Morgunblaðið - 11.09.2003, Blaðsíða 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 37
Áskirkja. Opið hús fyrir unga sem aldna er
á fimmtudögum milli kl. 14 og 17 í neðri
safnaðarsal kirkjunnar. Organisti Áskirkju
leiðir söng. Allir hjartanlega velkomnir.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á há-
degi. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið
frá kl. 12. Þjónustu annast sr. Bjarni Karls-
son. Kl. 12.30 er léttur málsverður í boði í
safnaðarheimilinu.
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. NEDÓ-unglinga-
klúbburinn. 8. bekkur kl. 17, 9. bekkur og
eldri kl. 20.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11. Bænastund kl. 12.10.
Unglingakór Digraneskirkju kl. 16.30–19.
(Sjá nánar: www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir.
Óháði söfnuðurinn. 12 sporin, andlegt
ferðalag. Annar kynningarfundur á tólf
spora starfi vetrarins í kvöld kl. 10. Allir vel-
komnir. Umsjón: Ragnar Kristjánsson, s.
690 6694.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn
og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar-
heimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús
fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn/foreldramorgunn í safn-
aðarheimilinu. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kl.
14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja.
Keflavíkurkirkja. Yngri nemar í Myllubakka-
skóla safnast saman í Kirkjulundi í minn-
ingu hins ástsæla skólamanns og skóla-
stjóra Vilhjálms Ketilssonar kl. 10 árd. og
eldri nemar koma saman kl. 11 árd. Fyrrum
nemar Myllubakkaskóla, sem eru nú í FS,
koma saman kl. 14 í Kirkjulundi. Rut Reg-
inalds syngur sigurlag Ljósanætur, Ljóssins
englar eftir Magnús Kjartansson, og Ég trúi
á ljós.
Fíladelfía. Eldur unga fólksins. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í kapellu kl. 12. Léttur hádegisverður
á vægu verði í Safnaðarheimili eftir stund-
ina. Barnakór kl. 15.30 og unglingakór kl.
17.30. Fyrstu æfingar haustsins. Inntaka
nýrra félaga í kórana stendur yfir. Upplýs-
ingar veitir Eyþór Ingi í síma 462 7702 eða
866 3393.
Safnaðarstarf
NÚ er vetrarstarfið fyrir fullorðna
að hefjast í Fella- og Hólabrekku-
sóknum.
Á mánudögum verður „Opið
hús“ í safnaðarheimili kirkjunnar
kl. 13:00–15:30 í umsjón Lilju G.
Hallgrímsdóttur djákna. Þar verð-
ur fræðsla ýmiss konar, föndrað,
spilað og spjallað. Kaffiveitingar
verða í boði. Þeir sem óska eftir
akstri eru beðnir að láta vita fyrir
hádegi á mánudögum.
Á mánudögum verður fyr-
irbænastund í kapellu kirkjunnar
kl. 15:30–15:45. Bænaefnum má
koma til djákna, presta eða ann-
arra starfsmanna kirkjunnar.
Á fimmtudögum er biblíulestur
og helgistund í Gerðubergi kl.
10:30–12:00, í samvinnu við fé-
lagsþjónustuna þar, í umsjón Lilju
djákna. Í haust verður Jobsbók
lesin í biblíulestrunum og reynt að
finna textanum stað í samtím-
anum.
Stundum er farið í heimsóknir í
aðrar kirkjur eða farið í ferðalög
og er það auglýst sérstaklega.
Eins verða auglýst sérstaklega
námskeið sem haldin verða í kirkj-
unni í vetur.
Fella- og Hólakirkja býður upp
á kirkjulega heimsóknarþjónustu.
Heimsóknin getur verið á heimili,
á sjúkrahús eða á stofnun. Hafi
sóknarbarn í Fella- eða Hóla-
brekkusókn áhuga á að djákni
heimsæki sig eða sína eða að
koma sjálft á fund djákna í kirkj-
unni þá hafið samband í s. 557
3280. Fastir viðtalstímar djákna
eru mánud. til miðvikud. kl. 11–12
eða á öðrum tíma eftir sam-
komulagi.
Kærleiksþjónusta Fella- og
Hólakirkju býður upp á fjölbreytta
dagskrá þar sem ýmislegt er gert
til fróðleiks og skemmtunar en
umfram allt er það kærleikurinn
og samveran sem fer með aðal-
hlutverkið.
Vetrarstarf
Fella- og Hóla-
kirkju
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Fella- og Hólakirkja
KIRKJUSTARF
Mennta- og menningarsamtök Ís-
lands og Japans standa fyrir pall-
borðsumræðum í Hátíðarsal Há-
skóla Íslands á morgun, föstudaginn
12. september, kl. 15. Umræðuefnið
er orkumál Íslands og Japans. Til-
efnið er málþingslok en nú eru
staddir hér á landi 7 japanskir há-
skólanemar á vegum samtakanna.
Framsögumenn verða: Anna Agn-
arsdóttir, forseti heimspekideildar
HÍ, Gunnhildur Gunnarsdóttir, for-
maður Íslensk-japanska félagsins,
Júlíus Sólnes, prófessor við um-
hverfis- og byggingaverkfræðiskor
HÍ, Þorsteinn Hilmarsson, kynning-
arfulltrúi hjá Landsvirkjun, og Þor-
steinn Ingi Sigfússon, stjórn-
arformaður Íslenskrar nýorku.
Fundarstjóri er Anna Agnarsdóttir.
Allir eru velkomnir.
Á MORGUN
Ráðstefna um málefni þróun-
arlanda og þróunaraðstoð Ís-
lands verður haldin 15. september
kl. 13–17 í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands. Þróunarsamvinnustofnun Ís-
lands, utanríkisráðuneytið og Há-
skóli Íslands boða til ráðstefnunnar.
Markmið hennar er að vekja athygli
á þróunarsamvinnu Íslendinga og
málefnum þróunarlanda. Á ráðstefn-
unni verður fjallað um þróunarmál
frá alþjóðlegu sjónarhorni, um þró-
unaraðstoð Íslendinga o.fl.
Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, býður gesti velkomna. Forseti
Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
setur ráðstefnuna og fundarstjóri
verður Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu.
Gestafyrirlesari verður dr. Jeffrey
D. Sachs, forstjóri Jarðarstofnunar-
innar (The Earth Institute) við Col-
umbiaháskóla í New York og pró-
fessor í þróunarhagfræði og
heilbrigðisfræðum við sama skóla.
Einnig halda erindi: Jónas H. Har-
alz, fyrrverandi bankastjóri, Þor-
valdur Gylfason, prófessor, Gísli
Pálsson, umdæmisstjóri ÞSSÍ í
Namibíu, Hermann Ingólfsson, að-
stoðarmaður aðalfulltrúa Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna í
stjórn Alþjóðabankans, og Nína
Helgadóttir, verkefnastjóri hjá
Rauða krossi Íslands.
Vefnámskeið um fjarskiptatækni
Síminn og Rafiðnaðarskólinn
brydda upp á nýjung fyrir almenn-
ing og hyggjast efna til vefnám-
skeiðs um fjarskiptatækni. Nám-
skeiðið er ætlað öllum sem eru
áhugasamir um að kynnast hvernig
nýta megi betur fjarskiptatæknina í
sína þágu. Námskeiðið nýtist öllum
símnotendum, sjónvarps- og breið-
bandsnotendum, Internetnotendum,
leiðbeinendum og námsmönnum auk
þeirra sem þurfa að taka ákvarðanir
varðandi val á símkerfi og teng-
ingum fyrirtækja.
Starfsmenntaráð styrkir verkefnið
en Síminn hefur í samstarfi við ýmsa
aðila unnið ötult starf í fræðslu- og
menntamálum starfsmanna sinna.
Vefnámskeið hafa verið haldin um
nokkurt skeið með góðum árangri
fyrir starfsmenn Símans og er vef-
námskeið í fjarskiptatækni fyrir al-
menning útvíkkun á þeirri hug-
mynd.
Fyrsta námskeiðið stendur frá 1.
október til 29. október nk. og er um-
sóknarfrestur til 26. september. Þar
sem um vefnámskeið er að ræða get-
ur nemandinn skilað hvenær sem er
á því tímabili. Annað námskeiðið
verður 15. október til 12. nóvember
og er umsóknarfrestur til 10. októ-
ber. Þriðja námskeiðið verður 29.
október til 26. nóvember og er um-
sóknarfrestur til 24. október. Upp-
lýsingar og umsóknareyðublað er að
finna á vefsíðum Símans, www.sim-
inn.is/vefnaskeid, og Rafiðn-
aðarskólans, www.rafidnandarskol-
inn.is.
Auðveldari og árangursríkari
ræðuflutningur Stjórnendaskóli
Háskóla Reykjavíkur heldur nám-
skeið sem styrkir þátttakendur í
ræðuflutningi. Þeir læra að greina
ræður, skrifa ræður og flytja ræður.
Áhersla verður lögð á að þátttak-
endur finni sinn eigin stíl við ræðu-
flutning. Sérstök áhersla er lögð á að
gera ræðuflutning auðveldari og ár-
angursríkari. Námskeiðið er haldið
dagana 15., 17., 22. og 24. september
kl. 18.15–20.15. Leiðbeinandi er Ás-
dís Halla Bragadóttir, MPA, bæj-
arstjóri í Garðabæ.
Á NÆSTUNNI
Sími 555 2615Sími 568 5170
Haust- og vetrarlitirnir
2003-2004
Fimmtudag, föstudag og laugardag Fimmtudag og föstudag
Það geta allir notað nýju litina.
Klæðilegir litir sem eru einfaldir í notkun.
Frábær tilboð á helstu kremunum og flottir kaupaukar.
Sérfræðingar Lancôme taka vel á móti ykkur.