst birtingarhæf vegna dæmalaust lélegrar stafsetningar. Eftir að hafa bragðað á sérstökum vígslugraut voru busarnir loksins skírðir í Grettislaug og boðnir velkomnir í skólann. Vilhjálmur Árnason, formaður Busarnir boðnir velkomnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.