Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 16
ERLENT 16 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKIR hermenneru lentir í blóðugumátökum við viðsjálaskæruliða. Föllnum, bandarískum hermönnum fjölgar stöðugt. Heimafyrir verður pólitísk andstaða sífellt meiri. Mörgum Bandaríkjamanninum finnst þetta hljóma kunnuglega. Eft- ir því sem átökin í Írak dragast meira á langinn og kostnaðurinn við þau verður meiri hafa samlíkingar við Víetnamstríðið sífellt orðið meira áberandi í opinberri umræðu. Fjölmargir – á þingi, í fjölmiðlum, innan hersins og víðar – eru farnir að benda á hliðstæður og andstæður Íraksstríðsins og Víetnamstríðsins, sem háð var fyrir þrem áratugum. Þá börðust bandarískir hermenn við norður-víetnamska stjórnarherinn í því augnamiði að koma í veg fyrir að kommúnistastjórnin í N-Víetnam næði Suður-Víetnam á sitt vald. Fullyrðingar bandarískra stjórn- valda um að vel gengi í stríðinu stönguðust oft á við fréttir frá víg- stöðvunum, þar sem andstæðingarn- ir voru sagðir veita harða mót- spyrnu. Bandarískt samfélag klofnaði í afstöðunni til þess, hvort halda bæri áfram viðleitninni til að hefta útbreiðslu kommúnisma, eða verða á brott frá Víetnam til að koma í veg fyrir frekara mannfall. Svo fór, að herinn var kallaður heim, ótryggt vopnahlé varð að engu, og N-Víet- namar lögðu suðurhlutann undir sig 1975. Hernaðarsagnfræðingar segja að aðstæður á vígstöðvunum í Írak séu í mörgum tilvikum í engu líkar því sem var í Víetnam. En þingmenn, álitsgjafar og fleiri hafa fundið nægi- lega margar hliðstæður til að hafa áhyggjur af því, að Bandaríkjamenn kunni nú að vera að endurtaka ýmis þeirra mistaka sem þeir gerðu í Víet- nam. „Okkur mun ekki takast að svæla út uppreisnarmennina á með- an [íraskur] almenningur er tilbúinn til að skjóta yfir þá skjólshúsi,“ sagði Jim Marshall, þingmaður demókrata frá Georgíu. „Það tókst ekki í Víet- nam og mun ekki takast [í Írak].“ Kenna fjölmiðlum um Silvestre Reyes, þingmaður demó- krata frá Texas, er barðist í Víetnam, benti ennfremur á, að núna væru bandarísk stjórnvöld að atyrða fjöl- miðla fyrir að beina athyglinni að því sem miður færi. „Við erum farin að kenna fjölmiðlum um, en það varð einmitt að stórmáli í Víetnam.“ Þeir erfiðleikar sem bandaríski landherinn hefur lent í vegna að- gerðanna í Írak kallaði á aðra sam- líkingu. Heather Wilson, þingmaður repúblíkana frá Nýju Mexíkó, hvatti til þess að herinn yrði stækkaður, því ella myndi Íraksstríðið leiða til manneklu, rétt eins og raunin hafi orðið í kjölfar Víetnamstríðsins. John Keane hershöfðingi, sem í síðustu viku lét af embætti aðstoð- arstarfsmannastjóra hersins, segir að hann sjálfur og aðrir yfirmenn hersins hafi „reynt það á sjálfum sér“ og hafi skilning á áhættunni. Hann sagði Írak vera að sumu leyti svipað og Víetnam, en að öðru leyti ólíkt. Munurinn væri m.a. fólginn í því, að Bandaríkjamenn hafi þegar steypt af stóli þeirri stjórn er setið hafi að völdum í Írak og séu langt komnir með að byggja upp nýtt stjórnmála- og efnahagskerfi í land- inu. „Það sem kannski er svipað, er að andspyrnan kann að verða lang- vinn, og að bandarískur almenningur verður að sýna þolinmæði.“ Ýmsir sem nú skipa forystusveit hersins börðust í Víetnam. Richard Myers, sem er yfirmaður flughersins og forseti herráðsins, háði um 600 loftorrustur í Víetnam. Peter Pace, sem er yfirmaður landgönguliðsins og varaforseti herráðsins, var her- deildarforingi í Víetnam. Donald Rumsfeld varnarmálaráð- herra var starfsmannastjóri Hvíta hússins 1975, þegar Gerald Ford var forseti og síðustu, bandarísku hern- aðarráðgjafarnir voru kallaðir heim frá Víetnam. Seinna það ár settist hann í fyrsta sinn í stól varnarmála- ráðherra, og gegndi því embætti til 1977. „Allt breytt og ekkert breytt“ Fyrir tæplega hálfum mánuði, þegar kona sem var að mótmæla her- setu Bandaríkjamanna í Írak gerði hróp að Rumsfeld er hann var að halda ræðu, greip hann til líkingar við mótmælin á tímum Víetnam- stríðsins. „Fyrir tuttugu og fimm ár- um, þegar ég var varnarmálaráð- herra, komu Berriganbræðurnir og grófu grafir fyrir framan húsið hjá okkur,“ sagði Rumsfeld og skírskot- aði til Daniels og Philips Berrigan, tveggja kaþólskra presta sem voru meðal virkustu andstæðinga Víet- namstríðsins. „Þannig að mér sýnist að allt sé breytt en ekkert sé breytt.“ Demókratinn Max Cleland, sem var öldungadeildarþingmaður fyrir Georgíu og missti báða fótleggina og annan handlegginn í Víetnamstríð- inu, sagðist sjá margt líkt með því hvernig George W. Bush forseti leiddist út í Íraksstríðið og hvernig Lyndon B. Johnson, þáverandi for- seti, jók hlutdeild Bandaríkjamanna í Víetnam. Cleland skrifaði grein í blaðið Atl- anta Constitution í síðasta mánuði og sagði þar, að Bush, líkt og Johnson, hefði tekið við embætti með þeim orðum að of mikið væri lagt á herðar bandaríska hersins, en á laun haft uppi áætlanir um stríð og hafi stutt mál sitt gölluðum leyniþjónustuupp- lýsingum og völdum upplýsingum til þingsins. Sagði Cleland að ríkis- stjórn Bush hefði virt að vettugi margar lexíur sem lærst hefðu í Víet- nam og „att þjóðinni í ógöngur í eyði- mörkinni“. Samanburður langsóttur En Dale Andrade, sagnfræðingur við Hernaðarsögumiðstöð hersins, segir að samanburður á stríðinu í Víetnam og herförinni til Íraks væri langsóttur vegna þess að aðstæður í löndunum tveim væru svo ólíkar. Í Víetnam áttu kommúnistaskærulið- arnir sér heimavöll í norðurhluta landsins sem Bandaríkjamenn gátu ekki komist inn á, auk þess að eiga hæli í nágrannalöndunum, Laos og Kambódíu. Einnig nutu þeir aðstoð- ar Kínverja og Sovétmanna. Í Írak, segir Andrade, eiga and- stæðingar Bandaríkjamanna sér engan heimavöll þar sem þeir eru óhultir, geta hvergi leitað hælis og njóta ekki stuðnings neinna utanað- komandi sem sjá þeim fyrir birgðum. Ennfremur fari því fjarri, að írösku skæruliðarnir séu jafn vel útbúnir og hafi jafn sterka stöðu og víetnömsku skæruliðarnir hafi haft. „Sú skoðun sem mér finnst verst að heyra meðal fólks, er að um leið og skæruhernaður hefst sé allt tapað, að þá sé enginn möguleiki á sigri,“ segir Andrade, sem er að skrifa sögu Víetnamstríðsins. „En í raun og veru leiðir sagan í ljós, að skæruliðar hafa yfirleitt orðið undir.“ Helmut Sonnenfeldt, sem var þjóðaröryggisráðgjafi Richards Nix- ons forseta og ráðgjafi í utanríkis- ráðuneytinu í forsetatíð Fords, segir að pólitískar deilur vegna Íraks- stríðsins jafnist hvergi nærri á við þá mótmælaöldu sem skall á þegar Víetnamstríðið stóð. „Þá var ósættið mun víðtækara og andstaðan harð- ari.“ En yfirmönnum hersins er ofar- lega í huga sá möguleiki, að álit al- mennings á hersetunni í Írak falli, og þeir rifja upp gjána sem myndast hafi á milli jákvæðra yfirlýsinga stjórnvalda og raunveruleika víglín- unnar í Víetnam. „Það er algert lyk- ilatriði að við segjum [þingmönnum] hvað okkur finnst, og að við látum þetta ekki snúast upp í andhverfu sína, líkt og gerðist í Víetnamstríð- inu, þegar við sögðum í rauninni ekki sannleikann,“ segir John Abizaid hershöfðingi, yfirmaður stjórnstöðv- ar hersins. Reuters Bandarískir hermenn í Bagdad lentu í ryskingum þegar fyrrverandi íraskir hermenn kröfðust launaðrar vinnu. Hersetunni í Írak líkt við Víet- namstríðið Ýmsir þykjast orðið sjá líkindi með hersetu Bandaríkjamanna í Írak og stríðinu sem þeir háðu í Víetnam fyrir um þrjátíu árum. En aðrir segja aðstæður svo ólíkar að ekki sé unnt að leggja þetta að jöfnu. The Washington Post. ’ En í raun og veruleiðir sagan í ljós, að skæruliðar hafa yfir- leitt orðið undir. ‘ BANDARÍSKA forsetaembættið hefur fyrirskipað umfangsmikla endurskipulagningu á tilraunum Bandaríkjamanna til að stemma stigu við ofbeldisverkum í Írak og Afganistan, að því er The New York Times greindi frá í gær. Einnig skuli hraðað endur- uppbyggingu í báðum löndunum, að því er blaðið hefur eftir hátt- settum, bandarískum embættis- mönnum. Komið verður á fót nýjum „stöð- ugleikahópi“ í Írak, og verður Condoleezza Rice, þjóðarörygg- isráðgjafi Georges W. Bush for- seta, yfirmaður hans. Segir frétta- skýrandi The New York Times að svo virðist, sem Bandaríkjastjórn sé með þessu að reyna að auka ítök sín í skipulagningu baráttunnar gegn hryðjuverkum og uppbygg- ingu stjórnmála- og efnahagslífs í löndunum tveim. Hugmyndum um þessa endurskipulagningu var lýst á minnisblaði sem Rice sendi sl. fimmtudag til Colins Powells utan- ríkisráðherra, Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra og George Tenet, yfirmanns leyniþjónust- unnar, CIA. Rice sagðist sjálf hafa sett hugmyndirnar á blað ásamt Dick Cheney varaforseta, Powell og Rumsfeld í kjölfar viðræðna sem hún hefði átt við Bush forseta síðla í ágúst. Að sögn The New York Times var „stöðugleikahópnum“ komið á fót vegna vonbrigða Bush út af þeim áföllum er Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir í Írak og hve lítið virðist hafa þokast í Afganistan, þar sem útlit er fyrir að talíbönum sé að vaxa ásmegin á ný. Reuters Condoleezza Rice ræðir við þá Colin Powell utanríkisráðherra og Dick Cheney varaforseta í Hvíta húsinu. Aðgerðirnar í Írak og Afgan- istan verði endurskipulagðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.