Morgunblaðið - 11.09.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðjón TeiturMagnússon fædd-
ist á Selhellu í Mjóa-
firði eystra 1. septem-
ber 1916. Hann lést á
Hrafnistu í Reykjavík
24. ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Ingibjörg Fil-
ippusdóttir, f. 18.
september 1884, d.
16. júlí 1958, og
Magnús Árnason, f.
19. júlí 1873, d. 19.
janúar 1951. Guðjón
átti einn bróður, Árna
Magnússon, f. 3. maí
1914, d. 16. september 1999.
Guðjón fluttist frá Mjóafirði með
foreldrum sínum og
bróður til Siglufjarð-
ar 1942 og lærði þar
járnsmíði, sem hann
vann lengst við.
Hann fluttist til Nes-
kaupstaðar eftir lát
foreldra sinna og síð-
an til Reykjavíkur,
síðustu sjö árin
dvaldist hann á
Hrafnistu í Reykja-
vík.
Hann var ókvænt-
ur og barnlaus.
Útför Guðjóns
verður gerð frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst athöfnin
klukkan 10.30.
Elsku Guðjón, nokkur kveðjuorð til
þín.
Nú er þínu erfiða veikindastríði lok-
ið og þú kominn til betri heima.
Þú veist að þú varst besti frændinn
minn og gerðir svo margt fyrir mig,
systkini mín og mömmu.
Við erum öll þakklát þér fyrir allt
liðið, þú varst alltaf fyrstur til staðar,
þegar eitthvað bjátaði á.
Eins og þú fyndir það á þér.
Ég kveð þig nú kæri vinur.
Vertu sæll og kær þökk frá öllum,
við hittumst þegar röðin kemur að
mér, kærar þakkir til alls starfsfólks á
A 3 Hrafnistu Reykjavík, fyrir frá-
bæra hjúkrun og alla umönnun.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín frænka
Hulda Filippusdóttir.
Nú ertu farinn frá okkur, elsku
Guðjón minn, þangað sem þér líður
betur eftir löng og erfið veikindi. Eng-
inn vissi raunverulega hvernig þér leið
því þú gast ekkert tjáð þig né þekkt
okkur. Þú varst búinn að vera hjálp-
arhella mömmu eftir að pabbi dó og
hjálpaðir henni með heimilið og börn-
in sem þá voru ung og þegar ég lá í
þrjá mánuði á spítala komst þú alltaf
til mín og styttir mér stundir. Hafðu
þökk fyrir allt, þú vildir öllum gott
gera. Vertu blessaður, Guðjón minn,
og guð geymi þig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Þín frænka
Ingirós Filippusdóttir.
Elsku frændi minn, þá er komið að
því að kveðja þig um sinn. Minning-
arnar hafa leitað sterkt á huga minn
síðustu daga. Þú varst svo miklu
meira en bara frændi. Mér finnst
fyrsta minningin um þig vera þegar ég
er um það bil fjögurra ára. Þegar ég
vaknaði um morguninn heyrði ég rödd
þína frammi. Þú hafðir komið í land
með skipinu þínu um nóttina. Ég varð
ofsaglöð, hljóp fram og kyssti þig svo
fast að ég meiddi þig í nefinu. Þér brá
og þú skammaðir mig pínulítið en það
fyrirgafst fljótt. Þú komst auðvitað
færandi hendi, alltaf að gleðja okkur,
það var ótrúlegt hvað þú vissir hvað
litla stelpu sem var alltaf í mömmuleik
vanhagaði um. Ég gleymi ekki litlu
saumavélinni sem ég gat saumað
dúkkuföt á, bleika dúkkuvagninum
sem vaggaði svo mjúklega, dúkkunni
sem gat sagt „mamí“ og svo ótal
mörgu fleiru. Auðvitað voru þetta
„bara“ veraldlegir hlutir en þeir gáfu
mér svo ótal margar ánægjustundir.
Ég get ennþá lokað augunum og lýst
þeim í smáatriðum. Ég man þegar ég
fékk að fara með þér um borð í skipið
sem þú varst á og skoða þar allar vist-
arverur. Ég var svo stolt að vera með
þér, mér fannst þú alltaf svo flottur,
smekklega klæddur og með pípuna og
alpahúfuna. Þú varst búinn að sigla
um öll heimsins höf. Ég drakk í mig
allar ferðasögurnar þínar sem rifjast
upp þegar ég ferðast sjálf, Hamborg,
Palermó og Gíbraltar, þetta eru nöfn
sem sitja fast í huga mér. Ég hef held-
ur ekki gleymt ferðinni sem ég fór
með þér til Akureyrar, við fórum bara
tvö saman á bílnum þínum, ég man
ekki erindið, ég man bara þegar við
sátum á Hótel KEA og borðuðum svo
fallega smurt brauð og drukkum kók
með, mér fannst ég vera eins og prins-
essa með þér. Ég man þegar þú varst
að hjálpa pabba að byggja fína húsið
okkar. Ég hef grun um að þið hafið
báðir vitað að pabbi átti ekki mörg ár
eftir. Það var ekki lítils virði að eiga
þig að þegar pabbi þurfti að kveðja
okkur og þrjú af okkur voru enn svo
ung. Við erum þér ævinlega svo þakk-
lát. Ég vil ekki vita hvernig lífið hefði
verið án þín. Þú gleymdir heldur ekki
að minna á hvað pabbi okkar hefði
verið stór persónuleiki. Ef þú sást eitt-
hvað sem var ekki nógu vandað sagðir
þú: „Þetta hefði hann pabbi ykkar
ekki látið frá sér fara.“ Ég minnist
unglingsáranna þegar við háðum
nokkrar rimmur, þú varst allt í einu
orðinn óþolandi afskiptasamur
frændi, þér fannst ég gera ótal vitleys-
ur en þú sagðir: Það er bót í máli að þú
lærir af mistökunum og gerir ekki
sömu vitleysuna oftar en einu sinni.
Ég vil muna þau orð. Ég man þegar
ég keypti fyrsta bílinn minn af veikum
mætti og var búin að klessukeyra
hann eftir nokkrar vikur. Frændi
sagði ekki mikið, gekk bara um gólf og
hugsaði sitt. Eftir fáeina daga fékk ég
skilaboð um að láta draga bílinn í
skúrinn hans og auðvitað var það hann
sem gerði við hann. Svona er frænda
GUÐJÓN T.
MAGNÚSSON
Mig langar til að
minnast ömmu minnar,
hennar ömmu Rúnu
eins og við kölluðum
hana. Er ég fer að
hugsa til baka finnst
mér amma Rúna alltaf hafa verið
eins, ef undan eru skilin sl. tvö til þrjú
ár.
Þegar ég var lítil stelpa á Hofsósi
voru ófáar stundirnar sem ég átti í
Reynihlíð. Alltaf hafði amma tíma
fyrir okkur krakkana, hvort sem það
var að spila eða spjalla við okkur, við
kræsingarnar á eldhúsborðinu eða
inni í stofu. Margar stundirnar áttum
við Guðrún Hulda frænka í kjallaran-
um í búðarleik, þá var nú gaman að
raða upp og nota öll kökudropaglösin
hennar ömmu sem hún safnaði lítil
sem stór, að ógleymdum gömlu föt-
GUÐRÚN ELÍN
KRISTJÁNSDÓTTIR
✝ Guðrún ElínKristjánsdóttir
fæddist í Sæbergi á
Hofsósi 27. septem-
ber 1928. Hún lést í
Reykjavík 20. ágúst
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Hofsóskirkju 6.
september.
unum og skónum í
skápnum í kjallaranum.
Óteljandi ljúfar minn-
ingar koma nú upp í
huga minn sem ég mun
seinna geta deilt með
börnum mínum og mun
varðveita í hjarta mínu.
Eftir að ég fór frá
Hofsósi og fór að koma
til ömmu og afa með
börnin mín og maka var
alltaf jafn gott að koma í
Reynihlíðina. Allt
óbreytt, kaffið og kræs-
ingarnar hennar ömmu
komnar á borðið á auga-
bragði og krakkarnir gengu að dóta-
kassanum undir símastólnum ávallt á
sínum stað.
Nú verður skrýtið að koma í Hofs-
ós, engin amma Rúna á Kárastígnum.
Elsku afi minn, Guð styrki þig og
veri með þér í þessari sorg og þínum
veikindum. Mamma, Kidda, Binna,
Steini, Kristján, Biggi, Elli og aðrir
aðstandendur, Guð veri með okkur og
styrki á þessum erfiða tíma.
Ég kveð þig hinstu kveðju, amma
mín. Hvíldu í friði.
Þín
Guðlaug Anna.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR R. INGIMUNDARSONAR,
Álfheimum 4.
Dóra M. Ingólfsdóttir,
Lilja Sigurðardóttir,
Anna Sigurðardóttir, Konráð Jónsson,
Erna Sigurðardóttir, Tonny Espersen,
Ingi Sigurðsson,
Berglind Sigurðardóttir, Atli Sigurðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
EIRÍKS VALDIMARSSONAR
frá Norðurgarði á Skeiðum,
Grænumörk 5,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima, Sel-
fossi, fyrir frábæra umönnun og velvild.
Rósa Pétursdóttir,
Jónas Guðmundsson, Sólveig Jóhannsdóttir,
Ragnheiður Eiríksdóttir, Gunnar Haraldsson,
Sigmar Eiríksson, Sigríður Ástmundsdóttir,
Pétur Eiríksson, Jóna Jónsdóttir,
Sævar Eiríksson, Inga J. Finnbogadóttir,
Valdimar Eiríksson, Guðbjörg Hrafnsdóttir,
Soffía Ellertsdóttir, Tómas Tómasson,
barnabörn og langafabörn.
Elskuð föðursystir mín,
MARÍA PÉTURSDÓTTIR
fyrrverandi skólastjóri,
sem lést fimmtudaginn 4. september, verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag, fimmtu-
daginn 11. september, kl. 15.00.
Fyrir hönd ástvina,
Pétur Esrason.
Ástkærar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur ást og samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR ÁGÚSTU SÖEBECH
(Sísýar),
Torfufelli 29,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Blóðlækningadeild Landspítalans 11G sem
umvafði okkur kærleika og fylgdi okkur síðasta spölinn af ástúð og um-
hyggju.
Guð blessi ykkur öll.
Einar Einarsson, Suzanne Einarsson,
Pétur Kristjánsson, Þóra Ingvaldsdóttir,
Kristján Kristjánsson, Þórunn Þórarinsdóttir,
Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór Gunnarsson,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
GUÐRÍÐAR ÁSTRÁÐSDÓTTUR
Distu,
Vesturgötu 7,
Reykjavík.
Ástráður S. Guðmundsson, Erlín Óskarsdóttir,
Reynir K. Guðmundsson,
Gunnar F. Guðmundsson,
Guðmundur Garðar Guðmundsson, Sigríður Valgeirsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
auðsýnt hafa okkur hlýhug, samúð og vináttu
við andát og útför
HILDAR ARNDÍSAR KJARTANSDÓTTUR,
Ljósheimum 16b.
Sérstakar þakkir færum við Óskari Þór Jó-
hannssyni, krabbameinslækni og hjúkrunar-
þjónustunni Karitas, fyrir frábæra umönnun og
hlýju. Guð veri með ykkur öllum.
Sigurjón Guðbjörnsson,
Oddný Björg Hólmbergsdóttir, Jón Guðmundsson,
Rósa Hallgeirsdóttir, Lárus H. Lárusson,
Guðmunda Hallgeirsdóttir,
Kjartan Hallgeirsson, Soffía Guðrún Magnúsdóttir,
Halla Hallgeirsdóttir.