Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 43
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
REGNBOGANUM 3.-19.okt.
BLUE CAR CARANDIRU DIRTY PRETTY THINGS DOGVILLE
ELEPHANT THE FOG OF WAR HERO HOME ROOM MIRRORBALL
STEALING REMBRANDT SÍÐASTA KYNSLÓÐIN THIRTEEN YOUNG ADAM
Verður þú heppinn áskrifandi?
200 heppnir áskrifendur Morgunblaðsins fá miða fyrir
tvo á Kvikmyndahátíð Eddunnar í Regnboganum.
Sendið nafn þátttakanda, kennitölu áskrifanda,
síma/gsm og netfang á leikur@mbl.is
Vinningshafar verða látnir vita og vinningar skulu sóttir í afgreiðslu Morgunblaðsins.
Afsláttarkort til sölu
- sex myndir að eigin
vali á 3000 kr.
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Pfizer á Ís-
landi hefur afhent Landssamtökum
hjartasjúklinga styrk að upphæð
350 þúsund krónur, í tilefni 20 ára
afmælis samtakanna. Formaður
Landssamtaka hjartasjúklinga, Vil-
hjálmur B. Vilhjálmsson, veitti
styrknum viðtöku fyrir hönd sam-
takanna, úr hendi Ernu J. Sig-
mundsdóttur markaðsstjóra.
Landssamtök hjartasjúklinga hafa
gefið heilbrigðisstofnunum tæki að
verðmæti ríflega 300 milljónir
króna á þeim tíma sem samtökin
hafa starfað, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Styrkur til
LHS frá
Pfizer
Lyfjafyrirtækið Pfizer á Íslandi styrkti Landssamtök hjartasjúklinga með
peningagjöf í tilefni 20 ára afmælis samtakanna. Formaður landssamtak-
anna, Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, veitti styrknum viðtöku úr hendi Ernu J.
Sigmundsdóttur, markaðsstjóra Pfizer.
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða
bifreið við Iðnaðarmannahúsið við
Hallveigarstíg 4. október sl. um kl.
18.30. Ekið var ekið utan í vinstri
hlið ljósgrárrar Subaru-fólksbif-
reiðar. Jafnvel er talið að tjónvaldur
hafi verið á rauðum Ford Van. Tjón-
valdur fór burt án þess að tilkynna
tjónið hlutaðeiganda eða lögreglu.
Því er hann eða aðrir sem geta gefið
frekari upplýsingar beðnir að snúa
sér til umferðardeildar lögreglunnar
í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
BJÖRGUNARBÁTI var stolið í síð-
ustu viku úr báti sem beið sjósetn-
ingar við Samtak í Hafnarfirði.
Haukur Sveinbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Samtaks, segir tjónið
tilfinnanlegt fyrir eigandann en slík-
ir bátar kosta um 300 þúsund krónur.
Nýi báturinn stóð við hús Samtaks
í Hafnarfirði og var nánast tilbúinn
til afhendingar. Haukur biður þá
sem kunna að hafa orðið varir við
flutning á björgunarbáti að hafa
samband við lögregluna í Hafnarfirði
eða Samtak. Hann segist vonast til
að fá bátinn aftur óskemmdan og
segir að trúlega hafi tveir komið hér
við sögu því nokkuð þurfi að hafa fyr-
ir því að ná bátnum úr festingum sín-
um. Númer bátsins er 4UK
KO40603.
Björgunar-
báti stolið
Rangt föðurnafn
Föðurnafn Elínar Jónasdóttur var
ekki rétt í blaðinu á föstudag. Elín er
ein höfunda bókarinnar „Snerting,
jóga og slökun“, handbók fyrir leik-
og grunnskólakennara.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Leikhússtjóri, ekki leikstjóri
Vigdís Finnbogadóttir er sögð
hafa verið leikstjóri í frétt í Lesbók á
laugardag. Rétt er að Vigdís var
leikhússtjóri.
Leiðrétt
Fræðslu- og skemmtikvöld á
Hrafnistu. Ættingjabandið, ætt-
ingja- og vinasamband Hrafnistu í
Reykjavík stendur fyrir fræðslu-
og skemmtikvöldi á morgun, mið-
vikudaginn 8. október, kl. 20. Jón
Eyjólfur Jónsson öldrunarlæknir
flytur erindi um öldrun. Hann
fjallar um starfslok, breyttar að-
stæður á efri árum og það ferli sem
þá fer í gang. Ómar Ragnarsson
skemmtir með söng og gam-
anmálum. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar. Skráning fer fram á
Hrafnistu í Reykjavík. Þátttöku-
gjald er 500 krónur.
Málstofa Hagfræðistofnunar
verður á morgun, miðvikudaginn 8.
október, kl. 16.15 á Aragötu. Fyrir
nokkrum árum gaf Guðmundur
Jónsson út bókina Hagvöxtur og
iðnvæðing: Þróun landsframleiðslu
á Íslandi 1870–1945. Þar kom m.a.
fram að árlegur meðalvöxtur lands-
framleiðslu á Íslandi var 2,1% sem
er meiri vöxtur en í flestum löndum
Evrópu og Bandaríkjunum á sama
tímabili. Fjallað verður um orsakir
þessa hagvaxtar og vöxturinn sund-
urliðaður í vöxt aðfanga, á borð við
vinnuafl og fjármagn og framleiðni.
Auk landsframleiðslu er fjallað um
vöxt framleiðslu í þremur greinum;
landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði,
og rætt um þróun framleiðni vinnu-
afls. Guðmundur Jónsson og
Sveinn Agnarsson hafa unnið sam-
eiginlega að þessari rannsókn og
mun sá síðarnefndi kynna nið-
urstöður hennar á málstofunni.
Á MORGUN
Námskeið um sértækar mál-
þroskaraskanir barna. Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríkisins heldur
námskeið um sértækar málþrosk-
araskanir barna á Grand hóteli,
föstudaginn 10. október, kl. 9–17.
Stefán J. Hreiðarsson, for-
stöðumaður Greiningarstöðvar, set-
ur námskeiðið og verður jafnframt
fundarstjóri ásamt Ingibjörgu Hin-
riksdóttur yfirlækni. Erindi halda
m.a. Elín Þöll Þórðardóttir og Frið-
rik Rúnar Guðmundsson.
Námskeiðið er m.a. ætlað starfsfólki
leik- og grunnskóla, heilbrigðisstofn-
ana og sjálfstætt starfandi sérfræð-
ingum, og öðru áhugasömu fagfólki.
Markmið þess er að veita almenna
fræðslu um sértækar málþroska-
raskanir og auka skilning á þörfum
barna með málhamlanir.
Í kaffihléum verða kynningar í and-
dyri á ýmsu efni tengdu málörvun.
Námskeiðið er unnið í samvinnu við
Talþjálfun Reykjavíkur. Nánari
upplýsingar eru á www.greining.is
Haustskreytingar í Garðyrkju-
skólanum. Þriðjudaginn 14. októ-
ber kl. 17–22 verður Garðyrkjuskóli
ríkisins, Reykjum í Ölfusi með nám-
skeið í haustskreytingum fyrir
áhugafólk um skreytingar. Leiðbein-
andi verður Júlíana R. Einarsdóttir,
fagdeildarstjóri á blómaskreyt-
ingabraut skólans. Unnið verður
með efni úr náttúrunni og útbúnar
skreytingar. Skráning á námskeiðið
fer fram á skrifstofu skólans og á
heimasíðu skólans, www.reykir.is
Framvegis – miðstöð um símennt-
un er að hefja námskeið fyrir full-
orðið fólk sem á við lesraskanir að
stríða. Framvegis – miðstöð um sí-
menntun í Reykjavík hefur í boði 30
stunda námskeið fyrir fólk yfir tví-
tugt sem haldið er lesröskunum.
Farið verður í ýmsar aðferðir til að
auðvelda lestur og byggja upp sjálfs-
mynd sem brotnað hefur vegna les-
örðugleika. Upplýsingar og skráning
eru virka daga kl. 9–12 í síma og á
vefnum www.fa.is/framvegis.
Á NÆSTUNNI
♦ ♦ ♦
Opinn fundur í Norræna húsinu í
dag, þriðjudaginn 7. október, kl.
16.3–18.30. Áhugahópur um verndun
Þjórsárvera boðar til fundarins til að
fjalla um áhrif uppistöðulóns í 568
m.y.s. á lífríki og landslag í Þjórs-
árverum.
Frummælendur verða Katrín Theo-
dórsdóttir lögmaður, Hlynur Ósk-
arsson vistfræðingur, Þóra Ellen
Þórhallsdóttir grasafræðingur og
Sigurður H. Magnússon gróðurvist-
fræðingur. Á fundinum mun Jóhann
Ísberg sýna nýlegar myndir úr
Þjórsárverum. Allir velkomnir og
aðgangur er ókeypis. Nánari upplýs-
ingar á www.thjorsarverfridland.is
Í DAG
SPARISJÓÐUR Kópavogs hefur
ákveðið að gerast aðalstyrktaraðili
meistaraflokks karla í handknattleik
hjá HK.
Einnig hefur Sparisjóðurinn stutt
við bakið á öllum yngri flokkum HK í
handbolta og fótbolta um nokkurra
ára skeið.
Þá hefur Sparisjóðurinn hefur
gefið verðlaunabikara og verðlauna-
peninga í fjölmörg mót sem HK hef-
ur haldið á liðnum árum, segir í
fréttatilkynningu.
SPK styrkir
meistaraflokk
karla hjá HK
♦ ♦ ♦