Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 47 ÞAU tíu félög sem léku í efstu deild karla í knattspyrnu árið 2001 fengu í gær glaðning frá UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Þau deila með sér 16 milljónum króna, fá 1,6 milljónir hvert, sem skal varið til barna- og unglinga- starfs. Þetta er hlutur af hagnaði af Meistaradeild Evrópu 2002– 2003. Félögin tíu eru ÍA, ÍBV, FH, Grindavík, Fylkir, Keflavík, KR, Fram, Valur og Breiðablik. Öll uppfylla þau það skilyrði UEFA að sinna barna- og unglingastarfi frá 12 ára aldri en KSÍ á jafnframt að fylgjast með því að greiðslunni sé rétt varið og gefa UEFA skýrslu um það. Áður höfðu Skagamenn fengið 13,2 milljónir frá UEFA fyrir þátt- töku í forkeppni Meistaradeildar- innar á síðasta ári, en inni í þeirri upphæð var sérstakur „meistara- bónus.“ ÍBV og Fylkir fengu 4,6 milljónir hvort félag fyrir þátttöku sína í UEFA-bikarnum, og FH 5,8 milljónir fyrir að komast í aðra umferð Intertoto-keppninnar. Þetta var greitt út í nóvember á síðasta ári. Að auki hefur KSÍ fengið í sinn hlut 17,6 milljónir frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar. Það renna því samtals 56 milljónir króna af hagnaðinum af þessari stærstu keppni félagsliða í heiminum til ís- lenskrar knattspyrnu. Tíu félög fá hagnaðar- greiðslur frá UEFA GRÍMUR Þórisson GÓ og Rósa Guðmundsdóttir GR tryggðu sér þátttökurétt á Audi Quattro Cup-golfmótinu sem fram fer í Sun City í S-Afríku þann 26.–30. okt., en Grímur og Rósa fengu samtals 46 punkta þegar þau unnu undankeppn- ina sem fram fór á Grafarholts- velli þann 4. okt., en keppendur voru um eitt hundrað. Mótinu hafði verið frestað í tvígang í haust vegna veðurs. Audi Quattro Cup er al- þjóðleg mótaröð, og í fyrsta skipti er Ísland meðal þátt- tökuþjóða. Alls hefur mótið verið haldið í 13 ár, í 34 löndum á síðasta ári en þá var fjöldi keppenda sá mesti frá upphafi eða um 76.000 á 560 mótum. Kjartan Einarsson og Jónas Heiðar Baldursson, báðir úr GR, enduðu í öðru sæti með 43 punkta en næstir komu Þröstur Ástþórsson og Ingvar Hreins- son, en þeir eru báðir úr GS. Grímur og Rósa fara til Sun City Ívar Ingimarsson segist í samtalivið Birmingham Post telja að staða sín hjá Wolves geti komið í veg fyrir að hann verði í byrjunarliði Ís- lands þegar Íslendingar mæta Þjóð- verjum í undankeppni EM í knatt- spyrnu í Hamborg á næsta laugardag. „Staða mín hjá Wolves er ekki eins og best verður á kosið þar sem ég hef ekki verið í aðalliðinu í langan tíma,“ segir Ívar sem ekki hefur leikið með aðalliði Wolves í ell- efu mánuði. „Ég kem ekki til greina í aðalliðið og verði ekki breyting á er ég tilneyddur til að hugsa stöðu mína upp á nýtt,“ segir Ívar í samtali við Birmingham Post. „Ég verð að velta því fyrir mér hvað er mér og ferli mínum fyrir bestu þegar svona stendur á. Ég hef leikið reglulega með vara- liðinu og tel mig vera kláran í slaginn gegn Þjóðverjum. Þjálfarinn veit hvað ég get og verði ég valinn þá mun ég leggja mig fullkomlega fram í leik- inn. Það er eitthvað um meiðsli í ís- lenska liðinu og það gæti reynst vatn á myllu mína.“ Ívar segir ennfremur að hann finni ekki fyrir pressu á íslenska liðinu og því megi heldur ekki gleyma að þótt leikurinn á laugardaginn skipti ís- lenska landsliðið miklu þá skipti hann ekki síður máli fyrir Þýskaland. „Þjóðverjar verða á heimavelli og því verður mikið álag á þeim. Það álag getum við nýtt okkur þar sem margir telja okkur ekki eiga möguleika í leiknum. Viðureignin við Þjóðverja er líkust bikarúrslitaleik og allir vita að í slíkum leikjum getur allt gerst,“ segir Ívar en tveir samherjar hans hjá Wolves, Colin Cameron og Kenny Miller, eru í skoska landslið- inu sem leikur við Litháen á sama tíma og íslenska liðið glímir við Þjóð- verjar. Tapi íslenska liðið eða geri jafntefli í Hamborg og Skotar leggja Litháa þá fara Skotar í umspilið um sæti á EM en Íslendingar sitja eftir. móts kvenna sem fram fer í Banda- ríkjunum. Svíar fögnuðu 2:1 sigri á Kanada ógurlega, liðið lék ekki sína bestu knattspyrnu í fyrri hálfleikn- um en stærstu stjörnur þeirra, Vict- oria Svenson og Hanna Ljungberg, voru mjög hættulegar þegar nálg- aðist vítateig Kanadamanna. Þeim tókst þó ekki að koma knettinum í markið frekar en leikmönnum Kan- ada, undir stjórn Norðmannsins Even Pellerud, sem lágu mjög aft- arlega á vellinum og freistuðu þess að skora úr hraðaupphlaupum. Seinni hálfleikurinn var allur í eigu Svía sem gerðu hvað eftir ann- að harða hríð að marki Kanada. Það var því gegn gangi leiksins að Kara Lang skoraði fyrir Kanada með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 65. mínútu. Marika Domanski Ly- fors, þjálfari þeirra, gerði í fram- haldinu tvær breytingar á liði sínu, Therese Sjögran og Josefine Öqvist komu inná fyrir Malin Anderson og Önnu Sjöström á 70. mínútu. Aðeins 9 mínútum síðar hamraði Malin Moström knettinum í netið eftir aukaspyrnu frá Victoriu Svenson. Markið hleypti auknum krafti í sænska liðið og fjórum mínútum fyrir leikslok skoraði varamaðurinn Josefine Öqvist sigurmark Svíanna eftir að leikmenn Kanada höfðu tap- að knettinum á eigin vallarhelmingi. Sigur sænska liðsins var sann- gjarn. Liðið lék með hjartanu og eft- ir að hafa lent marki undir sýndi lið- ið mikinn sigurvilja og uppskar úrslitaleik. Sænska kvennalandslið- ið hefur verið í mikilli framför undir stjórn Mariku Domanski Lyfors en Svíar hafa undanfarin ár staðið mjög í skugga Norðmanna sem léku til úrslita gegn Bandaríkjamönnum 1991 í Guangshou í Kína og urðu þar að láta sér lynda 2. sætið í 1:2 tapi. Fjórum árum síðar fengu þær upp- reisn æru er þær lögðu Þjóðverja að velli í Svíþjóð 2:0. Svíar fagna því að mæta Þjóðverjum í úrslitaleik. Þessi lið léku til úrslita á Evrópumótinu 2001 þar sem Þjóðverjar sigruðu 3:1 og hafa Svíar ekkert annað í hyggju en að hefna ófaranna í þeim leik. Reuters Þýsku stúlkurnar Bettina Wiegmann, Silke Rottenberg mark- vörður og Sonja Fuss fagna sigrinum á Bandaríkjamönnum. AP Bandarísku stúlkurnar Joy Fawcett og Mia Hamm voru vonsviknar eftir tapið fyrir Þjóðverjum. Ívar fær fá tækifæri hjá Wolves  PÁLL Einarsson fyrirliði Þróttar hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið og þar með er ljóst að hann leikur með liðinu í 1. deildinni á næstu leiktíð. Nokkur lið í úrvalsdeildinni sýndu áhuga á að fá hann til liðs við sig.  GUNNAR Sigurðsson, markvörð- ur, var útnefndur leikmaður ársins hjá Fram á lokahófi félagsins um helgina. Gunnar Þór Gunnarsson varð fyrir valinu sem efnilegasti leik- maður liðsins.  GÍSLI Kristjánsson, lyftingamaður úr Ármanni, varð annar í sínum þyngdarflokki, -105 kg, á Norður- landamótinu í ólympískum lyftingum í Svíþjóð um sl. helgi. Gísli snaraði 150 kg og 175 kg í jafnhhöttun, sem er Ís- landsmet. Samanlagt lyfti hann 325 kg, sem er einnig met. Sigurvegarinn í flokknum lyfti 327,5 kg.  JÓN Arnór Stefánsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, lék ekki æf- ingaleik með Dallas gegn Utah Jazz í Mexíkó. Dallas tapaði 90:85.  FABIEN Barthez markvörður hjá Manchester United sagði í viðtali við franska sjónvarpsstöð að líklega væru dagar hans taldir hjá Man. United og hann þyrfti að yfirgefa félagið til að viðhalda ferli sínum. Barthez hefur á undanförnum dögum verið orðaður við Paris SG.  DANSKI knattspyrnudómarinn Kim Milton Nielsen er meiddur og getur því ekki dæmt hinn þýðingar- mikla leik Tyrkja og Englendinga sem fram fer í Istanbul á laugardag- inn. Nielsen tognaði á fæti þegar hann dæmdi leik Viborg og AaB í dönsku úrvalsdeildinni um helgina og í gær afboðaði hann komu sína til Tyrk- lands. Pierluigi Collina dæmir leikinn í forföllum Nielsens.  PAUL Dickov, miðherji Leicester, mun ekki leika með skoska landslið- inu gegn Litháen í Glasgow á laug- ardaginn. Hann meiddist í leik gegn Fulham á laugardaginn. Þá er óvíst hvort Neil McCann og Paul Devlin geti leikið með vegna meiðsla. McCann meiddist á ökkla í leik með Southampton gegn Newcastle og Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Southampton, krafðist þess að McCann færi í læknisskoðin áður en haldið væri til Skotlands.  BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Skota, hefur áður séð á eftir sterkum leikmönnum – Rangersleikmennirnir Steven Thompson og Paul Lambert eru meiddir.  ARMIN Veh þjálfari Hansa Rostock sagði starfi sínu lausu í gær. Undir hans stjórn hefur liðinu vegnað illa og eftir tapleik á móti Leverkusen um liðna helgi situr liðið í fimmta neðsta sæti í þýsku 1. deildinni. Veh er annar þjálfarinn sem sem lætur af störfum í deildinni á tímabilinu en á dögunum rak Borussia Mönchen- gladbach þjálfara sinn Ewald Lienen. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.